Dagur - 11.12.1992, Síða 24

Dagur - 11.12.1992, Síða 24
Hefurþú smakkað rétti afdanska jólahlaðborði Bautans? Efekki, þá er tækifærið núna í jólagrautnum er mandla og hlýtur sá heppni vegleg verðlaun, 10.000 kr. úttekt í Smiðju eða Bauta. Jólahlaðborðið er framreitt íhádeginu og á kvöldin fram að jólum © VEÐRIÐ Veður fer hægt kólnandi um allt land og búist við stormi á flestum miðum, aðallega aust- an til. Fer í norðaustan og norðan stinningskalda á Norð- vesturlandi síðdegis í dag og áöllum miðum fyrir Norður- landi várður allhvasst og élja- gangur. Mun hægari verður inn til landsins á austanverðu Norðurlandi en einhver élja- gangur. Þrátt fyrir ládeyðu á loðnumiðunum: Loðnuaflinn sjö- falt meiri en á haustvertíð 1991 A yfirstandandi haustvertíð hafa borist á land 214.404 tonn af loðnu sem er um þriðjungur heildarloðnukvótans á vertíð- inni sem er 639.600 tonn. Á sama tíma í fyrra höfðu aðeins 30.000 tonn borist á land, en reyndar tók veiðin smá kipp fram til jóla og náði 56.000 tonnum. Hæsta löndunarhöfnin er Siglufjörður með 40.685 tonn, en til Siglufjarðar hafði ekkert bor- ist af loðnu um sama leyti í fyrra. Til Raufarhafnar hafa borist 32.668 tonn en aðeins 3.093 tonn í fyrra. Til Siglufjarðar og Rauf- arhafnar hefur engin síld borist. Til Krossanesverksmiðjunnar á Akureyri hafa borist 17.667 tonn í ár á móti 6.361 tonni í fyrra og 1.788 tonn af síld. Hrað- frystistöð Þórshafnar hefur tekið við 16.762 tonnum í ár en hafði fengið til bræðslu 3.745 tonn í fyrra. Á Þórshöfn hefur einnig verið landað 7.539 tonnum af síld, sem bæði hefur farið til vinnslu og bræðslu. GG Lögreglan hefur átt annríkt við að fjarlægja skráningarnúmer af óskoðuðum bifreiðum. Mynd: -KK Lögreglan á Akureyri: Númeraklippingar í algleymingi Á síðastliðnum tveimur sólar- hringum hefur lögreglan á Akureyri klippt skráningar- númer af liðlega þrjátíu bifreiðum samkvæmt lista yfir óskoðaðar bifreiðar sem Bif- reiðaskoðun íslands hefur látið lögreglunni í té. Hafnasamlag við utanverðan Eyjaflörð: Formlegristofium samlagsins seinkar - beðið eftir gerð Qögurra ára áætlunar fjörður fær 27,5 og Dalvík 13 milljónir króna. JÓH „Niðurstaðan varð sú að láta gera fjögurra ára framkvæmda- áætlun fyrir hafnasamlagið sem sýni þá skynsamlega dreif- ingu framkvæmda- og fjár- magnslega,“ sagði Óskar Þór Sigurbjörnsson, forseti bæjar- stjórnar Ólafsfjarðar en hann og fulltrúar Dalvíkurbæjar og Árskógsstrandarhrepps áttu fund með samgönguráðherra og þingmönnum kjördæmisins á dögunum um hafnasamlag sveitarfélaganna sem ætlunin er að stofna. ári. Mest fær Árskógsströnd í sinn hlut eða 28 milljónir, Ólafs- Næstu daga munu óskoðaðar bifreiðar verða leitaðar uppi og númerin tekin af þeim. Því eru eigendur slíkra farartækja hvattir til að færa bifreiðar sínar til skoðunar nú þegar. Átján ára unglingur hefur ját- að við yfirheyrslur hjá rannsókn- arlögreglunni að hafa brotist inn hjá Hvítasunnusöfnuðinum í Skarðshlíð og stolið þar pening- um úr söfnunarbaukum. Við- komandi unglingur hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni. GG Óskar segir ljóst á þessari stundu að af formlegri stofnun hafnasamlagsins um áramót verði ekki og hún muni dragast þar til fyrrnefnd áætlun liggi fyrir. „Þessi áætlun verður til einhvern tíma snemma á árinu, það fer eft- ir hvenær Hafnamálastofnun get- ur sinnt því að ljúka þessari áætl- un,“ sagði hann. Samkvæmt sundurliðun á fjár- framlögum til hafnarmannvirkja á næsta ári, sem lögð var fram á Alþingi í gær, fá hafnirnar þrjár tæpar 70 milljónir króna á næsta Söluhæstu bækurnar á Norðurlandi: Þórarinn og Þorgrímur fyrir ofan ævisögumar Sala a bókum hefur farið fremur hægt af stað í bóka- verslunum á Norðurlandi og bíða bóksalar nú eftir því að salan taki kipp. Dagur kann- aði í gær hvaða bækur hefðu selst best til þessa og í Ijós kom að smásagnasafn Þórar- ins Eldjárns er í efsta sæti og skáldsaga fyrir unglinga eftir Þorgrím Þráinsson í öðru sæti. Síðan koma nokkrar ævisögur. Haft var samband við Bóka- búð Jónasar, Eddu, Bókval og Möppudýrið á Akureyri, Bóka- búð Brynjars á Sauðárkróki og Bókaverslun Þórarins Stefáns- sonar á Húsavík. Metsölulistinn er unninn upp úr þeim upplýs- ingum sem þar fengust og hann lítur svona út í dag: 1. Ó fyrir framan - Þórarinn Eldjárn. 2. Bak við bláu augun - Þor- grímur Þráinsson. 3. Lífsganga Lydiu - Helga Guðrún Johnson. 4. Alltaf til í slaginn - Friðrik Erlingsson. 5. Dansað í háloftunum - Þorsteinn E. Jónsson. 6. Heimskra manna ráð - Einar Kárason. 7. Þórunn Maggý - Guðný Þ. Magnúsdóttir. 8. Lalli ljósastaur - Þorgrím- ur Þráinsson. 9. Úr óvæntri átt - Sidney Sheldon. 10. Seld - Muhsen/Crofts. Skammt á eftir koma svo bækurnar Hjá Báru sem Ingólf- ur Margeirsson skráði, Dóms- málaráðherrann sem Guðjón Ný plata Sálarinnar hans Jóns míns, Þessi þungu högg, virð- ist vera söluhæsta íslenska plata vikunnar í hljómplötu- verslunum á Norðurlandi, ef marka má athugun Dags í gær. Upplýsinga um sölu var leitað hjá Hljómdeild KEA, Hljómveri, Tónabúðinni, Radíóvinnustofunni Kaup- angi og Kaupfélagi Skagfirð- inga á Sauðárkróki. Listi yfir tíu söluhæstu plöt- urnar lítur svona út: Friðriksson skrifaði, Minn hlát- ur er sorg sem Friðrika Benónýs ritaði og hinn löngu látni Alistair MacLean lætur ekki deigan síga og er ofarlega á blaði með bók- 'ina Stund hefndarinnar sem Alastair MacNeill er skráður fyrir. Síðan koma tvær barna- bækur, Fríða framhleypna kjánast og Fyrstu athuganir Berts. SS 1. Sálin hans Jóns míns - Þessi þungu högg 2. KK-band - Bein leið 3. Nýdönsk - Himnasending 4. Bubbi Morthens - Von 5. Jet Black Joe - Jet Black Joe 6. Grimmsjúkheit - safnplata 7. Reif í fótinn - safnplata 8. Minningar 2 - safnplata 9. Stóru börnin leika sér - Hókus pókus 10. Egill Ólafsson - Blátt, Söluhæstu íslensku hljómplöturnar: Þungu höggin tróna á toppnum Hæstirétturdæmdi FSA til að greiða 8 milljónir I gær féll dómur í Hæstarétti í máli Ingibjargar Auðuns- dóttur og Guðmundar Svaf- arssonar á Akureyri gegn Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Fjórðungssjúkra- húsið var dæmt til að greiða hjónunum tæplega 8 milljón- ir króna með dráttarvöxtum. Forsaga málsins er sú að Ingibjörg og Guðmundur eign- uðust dreng fyrir sex árum og vegna súrefnisskorts í fæðingu heilaskaðaðist hann og er 100% öryrki. Foreldrarnir óskuðu eftir rannsókn á fæðingunni og í framhaldi af henni höfðuðu þau skaðabótamál fyrir Héraðs- dómi Norðurlands eystra. Dómur þar féll FSA í vil. Hjón- in áfrýjuðu málinu til Hæsta- réttar, þar sem dómur féll í gær, þeim í vil. í dómsorðum segir að Fjórð- ungssjúkrahúsinu sé gert að greiða áfrýjendum vegna ólög- ráða sonar þcirra 5 milljónir króna auk vaxta og vegna þeirra sameiginlega 2,95 milljónir króna auk vaxta. Auk þess er FSA gert að greiða 750 þúsund í málskostnað í héraði, sem renni í ríkissjóð og áfrýjendum sameiginlega 800 þúsund krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti. Þá segir í dómsorðum um dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra: „í héraði voru lögð fram í málinu ýmis læknisfræðileg gögn. í héraðsdómi er þessara gagna að engu getið. Verður að átelja þennan galla á dóm- inum.“ óþh Mest í hafinir á Húsavík og Blönduósi Um 290 milljónir eru ætlaö- ar til framkvæmda við hafn- ir á Norðurlandi á næsta ári, 111 milljónir til Norður- lands vestra og 178,7 millj- ónir króna til Norðurlands eystra. Þetta kemur fram í breytingatiilögum fjárlaga- nefndar Alþingis við fjár- lagafrumvarp næsta árs, sem lagðar voru fram á Alþingi í gær. Á Norðurlandi vestra er hæsta upphæðin til Blönduóss, 50 milljónir króna. Tillaga fjárlaganefndar að fjárveiting- um til annarra hafna í kjör- dæminu er sem hér segir: Hvammstangi 600 þúsund, Skagaströnd 16,2 milljónir, Sauðárkrókur 35,6 milljónir, Haganesvík 500 þúsund og Siglufjörður 8,1 milljón króna. Langhæsta fjárveitingin á Norðurlandi eystra er til Húsavíkur, 61,4 milljónir króna. Fjárveitingar til annarra hafna eru ætlaðar sem hér segir: Árskógssandur 28 millj- ónir, Ólafsfjörður 27,5 millj- ónir, Akureyri 21,7 milljónir, Grímsey 19,3 milljónir, Dal- vfk 13 milljónir, Grenivík 3 milljónir, Raufarhöfn 2,6 milljónir og Kópasker 2,2 milljónir króna. óþh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.