Dagur - 04.08.1993, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 4. ágúst 1993
Húseigendur
- Húsfélöa
Eru sprungur?
Laus múrhúð?
Flögnuð málning?
Er leki?
Kemur saltlausn út
á veggjum?
Tökum að okkur múrvið-
gerðir, sprunguviðgerðir,
háþrýstiþvott og
sílanböðun.
Hafið samband og
leitið upplýsinga.
Greiðslukjör til allt að
þriggja ára.
B. Bjarnason og Co.,
Glerárgötu 14, sími 27153.
GLERÁRGÖTU 36
SÍMI 11500
A söluskrá:
* Móasíða:
4ra herb. raðhús ásamt bílskúr,
ekki alveg fullgert. Áhvílandi
húsn.lán um 7.6 millj. Skipti á
minni eign hugsanleg.
★ Kjalarsíða:
2ja herb. íbúð í svalablokk um
60 fm. Áhvílandi húsn.lán um 2.5
millj.
+ Vantar:
Góða 3ja herb. íbúð á 1. hæð í
Lundarhverfi.
* Heiðarlundur:
5 herb. raðhús á tveimur hæðum
ásamt garðstofu, samtals um
157 fm. Mjög falleg eign. Skipti á
3ja-4ra herb. eign á jarðhæð á
Brekkunni hugsanleg. Áhvílandi
húsn.lán um 5 millj.
+ Þórunnarstræti:
3ja-4ra herb. íbúð á 1. hæð um
85 fm. Skipti á rúmgóðri 2ja
herb. íbúð koma til greina.
* Lækjargata:
Gamalt og gott einbýlishús - all-
mikið endurnýjað - 3-4 svefnher-
bergi. Áhvílandi húsn.lán um 3.1
millj. Laust 1. september.
FASTÐGNA& (J
SKIPASALA
NORÐURLANDS O
Glerárgötu 36, sími 11500
Opið virka daga
frá kl. 9.30-11.30 og 13-17.
Sölustjóri:
Pétur Jósefsson
Lögmaður:
Benedikt Ólafsson hdl.
Vinninc laugari (fj (3
stölur 31. iúlí ’93
(T2)l DK36
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAF UPPHÆÐ Á HVERN A VINNINGSHAFA
1. 5aí5 4 0 2.145.527,-
2. W 1 372.587,-
3- 4af5 141 4.558,-
4. 3ai5 2.988 501,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.657.780.-
2 M & w 1
I UPPLÝSINGAfl:SlMSVARl91 -681511 lukkuUna991002
Fréttir
*
Atfft'T,
F0jtí-Af OiaIL
^ R
3o
9 C|
OOc SJgPócv.aí J HfiíO! HJA
fílVNk óú. jOui 'R3
5 ÓJ Í&IR K ! Kv :r/ X/
Tpun
'Pöxm
Zf S'Rt'VKAU^.
•'í . n v. & rrKK P.
rKi-. •'■■.T'VX.v'K. ,/. f -? ;... * V *
Ótti við fangann
Flótti þriggja fanga frá Litla
Hrauni í síðustu viku olli ótta
fólks víða um land. Lögreglan á
Akureyri svipaðist síðdegis á
föstudag eftir einum þeirra,
Björgvini Þór Ríkarðssyni, en
hann var talinn hættulegur. Tal-
ið var að til hans hefði sést á
Akureyri en á föstudagskvöld
var hann handtekinn í Reykja-
vík.
Hér að ofan sjást skilaboð sem
hengd voru upp í mörgum
stigagöngum fjölbýlishúsa í
Lundahverfi á Akureyri eftir að til
fangans náðist og sýna þau vel
þær áhyggjur sem fólk hafði af
íausagöngu þessa hættulega fanga.
Hann var sem kunnugt er dæmd-
ur til fangavistar vegna líkams-
árásar í Reykjavík og nauðgunar á
Akureyri. JOH
heyra í hundunum hvernig þeir
urruðu að mér í hvert skipti sem
ég tók á steininum - og ekkert
þess á milli,“ sagði Njáll í samtali
við Dag.
Njáll er nú í fríi norðan heiða
og tók m.a. þátt í Síldarævintýri
nú um helgina. Hann sagði að afl-
raunamaðurinn, Guðni Sveinsson,
sem er í lögreglunni á Siglufirði,
hefði í vörslu sinni tíukrónupcn-
ing sem Njáll beygði í vióurvist
fimm lögreglumanna svo sjónar-
munur var á auk þess sem lögregl-
an hefði fengið hann til þess að
lyfta 50 kg lóói með litla putta
upp í höfuðhæó eins og skálað
væri; geröi hann þetta bæði með
hægri og vinstri hendi. GT
Myndir: Sævar Herbertsson.
Njáll Torfason
Vestfjarðaskelfir:
Lyfti stein-
imuní
Laufási
Þessi mynd var tekin um hádeg-
isbil í gær þegar Njáll Torfason
Vestfjarðaskelflr lyfti hesta-
steininum eða aflraunasteinin-
um í Laufási í tvígang með ann-
arri hendi en steinninn vegur
að sögn 260-270 kg.
Að sögn Njáls voru prestshjón-
in í Laufási viðstödd þessa aflraun
og var haft eftir séra Pétri Þórar-
inssyni aö Fnjóská hefði getað
runnið undir steininn í einu lagi.
Eins og sjá má á myndinni hefur
Njáll lyft steininum hátt í tíu
sentimetra í seinna skiptið.
Ekki verður fullyrt um hvort
krafturinn er af sama tagi og sá
sem gerir Njáli kleift að festa við
sig hluti „en það var gaman aó
Skagafjörður:
Þnár líkamsárásir
Tveir menn voru fluttir á
sjúkrahús vegna áverka eftir
slagsmál á balli í Miðgarði á
föstudagskvöldið, en þrír dans-
leikir voru í sýsíunni um helg-
ina. Umferð gekk slysalítið fyrir
sig, tvö minniháttar óhöpp urðu
á laugardag.
Tvö böll voru í Miógarði um
helgina, á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Tveir voru fluttir á
sjúkrahús á föstudagskvöld með
alvarlega áverka eftir slagsmál,
annar var nefbrotinn cn hinn með
alvarlega áverka á auga og var
hann fluttur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur. A laugardagskvöldið
urðu einnig slagsmál í Miðgarói
og hlaut einn maður minni háttar
áverka í andliti.
Einn ökumaður var tekinn
vegna gruns um ölvunarakstur á
laugardag, 13 voru stöðvaóir
vegna hraðaksturs um helgina.
Keyrt var á lamb og það drcpið
við bæinn Fremri-Kot á laugar-
dag. A laugardagskvöld var ekið á
umferðarskilti við Narfastaði á
Siglufjarðarvegi og fór bíllinn út-
af. Engin slys uróu þó á fólki. sþ
Húnaþing:
Umferðin gekk greiðlega
Að sögn lögreglu á Blönduósi
gekk umferðin um verslunar-
mannahelgina áfallalítið. Um 70
manns voru stöðvaðir fyrir of
hraðan akstur, þar af voru tveir
sviptir ökuleyfi. Eitt umferðaró-
happ varð á laugardag, en lítil
meiðsl á fólki.
Frá föstudegi til og með mánu-
dags voru um 70 ökumenn stöðv-
aðir fyrir of hraóan akstur af lög-
reglunni á Blönduósi. Tveir öku-
menn voru sviptir ökuleyfi á
staðnum vegna hraðaksturs og
tveir voru teknir vegna gruns um
ölvunarakstur. A Iaugardag ók bíll
út af veginum og valt, við Ytri-
Löngumýri í Langadal. Tveir voru
í bílnum og sluppu án mikilla
meiösla. sþ
Mikil loðnuveiði undanfarna daga:
Um 34 þús tonn á
land á Siglufírði
Mok loðnuveiði var um helgina
á miðunum um 300 mílur norð-
ur af landinu og náðu allflest
loðnuskipin að fylla sig á ör-
skömmum tíma. A annað
hundrað þúsund tonn eru kom-
in á land það sem af er sumar-
vertíð. Astand loðnunnar er
misjafnt að sögn viðmælenda
Dags, en mun þó fara skánandi.
A Raufarhöfn hefur verið land-
að um 24 þúsund tonnum. Um og
eftir helgina lönduðu Guðmundur
Ólafur ÓF tæpum 600 tonnum,
Kap VE 680 og Grindvíkingur
979. Þórður Jónsson hjá SR-mjöl
á Siglufiröi segir að verksmiðjan
hafi tekið á móti um 34 þúsund
tonnum það sem af er vertíðar.
Frá sunnudegi hafa tjögur skip
landað á Siglufirði og hafa þau öll
verið meó fullfcrmi. Súlan kom
með 710 tonn, Sunnuberg með
810, Háberg 640 og Þórshamar
580, auk þess scm Hábergið var á
leið inn aftur mcð sama magn. I
Krossanes eru komin rúmlega sjö
þúsund tonn á land, en á mánudag
landaði Þórður Jónasson um 690
tonnum. A Vopnaflrði hefur verið
landað um 3900 tonnum, auk
þess sem Súlan EA kom með 750
tonn þangað í gær. Á Þórshöfn
voru í gær komin um 12 þús. tonn
á land en þá lönduðu Bjarni Ól-
afsson og Svanur samtals 1400
tonnum. Auk þessa má geta að
Júpíter landaði um 1400 tonnum
á Seyðisfirði í gær. PS
Sigurður Guðmundsson
forstjóri látinn
Sigurður Guðmundsson, for-
stjóri Klæðaverslunar Sigurð-
ar Guðmundssonar á Akur-
eyri, lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri sl. mánu-
dag.
Sigurður fæddist 17. nóvem-
bcr 1914 á Ferjubakka í Mýrar-
sýslu, sonur hjónanna Guð-
mundar Andréssonar, bónda þar
og konu hans, Ragnhildar Jóns-
dóttur. Siguróur stundaói nám í
Héraðsskólanum á Reykjum í
Hrútallrði 1934-35 og Héraðs-
skólanum í Reykholti 1935-36.
Hann nam klæöskeraiðn í Borg-
arnesi 1937-41 og tók próf í
þeirri grein frá Iónskóla Akur-
eyrar 1942.
Sigurður rak eigin sauma-
stofu á Akureyri 1947-55 en
það ár stofnaði hann Klæða-
verslun Sigurðar Guðmunds-
sonar þar í bæ og var eigandi
þess fyrirtækis til dauðadags.
Sigurður var formaður Ung-
mennafélagsins Skallagríms í
Borgarnesi 1939-40 og í stjórn
Iónaðarmannafélags Akureyrar
1952. Hann var yfirmeistari
Oddfellowstúkunnar no. 2 Sjöfn
IOOF á Akureyri 1973 og 1974
Sigurður Guðmundsson.
og starfaði innan reglunnar allt
til haustsins 1990, er hann veikt-
ist alvarlega. Hann var sæmdur
25 ára fornliðamerki Odd-
fellowa 1973 og fyrrummeist-
arastjörnu Oddfcllowa 1976.
Eftirlifandi eiginkona Sigurð-
ar er Guðrún Karlsdóttir og eiga
þau tvö börn; Guðmund, versl-
unarstjóra á Akureyri, og Karí-
tas Ragnhildi, hjúkrunarfræðing
íReykjavík. BB