Dagur - 11.12.1992, Blaðsíða 14
J4 - DAGUR - Föstudagur 11. desember 1992
„Halldór er helvítís kjaftur...“
- spaugileg atvik og uppákomur úr heimi alþingismanna
Spaugileg atvik og uppákomur
sem tengjast þingheimi eru
vettvangur nýrrar bókar sem
þeir Árni Johnsen alþingis-
maður og Sigmund Jóhanns-
son teiknari hafa sett saman.
Bókin nefnist „Enn hlær þing-
heimur“ og er óbeint framhald
af bókinni „Þá hló þingheim-
ur“ sem kom út í fyrra og hlaut
ágætar viðtökur.
Hér á eftir birtum við nokkrar
gamansögur og vísur úr bókinni,
ásamt tilheyrandi myndskreyt-
ingum Sigmunds.
„Gáfur hefur Guð þér lánað,
get ég svaríð,
en eðlið hefur ekkert skánað,
undanfaríð, “
orti Hjálmar Jónsson prestur og
þingmaður til Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra eftir skemmti-
lega yrkingalotu margra alþing-
ismanna í þingveislu veturinn
1992. Sumarið sama ár í tilefni
sextugsafmælis Ólafs G. Einars-
sonar menntamálaráðherra orti
séra Hjálmar:
Við þig gjaman vildi ég skála,
veita lofmeð orðsins brandi,
höfuðskepnu menntamála
og menningar í þessu landi.
Honum kippir í kynið, séra
Hjálmari á Sauðárkróki, afkom-
anda Bólu-Hjálmars, og sneggri
að semja og flytja í bundnu máli
en óbundnu. Alloft hefur hann
tekið sæti á Alþingi á undanförn-
um árum sem þriðji maður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra og þá liggur oft
beint við að fanga stemmninguna
í vísnabönd.
Á þingi veturinn ’92 var nokk-
ur umræða vegna fyrirspurnar
séra Hjálmars Jónssonar um
samkomulag sem landbúnaðar-
ráðuneytið var að gera um sér-
stakt frystigjald á nautakjöt þar
sem það var orðið hvetjandi að;
koma kúnum í frost og vildi séra
Hjálmar meina að þessar skýrslu-
kýr í kerfinu gætu kallast Blön-
dalskýr ef úr yrði. Kastaði fyrir-
spyrjandi fram vísu í tilefni máls
síns:
Vandi bænda nú er nýr
og neytendur í losti.
Bráðum verða Blöndalskýr
borðaðar úr frosti.
Baulaðu nú skrattakollan mín
„Aðeins fyrir brjósti ber
beljurnar í neðra.“
VEITINGASALIR II. HÆÐ
Glæsilegt jólahlaðborð
Föstudags- og laugardagskvöld frá
kl. 18.00-21.30
Níels Ragnarsson
leikur Ijúf jólalög á píanóið
Kjörið tækifæri fyrir starfsfólk fyrirtækja og verslana.
★
Á aÖ halda árshátíð?
Litla, stóra, dýra, ódýra, fína eða frjálslega.
Veitingasalir okkar bjóða upp á fjölbreytta möguleika
á árshátíðum fyrir 15 til 250 manna hópa.
Útbúum allan mat og aðrar veitingar
allt eftir óskum hvers og eins.
AHarnánarí upplýsingar gefnar hjá veitingastjóra ísíma 22200.
Hreiðar Karlsson á Húsavík var
ekki aldeilis hress með framgang
málsins, því landbúnaðarráð-
herra gekk aldrei frá samkomu-
laginu um málið og skaut Hreiðar
vísu að séra Hjálmari vegna fram-
gangs hans.
Heldur illa hagar sér
í hópi landsins feðra,
aðeins fyrír brjósti ber
beljurnar í neðra.
Halldór Blöndal er frægur fyrir
langar ræður og málgleði í sölum
Alþingis, þó minna hafi farið fyr-
ir því síðan hann varð ráðherra.
Sighvatur Björgvinsson orti:
Þú varst heppinn ad vera ekki með bindið sem þú varst alltaf með á EES
fundunum, Nonni minn.
Halldór er helvftis kjaftur,
hann er þann veginn skaptur,
að þegar hann þagnar
og þingheimur fagnar,
þá opnar hann kjaftinn aftur.
Á Norðurlandaráðsþingi í mars
1992 talaði Hjörleifur Guttorms-
son mikið en Sighvatur orti:
Pegar hann endar sín hjörl, hjörl
og heldur því öllu til streitu
er þá furða þó örl-, örl-
i talsvert á þreytu.
Góða veislu gjöra skal
Davíð Oddsson forsætisráðherra
brá sér út í búð til kaupmannsins
á horninu og keypti slatta af mat
handa hundinum sínum. Granni
Davíðs kom inn í búðina í þann
mund sem Davíð var að setja
dósamatinn ofan í innkaupa-
poka. Hann horfði kankvís á
forsætisráðherra um leið og hann
sagði:
„Ég sé að þú ert með ríkis-
stjórnina í mat í kvöld.“
Þegar Jón Baldvin seldi hattinn
sinn á uppboði á skemmtun á
Dalvík til þess að létta undir með
fjárhagsafkomu hátíðarinnar og í
kjölfarið var seldur á uppboðinu
dans við Bryndísi Schram, þá orti
séra Hjálmar:
Til að forða fjárhagstjóni
flest var leyft.
Ofan afog undan Jóni
allt var keypt.
Um sama tilefni orti Sighvatur
Björgvinsson í orðastað flokks-
bróður síns:
Ógnarstuð er á mér núna,
yfirbragðið glæst.
Ég seldi hattinn, síðan frúna,
nú sel ég landið næst.
Ólafur f>. Þórðarson brá sér út úr
rútu í ferðalagi fjárveitinga-
nefndar um Norðurland og
sprændi mikið eftir langa
aksturslotu. Þegar hann kom aft-
ur inn í rútuna og var að loka
buxnaklaufinni sagðist hann
stoltur á svip vera búinn að
bjarga náttúru íslands með bunu
sinni.
„Þetta hlýtur að hafa verið
geldingahnappur,“ sagði Málm-
fríður Sigurðardóttir að bragði.