Dagur - 11.12.1992, Blaðsíða 9
Föstudagur 11. desember 1992 - DAGUR - 9
Ábyggilega hægt að setja
mig á einhveija hillu
- segir Sverrir Páll Erlendsson,
höfundur bókarinnar Litlar sögur
Jólapakki
veiðimannsins
Sverrir Páll Erlendsson,
menntaskólakennari á Akur-
eyri, er einn þeirra norðlensku
höfunda, sem kveða sér hljóðs
fyrir þessi jól. Litlar sögur
heitir bók hans og hefur aö
geyma sextán smásögur.
Utgefandi er Skuggsjá.
„Þesssar sögur hafa orðið til á
tíu árum eða svo. Þær elstu lentu
hins vegar niðri í skúffu á meðan
ég vann að ljóðabókinni minni,
Þú og heima. sem kom út 1988.
Ég kann einhvern veginn ekki þá
list, sem sumir höfundar guma af,
að vinna að tvenns konar hug-
verkum í einu. Yngstu sögurnar
eru þriggja til fjögurra ára þannig
að ég hef verið tilbúinn með
þetta handrit í tvö til þrjú ár,“
sagði Sverrir Páll þegar hann var
spurður um bókina.
- Hvað hefur rekið þig til að
skrifa þessar sögur?
„Ég veit það eiginlega ekki.
Þetta er einhver ólýsanleg þörf
eða þrá til að skrifa. Stundum
dett ég ofan á hugmynd eða sé
eitthvert tilvik sem mér finnst
ástæða til að vinna með, skrifa
niður glefsur og safna þeim
saman. Mér finnst einhvern veg-
inn betra að vinna að þessu á vet-
urna en á björtu sumri. Gallinn
er bara sá að á veturna hefur
kennari of mikið að gera og það
er erfitt að finna tíma handa
sjálfum sér. Auðvitað væri
afskaplega gaman að geta ein-
beitt sér að skriftum í nokkra
mánuði. Satt best að segja langar
mig til að prófa það og mér finnst
ég eiga eftir að vinna úr ýmsum
hugmyndum sem ég á í fórum
mínum.
En varðandi það að gefa út
verk mín stend ég sjálfsagt að
sumu leyti í svipuðum sporum og
stjórnmálamaður sem fer óbeð-
inn í framboð. Hann lýsir því þá
gjarnan fjálglega að hann hafi
verið hvattur mjög til þess! Við
skulum að minnsta kosti segja
það hér.“
- Eiga sögurnar í Litlum sög-
um eitthvað sameiginlegt?
„Nei, ekki að öðru leyti en því
að einn og sami maðurinn skrifar
þær. Þetta eru afskaplega ólíkar
sögur. Sumar eru byggðar á
minningabrotum og reynslu og
aðrar eru hreint hugarflug. Þær
sögur sem eru sviðsettar gerast á
íslandi, að einni undanskilinni.
Ég er nokkurn veginn viss um að
flest af því sem fram kemur í
þessum sögum er efni sem fólk
þekkir úr hversdagsleikanum. Til
dæmis er í einni sögunni fjallað
um ýmislegt skrítið við kosningar
og atkvæðasmölun, í annarri seg-
ir frá leikhúsferð og í þeirri
þriðju er sagt frá langri ökuferð,
þar sem ökumaður er ekki alltaf
að hugsa um veginn framundan.
Ég held að efni bókarinnar sé
umfram allt mannlegt, eitthvað
sem allir ættu að þekkja."
Gaman að vita hvað
öðrum finnst
Sverrir Páll er eins og áður segir
menntaskólakennari, kennir
íslensku við Menntaskólann á
Akureyri, meðal annars grein-
ingu bókmennta. Hvernig skyldi
hann flokka eigin bók?
„Þetta er ekki góð spurning.
Sennilega er rétt af mér að reyna
ekki að dæma eða flokka bókina
sjálfur. En ég hef stundum verið
að velta þessu fyrir mér, ekki síst
vegna þess að ég er kennari og
kenni nemendum ýmislegt í
Svcrrir Páll Erlendsson: „Ég held að efni bókarinnar sé umfram allt
mannlegt, eitthvað sem allir ættu að þekkja.“ Mynd: Robyn
Pakki I.
Kaststöng Daiwa SGE S-9.
Opið hjói Daiwa J 1650X.
Jólatilboð kr. 5.312,-
Pakki II.
Kaststöng Daiwa CR S-9.
Opið hjól Daiwa MG 2650 H.
Jólatilboð kr. 9.952,-
Pakki lll.
Kaststöng Daiwa CS 98-9S.
Kasthjól Daiwa 600 M.
Jólatilboð kr. 15.312,
sambandi við bókmenntir. Iðu-
lega fjalla ég um flokkun bók-
mennta, stefnu, strauma, tákn og
annað sem þar kemur við sögu og
maður veltir því óneitanlega fyrir
sér hvort þeir höfundar séu til
sem skrifi beinlínis eftir ákveð-
inni formúlu. Ég er ekki í nokkr-
um vafa um að slíka sögu væri
hægt að skrifa, en ansi er ég
hræddur um að hún yrði blóð-
laus. Ég held að það sé ekki leið-
in til að gæða verk lífi. Líklega
ræður hjartað í manni sjálfum
mestu um hvort sagan gengur
upp eða ekki.
Sjálfsagt er hægt að finna ýmsa
strauma og stefnur í bókinni og
ábyggilega má setja mig á ein-
hverja hillu. Þó að ég ætti að hafa
allar forsendur til að dæma efni
bókarinnar, þá get ég ekki gert
það vegna þess að viðfangsefnið
stendur of nærri mér. Hins vegar
, væri býsna gaman að vita hvað
öðrum finnst.“
Þrautaganga milli
bókaútgefenda
Sverrir Páll setti bókina og bjó til
prentunar. Mynd á bakhlið tók
Bernharð Valsson, nemandi
Sverris Páls, sem er ljósmyndari,
búsettur í París, og annar nem-
andi hans, Friðrik Óttar Friðriks-
son, nemi í arkitektúr í
Hamborg, hannaði bókarkápu.
Eins og áður segir var handrit
að Litlum sögum tilbúið fyrir
tveim til þrem árum. En þá hófst
löng þrautaganga milli bóka-
útgefenda. Enginn vildi koma
handritinu fyrir almenningssjón-
ir. Ekki það að smásögurnar
þættu ekki nógu góðar. í flestum
tilfellum gáfu bókaútgefendur þá
skýringu að á þessum þrenginga-
tímum væri of mikil áhætta að
gefa út bók eftir óþekktan
höfund. En að lokum fann Sverr-
ir útgefanda, sem var nægilega
áræðinn. Og loks eru Litlar sögur
komnar fyrir almenningssjónir.
Vantar öflugt bökaforlag
á Akureyri
Sverrir Páll ræddi áfram um
bókaútgáfu og sagði það alvar-
legt að ekki væri lengur útgáfu-
fyrirtæki á Akureyri, sem gæfi út
annað efni en reyfara. „Mér
finnst engin ástæða til að gagn-
rýna að hér skuli vera útgáfa sem
gefur út rauðar ástarsögur og
annað slíkt, því það er afþrey-
ingarefni og á fullan rétt á sér. En
hins vegar finnst mér skelfilegt að
á Akureyri skuli ekki lengur vera
bókaforlag, sem er nægilega
öflugt til að gefa út sæmilega
metnaðarfullar bækur. Það er
afskaplega erfitt fyrir höfunda
hér á Akureyri að þurfa að leita
suður til Reykjavíkur til þess að
fá verk sín gefin út. Stóru forlög-
in virðast þar að auki hafa marga
fasta höfunda á sínum snærum og
því er ekki auðvelt fyrir nýjan
mann að komast inn í röðina. Ég
er ansi hræddur um að seint komi
^aftur sú tíð, þegar menn gátu
treyst á að Ragnar í Smára gæfi
nýjum höfundum tækifæri. Ég
held að sé leitun að því bókafor-
lagi sem hefur þann metnað að
vera tilbúið að koma nýjum
höfundum á framfæri," sagði
Sverrir Páll Erlendsson. óþh
PakkiIV.
Flugustöng Daiwa NC 98-8.5 HIC.
Fluguhjol Daiwa 708.
Flugulína Daiwa Osprey.
Undirlína.
Jólatilboð kr. 11.844,-
★ Nýtt greiðslukortatímabil
Opið laugardaginn 12. desember frá kl. 10-18.
EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 - Simi 22275
BÓKABÚÐ JÓNASAR
Allar nýju jólabæloimar
— milvið úrval eldri bóka
Jólakort og gjafavara í úrvali
Verið velkomin
BÓKABÚÐ ;.:v„
JONASAR Jlll WIIÍb
Hafnarstræti 108 - Sími 96-22685