Dagur - 04.08.1993, Qupperneq 12
STÆKKANIR
^Pcáío myndif"
SKIPAGATA 16 SÍMI: 23520
Umsjónarmaður tjaldsvæðisins á Akureyri er allt annað en ánægður mcð umgengnina þar um helgina. Gestir á
svæðinu voru 300-400. Mynd: Robyn
Órói í Vaglaskógi
en rólegt í Ásbyrgi
- töluverð ölvun ungmenna í Vaglaskógi
Sigurður Skúlason, skógarvörð-
ur í Vaglaskógi, sagði helgina
hafa verið erfiða og þá sérstak-
lega aðfaranótt sunnudagsins,
þrátt fyrir að ekki hefði verið
margt fólk. Hann sagði að í
skóginum hafí verið um 600
hundruð manns þegar mest var
og þar af giskaði Sigurður á að
hefði verið um 500 ungmenni á
aldrinum 17-25 ára. Þeim hafi
fylgt mikil ölvun og á tímabili
var ástandið mjög erfitt. Auk
starfsmanna skógræktarinnar
voru björgunarsveitarmenn og
lögregla á staðnum við gæslu-
störf og höfðu þeir í nógu að
snúast. Eitthvað var um rysk-
ingar og eins og frani hefur
Slík uppákoma verður ekki endur-
tekin á tjaldsvæðinu á Akureyri
- segir ívar Sigmundsson en hann telur að framkvæmdin á „Halló Akureyri“
hafi gjörsamlega misheppnast og sé bænum til háborinnar skammar
ívar Sigmundsson, umsjónar-
maður tjaldsvæðisins á Akur-
eyri, var frekar óhress eftir
helgina og sagði í samtali við
Dag, að framkvæmdin á „Halló
Akureyri“ hafi gjörsamlega
misheppnast, þó svo að hug-
myndin á bak við hátíðina sé
góðra gjalda verð. „Það er Ak-
ureyrarbæ til háborinnar
skammar hvernig framkvæmd-
in á þessari uppákomu var.
Bærinn er að setja í þetta 400
þúsund krónur á sama tíma og
ekki fæst króna til að gera eitt-
hvað fyrir tjaldsvæðið.“
Engin dagskrá fyrir utan
dansleikina
Ivar segir að hann og hans fólk
hafi verið búið að segja að það
þýddi ekki að vera með allt þetta
fólk sem gisti bæinn inn á tjald-
svæðinu og aó það yrði að finna
unga fólkinu annan stað til að
tjalda á. „Þarna var fólk bindfullt
allan heila tímann og stór-
skemmdi m.a. gróður á svæðinu.
Þeir sem stóðu fyrir hátíðinni,
eiga heióur skilinn fyrir aó ná
hingað fjórum bestu unglinga-
hljómsveitum landsins en fyrir ut-
an þessa dansleiki var engin dag-
skrá í boði fyrir unglingana og
ekkert eftirlit meó einu eða neinu.
VEÐRIÐ
Veðurstofa Islands spáir í
þetta sinn heldur hlýnandi
veðri á Norðurlandi. Veður
ætti að geta orðió svipað og
var í gær, þokubakkar á mið-
um úti fyrir Noróurlandi en
skýjað meó köflum inn til
landsins. Á stöku staó gætu
orðið smávægilegir skúrir síð-
degis en annars þurrt og stillt
veður.
- Og eftir að dansleikjunum lauk,
hélt fólk áfram að skemmta sér á
tjaldsvæðinu, með öllu því ónæði
sem því fylgdi fyrir aðra tald-
gesti.“
Fólk ælandi og mígandi í
görðum í kring
Ivar sagði að þetta hafi verið við-
urstyggilegt í einu orði sagt og
fólk hafi verið ælandi og mígandi
í görðum þarna í kring, við litla
hrifningu nærliggjandi íbúa.
„Auk þess var stolið frá útlendum
gestum sem gistu tjaldsvæðið.“
Hann sagöist reikna með að á
milli 300-400 manns hafi gist
tjaldsvæðió á Akureyri um helg-
ina en þó gat hann ekki gefið upp
nákvæma tölu.
„Við náðum ekki að rukka
nema um 250 manns enda erfitt
að rukka fólk sem lá í brennivíns-
dauða í sínum tjöldum, eða ráfaði
kófdrukkið um svæðió.“
Atvinnumálanefnd Akureyrar
veitti 400 þúsund króna styrk
vegna hátíðarinnar og sagöi Ivar
að á sama tíma fengist ekki króna
til tjaldsvæðisins. „Framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar situr í atvinnu-
málanefnd og rekur auk þess aug-
lýsingastofuna sem sá um allar
auglýsingamar og maður spyr sig
aó því, hvort ekki hafi hreinlega
verið að styrkja þessa ákveönu
auglýsingastofu.“
Lögreglan talaði um hlutina
eins og þeir voru
Ivar sagði það jafnframt athyglis-
vert að allir þeir sem talaðvarvið
á útihátíðunum víðs vegar um
landið, voru að draga úr fylliríinu
á hverjum stað, nema lögreglan á
Akureyri. „Lögreglan á Akureyri
talaði um hlutina nákvæmlega
eins og þeir voru og dró ekkert
undan. Hins vegar var lögreglan
hér undirmönnuð og ekki í stakk
búin aó mæta öllum þeim fjölda
sem hér var um helgina. Eg
heyrói haft eftir framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar að vel hafi til
tekist um helgina og ætlunin væri
að endurtaka leikinn á næsta ári.
Það er hins vegar alveg ljóst að
slík uppákoma verður ekki endur-
tekin á tjaldsvæðinu á Akureyri á
næsta ári.“ KK
komið í fréttum var ein alvar-
leg árás í skóginum, þar sem
flytja þurfti ungan mann tölu-
vert slasaöan á sjúkrahús á Ak-
ureyri eftir árásina.
Sigurður sagói skemmdir ckki
miklar á staðnum og sagði hann
skemmdir olt hafa verið mciri.
Brotinn var einn klósettkassi og
ein hurö og þá voru ekki neinar
gróóyrskcmmdir unnar á staðnum.
Sigurður vildi taka það fram að
ekki heföu allir unglingarnir verió
mikið ölvaðir og innan um hcfðu
verið fyrirmyndarunglingar, sem
ckki þurl'ti aó hafa afskipti af.
Sigurður ságði að ástandið um
verslunarmannahclgina undanfar-
in ár, hefði vcrið misjafnt. Svæð-
ið væri einungis opið scm almennt
tjaldsvæði og yfirleitt gengið stór-
slysalaust. Hann bjóst þó við
breytingum eftir að ný brú yfir
Fnjóská verður tckin í notkun, en
það veróur að öllum líkindum
fyrir næstu verslunarmannahelgi.
„Þá höfum við meiri möguleika
til að loka svæðum af og sía út þá
sem gista skóginn, auk þess scm
vió getum þá selt inn á svæðið og
fengið eitthvað í kassann."
Það var ekki ólátunum fyrir að
fara í Asbyrgi um helgina og gisti
fátt fólk á tjaldsvæðunum um
helgina. Um 30 manns gistu á
tjaldsvæðunum aðfaranótt laugar-
dags og sunnudags, auk hópa scm
telja um 100 manns og flestir voru
tjaldbúarnir af erlendu bcrgi
brotnir. PS
Vegagerð í Bólstaðarhlíðarbrekku:
Hagvirki-Klettur
með lægsta tilboð
Tilboð í lagningu vegar um Ból-
staðarhlíðarbrekku í A-Hún.
voru opnuð í gær. Atta aðilar
buðu í verkið og var Hagvirki-
Klettur með lægsta tilboð, 64%
af kostnaðaráætlun. Aætlað er
að verki Ijúki í ágúst á næsta
ári.
Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir
148 millj. kr. kostnaði og er þá
Verslunarmannahelgin á Norðurlandi:
Rólegt á flestum þéttbýlisstöðum
Það var rólegt á flestum þéttbýl-
isstöðum á Norðurlandi, utan
Akureyrar, um verslunar-
mannahelgina og samkvæmt
upplýsingum lögreglu á svæðinu
var fátt fólk á ferli í bæjunum
og greinilegt að íbúar voru á
faraldsfæti um þessa mestu
ferðahelgi ársins, þrátt fyrir að
veðurguðirnir hafi ekki verið í
allt of góðu skapi.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Siglufirði var mjög ró-
legt þar um helgina, þrátt fyrir að
fjölmenni hafi sótt „Síldarævin-
týri“ í bænum. Þrír fengu aö gista
fangageymslu um helgina og var
það einungis til að sofa úr sér
áfengisvímu. Ohappalaust var
með öllu ef frá er talið eitt rúðu-
brot og var umgengni í bænum til
fyrirmyndar að mati lögreglunnar.
Það var gott hljóðið í lögreglunni
á Olafsfirði. Mjög rólegt var í
bænum, fátt fólk á ferli og engin
óhöpp urðu. Sömu sögu hafði
Stefán Hallgrímsson lögreglumaó-
ur á Húsavík að segja, ef frá er
talin líkamsárás í Vaglaskógi að-
faranótt sunnudags.
Jón Stefánsson lögreglumaður
á Þórshöfn sagði í samtali við Dag
að Þórshöfn og Raufarhöfn væru
líkastir svefnbæjum yfir þessa
helgi og að mjög rólegt hefði ver-
ið á því svæöi sem lögreglan á
Þórshöfn hefur eftirlit með. Hann
sagði að eitt umferðaróhapp hefði
orðið á veginum upp með Jökulsá
á mánudag, þar sem ung kona
missti stjórn á ökutæki sínu og ók
útal' veginum. Hún slapp með
skrekkinn, en eignatjón mikið. Þá
var einn tekinn fyrir ölvun við
akstur á Melrakkasléttu. Um var
að ræða mann á þrítugsaldri og að
sögn Jóns hefði ökumaðurinn
virst vera verulega ölvaður og
akstursmáti ekki til fyrirmyndar.
Hann sinnti ekki stöðvunarmerkj-
um lögreglu og stöðvaði ekki fyrr
en lögreglan hafði fylgt honum í
um níu kílómetra. PS
bundið slitlag ekki talið með. Það
veróur boðið út sér á næsta ári, að
sögn Jónasar Snæbjörnssonar,
umdæmisverkfræðings Vegagerð-
arinnar á Noróurlandi vestra. Atta
aðilar buðu í verkið og var Hag-
virki-Klettur með lægsta tilboð,
94.851.000,- kr„ eða 64% af
kostn.áætlun. Næstlægst tilboó átti
Suóurverk hf. á Hvolsvelli,
96.351.750,- sem var 65,1% af
kostn.áætlun. Þriðju í röðinni voru
Króksverk hf. á Sauðárkróki
ásamt Loftorku hf. í Rcykjavík,
þeir buöu 96.648.058,- kr„ eða
65,3% af kostn.áætlun. Hæsta til-
boð átti G. Hjálmarsson á Akur-
eyri, 109.329.810,- sem var73,9%
af kostn.áætlun. Aðrir sem buðu í
verkið voru Völur hf„ Reykjavík,
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiöa, Ellcrt Skúlason hf. og
Klæðning hf. í Garðabæ.
Um er að ræða lagningu á 5,4
km löngum vegarkafla á þjóðvegi
1, um Bólstaðarhlíóarbrekku.
Heimamcnn voru ekki sammála
Vcgagerðinni um vegarstæðið, en
umhverfisráðuneytið úrskurðaði í
málinu og var sá úrskurður sam-
hljóða óskum Vegagcrðarinnar.
Framkvæmdir hefjast væntanlega
nú í haust og á þcim að ljúka að
ári. sþ