Dagur - 27.03.1993, Side 9
;
i
Laugardagur 27. mars 1993 - DAGUR - !
Viðtal og mynd:
Sigríður Þorgrímsdóttii
I
<
sem hafði verið að vinna hér og tjáði sig un
þörfina. Ég reyndi að koma á samvinnu vii
Framsókn, en tókst ekki, þeir vildu far;
aðrar leiðir. í kjölfarið komu Sjálfstæðis
menn með tillögu um sérfræðingateymi ;
Norðurlandi vestra og hún var samþykkt
En það var mín vinna sem skilaði þein
árangri að þörfin var viðurkennd, þó að til
lagan lenti síðan niðri í skúffu þar til nýlega. ,
Þetta eru þau mál sem hafa valdið mest-'
um látunum, en svo hafa menn oft verið aðj
æsa sig út af smámálum.“
- Hvaða skýringu hefur þú á þessu?
„Ég held að það helgist að einhverju leytij
af því að ég er kvenmaður og þeir eigi erfit|
með að taka mér sem jafningja. Ég er eina ]
konan í bæjarstjórn sem er talsmaður flokk
eða framboðs. Það kemur manni beinlínis*
fyrir sjónir eins og þeim finnist allt í lagi að
hafa konur með, en þær eigi bara að sitja og
vera prúðar. Ég finn það vel að ég er ekki
„ein af strákunum“. Ég hef ítrekað verið
gagnrýnd úr ræðustóli í bæjarstjórn fyrir að
koma undirbúin á fundi og það hefur verið
kvartað hástöfum yfir að ég hafi alltof mik-
inn tíma til að sinna þessu!
Ég átti ágætis samstarf við Framsóknar-
flokkinn í upphafi þessa kjörtímabils og
bauð þeim samvinnu. Ég átti t.d. hugmynd-
ina að stofnsetningu félagsmiðstöðvar fyrir
unglinga og fulltrúi Framsóknar flutti hana
með mér. Einn bæjarfulltrúa Framsóknar
hefur síðan, það sem af er þessa kjörtíma-
bils, nýtt alla sína krafta til að ráðast á mig
og það hefur gert öðrum erfitt fyrir með
samstarf. Ég gafst upp á að reyna og fer
mínar eigin leiðir. Meirihlutinn lætur sér
auðvitað vel líka og leyfir honum að kúra í
hjónasænginni. Það er eins og það sé að
renna upp fyrir honum smá ljós núna, að
hann sé ekki í meirihlutasamstarfi og það sé
nær að gagnrýna meirihlutann og veita
aðhald. Ég hef stundum borið þetta ástand
saman við það ef Steingrímur Hermannsson
einbeitti sér að því að ráðast á Kvennalist-
ann og Alþýðubandalagið á Alþingi. Það
væri skringilegt, svo ekki sé meira sagt.
Mér finnst þetta stundum erfitt, en sem
betur fer hef ég aldrei misst stjórn á skapi
mínu. Ég kem vel undirbúin á fundi og veit
nákvæmlega hvað ég ætla að segja. Ég tala
af sannfæringu og stend við mína skoðun þó
að ég viti að hún kalli oft á mjög harkaleg
viðbrögð. Auk þess eru viðbrögðin ekki
málefnaleg nema í undantekningatilfellum.
Umfjöllunin snýst oftast um formsatriði,
venjur eða heimatilbúið „heiðursmanna-
samkomulag" og ég á því oftast auðvelt með
að láta þetta sem vind um eyrun þjóta. Það
:ru málefnin sem skipta máli.“
Hættir ekki í pólitík
- Er þetta ekki mikil vinna fyrir fjögurra
barna móður?
„Þetta bjargast af því að við hjálpumst öll
að. Tvö elstu börnin eru mjög dugleg að
hjálpa til og líta eftir systrum sínum þegar
með þarf. Þetta gengi ekki upp nema skiln-
ingur sé sýndur á heimilinu. Mér finnst
þetta það krefjandi að ég vildi ekki vinna
utan heimilis að auki.“
- Ef þú dettur út úr bæjarstjórn, ertu þá
hætt í pólitík?
„Örugglega ekki. Ég myndi þá vinna í
grasrótinni. Ég hef aflað mér talsverðrar
reynslu og álít nauðsynlegt að skila henni til
þeirra sem taka við.“
- Áttu þér önnur áhugamál en stjórnmál-
in?
„Ég hef mikinn áhuga á jafnréttismálum
og lít á þátttöku í stjórnmálum sem framlag
til þeirra mála. Ég er þeirrar skoðunar að
konur þurfi að taka málin í sínar hendur ef
á að breyta einhverju. Alþýðubandalagið er
örugglega eini flokkurinn sem hefur átt
konu í efsta sæti til bæjarstjórnar hér og það
tvisvar sinnum.
Annars eru áhugamál mín lestur og að
hlusta á tónlist, ég hef mjög gaman af handa-
vinnu og garðyrkju og að ferðast."
- Ertu ásátt við að lifa og starfa á Sauðár-
króki?
„Já, mér finnst það gott.“