Dagur - 23.02.1993, Side 15

Dagur - 23.02.1993, Side 15
Þriðjudagur 23. febrúar 1993 - DAGUR - 15 IWIlNNING cjja Sigríður Pálína Jónsdóttir o g Jóhann Ögmundsson - kveð 'Með stuttu millibili létust tveir af máttarstólpum Leikfélags Akur- eyrar. Sigríður Pálína Jónsdóttir lést 20. janúar sl. Hún starfaði mikið fyrir Leik- félag Akureyrar. Hún tók m.a. þátt í öllum óperettum sem leik- félagið setti á svið, „Meyjar- skemmunni“, „Bláu kápunni“ og „Nitouche“. Um langt árabil var hún umsjónarmaður leikbúninga. a frá Leikfélagi Akureyrar Það hefur sagt mér fólk sem starfaði með henni að hún hafi verið hin mesti dugnaðarforkur og hvergi hlíft sér. Ég kynntist Siggu Pöllu lítil- lega, og ég gleymi ekki þeirri ánægjustund þegar ég heimsótti hana á Spítalaveginn og við drukkum saman kaffi og spjölluðum um leiklist. Eftirlifandi eiginmanni hennar, Haraldi Sigurgeirssyni, og börnum þeirra sendir Leikfé- lag Akureyrar samúðarkveðjur. Jóhann Ögmundsson lést 15. febrúar sl. Leikfélag Akureyrar fékk að njóta hæfileika hans í langan tíma. Ég man hvað hann var þakklátur þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið og færði hon- um blómvönd frá Leikfélaginu í tilefni 80 ára afmælis hans. Auk þess að vera framúrskarandi leik- ari, söngvari og leikstjóri var tJóhann Ögmundsson Fæddur 16. ágúst 1910 - Dáinn 15. febrúar 1993 Mig langar að votta virðingu mína með nokkrum orðum, afa mínum sem dó sl. mánudag eftir löng veikindi. Minningarnar um afa eru ófáar og margar tengjast þær leikhúsi. Eina af mínum fyrstu minningum um afa á sviði var í „Munkunum frá Möðruvöllum" þar sem hann lék „vondan“ karl og ég fór grát- andi baksviðs eftir sýningu til að athuga hvað hefði komið fyrir hann afa minn, hvernig hann gæti verið svona vondur. Árin liðu og afi tók upp á því að leikstýra út um allt land, á Isa- firði, Höfn í Hornafirði, Dalvík, Akureyri og fleiri stöðum. Okkur fannst þetta hálf skrítið, skildum illa hvað gat verið svona skemmtilegt langt í burtu frá okkur öllum. Nú skilur maður að þarna fékk hann tækifæri til að gera það sem honum fannst skemmtilegast og umbunin var mikil. Pær voru margar ferðirnar sem ég fór með honum út á Dalvík! eða fram í Eyjafjörð á æfingar á verkum sem hann setti þar upp. Sögurnar sem ég fékk að heyra á ferðalögunum voru margar og þetta voru mér ógleymanlegar stundir þar sem ég hafði afa algjörlega út af fyrir mig. Það að sitja frammi í sal, æfingu eftir æfingu án þess að segja orð var vel þess virði. Yndislegar stundir áttum við krakkarnir heima hjá afa og ömmu. Afi spilaði á píanóið og söng og amma átti alltaf eitthvað handa okkur. Við eigum fleira en minningarnar um sönginn því afi var duglegur að taka upp á „stóra“ segulbandið þegar við vorum lítil. Alltaf gat hann brugðið sér í skemmtileg gerfi til að hafa ofan af fyrir okkur krökkunum þó oft væri þröngt á þingi í kring um hann því allir vildu vera hjá afa. Afi að leika, afi að syngja, afi að segja okkur frá og örva ímyndunarafl og frásagnargleði hjá okkur krökkunum, þannig munum við minnast hans. Eftir að afi veiktist var sárt að sjá þegar hann gat ekki lengur sagt eins vel frá og hann vildi. Hann reyndi þó alltaf að halda fyrri krafti sem hafði alltaf ein- kennt hann og spaugið var aldrei langt undan. Að lokum vil ég þakka afa mínum, fyrir allar góðu stundirn- ar. Lína. Lífið er fallið. Hvíslarinn hefur lagt frá sér handritið. Merkilegum áfanga á leiksviði lífsins er lokið. Jóhann Ögmundsson heldur nú heim. Dómar verða allir á svipaða lund; hann tók af alhug þátt í leik lífsins og gerði það mjög fallega. Eftir sitja einungis bestu minningar um gleðileg augna- blik, listfengi mannsins og söng- færni. Löngum sat ég f horni hjá Jóhanni Ögmundssyni, oftast á verkstæðinu, þar sem allt ilmaði af ungu tré, sem lifði þrátt fyrir dauðann. Það fyllti mann unaði og Jóhann renndi þykkum smiðs- fingrum utan um gamlan pípu- haus, tróð lifandi tóbaksglóðinni dýpra í hausinn, dæsti af gleði, því nú ætlaði hann að pása frá söginni og ræða dálítið um hugðarefni sitt, leiklist. Þegar ég kom ungur til Akur- eyrar til að vera um stund, lék hann hjá mér, ásamt nokkrum af helstu leikurum LA í þá daga. Ég, ungur og reynslulítill, í góð- um hugarfaðmi þessa fólks, og hefur síðan lifað fallegur vináttu- strengur á milli mín og þeirra leikara LA, sem voru áhuga- menn fyrir tæpum 40 árum. Við Jóhann hittumst síðast á afmælissýningu LA. Hann kom þá í sitt gamla leikhús, studdur blíðu, enda orðinn veikur og byrjað að slokkna á augum hans. Þegar hann sá mig, opnuðust augu hans og snöggvast kom gamall glampi og gamlar gleði- stundir þjöppuðust í hlýju hand- taki. Orð þurfti engin þá og varla nú, en koma samt til hans, með djúpri þökk fyrir allt og allt. Jónas Jónasson. Það er komið að kveðjustund. í dag kveð ég elskulegan afa minn, Jóhann Ögmundsson, sem lést 15. þessa mánaðar eftir hetjulega baráttu við löng og erf- ið veikindi. Á kveðjustund sem þessari streyma minningar gegnum hug- ann um Jóhann afa og Karólínu ömmu, sem lifir mann sinn. Mínar minningar um afa og ömmu tengjast helst þeim árum þegar ég var lítil stelpa og alltaf var sumar og sól að manni fannst. Afi sagði mjög skemmtilega frá og gerði óspart grín að sjálfum sér og öðrum. Hánn skreytti frá- sögnina oft ótæpilega þannig að amma fann sig knúna tíl að grípa inn í. Það var alltaf gott að leita til afa. Hann var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Skipti þá engu hvort um var að ræða smíði á rúmi og hillum eða aðstoð við val á bókum úr bókasafni hans til notkunar við gerð heimildarrit- gerða. Áhugi hans á því hvernig okkur krökkunum gekk í náminu var einlægur og hrós eða hvatn- ing frá afa skipti ávallt miklu máli. Afi elskaði leiklist og söng. Það var yndislegt að hlusta á hann spila á píanóið með sínum þykku og sterku fingrum. Sjálfur tók hann virkan þátt í leiklistar- starfi á Akureyri og vfða um landið og hann naut þess um árabil að syngja með karlakórn- um Geysi. Náttúrufegurð íslands hafði mikil áhrif á afa. Öræfi og óbyggðir heilluðu hann og ég á ljúfar minningar um ferð sem fjölskyldan fór inn að Herðu- breið og Öskju á gamla Land- Rovernum hans. Afi kenndi okk- ur að meta fegurð landsins og gæddi landslagið auknu lífi með því að segja okkur sögur af úti- legumönnum og felustöðum þeirra á þessum slóðum. Honum afa fannst svo sannar- lega gaman að lifa og ég mun ávallt varðveita allar ljúfar minningar um hann. Guð blessi minningu Jóhanns afa. Arna. Hann elsku afi minn er dáinn. Það er svo skrítið að hugsa til þess að aldrei eigi maður eftir að fá að sjá hann aftur. Það var eng- inn sem afi, alltaf hress og skemmtilegur, jafnvel þó hann ætti við erfið veikindi að stríða, alltaf reif hann sig upp. Ég mun sakna hans svo mikið. Þegar ég var lítil voru mínar bestu stundir að fá að fara og gista hjá afa og ömmu. Ég var viss um að afi gæti allt og sögurn- ar sem hann sagði manni voru svo skemmtilegar og lifandi, enda lék hann yfirleitt allar per- sónurnar jafnóðum. Ég bjó hjá þeim tvo vetur þeg- ar ég var í skóla og þá brölluðum við ýmislegt. Hann kenndi mér að meta góða tónlist, enda mátti ekki tala ef verið var að hlusta á hina ýmsu stórsöngvara, það var synd, hann hlustaði með svo mikilli innlifun, þó að við amma læddumst stundum fram til að fá okkur kaffisopa þegar okkur fannst nóg komið. Margar af mínum bestu minningum eru tengdar afa, hann var mér alltaf svo góður, og ég veit að þegar við hittumst hinum megin, förum við í bíltúr á Tuma Jonsen og hver veit nema við finnum þar einhvern Jón í Strumpu. Hrefna M. Helgadóttir. Jóhann formaður Leikfélags Akureyrar fyrst 1957-59 og síðar 1963-65. Hann var gerður að heiðurs- félaga Leikfélags Akureyrar 1987. Eftirlifandi eiginkonu hans Karólínu Jóhannesdóttur og skyldmönnum öllum sendir Leik- félag Akureyrar samúðarkveðj- ur. Stjórn Leikfélags Akureyrar og annað starfsfólk minnist Sig- ríðar Pálínu Jónsdóttur og Jóhanns Ögmundssonar með söknuði og þakklæti fyrir margar ánægjustundir á leiksviði og utan þess. Fyrir hönd stjórnar Leikfélags Akureyrar, Sunna Borg, formaður. ^mriiirBjaj7Di!3^ní2^ Landbúnaðarráðherra boðar til opins kynningar- og fræðslufundar um stöðu og framtíð íslenskrar mjólkur- framleiðslu á Hótel KEA, miðvikudaginn 24. febrúar 1993 kl. 13.00-17.00. Markmið fundarins er að kynna fjölmiðlum, starfs- fólki landbúnaðarins og öllu áhugafólki stöðu og framtíðarsýn íslenskra mjólkurframleiðenda, afurða- stöðva, og markaðsmálum búgreinarinnar. Fundarstjóri: Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra. 13.00 Ávarp landbúnaðarráðherra. Halldór Blöndal. 13.15 Áhrif alþjóðasamninga á íslenska mjólk- urframleiðslu. Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri. 13.45 Umræður og fyrirspurnir. 14.00 Áhrif innflutnings mjólkurafurða á íslenska framleiðslu. Óskar H. Gunnarsson, formaður Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði. 14.15 Fjölbreytni og gæði íslenskra mjólkur- afurða samanborin við erlenda fram- leiðslu. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna. 14.30 Umræður og fyrirspurnir. 14.50 Breytingar á verðlagningu mjólkurafurða. Þórarinn Sveinsson, mjólkurbússtjóri Mjólk- ursamlags KEA. 15.05 Búvörusamningarnir og viðskipti með mjólkurkvóta. Guðmundur Lárusson, formaður Lands- sambands kúabænda. 15.20 Umræður og fyrirspurnir. 15.40 Kaffihlé. 16.00 Staða mjólkuriðnaðarins - horft til fram- tíðar. Vilhelm Andersen, fjármálastjóri Mjólkursam- sölunnar. 16.15 Sameining og samstarf mjólkurbúa frá sjónarhóli minni afurðastöðvanna. Páll Svavarsson mjólkurbússtjóri Mjólkur- samlags S.A.H. Blönduósi. 16.30 Umræður og fyrirspurnir. 16.50 Sameiginlegt markaðsstarf íslensks land- búnaðar. Níels Árni Lund, formaður Markaðsnefndar landbúnaðarins. 17.00 Fundarslit. Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra. Allir velkomnir. Landbúnaðarráðuneytið.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.