Dagur - 24.12.1993, Side 7

Dagur - 24.12.1993, Side 7
Föstudagur 24. desember 1993 - DAGUR - 7 Prestshjónin á Húsavík: „Þá verða jólin dýrðlegri“ - segir sr. Sighvatur Karlsson, og minnir a innri undirbuning Prcstshjónin á Húsavík, frú Auður Björk Ásmundsdóttir og sr. Sighvatur Karlsson, með börnin sín heima í stofu að Baldursbrckku 11. Börnin eru Ásmundur, Kristín Sara og Jónatan Karl. Mynd: im Prestshjónin á Húsavík, frú Auður Björk Asmundsdóttir og sr. Sighvatur Karlsson, og börn þeirra þrjú, Asmundur, Kristín Sara og Jónatan Karl, dvöldust í Bandaríkjunum sl. jól, þar sem sr. Sighvatur stundaði fram- haldsnám. Það er eflaust tals- verður munur á jólahaldi fólks á Húsavík og tvíburaborgunum, St. Paul og Minneapolis í Min- nesotafylki. I‘ó er ekki gott að vita og Dagur kveður dyra hjá fjölskyldunni til að athuga hvort hún segi eitthvað fróðlegt eða skemmtilegt af reynslu sinni. „Eg var svo lánssamur að fá námsleyfí, og við héldum vestur um haf, eftir árs undirbúning. Eg sótti um skólavist í Minnesotahá- skólasjúkrahúsinu þar sem ég gegndi starfi kapeláns um alls 15 mánaða skeið,“ sagði sr. Sighvat- ur. Hátíð fjölskyldunnar - Er ekki yfirleitt áhugasamt jóla- fólk í preststjölskyldum og því sérstök reynsla að dvclja erlendis? „Það fer eftir uppeldi hvers og eins hvernig staðið er að jólahaldi og jólaundirbúningi. Mér finnst mikilvægt fyrir okkur, hvert og eitt, að líta í eigin barm og hugsa um fjölskylduna og hvernig bæta megi samskipti innan fjölskyld- unnar. Jólin eru jú hátíð fjölskyld- unnar þar sem friðurinn og kær- leikurinn á að ríkja. Það sem vakti sérstaklega at- hygli mína í Bandaríkjunum var hve snemma jólaskreytingar eru settar upp í húsagörðum og á hús- in. Hús og tré voru hvarvetna skreytt meö litlum hvítum ljósum en það var ekki mikið um lituð ljós eins og vió erum vönust. Það var mikiö um ljósaskreytingar, sem rnargar voru hin fegurstu listaverk. Við sáum ekki mikið af Ijósaskreytingum sem hengdar voru yfir götur, en ljósin í trjánum voru höfó uppi alveg fram í febrú- ar,“ sagói Sighvatur. „Þaó vakti athygli mína hve ntiklu fyrr var farið að skreyta. Fólkið sem ég kynntist var ekki mjög upptekið af hinurn verald- lcga undirbúningi og keypti ekki dýrar gjafir. Við vorum boðin í mjög skemmtilegt jólaboð hjá norskri fjölskyldu á Lúsíudaginn. Þetta var virkilega skemmtilegt,“ sagði Auður. Heimagerð kort á snúrum „Við bjuggum á stúdentagarði og stúdentarnir bjuggu við fremur lít- il efni og höfðu ekki mikil fjárráð. Jólakortin voru heimatilbúin með börnunum og síðan voru þau not- uö til skrauts. Snúrur voru festar upp, og jafnóðum og kortin komu voru þau hengd á snúrurnar. Heimatilbúnu kortin gátu verió ntjög falleg og skemmtileg, og persónulegri en aðkeypt kort,“ sagði Auóur. - Hver er aóalmunurinn á að vera húsmóðir á stóru heimili í jólaönnum á Islandi, eða stúdenta- garði í Bandaríkjunum, Auður? „Fyrir mig persónulcga var ntunur á þar sem Sighvatur var ekki eins upptekinn um jólin og sóknarpresturinn hér er í jólamán- uðinum. Hann var meira heima og tók þátt í jólaundirbúningnum með mér. Móóir mín var hjá okk- ur um jólin og áramótin, og það var mjög gaman og sló á heim- þrána. En við söknuðunt þess að heyra ekki íslensku jólalögin í út- varpinu.“ Sr. Sighvatur minntist heim- sóknar tengdamömmu: „Hún færði okkur blessað hangikjötió, nýtt lambakjöt, harðfisk og annan jólamat aó heiman. Eg varð var vió að Bandaríkja- menn reyndu mjög að komast heirn og halda heilög jól með sín- unt fjölskyldum, jafnvel þó um Iangan veg væri að fara. En þó voru frídagamir ekki eins margir og við eigum aó venjast. Annar jóladagur er ekki hjá þeim og að- fangadagur yfirleitt ekki haldinn hátíðlegur. Eg varð var við að samstarfs- fólk mitt á sjúkrahúsinu hafði undirbúning jólanna ekki í sömu hávegum og við erum vön. Fjöl- skyldur virtust ekki koma eins oft saman á aðventunni og við gerum t.d. vió laufabrauðsgerðina. Jólatréð er sett upp mun fyrr en vió eigum að venjast. Frumraun prestsins í laufa- brauðsgerð Fjölskylda okkar var boðin í mat á aöventunni hjá bandarískri fjöl- skyldu. Aóalmaturinn var fylltur kalkúni, en síóan kontu allir meó eitthvað matarkyns með sér. Viö komum með íslenskar pönnukök- ur, sem voru vinsælar, eins og alltaf. Og einnig pakka til að sctja í púkk sem síðan var dregið úr. Þarna voru þrjár íslenskar fjöl- skyldur sem ákváöu að koma sam- an og búa til laufabrauð aö ís- lenskum sió. Eg hnoðaði og fiatti út laufabrauð í fyrsta sinn á æv- inni og þurfti aó fá tilsögn frá Haraldi Bjarnasyni, röntgenlækni, sem starfar við sjúkrahúsiö þar sem ég var í námi. Börnin okkar skáru í kökurnar og þær voru síð- an steiktar og þcim pakkað að af- loknu dagsverki, síðan fórum við heim ineð laufabrauðiö og borð- uóum það á jólunum, með hangi- kjötinu. Þetta var virkilega gaman. Við urðum ekki vör við að fólk kæmi saman í jólaglögg og í raun sá ég varla áfengi á nokkrum rnanni, allan tímann sem viö vor- um þarna. Syngjandi þjónar Þann 4. desember í fyrra héldum við upp á 10 ára brúðkaupsafmæli okkar. Við fórum á veitingastað sem heitir Gustino’s, í miðborg Minneapolis, en þar gengu þjón- amir syngjandi um beina. Þar fengum við að heyra niörg sígild jólalög. Þetta var virkilega gaman og við áttum þarna ánægjulega stund. A aðventunni fórum við líka í Mall of America, sem er annað stærsta verslunarhús í heiminum og var opnað í fyrra. Eg las í blaði að ljósaskreytingarnar þar hafi kostað milljónir dollara. Það er erfitt að ímynda sér stærðina á þessu húsi fyrir okkur Islendinga. A opnunardaginn komu 250 þús- und manns í bygginguna, en inn í miðju húsinu er skemmtigarður með ýmsum tækjum, rússíbana, parísarhjóli og vatnsrennibrautum. Húsið er á þremur hæðum með kvikmyndahúsum, veitingastöðum og ótal verslunum. Þetta var allt meira og rninna glæsilega skreytt.“ - Fóruð þið í messu um jólin, Auóur? „Já, þaö var mjög garnan að geta farió í messu á aðfangadag. Viö fórum klukkan tvö, öll fjöl- skyldan saman, en það var barna- pössun fyrir yngstu börnin, fyrir þá foreldra sem það vildu. Fluttur var helgileikur af börnum og ung- lingum. Jólaguóspjallið var lesið upp og túlkað meó helgileik. Þarna var jatan, fallega upplýst. Jólasöngvar voru fiuttir af kirkju- kór og unglingahóp, sem heitir Kings Kids. Þetta var risastór lúthersk kirkja í St. Paul, en þó fjöldi fólks væri í kirkjunni voru nokkrar messur sungnar yfir dag- inn. Söfnuöurinn er mjög stór og virkur. Vinafundir minnka jólastressið Það er mjög gaman að hitta vini á aðventunni og það minnkar stress- ið fyrir jólin. Við mættum vera búin að baka smákökurnar fyrr og gera meira af því að koma sant- an.“ - Lærðuð þið nýja og skemmti- lega jólasiði, sent þið hyggist ef til vill taka upp, Sighvatur? „Mér fannst gaman aó því þeg- ar samstarfsfólkið kom saman í heimahúsi á aðventunni og skipt- ist á gjöfum. Gjafirnar þurftu ekki að vera dýrar til að vekja mikla kátínu. Auður fékk sardínudós, ég fékk nokkuð sem ég hélt fyrst aó væri hárkambur en reyndist vera jakkafatahrcinsari. Ein konan fékk hljóðsnældu með alls konar hljóð- urn úr náttúrunni.“ Hvcrnig voru jólin á sjúkra- húsinu? Texti og mynd: Ingibjörg Magnúsdóttir „Eg vann á sjúkrahúsi fyrir 500 sjúklinga, en það var reynt aö út- skrifa sent flesta fyrir jólin. Þarna voru sjúklingar með mjög erfiða sjúkdóma og ef þeir komust ekki heim urn jólin, reyndu fjölskyldur að korna og vera hjá þeim. Eg vissi dæmi þess að foreldrar dvöldust hjá konu á líffæraflutn- ingadeild alveg frá því í febrúar og fram yfir jólin. Þau veittu henni andlegan stuðning og héldu með henni jólin á herberginu. Herbergin voru skreytt, eins og mögulegt var. Ein deildin á sjúkrahúsinu heitir Family Live. Hún lætur færa börnum sem eiga afmæli blöðrur sem siðan má skrifa á og skreyta. Ameríski jól- asveinninn kom á vegum deildar- innar og hafnaboltahetjur frá Twin’s liðinu. Stórir tölvuborðar voru festir á veggi hjá börnunum þar sem þeirn er óskað góðs bata. Mættum senda sjúklingum fleiri kveðjur Kort sem sjúklingarnir fá með bataóskum eru límd upp á veggi. Það virðist hafa afskplega mikla þýðingu fyrir sjúklingana að fá slíkar kveðjur með óskum um bata. Kortin á veggjunum minntu á að úti voru einhverjir sem hugs- uðu hlýlega til þeirra. Það gaf þeim gleði í hjarta, þrátt fyrir mót- lætið. Vió gætum lært af þessu, aó senda hvert öðru oftar kveðju, senda kort til jreirra sem liggja á sjúkrahúsum. Oll þessi kort fannst mér frábrugðin því sem ég hef séó hér á landi. Kortin voru ýmiskon- ar, sum með skemmtilegu spaugi. Við mættum gera meira af því að senda slíkar kveðjur. Hiö ytra skiptir ekki mestu ntáli. Þaó sem öllu máli skiptir er þaö sem gerist hið innra með okk- ur. Við getum miðlaó hvert öðru, talað við hvert annað, snert hvert annað, faðmað nánustu vanda- menn, sýnt stuðning og kærleika á aðventunni. Þá verða jólin dýrð- legri þegar við setjumst saman við jólaborðið. Við megurn ekki gleyma að undirbúa okkur þannig hið innra fyrir jólin,“ sagði sr. Sighvatur að lokum. HATIÐARKVEÐJUR Gleðileg jól og heillaríkt komandi ár Pökkum viðskiptir. i árinu sem er að líða. Þ/SA VISA

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.