Dagur - 27.03.1993, Blaðsíða 12

Dagur - 27.03.1993, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 27. mars 1993 Leiklist_______________ „Hassið hennar mömmu“ Sunnudaginn 21. mars frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks Sæluviku- verkefni sitt á þessu ári. Leik- verkið, sem upp hefur verið sett, er Hassið hennar mömmu eftir hinn fræga gamanleikjahöfund og þjóðfélagsgagnrýnanda Dario Fo. Þýðing verksins er eftir Stef- án Baldursson og leikstjóri upp- setningarinnar er Jón Júlíusson. Á yfirborði sínu er Hassið hennar mömmu eindreginn ærsla- leikur og mjög í anda þeirra orða, sem höfð eru eftir höfundi verksins í leikskrá: „Leikhús á fyrst og fremst að vera skemmti- legt. Þaö má vera fáránlegt, þrælpólitískt, þar á að beita sprelli, leik og söng, en aldrei að vera leiðinlegt.“ Þessi leikhúspólitíska stefnu- yfirlýsing Darios Fos er góð yfir- skrift yfir Hassið hennar mömmu. í verkinu er höfundur- inn að deila á handabakaleg vinnubrögð ráðamanna, lögreglu og annarra í viðfanginu við þau samfélagsmein, sem við höfum fyrir augunum nú á tímum, þegar fjölskyldan er að rofna, þegar firð hefur skapast á milli jafnvel náskyldra einstaklinga, eins og foreldra og barna, og menn tala ekki lengur um vanda sinn eða reyna að leysa hann, heldur flýja á náðir óminnis í drykkjuskap, vímuefnum eða hörðum, ávana- bindandi og seigdrepandi eitur- lyfjum. Vissulega virðist á stundum nokkuð djúpt á ádeilunni í öllum ærslunum á sviðinu í Bifröst í flutningi ieikfélagsins á Sauðár- króki á Hassinu hennar mömmu. Pó má ætíð sjá hana á ýmsum stigum sínum, svo sem í fálka- legu látbragði leikenda, heimsku- legum tiltektum þeirra og fávísi um þau málefni, sem þeir, sem í hlut eiga, ættu að hafa vit á. í til dæmis þessum þáttum felst bitur gagnrýni á ýmsa umsýslu opin- berra aðila í málum, sem þeim heyra, en sem á er tekið af fávísi og eindregnum klaufaskap. Slíkt þekkist vissulega hér á Iandi ekki síður en sunnar í Evrópu. Hér eru því atriði, sem eiga við okkur, ef við viljum skilja, ekki síður en þau, sem lúta að eitur- lyfjavandanum, sem því miður hefur verið að sækja okkur heim af sívaxandi þunga. Hér getum við því þekkt svolítið af sjálfum okkur í því, sem sagt er og sýnt, svo enn sé vitnað til orða höfund- arins, Darios Fos. Flutningur Hassins hennai mömmu í uppsetningu Leikfélags Sauðárkróks er lipur og hraður. Hann er fullur af fjöri og vekur iðulega léttan hlátur áhorfenda, eins og líka að er stefnt. Þar eiga allir leikarar hlut að máli, en ekki síst leikstjórinn, sem hefur greinilega tekist vel að halda uppi hraða' sýninguna svo til á enda og skapa í túlkunina verulegan brag ítalsks hita og fass. Þrátt fyrir mikinn fyrirgang á sviðinu ganga Fjárveiting úr Samkvæmt lögum um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga nr. 78/1989 veitir Alþingi árlega fé í íþróttasjóð. Framlög úr íþróttasjóði skal veita til sérstakra verkefna á veg- um íþróttafélaga eða íþróttasam- taka í þvf skyni að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana sbr. Reglugerð um íþróttasjóð nr. 609/1989. Tekið skal fram að ekkert ligg- ur fyrir um fjárveitingar til sjóðs- ins 1994, en þær eru ákveðnar í hreyfingar að jafnaði vel upp, þó að reyndar hendi, að smáárekstr- ar verði og fyrir bregði hreyfing- um, sem ekki falla svo eðlilega, sem æskilegt hefði verið. Afann leikur Ásgrímur Ingi Arngrímsson. Hann hefur tals- vert gott vald á hlutverkinu og er vel samfelldur allt til enda. Rosettu leikur Elsa Jónsdóttir. Hún hefur góð tök á hlutverki sínu og heldur vel ýktu ítölsku fasi með miklum fyrirgangi og hávaða. Luigi, sonur Rosettu, er leik- inn af Stefáni Steindórssyni. Stef- án á að mörgu leyti góðan leik, en hann er þó heldur einhæfur í hreyfingum, ekki síst framan af, og auk þess lítils háttar staður á sviðinu samanborið við mót- leikara sína. Vinur er leikinn af Steini Frið- rikssyni. Steinn gerir talsvert vel í upphafsatriði sínu, en það ástand hans bráir heldur hratt af honum. Væntanlega er hér að einhverju leyti persónusköpun höfundar um að kenna, en þó hefði mátt gera heldur meira úr þessari per- sónu í seinni atriðum hennar í verkinu. Camella er leikin af Katrínu Maríu Andrésdóttur. Þetta hlut- verk er smátt í verkinu og býður ekki upp á ýkja mikið í túlkun eða persónusköpun. Katrínu Maríu tekst bærilega að koma hlutverkinu til skila en þó virðist, að heldur betur hefði mátt vinna úr persónunni. Ántonio er í höndum Árna Benediktssonar. Persónan er frá hendi höfundar fáránleg skop- stæling og Árna tekst lipurlega að gæða hana þeim brag, sem við á. Prestur er leikinn af Pálma Ragnarssyni. Hlutverkið er smátt og kemst Pálmi allvel frá því. Þó er talandi hans heldur óskýr og stingur það nokkuð í stúf við framsögn annarra leikenda, sem var jafnan skýr og greinileg. Hassinu hennar mömmu lýkur á nokkurs konar eftirmála, sem kemur umbúðalaust aftan á ærsl- in og skopið. Þar má segja að höfundur skýri út satíru sína. Þessi eftirmáli er nokkuð vand- meðfarinn, ef hann á ekki að verka eins og spennufall. í upp- setningu gerir hann það talsvert og hefði að skaðlausu mátt liggja heldur meira yfir þessu lokaatriði verksins. Verk Darios Fos hafa verið sett upp víða um álfur. Það er að vonum. Þau eru einhver æsileg- ustu ærslastykki síðari áratuga og vel til þess fallinn að skemmta fólki jafnframt því, sem þau eru engan veginn efnislaus. Leikhús- gestir á Sæluviku þurfa því ekki að óttast það, að þeim muni leið- ast á sýningum Leikfélags Sauð- árkróks að þessu sinni, heldur munu þeir vafalítið hafa gaman af samvistum við glaðværan hamagangshópinn á sviðinu í Bifröst. Haukur Ágústsson. íþróttasjóði fjárlögum hverju sinni til eins árs í senn. Felur árleg fjárveiting þannig ekki í sér skuldbindingar um frekari styrkveitingar. Umsókn um stuðning úr íþróttasjóði vegna fjárveitinga ársins 1994 þurfa að berast fyrir 1. maí nk. íþróttanefnd ríkisins, menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum ásamt greinargerð um fyrirhuguð verk- efni. Andlit birtist í margbrotnum mvndflcti - leitandi andlit með spurn í svip. Að baki rís stjörnukrans sem iistamaður- inn notar til þess að mynda útlínur verksins og gefa því aukna vídd, sem einungis er unnt að jgera í gleri. Þannig birtist „Oður til sólarinnar,“ eitt nýrra verka Ingu Elínar Kristinsdóttur áhorfandanum en hún hefur að undanförnu sýnd verk sín í Galleríi Sævars Karls í Reykjavík. Sýninguna nefndi hún „Með hækkandi sól,“ sem er í raun táknrænt fyrir listsköpun hennar því hún hefur kosið sér glerið að við- fangsefni. Inga Elín er fjölhæf- ur myndlistarmaður og hikar ekki við að fara ótroðnar brautir. Hún er einnig lærður hönnuður „formgiver“ og bera sum verka hennar yfirbragð þess raunsæis sem býr að baki hönnun nytjahluta. I list sinni sameinar hún gjarnan nota- gildið og myndsköpunina og vinnur jafnframt myndverkum sínum ýmsa nytjahluti úr myndskreyttu gleri. Akureyr- ingum og íbúum nágrennis gefst nú kostur á að sjá verk þessarar frumlegu en jafnframt Inga Elín Kristinsdóttir. Sol og gler í myndlist - Inga Elín Kristinsdóttir opnar myndlistarsýningu í Gallerí AllraHanda í Listagili í dag raunsæu listakonu því hún opnar myndlistarsýningu í Gallerí AllraHanda í Listagili í dag - Iaugardaginn 27. mars kl. 15.00. Sýningin á Akureyri er 5ta einkasýning Ingu Elínar en hún hefur áður haldið sýningar í versluninni Epal í Reykjavík 1989, í Gallerí List 1991, í öall- erie Oriel í London 1992 og síð- ast hjá Sævari Karli í Bankastræt- inu í Reykjavík. Auk einkasýn- inga hefur hún tekið þátt í nokkr- um samsýningum heima og erlendis. Inga Elín stundaði nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur árin 1972 til 1974 og síðan við Myndlista- og handíðaskóla íslands til 1978, þar af tvö síðari árin í kennaradeild skólans. Eftir þriggja ára kennslustörf hér heima hélt hún til Danmerkur þar sem hún stundað nám við Skolen for Brugskunst í keramik- og glerdeild næstu fimm árin. Eftir heimkomuna frá Danmörku ákvað hún að snúa sér alfarið að list sinni og hefur einkum fengist við glerlistina síðan. Stóðst inntökupróf 15 ára - þá var ekki aftur snúið Það var snjór og ekki mjög vor- legt við gömlu Álafosshúsin í Mosfellsbæ þegar fundum okkar Ingu Elínar bar saman á vinnu- stofu hennar um síðustu helgi. Hún hefur starfað í þessari nýlendu, þar sem áður var unnið úr ull en hýsir nú vinnustofur listamanna, um tveggja ára skeið en starfaði áður á verkstæði, sem hún stofnaði við Laugaveginn. Þrátt fyrir vetrarríkið í Mos- fellsdal þennan laugardag bar allt yfirbragð innan dyra viðmót hækkandi sólar. Glerverk á veggjum - sum á vinnslustigi - önnur tilbúinn og biðu sýningar. Inga Elín vinnur verk sín á þann hátt að bræða gler yfir myndflöt- inn þegar hún hefur lokið við myndverkið og innsiglar það þannig á milli glerja. Listakonan var að störfum og eftir að hafa þegið bolla af kaffi bað ég hana að líta til baka og rifja örlítið upp aðdragandann að því að hún gerðist myndlistarmaður. „Ég byrjaði snemma að teikna. Hafði mjög gaman af því og gekk vel. Teikningin var eiginlega það skemmtilegasta sem ég gerði í skólanum. Móðir mín veitti þessu athygli og þegar ég var 13 ára þá gaf hún mér fyrir nám- skeiði í Myndlistaskóla Reykja- víkur. Tveimur árum síðar tók ég inntökupróf í Myndlista- og handíðaskólann og stóðst það aðeins 15 ára gömul. Eftii1 það var framtíðin ráðin og ekkert annað hvarflaði að mér en fást við myndlist. En til að vera praktíst og tryggja mér atvinnu- öryggi þá fór ég í kennaradeild- ina til að geta kennt að námi loknu. Og ég kenndi í þrjú ár áður en ég hélt til Danmerkur til framhaldsnáms." Glerið - margbreytilegt en viðkvæmt efni En Inga Elín tók ekki aftur til við kennslu að lokinni Danmerkur- dvöl. „Nei þá ákvað ég að fást eingöngu við það sem ég hafði verið að læra. Kennsla krefst mikils af manni og þá vaknar spurningin um hvaða orku maður á eftir til að sinna listsköpuninni. Þarna varð ég að velja og hafna. Þetta var erfitt í fyrstu en mér gengur ágætlega í dag og starfa í fullri vinnu á vinnustofu minni. Glerlistin krefst einnig mikils - hún reynir meira á mann en önn- ur listform en er einnig virkilega skemmtileg við að glíma. Glerið er mjög margbreytilegt efni er tekur til sín alla liti litrófsins og varpar þeim á umhverfi sitt. Þannig veitir það manni ótæm- andi möguleika til að ná því óvænta fram. Það er einnig við- kvæmt og getur sprungið í þús- undir mola sé ekki rétt að farið.“ Mikill áfangi að ná tækni á glerinu Inga Elín segir það mikinn áfanga fyrir listamann þegar hann hefur náð tökum á formun glersins og unnið með öll þau til- brigði sem það veitir. Og hún nýtir sér þessa tækni í verkum sínum þar sem skiptast á litrík myndverk, sem taka sífelldum breytingum eftir því hvernig þau brjóta geisla sólarinnar og skreyttir nytjahlutir - til dæmis diskar og föt þar sem litameð- ferðin nær að skapa margvísleg- ar myndir. Dæmi um þau tök sem Inga Elín hefur náð á list sinni má finna í myndinni „Óður til sólarinnar,“ sem getið er í upp- hafi þessa spjalls. Um þá mynd sagði Eiríkur Þorláksson í gagn- rýni í Morgunblaðinu að hún bókstaflega geisli af fjöri. I hönnunarverk fyrir Hadeland Inga Elín hefur komið víða við. Um það leyti sem hún var að ljúka prófi úr keramik- og gler- deildum við Skolen for Brugs- kunst var hún valin til að hanna nýja framleiðslu fyrir hina þekktu verksmiðju Hadeland í Noregi, og starfaði hún fyrir verksmiðjuna um skeið. Inga Elín var einnig í hópi 24 listiðn- aðarmanna, sem hlutu viður- kenninguna „Kunsthaandværke- prisen af 1879,“ ásamt sænskri skólasystur sinni, Brittu Berglund, sem síðar flutti til íslands ásamt Ingu Elínu og hófu þær saman rekstur keramikverk- stæðis við Laugaveginn í Reykja- vík. Þrátt fyrir velgengni í námi og viðurkenningar kærði Inga Elín sig ekki um að ílendast í Danmörku. Kvað atvinnumögu- leika ótrygga og oft litla fyrir listamenn og margir þeirra færu á atvinnuleysisbætur strax að námi loknu. „Atvinnuleysisbæturnar hefta alla listsköpun þar sem listamenn mega ekki sýna eigi þeir að halda þeim. Margir efnilegir listamenn koðna því niður og lítið verður úr hæfileikum þeirra og námi. Ég gat ekki hugsað mér að fara þá leið svo ég hélt heim til íslands nokkrum mánuðum eftir að ég lauk námi og hef starfað að list minni síðan.“ Inga Elín Kristinsdóttir var á meðal þeirra sem Dagblaðið/Vís- ir tilnefndi til menningarverð- launa í listhönnun fyrr í vetur. Þótt önnur mæt kona hafi hlotið verðlaunin að þessu sinni er til- nefningin ákveðin viðurkenning fyrir störf á listabrautinni. Inga Elín er vel að henni komin og forvitnilegt verður að sjá hvað hún býður norðlenskum sýning- argestum að horfa á Gallerí AllraHanda næstu tvær vikur. ÞI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.