Dagur - 04.08.1993, Page 6
6 - DAGUR - Miðvikudaaur 4. ánúst iqqt
Íþróttir
Svanur Valgeirsson
Púls norðlenskrar knattspymu
Knattspyrnuvertíðin er nú kom-
in vel á veg og þegar gert hefur
verið hlé á boltanum er ekki úr
vegi að velta fyrir sér örlítið
stöðu liðanna á Norðurlandi og
heyra hljóðið í forsvarsmönnum
liðanna.
1. deild karla:
Aóeins eitt lió af Norðurlandi
leikur í fyrstu deild karla þetta
sumarið, þ.e. Þór á Akureyri. Lió-
ið stóð sig mjög vel í baráttunni á
liðnu sumri en gengió í sumar hef-
ur valdið mönnum nokkrum von-
brigóum. Eftir jafnmargar umferð-
ir í fyrra var liðið með 18 stig en
nú eru þau tólf.
Staðan í 1. deild:
IA 10 9 0 1 33 8 27
Fram 10 6 0 4 28 17 18
FH 10 5 3 2 18 15 18
KR 10 5 1 4 21 15 16
ÍBK 10 4 2 4 14 19 14
Valur 10 4 1 5 13 12 13
Þór 10 3 3 4 9 11 12
ÍBV 10 3 3 4 15 20 12
Fylkir 10 3 1' 6 13 21 10
Víkingur 10 0 2 8 8 32 2
1. deild kvenna:
A liðnu hausti voru Akureyrarlió-
in í kvennaboltanum, Þór og KA,
sameinuð og leika nú undir nafni
IBA. Menn geróu sér grein fyrir
að svo gæti farið að á brattann
yrði að sækja með nýtt lið en engu
að síður er líklega óhætt að segja
aö gengið hafi verið verra en
menn höfðu vonað. Fjórir leikir
eru eftir og lióið er nú í næst-
neðsta sæti. Sigurbjörn Vióarsson
þjálfar liðið:
„Gengið er ekki eins og ég
hafói óskaó mér og í raun áít von
á. Við klúðruóum tveimur leikjum
sem við áttum aó vinna og þar
fóru sex stig fyrir lítið. Vió eigum
erfitt verkefni fyrir höndum, að
reyna aö halda okkur uppi en ég
er hvergi banginn. Andinn í liðinu
er góður og stelpurnar geta þetta
ef þær vilja.“
Staðan í 1. deild:
KR 7 5 2 0 19 8 17
UBK 8 4 2 2 18 13 14
Valur 8 4 1 3 15 10 13
Stjarnan 8 2 3 3 21 19 9
Þróttur N 8 2 2 4 11 21 8
ÍBA 8 2 1 5 10 16 7
ÍA 7 1 3 3 9 16 6
2. deild karla:
Þrjú lið af Noróurlandi leika í 2.
deild, Leiftur, Tindastóll og KA.
Leiftur
Leiftursliðið byrjaói af miklum
krafti og var á tímabili við topp-
sætið. Einhver hiksti virðist vera í
gangnum í síðustu umferóum og
liðið hefur aðeins fengið eitt stig
út úr síðustu þremur leikjum í
deildinni. Marteinn Geirsson er
þjálfari liðsins:
„Undanfarið hefur þetta ekki
verið nógu gott hjá okkur en ég
vona að okkar tími sé kominn.
Fríið hjá okkur lengdist aðeins
fyrst fresta þurfti leiknum gegn BI
og mér þótti það miður,“ sagði
Marteinn. Hann sagöist vera bjart-
sýnn á framhaldið; leikimir í sum-
ar hefóu spilast vel fyrir lióið og
þeir ætluöu sér stóra hluti. „Vió
vorum fyrirfram staðráðnir í að
gera betur en í fyrra. Þá lentum
við í fjórða sæti og þriðja sætið í
ár væri mjög gott og allt þar fyrir
ofan yrði góður bónus.“
Tindastóll
Tindastóll fékk fimm stig út úr
fyrstu þremur umferðunum en eft-
ir það komu fimm tapleikir í röð.
Tveir sigrar og eitt jafntefli er svo
niðurstaðan út úr síðustu þremur
umferðunum og lióið er í þriðja
neðsta sæti deildarinnar. Olafur
Jónsson er framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar Tindastóls:
„Við vildum auövitaö vera með
meira af stigum en verður maður
ekki aó vona aö við eigum eftir að
reita eitthvað af stigum til okkar.
Þaó er nóg af stigum eftir í pottin-
um.Við gerðum okkur grein fyrir
því í upphafi að deildin yrði jöfn
og spennandi, eins og komið hefur
á daginn. Eg hef löngum sagt að
það sé betra aö klífa brekkumar
upp á við en aó renna sér á rassin-
um niður þær og með það að leið-
arljósi ætlum við okkur aó mæta
grimmir til leiks eftir hlé,“ sagði
Olafur Jónsson.
KA
KA-menn fóru ákaflega illa af
staó í sumar og um tíma voru þeir
í neðsta sæti deildarinnar. Liðið
sem kom úr fyrstu deild stefndi
hraðbyri niður á við en hefur held-
ur betur rétt úr kútnum og unnið
þrjá síðustu leiki, þar á meðal tvö
efstu liðin í deildinni. Njáll Eiðs-
son er þjálfari:
„Eg er auðvitað ekki sáttur við
stöðuna en mjög ánægður meö aö
við erum búnir að vinna þrjá leiki
í röð. Eg vissi það strax í vor að
þetta gæti oróið spurningarmerki
en ég vonaðist þó eftir betri ár-
angri en þetta. Framundan cru
margir sex stiga leikir og fram-
haldið ræðst á næstu tveimur vik-
um,“ sagöi Njáll Eiðsson.
Staðan í 2. deild:
UBK 11 7 2 2 20 6 23
Stjarnan 11 7 2 2 21 11 23
Leiftur 10 5 2 3 19 16 17
Þróttur R 11 4 3 4 17 17 15
Grindavík 11 4 3 4 12 13 15
ÍR 11 4 1 6 16 17 13
KA 11 4 1 6 14 19 13
Tindastóll 11 3 3 5 18 23 12
Þróttur N 11 3 2 6 12 24 11
BÍ 10 2 3 5 13 16 9
2. deild kvenna, B:
Kvennadeildin er spiluó í riólum
og í Norðurlandsriðli eru Dalvík,
Tindastóll, Völsungur og Leiftur.
Dalvík
Dalvíkurliðið verður að teljast sig-
urstranglegast í B-riðli kvenna-
boltans. Liðið á eftir að leika við
Leiftur á útivelli og síðan Tinda-
stól heima. Eins og kunnugt er
komst liðið í undanúrslit í bikar-
keppninni og á liðið örugglega
eftir að búa að því þegar kemur aó
úrslitaleiknum gegn Stólunum.
Þórunn Sigurðardóttir er þjálfari
liösins:
„Ég er mjög ánægð meö sum-
arið. Ég setti mér strax það mark-
mið að koma liðinu í úrslit og sá
draumur gæti orðið að veruleika
ef við náum hagstæðum úrslitum
úr þeim leikjum sem við eigum
eftir. Það hefur verið ákveðinn
stígandi í þessu hjá okkur og lióið
er á uppleið,“ sagði Þórunn.
Tindastóll
Tindastóll er eina liðió sem gæti
komió í veg fyrir aó Dalvíkingar
færu í úrslitin. Vinni lióið leikinn
gegn Dalvík verður sætió í úrslit-
unum væntanlega þeirra. Guð-
bjartur Haraldsson er þjálfari liðs-
ins, ásamt Stefáni Péturssyni.
„Þetta hefur verið ágætt í sum-
ar. Vandamálið hjá okkur er aö
vió spilum of fáa leiki hér fyrir
noröan. Við gerðum okkur fyrir-
fram engar vonir um að komast í
úrslitin en vorum í góðum málum
allt þar til við töpuðum óvænt fyr-
ir Völsungsstúlkum á dögunum.
Nú þurlum við að vinna Dalvík og
það væri gaman ef það gæti geng-
iö eftir. Við erum meó mjög cfni-
legt lið því þetta eru mest stelpur
úr 2. flokki sem eru að spila,“
sagði Guóbjartur.
Völsungur
Völsungur á enn fræðilega mögu-
leika á því að blanda sér í barátt-
unu um sæti í úrslitum. Liðið kom
nokkuð á óvart mcð því að vinna
Tindastól og því ætti ekkert lið aó
geta bókaó sigur gegn því. Völs-
ungsstúlkur eiga eftir aó leika vió
Leiftur á heimavelli og síðan við
Tindastól úti. Þjálfari liðsins er
Sveinn Pálsson:
„Þetta hefði getað oróið sæmi-
lcgt ef við hefðum haldið þeim
mannskap sem við lögðum upp
með í vor. Miðið við þaö aö vió
crum að nota stelpur úr 3. llokki
má segja aó árangurinn sé vióun-
andi,“ sagði Sveinn Pálsson.
Leiftur
Kvennalió Leifturs hefur ekki enn
nælt sér í stig í sumar og virðist
ekki líklegt til stórræða. Félagió
hefur mjög ungu liði á að skipa.
Katrín Jónsdóttir þjálfar liðió:
„Þetta er sami vandi hjá okkur
og venjulega; við komum ekki
boltanum í netið. Ahuginn hér er
mjög mikill og þrátt fyrir að gegn-
ið hafi ekki verið upp á það besta
er engan bilbug á stelpunum að
finna. Meó því að taka ungu stelp-
urnar inn, allt nióur í fermingar-
Sverrir Sverrisson og félagar hjá Tindastóli hafa gert góða hiuti í síðustu
leikjum.