Dagur - 17.03.1993, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 17. mars 1993
Fréttir
Ólafsfjörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að halda sama fyrirkomulagi
og verið hefur á endurgreiðslu
vegna tannlækninga barna 6
ára og yngri, þ.e. að bæjar-
sjóður endurgreiði til foreldra
það sem sjúkratryggingardeild
greiðir ekki. Tannlækningar
barna 6 ára og yngri verði for-
eldrum því aö kostnaðarlausu.
■ Bæjarráði hefur borist
erindi frá UÍÓ, þar sem félag-
ið tilnefnir Kjartan Porkels-
son, Svövu Jóhannsdóttur og
Ragnar Sigurð Ólafsson sem
fulltrúa í stjórn Afreks- og
viðurkenningarsjóð Ólafs-
fjarðar.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að segja upp samningi um
vinnumiðlunarskrifstofu og
atvinnuleysisskráningu við
Einingu. Uppsögnin tekur
gildi 1. júní nk. Jafnframt er
óskað eftir viðræðum við
stjórn Einingar um annað
samningsform um rekstur
vinnumiðlunarskrifstofu og
atvinnuleysisskráningu en nú
gildir.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Launanefnd sveitarfélaga,
þar sem fram kemur að nefnd-
in hefur ákveðið að vera í
samstarfi með ríki og Reykja-
víkurborg í komandi kjara-
samningum gagnvart þeim
félögum sem ákveðið hafa að
vera í „samfloti“ innan BSRB.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá félagamálaráðuneytinu,
þar sem gerð er grein fyrir
afgreiðslu Jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga vegna umsókna
Ólafsfjarðarbæjar í stofnfram-
lög úr sjóðnum. Jöfnunarsjóð-
ur hefur úthlutað Ólafsfjarð-
arbæ til framkvæmda kr.
4.300,000 til íþróttahúss og kr.
620.000 til grunnskóla.
■ Á fundi hafnarstjórnar
nýlega var upplýst að tilboð
hafi verið opnuð í stál til hafn-
argerðarinnar sem áætluð er í
ár og næsta ár. Samþykkt var
að veita Hafnamálastofnun
umboð til að semja um efnis-
kaup á hagkvæmasta grunni.
■ A sama fundi var lagður
fram ársreikningur síðasta árs
og samkvæmt stöðu um sl.
áramót kemur fram að skuld
hafnarsjóðs við bæjarsjóð er
kr. 10.523.000. Samþykkt var
að leggja til við bæjarstjórn að
skuldin verði greidd með yfir-
töku tiltekinna lána hjá bæjar-
sjóði.
11.-27-
mars
Borgarhólsskóli Húsavík - Lifandi skógar - Sungið um umhverfisvernd:
Sjöundu bekkingar taka lagið með
70 norskum jafnaldra gistivinum
Nemendur sjöunda bekkjar
Borgarhólsskóla takast nú á
við eitt umfangsmesta verkefni
sem tekið hefur verið fyrir á
vegum skólans; uppsetningu á
norska söngleiknum Lifandi
skógum, sein þýddur var sér-
staklega fyrir skólann af Emelíu
Baldursdóttur, kennara í Eyja-
firði. Grunnþema verksins er
umhverfisvernd og leikurinn
var settur upp í Noregi fyrir
atbeina norsku skógræktarinn-
ar og landbúnaðarráðuneytis-
ins. Leikstjóri er Guðrún
Kristín Jóhannsdóttir, María
Sigurðardóttir aðstoðar við
leikstjórn og Line Werner er
söngstjóri.
„Þetta er klukkutíma söngleik-
ur, mjög spennandi. Flutt eru 14
lög og það voru gerðar sérstakar
útsetningar. Hljómsveit skipuð
nemendum úr Borgarhólsskóla
og Framhaldsskólanum leikur.
J>að er margt gott fólk sem starfar
við uppsetninguna og fram koma
allir 56 nemendur þessa fjöl-
mennasta árgangs f skólanum.
Þetta er heilmikill viðburður og
kannski eitt það allra besta sem
við höfum ráðist í, en það hefur
ýmislegt verið gert hér um tíð-
ina,“ sagði Halldór Valdi-
marsson, skólastjóri í samtali við
Dag.
Tvær sýningar verða á verkinu
á miðvikudag, á hinni árlegu
skólaskemmtun sjöundu bekk-
inga. Ennfremur verður verkið
sýnt á fimmtudags- og föstudags-
kvöld kl. 20.30 á sal skólans.
í vetrarlok koma 70 norskir
krakkar frá tveimur skólum í
Suður-Noregi til Húsavíkur.
Bréfaskriftir eru þegar hafnar
milli norsku og húsvísku krakk-
anna. Norsku krakkarnir hafa
sett upp sama söngleikinn og þeir
hafa lagt það á sig að læra
íslensku textana. Þrjá síðustu
vetrardagana munu norsku ung-
mennin æfa með krökkunum á
Húsavík og á sumardaginn fyrsta
verður efnt til sýningar þar sem
norsku og húsvísku börnin flytja
söngleikinn saman. Norsku börn-
in verða gistivinir jafnaldra sinn á
Húsavík. Að sögn Halldórs hafa
foreldrarnir á Húsavík lagt hönd
á plóginn við undirbúning heim-
sóknarinnar og búningasaum fyr-
ir sýninguna.
„Umhverfisvernd er grunnþema
verksins og við viljum horfa í
víðara samhengi á hið mikla um-
hverfisátak sem verið er að vinna
hér í skógræktarmálum og
friðun. Líka má líta á uppsetn-
ingu verksins sem innlegg til þess
verkefnis," sagði Halldór. IM
Launamál fyrrum bæjarstjóra á borði Bæjarráðs Ólafsíjarðar:
Bæjarstjora
sairniíngi sem
Bæjarráð Ólafsfjarðar fjallaði
á fundi sínum sl. mánudag um
álitsgerð sem bæjarstjóm Olafs-
fjarðar óskaði eftir að Björn
Jósef Arnviðarson hdl. gerði
vegna launakröfu Bjarna Kr.
Grímssonar, fyrrverandi bæjar-
stjóra, sem sagt var upp störfum
í lok síðasta árs. Bæjarráð
ályktaði ekki um málið en ítr-
ustu kröfum Bjarna um sex
mánaða laun auk sex mánaða
biðlauna var hafnað af bæjar-
stjórn Ólafsfjarðar á sínum
tíma.
„Það var gerður samningur við
mig þegar ég kom til starfa á
miðju síðasta kjörtímabili sem
gilti til loka þess. Eftir kosning-
arnar 1990 voru ákveðnar for-
sendur breyttar fyrir samningn-
voru greidd laun samkvæmt
lá á borði forseta bæjarstjómar
um og niðurstaðan varð sú að
gerð voru drög sem ekki voru
formlega samþykkt. Nú skilst
mér að gamli samningurinn eigi
nú að gilda en það er þeirra mál
en staðreyndir málsins eru aðrar,“
sagði Bjarni Kr. Grímsson.
Sigurður G. Guðjónsson hrl.,
sem er lögmaður Bjarna Kr.
Grímssonar, segir að málið snúist
ef til vill aðeins um það að menn
setjist niður og ræði saman. „Það
var búið að bjóða honum mörg-
um sinnum samning sem tryggði
honum sex mánaða laun auk sex
mánaða biðalauna ef til uppsagn-
ar kæmi og sá samningur lá á
borði forseta bæjarstjórnar til-
búinn til undirskriftar en var
aldrei formlega afgreiddur þótt
laun væru greidd samkvæmt hon-
um þannig að það er eins og verið
sé slást um málið slagsmálanna
vegna. Það á að taka fram upp-
sagnarfrest í ráðningarsamning-
um og ef það er ekki gert þá gildir
hið gagnstæða, þ.e. ótímabundinn
samningur sem var var í þessu til-
felli,“ sagði Sigurður G. Guðjóns-
son.
„Með álitsgerðinni vildum við
fá fram mat á því hver staða
bæjarins yrði ef Bjarni gerði
kröfur á bæinn um sex mánaða
biðlaun auk sex mánaða launa í
stað þriggja mánaða launa og
þriggja mánaða biðlauna sem
þýðir um 1500 þúsund króna við-
bótargreiðsla. Við vildum líka
vita hvort lagaleg staða okkar
væri sú að rétt væri að semja í
málinu,“ sagði Hálfdán Kristjáns-
son bæjarstjóri í Ólafsfirði. GG
Skák
Hraðskákmót íslands:
efstu sætin
Þijú
Hraðskákmót Islands var hald-
ið að Deildakeppninni lokinni
og voru keppendur yfir fímm-
tíu talsins. Félagar í Skákfélagi
Akureyrar náðu þeim frábæra
árangri að raða sér í þrjú efstu
sætin og áttu raunar fimmta
sætið líka.
Margeir Pétursson, stórmeist-
ari, fór fyrir sínum mönnum, en
tilSA
hann hefur um nokkurt skeið
teflt fyrir Skákfélag Akureyrar.
Hann tapaði ekki skák, fékk 17
vinninga af 18 mögulegum og
sigraði örugglega. í 2. sæti varð
Margeir Pétursson.
Deildakeppnin, 1. deild:
A-sveit Skákfélags Akureyrar í 2. sæti
Seinni hluti Deildakeppni
Skáksambands íslands fór
fram í Reykjavík um síðustu
helgi. Skákfélag Akureyrar var
með fjórar sveitir í keppninni
og náði A-sveitin ágætum
árangri í 1. deild, varð í 2. sæti
á eftir A-sveit Taflfélags
Reykjavíkur sem skipuð var
stórmeisturum á efstu borðum.
A-sveit SA sigraði lið USAH í
5. umferð með 7 vinningum gegn
1 og í 6. umferð vannst sigur á
sveit Taflfélags Kópavogs 5Vi
gegn 2Vi. í síðustu umferð vann
SA lið Garðbæinga með 5 vinn-
Skákfélag Akureyrar var með
tvær sveitir í 2. deild í Deilda-
keppninni og var gengi þeirra
misjafnt. B-sveitin hafnaði í 4.
sæti eftir að hafa verið lengst
af í 2. sæti en slæmt tap í síð-
ustu umferð gerði útslagið.
C-sveit Skákfélags Akureyrar
ingum gegn 3, en Garðbæingar
sigruðu einmitt í keppninni í
fyrra eftir harða baráttu við A-
sveit Skákfélags Akureyrar.
Röð sveita í 1. deild varð sem
hér segir: 1. A-sveit TR 44Vi v. 2.
A-sveit SA 35 v. 3. Skáksamband
Vestfjarða 28Vi v. 4. A-sveit
Garðabæjar 26V2 v. 5. B-sveit TR
24 v. 6. A-sveit Skákfélags Hafn-
arfjarðar 23 v. 7. USAH 22'/2 v.
8. A-sveit Taflfélags Kópavogs
20 v. og féll sveitin í 2. deild.
Bestum árangri í A-sveit Skák-
félags Akureyrar náðu Margeir
Pétursson, Gylfi Þórhallsson og
varð í 8. sæti og féll í 3. deild.
Sveit UMSE varð í 7. sæti en
Taflfélagið Hellir sigraði og fer
upp í 1. deild.
Bestum árangri í B-sveitinni
náði Rúnar Sigurpálsson sem
fékk 2 vinninga af 3 á 1. borði en
Helgi P. Gunnarsson fékk flesta
vinninga í C-sveit, V/i af 2.
Bogi Pálsson sem fengu 2 vinn-
inga í 2 skákum, Þórleifur K.
Karlsson sem fékk 3 vinninga í 3
skákum og Ólafur Kristjánsson
sem fékk 2Vi af þremur möguleg-
um. SS
Allir þeir sem sjá um skóla-
skák innan grunnskólanna á
Norðurlandi eystra eru beðnir
að tilkynna til sýslustjóra hið
allra fyrsta um úrslit og þátt-
töku innan síns skóla.
D-sveit SA keppti ásamt fjór-
um sveitum í úrslitum 3. deildar.
Lenti sveitin í 3.-4. sæti en Tafl-
félag Vestmannaeyja sigraði og
flyst upp í 2. deild. Stefán Ragn-
arsson og Sveinbjörn Sigurðsson
fengu flesta vinninga í D-sveit-
inni eða 2 af 3. SS
Rúnar Sigurpálsson SA með 13
vinninga, í 3. sæti Jón Garðar
Viðarsson SA með 12 vinninga,
4. Helgi Áss Grétarsson TR ÍV/i
v., 5. Þórleifur K. Karlsson SA
W/i v. og 6. Guðmundur Gísla-
son Vestfjörðum 11 /2 v.
Óhætt er að segja að þetta hafi
verið glæsilegur lokahnykkur hjá
Skákfélagsmönnum. SS
Sýslustjóri á Akureyri er Guð-
mundur Víðir Gunníaugsson, í
Eyjafjarðarsýslu Albert Sigurðs-
son, Akureyri, í Suður-Þingeyj-
arsýslu Sigurjón Benediktsson,
Húsavík, og í Norður-Þingeyjar-
sýslu Angantýr Einarsson, Rauf-
arhöfn.
Áformað er að sýslumótum
verði lokið fyrir mánaðamót
mars/apríl og kjördæmismóti fyr-
ir 20. apríl. Landsmótið verður á
ísafirði 6.-9. maí.
Úr Norðurlandskjördæmi eystra
hafa tveir skólar þátttökurétt,
þ.e. þeir sem sigra í hvorum
aldursflokki í kjördæmismótinu.
í sýslumótum eiga allir þeir er
sigra í skólamótum innan sinnar
sýslu þátttökurétt og sigurvegar-
ar sýslumóta eiga rétt til þátttöku
á kjördæmismóti. SS
Deildakeppnin, 2.-3. deild:
Erfitt hjá noröanmönnuin
Skólaskák 1993
HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH