Dagur - 20.05.1993, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 20. maí 1993
Minning
A Odda Margrét Júlíusdóttir
Fædd 18. febrúar 1951 - Dáin 11. maí 1993
Við fengum þá sorgarfregn mið-
vikudaginn 12. maí, aö fyrrver-
andi kennari okkar, Odda Margrét
Júlíusdóttir, hefði dáið aðfaranótt
11. maí.
Við vorum mjög lánsamar að
fá að kynnast henni þegar hún
byrjaði að kenna okkur veturinn
1987 í Lundarskóla, og kenndi
hún okkur í tvö ár. Odda var ekki
bara kennari heldur var hún einnig
góður vinur. Þegar eitthvað bját-
aði á gátum við komið til hennar
og rætt málin.
Við viljum bara meó örfáum
orðum kveðja þig, Odda okkar, og
við vitum að þegar vió munum
hugsa til þín munu hjörtu okkar
fyllast hlýju og kærleika.
Við vottum aðstandendum
samúð okkar og Guð blessi þig,
elsku Odda.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé loffyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tegatárin stríð.
Far þú ífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk jyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði„
Guð þér núfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Hólmfríður, Kolbrún,
Sigríður Ósk og
Nanna María.
Hið Himneska, vœngjaða vor,
það vitjar nú barna sinna.
Á allt, sem erfagurt, það andar,
- á allt, sem er gott, vill það minna.
Það kemur með sólskin í svip
og suðrœna dýrð á brá,
- með eldinn í elskandi hjarta
og œskunnar dýpstu þrá.
(Jóhannes úr Kötlum)
Þetta fagra vorljóó vorum við að
lesa, þegar okkur barst sú harma-
fregn að hún Odda Margrét okkar
væri dáin. Okkur fannst eins og
þetta ljóð væri kveðja frá henni.
Hún sem unni fögrum ljóðum,
vori og sól.
Odda Margrét byrjaði að kenna
okkur þegr við vorum 6 ára, sum
okkar höfðu þegar kynnst henni í
leikskóla og hún kenndi okkur
næstu fjögur ár. Við minnumst
sérstaklega allra skemmtilegu
ferðanna niður að Andapolli í 6
ára bekk. Hún var mikill barna-
vinur og okkur leið vel hjá henni.
I vetur kom hún í heimsókn í
bekkinn okkar ásamt nokkrum
bömum úr leikskólanum Holta-
koti. Þaó var yndisleg stund sem
við áttum þá saman í 6. bekk í 29.
stofu, við kertaljós og kökur.
Odda Margrét var góð mann-
eskja og við erum þakklát fyrir aó
hafa fengið að kynnast henni. Við
söknum hennar mikið og munum
geyma minningamar um hana eins
og skínandi perlur.
Nemendur 6. bekk 29. stofu,
Lundarskóla veturinn 1992-’93.
Fráfall þess sem er manni kær
kemur alltaf jafn mikið á óvart þó
séð væri að hverju stefndi. Minn-
ingarnar streyma fram og verða að
dýrmætum sjóói.
Falleg tólf ára stúlka ræðst sem
bamfóstra hjá íþróttakennara sín-
um. Það var engin tilviljun að ég
sóttist eftir að Odda Margrét gætti
tveggja ára sonar míns og ekki
brást hún traustinu, hvorki þá né
endranær. Rúmur áratugur líður,
þá verður hún bekkjarkennari ann-
ars sonar míns og endumýjast þá
gömul vinátta. Síöan liggja leiðir
okkar saman viö kennslu í Lund-
arskóla um sjö ára skeiö og er ég
nú umsjónarkennari fyrrverandi
nemenda hennar. A síðasta ári var
Odda Margrét fóstra á leikskólan-
um Holtakoti og gætti þá tveggja
ára sonardóttur minnar, af sömu
trúmennsku og fyrr. Fyrir allt
þetta og miklu meira vil ég þakka
að leióarlokum.
Odda Margrét kunni þá list að
tala jafnt vió böm og fullorðna og
laða fram það besta í hverri sál.
Það gerði hún með þeirri hógværð
og hlýju sem ekki gleymist.
Astvinum hennar öllum sendi
ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Minning um trausta heilsteypta
konu lifir.
Margrét Rögnvaldsdóttir
og fjölskylda.
Fyrir hönd 6. bekkjar í 32. stofu í
Lundarskóla veturinn 1985-1986
langar mig til að minnast einstakr-
ar konu, sem eftir langvarandi
veikindi hefur nú kvatt okkur í
þessum heimi.
Þær eru margar, minningamar,
sem koma upp í hugann þegar
minnst er á Lundarskóla. Mest var
þó lært í 6. bekk. Þann vetur
kynntist ég frábærri konu sem
kenndi mér, henni Oddu Margréti.
Það var ekki eingöngu að henni
tækist vel upp að kenna okkur á
bókina. Henni lét vel að vinna
með bömum og fá okkur til að
vinna með sér. Hún fékk þama
erfiðan hóp með ólíkum einstak-
lingum, en eftir fáar vikur hafði
hún náð góðu valdi á okkur með
lagni sinni, hún var í senn ljúf og
hörð. Hún var mikill mannþekkj-
ari og meðhöndlaði hvert okkar
um sig sem einstakling, virti okk-
ur og leiðbeindi. Hún hjálpaði mér
á einstakan hátt til þess að skilja
sjálfa mig og fá traust á sjálfa
mig, en það var ekki mikið fyrir.
Hún talaði einhvem veginn í mig
kjark.
Oddu á ég mikið að þakka.
Hún beindi okkur öllum á rétta
braut. Hún hafði mikinn áhuga á
því sem við vorum að gera og
hvatti okkur til dáða. Odda vildi
líka vita hvað okkur fannst um
það sem var að gerast í skólanum,
heiminum og í lífinu sjálfu, og
hún fékk ^kkur til að sjá lífið í
nýju ljósi. I þessum umræðum var
hún líka virkur þátttakandi, Odda
var ein af okkur. I lok vetrarins
var hún orðin góð vinkona mín og
ég minnist hennar sem slíkrar. Ef
ég hitti gamla kennarann minn á
götu var Odda alltaf full áhuga á
að vita hvað ég væri að gera og
hvemig mér fyndist lífið.
Já, enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur. Ég veit að
þessi orð mín eru fátækleg, en
minningin um Oddu Margréti
mun ylja mér og okkur öllum um
ókomna tíö, og vió skulum muna
aó „þú grætur vegna þess, sem var
gleði þín“.
Kæru Jón og Vala, ég votta
ykkur innilega samúð mína.
Fyrir hönd bekkjarins,
Aðalheiður Sigursveinsdóttir.
En eins og blómin spretta úr moldinni
þannig hefur orð þitt
vaxið í brjósti mínu.
(Matthías Johannessen).
Odda Margrét kenndi okkur
margt. Hún var kennari sem leit á
okkur sem einstaklinga en ekki
bara hóp. Við fundum að henni
þótti vænt um okkur og þess
vegna þótti okkur vænt um hana.
Minningin um Oddu mun ætíð
lifa.
Við sendum Jónsa, Völu og
öllum þeim sem syrgja hana okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Hrönn og Þrúður.
„Eg skil ekki upphafið
ég skil ekki ástina
ég skil ekki dauðann.
Óverðskuldað
er þetta þrennl. “
(Sigfús Daðason)
Enginn má sköpum renna. Dauð-
inn, hinn endanlegi og óumflýjan-
legi ofjarl lífsins, hefur lagt að
velli sómakonu á besta aldri.
Odda Margrét Júlíusdóttir var
fædd á Akureyri þann 18. febrúar
1951, og var því aðeins 42ja ára,
er hún lést.
Hún var dóttir hjónanna Júlíus-
ar Oddssonar og Valgerðar Krist-
jánsdóttur. Júlíus var fæddur 10.
janúar 1913, og lést 4. október
1977. Hann var Eyfirðingur að ætt
og uppruna og átti rætur aó rekja
til Dagverðareyrar og Glæsibæjar.
Júlíus starfaði lengst af sem lager-
maður í Vélsmiðjunni Odda á Ak-
ureyri. Hann var öðlingur og hon-
um var margt til lista lagt. I ára-
tugi var hann einn af máttarstólp-
um Leikfélags Akureyrar og dýrk-
aði hann Þalíu allt fram undir and-
látió. Valgerður, móðir Oddu, var
fædd 19. mars 1917, og lést langt
um aldur fram þann 16. desember
1972. Hún var af skagfirsku bergi
brotin en foreldrar hennar fluttu
sig um set og bjuggu í Öxnadal.
Valgerður var traust kona og
börnum sínum stoð og stytta. Júlí-
us og Valgeróur eignuðust þrjú
börn en auk Oddu eru þaö Rósa
Kristín, fædd 1945, myndlistar-
maður og kennari vió Myndlista-
skólann á Akureyri, gift Nick Car-
iglia lækni á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri, og Guðmundur
Amar, fæddur 1954, vélstjóri á
Súlunni EA, búsettur á Akureyri
og kvæntur Siggerði Bjarnadóttur
fiskmatsmanni.
Odda ólst upp á Eyrinni og
gekk í Oddeyrarskólann, síóan í
Gagnfræðaskóla Akureyrar og
Menntaskólann á Akureyri. Hún
brautskráðist stúdent vorið 1971.
Síðan lá leiðin suður yfir heiðar í
Fósturskóla íslands. Þann 27. nóv-
ember 1972, gekk hún að eiga Jón
Laxdal Halldórsson frá Akureyri
og bekkjarfélaga úr M.A. Jón var
þá skáldspíra og heimspekinemi
vió Háskóla Islands. Giftinguna
bar brátt að en kom þó ekki alls
kostar á óvart þeirn er best þekktu
til. Valgerður, móðir Oddu, lá þá
banaleguna norður á Akureyri og
hafði hún að orði, að sér litist vel
á ráðahaginn. Enda kom það á
daginn, að þau hjón voru samhent
um það sem máli skipti og bættu
hvort annað upp, svo ólík sem þau
voru að upplagi. Þau eignuðust
eina dóttur, Valgerói Dögg, fædda
1973, sem nú er nemandi í M.A.
Odda útskrifaðist úr Fóstur-
skólanum árið 1973 og fluttist þá
til Akureyrar. Þar voru rætumar,
þar vildi hún vera og hún þreifst
ekki annars staðar. Uppeldi og
umönnun smábarna varö ekki
ævistarf hennar, þrátt fyrir mennt-
unina, heldur kennsla. Hún var
bamakennari allar götur frá 1973
og fram til 1992, ef undan er skil-
inn einn vetur, 1976-77, er hún
lagði stund á leikhúsfræði við Há-
skólann í Arósum. Fyrst kenndi
hún við Barnaskóla Akureyrar og
síðan við Lundarskóla. A sumrin
sinnti hún fóstrustörfum.
Sumir virðast fæddir kennarar
og kenna af list og tilfinningu;
aðrir leggja nótt við nýtan dag í
ástundun kennslufræða en verða
þó aldrei nema miðlungs hand-
verksmenn. Odda hafði aldrei
formleg réttindi til kennslu en hún
hafði hæfileika, dugnað og metn-
að og lagói sálu sína í starfió. Hún
gaf af sjálfri sér og slíkt skynjar
smáfólkið. Þess vegna uppskar
hún ríkulega í sínu mannræktar-
starfi.
Akureyri er fagur bær en stund-
um er eins og fjallafaðmur byrgi
útsýn og fásinni hamli þroska
hugarfarsins. A slíkum stöðum er
sá sem bindur bagga sína öðrum
hnútum en samferóamennirnir oft
á tíðum litinn homauga. Jón, mað-
ur Oddu, hefur stundað myndlist,
skáldskap og útgáfustörf á Akur-
eyri í hart nær tuttugu ár og einatt
verið umdeildur. En þegar á móti
blés, þá studdi Odda við bakið á
bónda sínum. Því gladdi þaó hana
óumræðanlega rétt fyrir andlátió,
þegar Akureyrarbær veitti Jóni
uppreisn æru og útnefndi hann
bæjarlistamann næsta árið.
Odda var geðrík kona og það
gustaði af henni. Hún var hrein-
skilin og sagði skoðanir sínar um-
búðalaust. En sakir hjartahlýju og
góðsemdar átti hún sér fáa eða
enga óvildarmenn; að henni er
sjónarsviptir.
Enginn maður skilur annan
mann nokkum tímann til fulls,
sagði heimspekingurinn Spren
Kierkegaard, og sérstaklega gildir
það um sorgina, þar sem andlag
hennar ætíð er svo bundið hinum
einstaka. Harmur Jóns og Völu er
mikill og samúð er fátækt orð.
Aðeins tíminn og endurminningin
munu huggun veita.
Sigurður Ólafsson.
Kynni okkar Oddu Margrétar hóf-
ust í Barnaskóla Akureyrar haust-
ið 1973 er við kenndum þar báðar.
Ég man alltaf það augnablik þegar
við hittumst fyrst. Ég sat á kenn-
arastofunni og inn gekk falleg,
grönn og glaðleg ung kona í grá-
um samfestingi. Það var Odda
Margrét.
Síðar lá leið okkar beggja í
Lundarskóla þar sem við kennd-
um báöar í nokkur ár. Það var gott
að hafa Oddu Margréti í kennara-
hópnum. Henni gekk afar vel að
vinna með nemendum sínum; hún
var góður kennari. Þaó fylgdi
henni svo mikil hlýja og léttleiki.
A þessum árum opnaði Odda
Margrét heimili sitt fyrir mér, að-
komukennaranum. Það var mér
mikils virði. Þegar ég lít til baka
var hún ein af fyrstu Akureyring-
unum sem myndaói varanleg vin-
áttutengsl vió mig. Ánægjustundir
okkar urðu margar.
Það var óvenjulegt að fylgjast
með hve samhentar systumar
Rósa Kristín og Odda Margrét
voru, hve samband þeirra og fjöl-
skyldnanna var óvenju sterkt og
gott. I hugann koma margar ynd-
islegar samverustundir í Dalsgerð-
inu en þar bjuggu fjölskyldumar
saman um tíma. Oft urðu umræó-
umar um uppeldismál, matreiðslu,
listir og stjómmál heitar og heill-
andi.
Þegar ég hætti aó kenna í
Lundarskóla rofnuðu tengsl okkar
um tíma en mynduðust á ný í erf-
iðleikum okkar beggja. Hún var
svo gefandi, gaf mér styrk og
hlýju sem byggó var á raunveru-
legum skilningi og óttaleysi þess
sem þekkir þjáninguna, hörfar
ekki frammi fyrir erfíðleikum
annarra.
Eitt sinn í vetur sem leið, er
Odda Margrét var nýkomin heim
eftir erfiða sjúkrahúsdvöl, fengum
við sonur minn og ég boð um að
koma í heimsókn. Þá var hún búin
að prjóna fallega, munstraða húfu
á son minn. Þrátt fyrir mikil veik-
indi hugsaði hún um aðra og gerði
sitt til að gleðja.
Nokkur kvöld í mars og apríl
síðastliðnum sátum við Odda
Margrét saman á bútasaumsnám-
skeiði í Myndlistaskólanum hjá
Rósu Kristínu. Þá leyndi sér ekki
hve alvarleg veikindi Oddu
Margrétar voru. Mér eru ofarlega í
huga orðin hennar: „Nú ætla ég að
læra bútasaum, mig hefur lengi
langað til þess en aldrei látió
verða af því.“ Hún lærði það sem
hún ætlaði sér og saumaði meira
en ég.
I minningunni geymi ég mynd
af yndislegri konu sem bæði gaf
og kenndi mér mikið. Fyrir það er
ég afar þakklát. Blessuð sé minn-
ing Oddu Margrétar Júlíusdóttur.
Við Karl sendum Jóni Laxdal,
Völu Dögg og ástvinum öllum
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum góðan Guð aó styrkja
þau í þeirra miklu sorg.
Búdapest 13. maí 1993,
Ingibjörg Auðunsdóttir,
Karl Guðmundsson.
Til sölu á Flateyri
einbýlishús, 4ra herb. meö bílskúr, samtals 138 mJ.
Skipti á eign á Akureyri koma til greina. Góð lán
fylgja.
Allar upplýsingar veittar á
Fasteignasölunni Brekkugötu 4,
símar 21744 og 21820.
Fasteignasalan =
Brekkugötu 4 • Sími 21744