Dagur - 28.04.1993, Blaðsíða 1
76. árgangur Miðvikudagur 28. apríl 1993 • 78. tölublað
Ökumenn þurftu að skaia snjó af bflum sínum er þeir vöknuðu í gærmorgun
Réttindakennurum mun væntanlega ijölga á næsta skólaári:
Umsóknum kennara fjölgar milK ára
og leiðbeinendur ljúka rettindanámi
Ekki er Ijóst hversu margir hafa
sótt um lausar kennarastöður á
Norðurlandi en umsóknir berast
yfirleitt beint til skólastjóranna
og það er ekki fyrr en eftir næs-
tu mánaðamót sem fræðslu-
stjórarnir á Blönduósi og Akur-
eyri hafa yfirsýn yfir stöðu
mála. Eins og undanfarin ár er
alltaf einhver hópur umsækj-
enda sem sækir um hjá fieirum
en einum skóla og fjöldi um-
sókna getur því verið nokkuð
afstæður.
Skólastjóramir senda fræðslu-
stjórunum síöan sínar tillögur og í
framhaldi af því verður auglýst að
nýju ef ekki fæst réttindafólk í all-
ar lausar kennarastöóur með um-
sóknarfresti til loka maímánaðar.
Leiðbeinendur geta því ekki vænst
svara við umsóknum um kennara-
starf fyrr en á miðju sumri eftir að
undanþágunefnd grunnskóla hefur
fjallað um beiðnir þeirra um kenn-
arastarf í samræmi við ákvæði
laga nr. 48/1986. Þau lög fjalla
um lögvemdun á starfsheiti og
starfsréttindum grunnskólakenn-
ara, framhaldsskólakennara og
skólastjóra.
Pétur Garðarsson, skólastjóri á
Siglufirði, segir nokkrar fyrir-
spumir hafa borist um kennara-
starf og ein umsókn hafi borist frá
réttindamanneskju, sem er svipað
og var vorið 1992. Hlutfall milli
kennara og leiðbeinenda hefur far-
ið batnandi á Siglufirði því þar
hafa leiðbeinendur verið að ljúka
réttindanámi og einnig er einn
leióbeinandinn í Farskóla KHI.
Auglýst hefur verið eftir kennur-
um í Kennaraháskólanum en ljóst
er að flestir þeirra sem útskrifast
þaðan í vor sækjast eftir kennara-
starfi á höfuðborgarsvæðinu þrátt
fyrir að tilltölulega fáar lausar
stöður séu þar og svo eru margir
búnir að stofna þar heimili og eiga
ekki heimangengt úr höfuðuborg-
inni.
Ragnhildur Skjaldardóttir, að-
stoðarskólastjóri Síðuskóla á Ak-
ureyri, segir að nú þegar hafi bor-
ist 9 umsóknir frá réttindafólki um
lausar stööur við skólann og ein
frá leiðbeinenda sem hefur há-
skólamenntun og lýkur uppeldis-
fræðinni á komandi vetri. „Við
höfum ekki ennþá fengið uppgefin
þann kennslutímafjölda sem verð-
ur hér næsta vetur en ef fer sem
horfir í þeim málum og þeir sem
sótt hafa hér um veróa ráðnir er-
um við búin að leysa ráðninga-
- fékk tóg
Á mánudag rak dýpkunar-
pramma upp í fjöru við Skaga-
strönd og strandaði þar.
Pramminn er á vegum Viggó
Brynjólfssonar vegna fram-
kvæmda við brimvarnargarðinn
á Blönduósi. Um hádegi í gær
tókst að ná honum á flot og tel-
ur Viggó að hann sé lítið
skemmdur.
Dýpkunarpramminn var áður í
eigu Dýpkunarfélagsins á Siglu-
Þokkaleg veiði var hjá smærri
bátunum sem gerðir eru út frá
Húsavík um helgina. Fanney ÞH
kom með 16,5 tonn á laugar-
dagskvöldið sem er óvenjugóður
afli, en báturinn var á netaveið-
um. Mest af aflanum er þorskur
en einnig veiðist ufsi og ýsa.
málin fyrir næsta vetur. Ég vil þó
hafa þann fyrirvara á því að sumir
umsækjendur kunna að hafa sótt
um á fleiri stöðum," sagói Ragn-
hildur Skjaldardóttir.
Nemendum Síóuskóla fjölgar
næsta vetur um nálega 30, voru
570 á yfirstandandi skólaári en
verða rúmlega 600. I vetur var
einn 10. bekkur en í haust verða
nemendur 1. bekkjar í fjórum
bekkjadeildum. GG
í skrúfiina
firði en er nú í eigu norsks fyrir-
tækis. Hann var á leið til Skaga-
strandar í var vegna veðurs þegar
hann fékk tóg eða kaðal í skrúfuna
og rak stjómlaust upp í fjöru. Um
hádegi í gær tókst að ná pramm-
anum af strandstað og sagði Vig-
gó Brynjólfsson að farið verði
með hann í slipp til að kanna
skemmdimar. Hann taldi þær þó
vera litlar og bjóst við að pramm-
inn verði fær í flestan sjó á tveim-
ur dögum eða svo. sþ
„Smábátaútgerðin er komin á
fullt, eins og venjulega á þessum
tíma. Það er reytingsafli en ef það
er ekki fiskur á þessum tíma þá er
það aldrei," sagði Tryggvi Finns-
son, framkvæmdastjóri Fiskiðju-
samlags Húsavíkur í samtali við
Dag. Næg vinna hefur verið hjá
Húsavík:
Afli smábáta að
Skagaströnd:
Dýpkunarpranuni
strandaði í Ijörunni
Ve ífc 1 1 it 1 klæddur $0$ IIIYI BERNHARDT 1 || || CA Thc Tad<*r-l.*K)k ennabudin
1 1 HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Meðferðarheimili
fyrir unglinga
í Skagafjörð
- tekur til starfa á næstunni
Á næstunni mun taka til starfa
meðferðarheimili fyrir unglinga
og verður það staðsett í Skaga-
firði. Búið er að auglýsa eftir
starfsfólki, en forstöðumaður
hefur þegar verið ráðinn. Um er
að ræða tímabundið verkefni til
eins árs, en að því loknu verður
framhaldið metið, að sögn Ein-
ars Gylfa Jónssonar forstöðu-
manns Unglingaheimilis ríkis-
ins.
Einar Gylfi sagði að þetta sé
skv. ákvörðun ríkisstjómarinnar
fyrir nokkrum vikum. Fengist hafi
fjárveiting til að reka þetta heimili
í eitt ár og að því loknu verði ár-
angurinn metinn og framtíðar-
stefna mörkuð. Á heimilinu verða
vistaðir 4-5 unglingar undir 16 ára
aldri og er reiknað með 12 starfs-
mönnum að forstöðumanni með-
töldum. Starfsmenn munu vinna á
vöktum. Auglýst hefur verió eftir
starfsfólki og rennur umsóknar-
fresturinn út 4. maí n.k.. Að sögn
Einars Gylfa er að meirihluta
óskað eftir menntuðum starfs-
mönnum, t.d. með háskólapróf í
uppeldisfræði, en einnig er ætlun-
in að ráða ófaglært fólk.
• Unglingaheimili ríkisins fékk
leigt hús að Stórugröf ytri í Stað-
arhreppi og þar verður nýja heim-
ilið staðsett næsta árið. Einar
Gylfi sagði meginástæðuna fyrir
staðarvalinu þá að gott húsnæði
hafi fengist og að hæft fólk sem
kann til verka sé á svæðinu. Þar
átti hann við Bryndísi Guómunds-
dóttur, sem starfað hefur á með-
ferðarheimili fyrir fötluó böm á
Egilsá og Svein Allan Morthens,
framkvæmdastjóra Svæðisstjómar
um málefni fatlaóra á Norðurlandi
vestra. Ekki er búið að ganga
formlega frá ráðningu forstöðu-
manns, en Einar Gylfi sagði geng-
ið út frá því aó Bryndís muni geg-
na því starfi. Hún ásamt Sveini
Allan muni vinna undirbúnings-
vinnuna og vera í forsvari fyrir
heimilinu. Einar Gylfi sagðist ekki
geta sagt nákvæmlega til um hve-
nær heimilió tekur til starfa, en
kvaðst vonast til að þaó verði
fljótlega. sþ
Kaupfélag Eyfirðinga:
Um 12% veltuaukning í
matvöruversluninni
- samdráttur í ýmsum öðrum greinum
verslunar á síðasta ári
Velta verslunardeilda Kaup-
felags Eyfirðinga var tæpir 3,8
milljarðar króna á síðasta ári
og dróst lítillega saman í
krónutölu frá árinu á undan en
þá losaði velta verslunarinnar
rúma 3,8 milljarða. Samdrátt-
ur varð í 12 verslunardeildum
félagsins af 18, aukningin varð í
4 og sala tveggja stóð því sem
næst í stað á milli áranna 1991
og 1992.
Mest aukning varð í sölu á
matvöru á vegum félagsins og
jókst velta matvörudeildar þess
úr 927 milljónum í rúman einn
milljarð króna á milli ára. Sala í
Stjörnu-Apoteki og Byggingavöru-
glæðast
vinnslunni að undanfömu og vin-
na þurfti sl. laugardag. „Ef eitt-
hvað fiskast eru bátamir búnir
með kvóta sinn um leið, svo það
eiga ekki eftir að gerast nein und-
ur og stórmerki,“ sagði Tryggvi.
IM
deild jókst einnig auk þess sem
nokkur söluaukning varð á salti.
Velta vöruhúss félagsins lækkaði
úr 246 milljónum í 215 milljónir
og einnig varð samdráttur í sölu
flestra útibúa félagsins utan
Akureyrar.
í Ársskýrslu Kaupfélags Ey-
firðinga kemur fram að árið 1992
hafi fyrir margra hluta sakir verið
merkilegt fyrir Matvörudeild
kaupfélagsins. Rekstri tveggja
verslana hafi verið hætt, verslan-
anna við Brekkugötu 1 og Höfða-
hlíð 1 en í stað þeirra hafi ný
verslun, KEA-Nettó, verið opnuð
að Óseyri 1. Ekki sé annað að sjá
en breytingar þessar hafi mælst
mjög vel fyrir og viðskiptavinir
hafi tekið þeim vel. Ennfremur
segir að rekstur deildarinnar hafi
gegnið ívíð betur en árið áður og
því sé einkum tvennu að þakka;
annars vegar að á síðasta ári hafi
að mestu verið lokið við að taka
strikamerkingu í notkun og hins
vegar tilkomu KEA-Nettó.
Hvort tveggja hafi orðið til þess
að skapa verulega hagræðingu í
rekstri og lækka rekstrarkostnað
á sama tíma og um 12% veltu-
aukning hafi orðið í matvöru-
versluninni. ÞI