Dagur


Dagur - 11.12.1992, Qupperneq 18

Dagur - 11.12.1992, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Föstudagur 11. desember 1992 Ponni og fuglamir - gullfalleg ævintýrabók Atla Vigfússonar og Hólmfríðar Bjartmarsdóttur Ponni og fuglarnir, þriðja bók Atla Vigfússonar frá Laxamýri er komin út. Bókina prýða myndir Hólmfríðar Bjartmars- dóttur frá Sandi. Þetta er sjötta bókin sem Hólmfríður myndskreytir, en í fyrra hlaut hún verðlaun ásamt Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur fyrir bók- ina Þyt. Á bókarkápu Ponna og fugl- anna segir: „Glæsileg íslensk bók. Efnið kemur beint úr íslenskri náttúru. Samspil texta og mynda er sérstaklega skemmti- legt og kemur efninu mjög vel til skila. Hér er lýst lífi fuglanna við ár og vötn. Gleði og sorgir og erf- ið lífsbarátta þeirra er meginefni bókarinnar. Hér læra lesendur um lifnaðarhætti íslensku fugl- anna, endurnar, kríuna, æðar- fuglana, hrafninn, svartbakinn og svanina. Sagt er frá minkum og rebba gamla, þegar þeir gera usla í varpinu. Hér er á ferðinni ein- stök bók fyrir íslensk börn.“ Bókin segir frá heimi sem fá íslensk börn hafa tækifæri til að fylgjast með í dag, æðarvarpi. Grípum niður í bókina, þar sem kollurnar eru að spjalla saman um hreiðurgerðina: „Ponni fylgist með af áhuga. Býsna mikið þarf til þess að breiða í eitt hreiður," segir Bestakolla og er komin með mik- ið af gömlu grasi til þess að setja í botninn á hreiðrinu áður en hún lætur dúninn. „Nei, hér dugar engin leti,“ segir Dúnmjúk og krafsar í holu fyrir hreiðrið sitt. „Og gott skjól er hér í runnan- um,“ segir Gullkolla og gáir í hreiðrið hjá Hlýju sem býr undir stærstu greininni. „Mörg egg hver skulum við eiga,“ segja þær Fiða og Fjöður. „Og fagur verður sá dagur þegar ungarnir okkar koma í heiminn. En hvað við hlökkum til.“ „Sparið ekki sporin við hreið- urgerðina,“ segir Gamlaspök „og passið nú vel að fela eggin ykkar, því þið eigið eftir að sjá að við fáum heimsóknir frá gráðugum gestum sem vilja borða bæði egg og unga. Pað þarf alltaf að gæta vel að eggjum.“ Átli segist hafa prufað svolítið annan stíl á þessari bók en á fyrri bókum sínum, Kaupstaðarferð dýranna og Hænsnin á Hóli. Hann segir að þegar skrifað sé um fugla leiti ljóð á hugann, í bókinni séu setningar stundum stuðlaðar og textinn pínulítið ljóðrænn. Heyrum aðeins hvern- ig krían kynnir sig í bókinni: „Ég er hún Krí-krí-kría. Ég er fjörugur fugl sem kann listina að fljúga. Ég er hún Krí-krí-kría. Ég er komin til að vera hér, ég er komin til að verpa hér og ég er komin til að verja svæðið fyrir gráðugum gestum. Ég er hún Krí-krí-kría. Ég er komin til að krunka í krumma, komin til að ráðast á rebba og ég er komin til að svífa á svartbakinn og hrekja hann burt.“ „Ætlar þú að gera þetta allt ein?“ segir Ponni undrandi. Það Ieynir sér ekki að þessi kafli er skrifaður af manni sem skilur kríumál. En Atli skilur fleira, dýr sem sjaldnast eiga sér talsmenn. Höldum áfram að blaða í bókinni: „Hættið nú, hættið nú,“ heyrð- ist í minknum. „Ekki krunka svona í kroppinn minn. Ekki skella vængjum svona fast á skottið mitt. Ekki höggva í nefið mitt. Ekki gera svona sárt á mér ennið.“ í samtali við Dag segir Atli: „Tilgangurinn með bókinni er að kynna fyrir börnum fuglalíf í íslenskri náttúru. Æðarfugl og lífið í kring um hann, gleði og ,Hér er kannski egg að fá,“ segir Koksi. Mynd úr bókinni cftir Hóimfríði. Gerist félagar í Amnesty International! Ef þú styður kröfu samtakanna um virðingu fyrir mannréttindum um heim allan, skráðu nafn þitt á miðann hér að neðan, klipptu hann út og sendu til: íslandsdeildar Amnesty International, Hafnarstræti 15, pósthólf 618, 121 Reykjavík. Einnig er hægt að hringja í síma: 91-16940. □ Ég vil sýna skoðanir mínar í verki með því að gerast styrktarfélagi í íslandsdeild Amnesty International. Félagsgjaldið er kr. 1.200, sem greiðist: □ með hjálagðri ávísun □ í peningum □ með greiðslukorti: □ VISA □ EUROCARD □ SAMKORTI Númerkorts: QGDD DDDD DDDD DDDD Gildistími: NAFN:_____________________________________________ HEIMILISFANG:____________________ PÓSTNÚMER:_____________ STAÐUR:_______________________ □ Ég óska eftir að fá sendar nánari upplýsingar um starfsemi Amnesty International án skuldbindingar um þátttöku. Atli Vigfússon með bókina. Hólmfríður Bjartmarsdóttir. sorgir, baráttu við varginn. Varg- urinn er látinn tapa og það góða sigrar, eins og í ævintýrunum. Sjálfur hef ég mikinn áhuga á fuglum og þekki vel þetta efni. Ég skrifa ekki til að skapa mér atvinnu og er ekki í samkeppni við neinn, en ég skrifa að gamni mínu og er svo heppinn að hafa átt gott samstarf við Hólmfríði. Hún er mikill teiknari og hefur náð góðu valdi á persónusköpun í myndum sínum, bæði hvað varðar dýr og menn. Myndirnar þjóna mikilvægu hlutverki og bókin er ekki síður verk Hólm- fríðar en mitt. Ég hef áhuga fyrir að íslensk barnaævintýri nái inn á heimilin. Það er ærið nóg af erlendu efni á boðstólnum, hvert sem litið er. íslensk barnamenning er góð og margir hafa lagt gjörfa hönd að. Það má ekki láta hana víkja fyrir erlendum áhrifum, þó ég sé ekki alfarið að hafna þeim. Ég skrifa um hluti sem ég hef alist upp við, fuglalífið, og það hefur Hólmfríður einnig gert. Ég gæti ekki skrifað um eitthvað sem ég hefði ekki upplifað eða hugsað um.“ Flettum upp í bókinni og sjá- um hvað Atli hefur heyrt fossbú- ann segja er litlu æðarungarnir eru á leið til sjávar: „Feikn eru hér fávísir fuglar, sem forðast ekki strauminn minn, sem passa ekki ungahópinn sinn, og vita ekki hvað áin getur orðið straumþung. Feikn eru hér fávísir fuglar, sem ferðast hér um og veina og veina, sem heyra ekki í fossinum þar sem vatnsþunginn stympast við steina, og víst er ykkur erfitt að bjarga.“ „Ég veit að krakkar hafa gam- an af að eiga dýr, lesa um dýr og vera með dýrum,“ segir Atli. „í bókinni persónugeri ég fuglana og dýrin og gef þeim nafn. í veru- leikanum gef ég æðarkollunum og öllum dýrum sem ég umgengst nöfn, og nöfnin fá þau út frá persónuleikanum. “ Það er Skjaldborg sem gefur út þessa fallegu bók Atla og Hólm- fríðar. IM llngarnir synda og synda. Mynd úr bókinni eftir Hólmfríði. Munið að gefa smáfuglunum

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.