Dagur - 24.12.1993, Side 8
8 - DAGUR - Föstudagur 24. desember 1993
strandhögg á Bretlandsevjum
Norðanpiltarnir Guðbrandur Sigiaugsson og Jón Laxdal.
Inga Sólveig Friðjónsdóttir Ijós-
myndari, Svanhiidur Konráðsdóttir
rithöfundur og Ali Khan arkitekt.
Meólimir þjóðlagahópsins Is-
landica, skipaður þeim Inga
Gunnari Jóhannssyni, Guðmundi
Benediktssyni ásamt Jóni Ingólfs-
syni, léku einnig í Lauderdale
House og Art Centei í Essex og
samanstóð dagskrá þeirra af göml-
unt og nýjunt þjóölögum í nýstár-
legum útsetningum.
Fjöllistamennirnir, Jón Laxdal,
Guðbrandur Sigurlasson og Krist-
ján Pétur frá Akureyri, sent nefna
sig Norðanpilta, fluttu eigin ljóö
og söngva jafnframt því sem
myndverk Jóns Laxdals voru á
tveimur samsýningum í báðum
borgum. Norðanpiltar létu ekki
einungis aó sér kveða á ljóða-
kvöldum, tónleikum og myndlist-
arsýningum, heldur komu þeir
Sigrún Gidjárn ræðir við gest á opnun sýningarinnar í Lundúnum.
Norðanpiltar frá Akureyri flytja dagskrána Skáldskapur og rósir við góðar
undirtektir. F.v. Kristján Pétur, Jón Laxdal og Guðbrandur Siglaugsson.
Á fjórða tug íslenskra listamanna
tók þátt í tveimur samhliöa listahá-
tíðum sem haldnar voru í Lundún-
um og í Colchester í Essex á Bret-
landi og stóðu frá 4. nóvember til
16. desember síðastliðinn. Lund-
únahátíóin bar yfirskriftina Winter
Tales, en hátíóin í Essex var helg-
uó list þeirra þjóða er byggja eyj-
amar í norður Átlantshafi nteð sér-
stakri áherslu á verk íslenskra
listamanna. Islenski hópurinn
samanstóð af fulltrúum velflestra
listgreina og var listamönnum
hvarvetna vel tekió.
Tónskáldió og sellóleikarinn
Hafliði Hallgrímsson hélt tónleika
ásamt Kolbeini Bjarnasyni flautu-
leikara í Town Hall í Colchester,
þar sem nær eingöngu voru flutt
verk Hafliða en hann var gestatón-
skáld Essex hátíðarinnar og dvaldi
þar á meðan á henni stóð. Þá kom
Hafliói Hallgrímsson einnig fram
á tónleikum í St. Wilfrid’s Hall í
Lundúnum ásamt Kolbeini Bjarna-
syni, en á þeim tónleikum kom
einnig fram Auður Hafsteinsdóttir
fíðluleikari ásamt píanóleikaran-
um Peter Maté og fluttu þau verk
eftir íslensk og erlend tónskáld.
Myndlistarmennirnir Tolli, Sig-
urður Orlygsson og Jón Axel
sýndu verk sín í Minories Galleri-
es í Colchester, en verk þeirra hafa
á undanfömum mánuóum verið
sýnd víós vegar um Bretland. Auk
þess að vera mjög vel sóttar, hlutu
Tveir vinir og annar í London. Fyrrum Kamarorghcstar Kristján og Krist-
ján Pctur á íslenskri myndlistarsýningu í London.
Flosasyni, Tómasi R. Einarssyni
og Einari Val Scheving, en sér-
stakur gestaspilari á tónleikum
kvartettsins var hinn þekkti breski
trompetleikari Guy Barker sem
ásamt þeim félögum flutti íslenska
og bandaríska jasstónlist. I kjölfar
tónleikanna í Lundúnum var Jass-
kvartett Reykjavíkur boðið aó leika
í hinum heimsþekkta jassklúbbi
Ronnie Scott's dagana 7.-14.
febrúar á næsta ári.
sýningarnar einróma lof gagnrýn-
enda. Sigrún Eldjárn sýndi einnig
olíumálverk á báðum hátíðum þar
sem mótívið var íslenskt þjóölíf og
bar sýningin yfirskriftina Fólk.
Ljósmyndarinn Inga Sólveig
hélt sýningar á svart/hvítum ljós-
myndum á báðum hátíðunum und-
ir yfirskriftinni In Memoriam.
Fulltrúar jasstónlistar voru
Jasskvartett Reykjavíkur sem hélt
tónleika í Lauderdale House í
Lundúnum og einnig í Art. Center í
Essex. Kvartettinn er skipaður
þeim Eyþóri Gunnarssyni, Sigurði
Jakob Frímann Magnússon ásamt
Sigrúnu Eldjárn og flcirum.
einnig fram í bama- og háskólum í
Lundúnaborg.
Islensku söngkonumar Ragn-
hildur Gísladóttir og Elísa (Kol-
rassa) Friðriksdóttir sem einnig
leikur á fíðlu, fluttu eigin tónsmíð-
ar í bland við íslenskar stemmur
vió undirleik stórsveitar í Art
Center í Colchester.
Islenski kórinn í Lundúnum
söng undir stjóm Aagot Óskars-
dóttur lög eftir íslenska höfunda í
Lauderdale House í Highgate.
Tómas Tómasson baritónsöngvari
flutti íslensk þjóðlög án undirleiks.
Islensk Ijóðlist átti marga góða
fulltrúa á listahátíðunum og ber
þar fyrstan að nefiia Matthías Jo-
hannessen sem las úr bók sinni
The Naked Machine sem Marshall
Brement þýddi á ensku og gefin
var út í Bretlandi af Forest Books.
I Lundúnum kom Matthías Jo-
hannessen fram í salarkynnum
hins gamalgróna og virta ljóðafé-
lags Poetry Society, þar sem hann
las upp ásamt sænska ljóðskáldinu
Kjell Espmark, forseta sænsku
Nóbels-akademíunnar.
Sexmenningarnir Sjón, Linda
Vilhjálmsdóttir, Sigfús Bjartmars-
son, Bragi Olafsson, Einar Már
Guðmundsson og Elísabet Jökuls-
dóttir lásu einnig úr verkum sínum
á báóum hátíðum, í Poetry Society
í London og víðs vegar í Essex.
Sjón og Linda Vilhjálmsdóttir
voru gestaskáld á Essex-hátíðinni
og nú eru nýútkomnar tvær þýð-
ingar á verkum þeirra í Bretlandi
hjá Grayhound Press útgáfufyrir-
tækinu, sem ráðgerir útgáfu á
verkum fleiri íslenskra skálda á
næsta ári.
Þekktasti sonur Islands á Bret-
landseyjum, Magnús Magnússon,
flutti myndskreyttan fyrirlestur um
íslensku fomsögurnar, en hann
opnaöi jafnframt sýningar íslensku
myndlistarmannanna í Minories
sýningarsalnum og University
Gallery í Colchester.
Þrjár íslenskar kvikmyndir voru
sýndar í tengslum við hátíðarnar:
Sódóma Reykjavík eftir Oskar Jón-
asson, Börn Náttúrunnar eftir
Friðrik Þór Friðriksson og Karla-
kórinn Hekla eftir Guðnýju Hall-
dórsdóttur og hlutu myndirnar all-
ar mjög góóar viðtökur áhorfenda.
Mynd Oskars Jónassonar, Sódóma
Reykjavík, var einnig valin til aó
taka þátt í hinni þekktu kvik-
myndahátíð London Film Festival.
Guðbergur Bergsson, rithöf-
undur, Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, Sigríður Ella
Magnúsdóttir, Linda Vilhjálms-
dóttir, Gunnar og Davíð Haraldur
Cauthery og hljómsveitin Ný-
dönsk, voru meðal þeirra sem
komu fram á sérstakri hátíóardag-
skrá helgaðri 75 ára afmæli full-
veldis Islendinga, sem haldin var í
Lundúnum í desemberbyrjun.
BBC og Channel 4 sjónvarps-
stööin gerðu ásamt ýmsum blöð-
um og tímaritum, listamönnum og
sýningum þcirra góð skil og í des-
entberbyrjun var sýndur þáttur um
Island í breska sjónvarpinu, þar
sem landi og þjóð var hælt í há-
stert. Inn í þáttinn var fléttaó vió-
tölum við íslensk skáld og tónlist-
armenn.
Á næsta ári eru fyrirhugaðar
heimsóknir fjölmargra íslenskra
listamanna til Bretlandseyja, meó-
al annars í tengslum við afmæli
lýðveldisins og útgáfu á íslenskum
rit- og tónverkum.