Dagur - 04.08.1993, Qupperneq 11
Miðvikudagur 4. ágúst 1993 - DAGUR - 11
Giftingar í Hvanneyrarskái
- settu svip á Sildarævintýrið á Siglufirði
Síldarævintýrið á Siglufírði var
haldið í þriðja sinn nú um versl-
unarmannahelgina og talið er
að á fímmta þúsund manns hafí
komið til bæjarins af því tilefni.
Eftir slæmt veðurfar það sem af
er í sumar glaðnaði til á Iaugar-
dagsmorgun - brast á með blíðu
eins og Theódór Júlíusson,
framkvæmdastjóri Síldarævin-
týrisins, kaus að orða umskipt-
in.
Dansinn stiginn.
Sildarsöltun stóó yfir allan
laugardaginn og lagói fjöldi fólks
leið sína á söltunarplanið til að
fylgjast með hinni einu sönnu
stemmningu þegar sild var söltuð
og nikkan þanin og dansinn stig-
inn í pásum. Auk söltunarinnar
var fjölmargt annað til skemmtun-
ar á Siglufirði í tilefni síldarævin-
týrisins. Harmonikusveitir spil-
uðu, landleguböll voru haldin inn-
anhúss og utan, fjölbreytt barna-
og fjölskyldudagskrá var á sviðinu
við torgið í hjarta bæjarins og tí-
volíport var við barnaskólann. Þá
var haldið sjóstangaveiðimót og
fíeira mætti telja.
Auk dagskráratriða settu óvænt
atriði svip á hátíóarhöldin því
segja má að auk söltunarinnar hafí
tvær giftingar, sem fram fóru í
Hvanneyrarskál, verið hápunktur
helgarinnar á Siglufírði. Þar voru
gefin saman þau Ulfur Guð-
mundsson og Kristín Einarsdóttir,
sem komu ríðandi á hestum til
vígslunnar ásamt Sr. Braga J.
Ingibersssyni og siglfírskum
hestamönnum. Einnig voru þau
Rafn Elvar Svanbergsson og Sig-
ríður Þórdís Reynisdóttir Bardal
gefín saman. Talið er að um sjö
hundruð manns hafi fylgst með.at-
höfninni í skálinni, sem fram fór í
óvæntu blíðviðri. ÞI
HHlNNING
Brúðhjón koma til afhafnarinnar i Hvanneyrarskál
Örsögusýning Kristlaugar
Siguröardóttur í Deiglunni
Örsögusýning Kristlaugar Sig-
urðardóttur var opnuð í lista-
miðstöðinni Deiglunni á Akur-
eyri í gær. Sýningin er opin alla
virka daga kl. 15.00 til 19.00 og
kl. 13.00 til 19.00 um helgar, og
lýkur 16. ágúst.
Á sýningunni eru 40 örsögur
sem fíestar eru unnar á þessu ári.
Kristlaug er fædd á Akureyri
árið 1964. Árið 1991 vann hún
Gcnfar-Evrópuvcrðlaun fyrir drög
aó sjónvarpshandriti. Tvö útvarps-
lcikrit, Brúnu Leðurskórnir og
Helgríman, voru frumfíutt í Ríkis-
útvarpinu Rás 1 1992.
Þetta er fyrsta sýning þessarar
tegundar sem haldin er á Akur-
eyri.
Ingólfur Ásbjömsson
Ij Fæddur 21. april 1907 - Dáinn 26. júlí 1993
„Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn
og allt er orðið rótt.
Nú sœll er sigur unniijn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt. “
Kallið er komið. Heiðursmaður
er fallinn.
Ingólfur Ásbjörnsson, Byggða-
vegi 115, fyrrum bóndi í Stóradal
í Eyjafjarðarsveit, andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
26. júlí sl. eftir langa vanheilsu og
var jarðsunginn í gær, 3. ágúst frá
Akureyrarkirkju.
Hann fæddist 21. apríl 1907 í
Miðhúsum í Eyjafjarðarsveit,
kominn af sterkum eyfírskum og
þingeyskum ættstofni. Foreldrar
hans voru: Ásbjörn Árnason, sem
lengi bjó í Torfum, og Guörún Jó-
hannesdóttir ljósmóðir. Albræður
hans voru: Árni, sem lengi bjó í
Kaupangi og látinn er fyrir nokkr-
um árum, og Jóhannes, sem búið
hefur á Stöð í Stöðvarfírði.
Foreldrar hans slitu samvistir
er hann var aóeins sjö ára að aldri
og mun það hafa verið mikið áfall
l'yrir hans viðkvæmu sál, er föður-
umhyggjan brást honum á svo
ungum aldri. Skömmu síðar fíutt-
ist hann til frændfólks síns á
Grýtubakka í S.-Þingeyjarsýslu.
Dvaldi hann hjá því góða fólki
fram yfír fermingu, en lluttist svo
til móður sinnar, sem þá bjó í
Grjótgarði á Þelamörk. Hálfsyst-
kini Ingólfs urðu sjö talsins og er
ein systirin látin, Magdalena í Ár-
gerði í Eyjafjarðarsveit.
Ingólfur var mikill hamingju-
maður í sínu einkalífí. 29. sept.
1935 kvæntist hann ungri blóma-
rós, af skagfirsku kyni, Maríu
Guðmundsdóttur, sem lluttist eftir
lát móður sinnar aö Samkomu-
gerði, til Maríu móðursystur sinn-
ar og Kristins manns hcnnar, en
faðir hennar, Guómundur, hafði
farist af slysförum á Sauóárkróki,
er María var um tveggja ára aldur.
María er alsystir hins ástsæla
óperusöngvara Stefano Islandi,
sem allir þekkja, og eru miklir
sönghæfileikar í ættum þcirra
systkina.
Ingólfur og María eignuðust
eina dóttur, Guðrúnu, sem búsett
er hér í bæ, gift Inga Jóhannessyni
og eiga þau fimm dætur.
Eina fósturdóttur áttu þau hjón,
Sóleyju Kristjánsdóttur, sem kom
til þeirra á öðru ári og er búsett
hér í bæ. Hug sinn til fósturföður
síns sýndi hún með því að láta son
sinn heita Ingólf. Einnig er María,
dótturdóttir þeirra, uppalin aó
miklu leyti hjá þeim hjónum.
Þau keyptu jörðina Stóradal í
Eyjaíjarðarsvcit árið 1936 og
bjuggu þar til ársins 1972, er þau
fluttu til Akureyrar. Margmennt
var löngum í Stóradal, cinkum á
sumrum, er dótturdæturnar og
systurdóttir Maríu hröðuðu sér í
sveitasæluna á vorin, er skólum
lauk. Mjög stórt bú var í Stóradal
hjá þeim hjónum og þurfti margar
hendur til aóstoðar við bústörfin.
Dóttir þeirra og tengdasonur
bjuggu nokkur ár félagsbúi með
þeim, en fíuttu síðan til Akureyr-
ar. Eignuóust þau fjórar dætur í
Stóradal, en sú fimmta fæddist á
Akureyri.
Ingólfur var eðlisgreindur mað-
ur og mjög laghcntur. Mun hugur
hans á unga aldri hafa staðið til
smíðanáms, en cfni til þeirra hluta
voru þá af skornum skammti, cn
marga notadrjúga hluti smíóaði
hann fyrir heimili sitt og var ætíð
sjálfbjarga um alla hluti. Hrcin-
skiptinn var hann við alla menn
og vildi aldrei skulda nokkrum
manni eyris virði, áreiðanlegur og
mátti ckki vamm sitt vita í neinu
máli. Hann var ákaflega barngóð-
ur og undi sér vel með ungu fólki,
traustur og mjög umhyggjusamur
um velferð allra sinna nánustu.
Ingólfur Ásbjörnsson var grandvar
og góður maður.
„Fari hann í l'riði, frióur Guös
hann blessi.“
Við hjónin sendum Maríu og
fjölskyldu hcnnar innilcgar sam-
úðarkveðjur og þökkum fjölmarg-
ar yndisstundir á þeirra góóa
heimili, bæði l'yrr og síðar.
Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth.
Mig langar að minnast vinkonu
minnar Sigríðar Albertsdóttur,
sem til grafar verður borin í dag.
Sigríður var gift Jóni Hjálmars-
syni skósmið. Sigríði kynntist ég
fyrir ellefu árum er ég kom á
heimili þeirra hjóna Jóns og Sig-
ríóar. Þótt hafi verió nærri hálfrar
aldar aldursmunur á okkur Sigríði
uróum við vinkonur þetta vor. Ég
minnist næstu áramóta á eftir, en
þá var ég á Siglufirði hjá þeim
hjónum. Ég kvartaði yfir því að
hafa það of gott og vildi hjálpa
Sigríði en mér var sagt að ég væri
gestur og ætti að slappa af.
Fyrir nokkrum árum þegar Sig-
ríður missti mann sinn eftir langan
hjúskap, þá stóð hún sig eins og
hetja sem og alltaf. Sigríði fannst
maóur gera alltof mikið fyrir sig
ef eitthvað var gert fyrir hana
hversu lítið sem það var. Hafði
Sigríður gaman af að gera litla
hluti og gefa, og vildi hclst ekki
aö maður væri að gefa sér neitt í
staðinn annað en þakklæti.
Eitt sinn spurði Sigríður mig af
hverju ég héldi vinskap viö sig
svona gamalt hró, ég svaraði því
til að aldur vina skipti ekki máli
og það gladdi hana.
Álltaf var stutt í brosið og góða
skapið hjá henni sama á hverju
gekk. Sigríói þótti miður ef fólk
birtist fyrirvaralaust, því þá sagð-
ist hún ekkert eiga með kaffinu,
þótt borð væri fullhlaðið af
brauði.
Ég kem til með að geyma
minningu um vinkonu mína í
hjarta mér, og er þakklát fyrir þau
ár sem vinátta okkar varði.
Þau hjónin Jón og Sigríður
eignuðust tvo syni, Hjálmar og
Magnús. Eina sonarbarnið sem
Sigríður átti heitir Sigríður eftir
ömmu sinni.
Að endingu vil ég senda
Hjálmari, Magnúsi, Sigríði yngri
og systkinum hinnar látnu mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Dýpsta sœla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Siguróardóttir frá Hlöðunt.)
Ilulda Jóhannesdóttir.
FÉSÝSLA
DRÁTTARVEXTIR
Júní 16,00%
Júlí 15,60%
MEÐALVEXTIR
Alm. skuldabr. lán apríl Alm. skuldabr. lán maí Verðtryggð lán apríl Verðtryggð lán maí 13,10% 12,40% 9,20% 9,30%
LÁNSKJARAVÍSITALA
Júlí 3282
Ágúst 3307
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS
Tegund K gengi Káv.kr.
89/1D5 1,8832 6,20%
90/1D5 1,4636 6,23%
91/1D5 1,2652 6,98%
92/1D5 1,0974 7,00%
93/1D5 0,9942 7,10%
HÚSBRÉF
Flokkur K gengi K áv.kr.
92/2 100,85 7,17%
92/3 98,29 7,10%
92/4 95,92 7,10%
93/1 92,63 7,10%
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Avöxtunl.janumfr.
verðbðlgu síðustu: (kí)
29. júlí Kaupg. Sölug. 6mán. 12 mán.
Fjárfestingarfélagið Skandiahf.
Kjarabref 4,725 4,871 23,9 •212
Tekjubréf 2,548 2,627 20,9 -21,4
Markbréf 1,524 1,571 23,8 -19,4
Skyndibréf 1,961 1,959 5,0 4,8
Kaupþing hf.
Einingabréf 1 6,750 6,874 4,5 5,2
Einingabréf 2 3,754 3,773 9,4 7,9
Einíngabréf 3 4,436 4,517 5,7 5,4
Skammtimabréf 2,315 2,315 7,9 6,8
Verðbréfam. Islandsbanka hf.
Sj. 1 Vaxtarsj. 3,315 3,332 5,3 5,8
Sj. 2 Tekjusj. 1,991 2,011 7,6 7,7
Sj. 3 Skammt. 2,284
Sj. 4 Langt.sj. 1,570
S|. 5 Eignask.frj. 1,419 1,440 7,8 8,1
Sj. 6 island 808 848
Sj. 7 Þýsk hlbr. 1,372 1,413
Sj. 10 Evr.hlbr. 1,372
Vaxtarbr. 2,336 5,8 5,8
Valbr. 2,1897 6,5 6,5
Landsbréí hf.
íslandsbrél 1,440 1,467 6,8 6,8
Fjórðungsbrél 1,163 1,180 8,0 7,9
Þíngbréf 1,553 1,573 19,5 13,7
Öndvegisbrél 1,463 1,482 10,2 9,5
Sýslubréf 1,302 1,320 -5,3 •1,6
Reidubréf 1,412 1,412 6,8 6,8
Launabréf 1,035 1,050 8,5 8,4
Heimsbrél 24,2 16,7
HLUTABREF
Sölu- og kaupgengi á Verðbréfaþingi íslands:
Hagst. tilboð
Lokaverð Kaup Sala
Eimskip 3,89 3,86 4,08
Flugleiðir 1,02 1,02 1,25
Grandi hf. 1,85 1,88 1,99
íslandsbanki hl. 0,87 0,86 0,87
Olís 1,75 1,75 1,80
Útgerðarlélag Ak. 3,30 3,25 3,50
Hlutabréfasj. VÍB 0,97 0,98 1,04
isl. hlutabréfasj. 1,05 1,05 1,10
Auólindarbréf 1,02 1,02 1,09
Jarðboranir hf. 1,87 1,81 1,87
Hampiðjan 1,20 1,15 1,45
Hlutabréfasjóð. 1,00 1,00 1,22
Kaupfélag Eyf. 2,13 2,13 2,23
Marel hf. 2,50 2,46 2,90
Skagstrendingur hl. 3,00 2,95
Sæplast 2,70 2.60 3,00
Þormöður rammmi hl. 2,30 1,40 2,15
Sölu- og kaupgengi á Opna tilboðsmarkaðinum:
Aflgjafi hf.
Alm.hlutabr.sj.hf. 0,88 0,95
Ármannsfell hl. 1,20
Árnes hf. 1,85
Bilreiðaskoðun isl. 2,50 1,60 2,40
Eignfél. Alþýðub. 1,20 0,90 1,50
Faxamarkaðurinn hf. 2,25
Fiskmarkaðurinn 0.80
Gunnarstindur 1.00
Halörninn 1,00
Haraldur Bððv. 3,10 1,40 2,70
Hlutabréfasj. Norðurl. 1,07 1,07 1,12
ísl. útvarpsfél. 2,40 2,55 3,50
Kögun hl. 3,90
Olíufélagið hf. 4,80 4,52 5,30
Samskip hl. 1,12
Samein. verklakar hf. 6,50 6,50 6,80
Sfldarvinnslan hl. 2,80 2,00 2,00
Sjóvá-Almennar hl. 3,40 3,50
Skeljungur hl. 4,15 4,05 4,18
Soltis hl. 30,00
Tollvörug. hf. 1,10 1,10 1,35
Tryggingarmiðst. hf. 4,80
Tæknival hf. 1,00
Tölvusamskipti hf. 7,75 6,90
Þróunarfélag islands hl. 1,30
GENGIÐ
Gengisskráning nr. 189
3. ágúst 1993
Kaup Sala
Dollari 72,10000 72,31000
Sterlingspund 107,99400 108,31400
Kanadadollar 55,89100 56,12100
Dönsk kr. 10,56120 10,59720
Norsk kr. 9,74670 9,78070
Sænsk kr. 8,95370 8,98570
Finnskt mark 12,35400 12,39700
Franskur franki 12,04020 12,08320
Belg. franki 1,97500 1,98300
Svissneskur franki 47,95230 48,12230
Hollenskt gyllini 37,34760 37,50460
Þýskt mark 42,07300 42,19300
itölsk líra 0,04499 0,04518
Austurr. sch. 5,97930 6,00030
Port. escudo 0,41210 0,41420
Spá. peseti 0,51400 0,51660
Japanskt yen 0,68881 • 0,69091
írskt pund 101,16000 101,57000
SDR 100,59230 100,93230
ECU, Evr.mynt 80,33780 81,64780