Dagur - 11.12.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 11. desember 1992
NÝJAR BÆKUR
Sól skín
á krakka
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér barnabókina Sól skín á krakka
eftir Sigrúnu Eldjárn. Sigrún hefur
málað litmyndir í bókina, en hún er
gerð að frumkvæði Rauða kross ís-
lands og gefin út í samvinnu hans og
Forlagsins.
í kynningu Forlagsins segir:
„Sögu Sigrúnar Eldjárn er ætlað að
vekja athygli á ólíku hlutskipti
barna í heiminum, en sagan segir frá
Sunnu og Pétri sem fá að fara með
mömmu og pabba til Eþíópíu í
Afríku. Þá komast þau að því að allt
er öðruvísi en heima á íslandi."
Sól skín á krakka er 34 bls. og
kostar kr. 980.
Myndaatlas
Iðunnar
Iðunn hefur gefið út óvenjulega
kortabók sem einkum er ætluð ungu
fólki. Nefnist hún Myndaatlas
Iðunnar og nær yfir öll lönd og álfur
veraldar.
Kortin í bókinni eru óvenjuleg að |
því leyti að á þeim sjást ekki aðeins
fjöll, ár, hverir og jöklar, heldur
einnig stórbyggingar, áhugaverðir
staðir, fólk, dýr, plöntur, fæðuteg-
undir og þjóðaríþróttir.
Hverju korti fylgir rammagrein
með gagnlegum upplýsingum og
margvíslegum fróðleik um viðkom-
andi lönd. Þar eru litljósmyndirsem
sýna landslag eða gróður og dýralíf.
Einnig eru myndir af öllum þjóðfán-
um og sagt frá frægum byggingum
og sérkennilegum náttúrufyrirbær-
um.
Óskar Ingimarsson þýddi bókina.
Draumur um ást
Ut er komin hjá Hörpuútgáfunni
skáldsagan „Draumur um ást“ eftir
danska rithöfundinn Erling Poul-
sen.
Þetta er 17. bókin í bókaflokkn-
um Rauðu ástarsögurnar. Á bóka-
kápu segir m.a.: „Draumur um ást
er sagan af Lenu Birk og baráttu
hennar við að tryggja framtíð kjör-
sonarins Kims. Hver gæti annast
hann, þegar banvænn sjúkdómur
drægi hana til dauða? Hún varð að
taka örlagaríka ákvörðun, sem nán-
ustu vinir hennar undruðust...“
Bókin „Draumur um ásf' er 170
bls. Þýðandi er Skúli Jensson.
Milli vita
Komin er út unglingabókin Milli
vita eftir Þorstein Marelsson.
„Söguhetjan er 15 ára strákur sem
finnst veröldin stundum standa á
haus og allt ganga sér í óhag. En
þrátt fyrir allt er spennandi að vera
unglingur og aldrei er lognmolla í
félagahópnum. Gamansemi og
bjartsýni einkennir söguna sem sýn-
ir heim unglinga og foreldra þeirra
frá raunsæju sjónarhorni," segir í
kynningu útgefanda.
Þorsteinn Marelsson hefur fengist
við dagskrárgerð fyrir börn og ungl-
inga og skrifað barnasögur. Þetta er
fyrsta bók hans sem gefin er út af
Máli og menningu. Bókin er 154
blaðsíður.
Sagan um Svan
Hjá Skjaldborg er komin út Sagan
um Svan eftir Anders Jacobsson og
Sören Olsson, höfunda hinna vin-
sælu bóka um Bert og dagbækurnar
hans.
Svan er í fyrsta bekk í skólanum.
Hann er nú þegar dálítið kvenna-
gull. En það er leyndarmál. Ef
strákarnir sem Svanur þekkir kæm-
ust að því mundi hann deyja af
smán. Sagan um Svan er ætluð yngri
lesendum. Svanur er sjö ára og
ævintýri hans í skólanum eru engu
lík...
Sagan um Svan kostar kr. 990.
Heimskringla
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér ljóðabókina Heimskringlu eftir
Þórarin Eldjárn. Sigrún Eldjárn
myndskreytir.
í kynningu Forlagsins segir: „Hér
er ungum lesendum boðið inn í
kynjaveröld ljóða og mynda sem
systkinin Þórarinn og Sigrún töfra
fram á síðurnar. í ljóðum Þórarins
er Heimskringla heimsk og ringluð
kind, og Grýla vermir stóla í
Hamrahlíðarskóla. f fyrra kom út
bókin Óðfluga þar sem Þórarinn og
Sigrún lögðu saman hæfileika sína.
Heimskringla er ekki síður forvitni-
leg og furðuleg.“
Heimskringla er 34 bls. og kostar
kr. 980.
Flokkur
tilraunabóka
Skemmtilegar tilraunir er nýr flokk-
ur tilraunabóka sem Mál og menn-
ing gefur út.
Bækurnar beina athygli barna að
mismunandi eiginleikum efna. Hér
er að finna hugmyndir að fjölmörg-
um tilraunum og eru leiðbeiningar
útskýrðar með ljósmyndum. Það
sem til þarf eru einfaldir hlutir og
efni sem finnast á hverju heimili.
Bækurnar sem nú koma út heita
Loft og Vatn. Hvor bók er 29 bls. að
stærð.
Litarím
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út
bókina Litarím. Tryggvi Olafsson
gerði myndirnar en Þórarinn Eld-
járn orti vísur um litina. Litarím
kemur samtímis út í Danmörku á
vegum Forlagsins Brpndum með
texta eftir Peter Poulsen.
„í bókinni lýsa þeir Tryggvi og
Þórarinn öllum frumlitunum í
myndum og kveðskap," segir í
kynningu Forlagsins. „Hér fá lítil
börn lykil að undraveröld litanna,
og hnyttnar vísur auðvelda þeim að
festa sér litina í rninni."
Litarím er 28 bls. og kostar kr.
980.
Fríða fram-
hleypna kjánast
Skjaldborg hefur sent frá sér bókina
Fríða framhleypna kjánast, eftir
dönsku skáld- og leikkonuna Lykke
Nielsen.
Þetta er sjötta bókin um Fríðu
sem er óvenju athafnasöm níu ára
gömul stúlka og hefur sérstaka hæfi-
leika til að lenda í óvæntum ævintýr-
um. Hún fer á klassíska tónleika
með fulla fötu af skiptimynt og
byggir snjóhús á tveimur hæðum.
Uppátækin eru óendanleg og grát-
brosleg.
Fríða framhleypna kjánast kostar
kr. 990.
Allar mínar þrár
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
nýja ástarsögu, Allar mínar þrár,
eftir Bodil Forsberg.
Á bókarkápu segir m.a.: „Allar
mínar þráf‘ er spennandi ástarsaga
um stúlku, sem lendir í neti glæpa-
manna. Þeir beita dáleiðslu og
ofskynjunarlyfjum til þess að rugla
fórnarlambið í ríminu. Ungur
blaðamaður kemst fyrir tilviljun í
málið, en hin flókna svikamylla
virðist ekki auðleyst. „Allar mínar
þrár“ er bók sem lýsir baráttu ungr-'
ar stúlku og blaðamanns við harð-
svíraða glæpamenn. Ástin er samof-
in þeirri baráttu."
Bókin er 176 bls. Þýðandi er Skúli
Jensson.
Elsa María og
litlu pabbarnír
Elsa María og litlu pabbarnir heitir
barnabók sem Skjaldborg hefur gef-
ið út.
Elsa María á ekki bara einn
pabba eins og flest börn, heldur sjö.
Þeir eru svo litlir að ef hundur eltir
þá eiga þeir ekki annarra kosta völ
en að flýja upp í næsta tré...
Bókin er prýdd fjölda litmynda
sem höfundurinn, Pija Lindenbaum
hefur sjálf gert.
Bókin kostar kr. 990.
Þjóðfélagið
- Helgispjall
Iðunn hefur gefið út nýja bók eftir
Matthías Johannessen, skáld og rit-
stjóra. Nefnist hún Þjóðfélagið -
Helgispjall og er safn ritgerða og
hugleiðinga höfundar.
I kynningu útgefanda segir m.a.:
„Víða er kveðið fast að orði í þess-
ari bók og skoðunum hvergi leynt.
Það fer þó aldrei á milli mála að hér
heldur skáld á penna og „skáld eru
höfundar allrar rýni,“ eins og Snorri
Sturluson sagði forðum.“
Guðbergur Bergsson og Þóra Krist-
ín Ásgeirsdóttir.
Guðbergur
Bergsson
metsölubók
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út
bókina Guðbergur Bergsson met-
sölubók. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
ræðir við skáldið.
í kynningu Forlagsins segir:
„„Þetta er engin ævisaga - og þó...“
segir Guðbergur. Engu að síður
kemur hann víða við og lýsir á
ógleymanlegan hátt reynslu bernsk-
unnar í Grindavík, trúr þeirri skoð-
un sinni að það landslag og um-
hverfi sem maðurinn elst upp við í
æsku verði að hugarfylgsni, skap-
gerð og þankagangi hans síðar á
ævi. Hann rekur síðan veru sína í
Reykjavík og á Spáni, lýsir kynnum
sínum af spænskum bókmenntum
og menningu, leiðinni til skáldskap-
ar og örlæti listarinnar, og fjallar
tæpitungulaust um muninn á heims-
menningu og heimóttarskap. Bókin
geymir einnig merkar heimildir um
SUM-félagsskapinn og þann tíðar-
anda sem ríkti á íslandi er fyrstu
skáldsögur Guðbergs komu út.“
Guðbergur Bergsson metsölubók
er 227 bls., prýdd miklum fjölda
mynda. Jón Ásgeir Hreinsson hann-
aði kápu. Prentsmiðjan Oddi hf.
prentaði. Verð kr. 2.980.
Árstíðaferð
um innri mann
Komin er út ný ljóðabók eftir
Matthías Johannessen. Nefnist hún
Árstíðaferð um innri mann og er
það Iðunn sem gefur bókina út.
Matthías hefur sent frá sér á ann-
an tug ljóðabóka, en auk þeirra hef-
ur hann víða komið við á ritvellin-
um og sent frá sér m.a. samtalsbæk-
ur, skáldsögur, smásögur og ritgerð-
ir.
Maístjarnan
og fleiri lög
Vaka-Helgafell hefur gefið út bók-
ina Maístjaman og fleiri lög.
Bókin hefur að geyma safn laga
Jóns Ásgeirssonar tónskálds við ljóð
Halldórs Laxness. Nú geta unnend-
ur þeirra í fyrsta sinn fundið þau á
einum stað í útsetningu fyrir söng-
rödd og píanó.
Gunnar Baldursson hannaði kápu
á bókina Maístjarnan og fleiri lög en
Magnús Hjörleifsson ljósmyndaði.
Bókin kostar kr. 1.230.
Út í hönd
Út í hönd nefnist skáldsaga sem
útgáfufyrirtækið Fróði hf. hefur nú
gefið út. Bókin er eftir dönsku
skáldkonuna Synnöve Söe og er í
íslenskri þýðingu Steinars J. Lúð-
víkssonar.
Þetta er önnur bók Söe sem kem-
ur út á íslensku en í fyrra gaf Fróði
hf. út bókina / tætlum.
Sögusvið Út í hönd er lítið veit-
ingahús í New York þar sem lífið
gengur sinn vanagang en eigi að síð-
ur er veitingahúsið heimurinn í
hnotskurn. Aðalsöguhetjan ergeng-
ilbeinan Coco sem dreymir um að
verða leikkona. Inn í hversdagsleika
veitingahússins kemur síðan ungur,
heimilislaus drengur sem fólkið, og
þá ekki síst Coco, tekur miklu ást-
fóstri við. Skyndilega opnast Coco
nýir möguleikar. Þegar hún kemur
síðar í heimsókn í veitingahúsið
hafa þar orðið miklar breytingar...
Út í hönd er 152 blaðsíður og
kostar kr. 1.890.
Thelma
- saga Thelmu
Ingvarsdóttur
Iðunn hefur geilð út bókina
Thelma - saga Thelmu Ingvars-
dóttur. Rósa Guðbjartsdóttir
skráði.
„Þetta er saga stúlkunnar úr
Skerjafirðinum sem sautján ára
gömul hélt ein út í heim til að láta
drauma sína rætast. Hún var kjör-
in fegurðardrottning Norðurlanda
og var um skeið ein eftirsóttasta
fyrirsæta heims. Hún kynntist
tignarmönnum og frægum stjörn-
um, ferðaðist um heiminn og
skreytti forsíður tískublaða, giftist
ungum og glæsilegum auðmanni
og lifði við velsæld og allsnægtir.
En eftir nær tuttugu ára hjóna-
band komst hún að því að ham-
ingjan er hverful, önnur kona
hafði tekið manninn hennar frá
henni,“ segir í frétt frá útgefanda.
Bókin er prýdd Ijölda mynda.
Ef einhverjir eru eftir...
Þeir aðilar sem hafa áhuga á að senda
jólakveðjur í Degi og ekki hefur verið haft
samband við, er bent á afgreiðslu
blaðsins.
Opið frá kl. 8-17 virka daga og föstudaga
frá kl. 8-16.
auglýsingadeild
sími 24222.