Dagur - 24.12.1993, Page 11
F RAMHALDSSACA
BJÖRN DÚASON TÓK SAMAN
Föstudagur 24. desember 1993 - DAGUR - 11
Saga Natans og Skáld-Rósu
13. kafli
- framhald
Um haustiö 1815 giftust þau
Páll og Anna Sigríóur 2. dag
nóvembermánaóar. Brúðkaupið
var á Möóruvöllum aó ráói Stef-
áns amtmanns og er eigi getið
um hve fjölmennt samkvæmi
það var. Eftir brúðkaupió fór
Páll austurtil sýslu sinnar. Kona
hans var eftir hjá foreldrum sín-
um veturinn og fram eftir sumr-
inu 1816. Fæddi hún barn á
Möóruvöllum um sumarió. Þaó
var mær og hét Ragnheióur.
Hún varó síðar kona Vigfúsar
Sigurðssonar Thorarensens,
sýslumanns í Strandasýslu.
Það ár voru þau hjón Páll og
Anna Sigríður talin burt vikin frá
Möðruvöllum að Ketilsstöóum.
Enda sýtti Páll konu sína þá fyr-
ir haustið. Þá er þau komu aö
Ketilsstöðum var komió fram yf-
ir háttatíma og allt fólk komið í
svefn. Vakti Páll eigi upp, en tók
sjálfur af hestum þeirra og
sleppti þeim. Síðan fór hann
með konu sína í svefnherbergi
sitt, háttuöu þau þar og sváfu til
morguns. Um morguninn sáust
hestarnir og vissi fólkið þá, aó
sýslumaður var kominn. Færói
Rósa honum morgunkaffi, sem
hún var vön, er hann var heima.
Þá er hún kom í svefnherbergið
þennan morgun brá henni í
brún, því Anna Sigríóur svaf fyr-
ir ofan Pál. Hann var vaknaður,
leit upp fyrir sig í rúmið og mælti
til Rósu meó sinni vanalegu
stillingu: „Einhvern tíma var þér
nú ætlað að sofa þarna.“
Fleiri oró hafói hann ekki.
Rósa svaraði engu og gekk
þegar út. Páll hafði eigi komið
sér að því, að segja Rósu frá
því aó hann væri giftur. Þó hún
hafi heyrt það utan að sér, þá
hafði henni ekki dottið í hug að
trúa því, svo heilluð var hún. Nú
sá hún allt í einu hvernig komió
var og varð mikið um. En þá
kom henni í hug, að ef hún
sýndi nú þrekleysi, þá mundi
Páll líta svo á, að hún hefði ekki
verið hans verðug og þaó vildi
hún ekki. Eigi ásakaði hún hann
í huga sínum, heldur taldi fyrir
sér það, er honum var til máls-
bóta. Honum hafði verió nauó-
syn á aó gera eftir vilja amt-
manns og mægjast vió hann,
ella hefói verió útséó um, að
hann kæmist áfram í heiminum.
Hann hafði gjört það af nær-
gætni til sín og velvilja vió sig,
aó dylja í lengstu lög fyrir henni
hvernig komið var, - þ.e. „frestur
er á illu bestur". Og nú hafði
hann af ásettu ráói stillt svo til,
að eigi væru fleiri menn vió-
staddir, er hún sæi von sína
brostna, svo enginn hefói af því
að segja, þó henni kynni aó
bregóa.
Hún sá líka, aó hjónabands-
hamingja Páls var undir því
komin, aó enginn grunur félli á
samband milli sín og hans. Því
mátti hún ekki láta á neinu bera.
Og þar eó hún gat unnt ástvini
sínum þeirra hagsmuna, sem
hann hafði af því aó eiga dóttur
amtmanns, þá leit hún svo á, aó
hún fórnaói gæfu sinni og lífs-
gleði fyrir vininn. Það sýndist
henni fagurt hlutverk, þó eigi
væri það létt. Gjörói hún sér
það aó hugfró og fékk hresst
sig svo, að enginn sá breytingu
á henni og var hún jafn glaóvær
og hún átti að sér, þá er aðrir
voru við. En á einverustundum
lét hún tárin renna, sem þau
vildu, til aó létta á hjarta sínu,
sem hún kvað:
Augaó snart er tárum tært.
Tryggó í partast mola.
Mitt er hjarta sárum sært.
Svik er hart aó þola.
Er að sjá, sem hvarflaó hafi að
henni að ásaka Pál. En hitt
mátti þá jafnan meira. Enda
fann hún enga breytingu á hon-
um sér til handa og eigi mátti
hún til þess hugsa aó taka sig
burtu frá honum. Þó fann hún
mjög til einstæóingsskapar
þann vetur. Um vorið, 1817, brá
faóir hennar búi. Kona hans var
þá dáin. Réóst hann þá að Ket-
ilsstöðum og varó ráósmaóur
sýslumanns. Jón sonur hans
kom þangað með honum. Hann
var þá á 17. ári. Þá er þeir voru
komnir leiö Rósu betur. Má vera
að það hafi verið meðfram fyrir
hennar tilstilli. Hitt segir sig
nokkurn veginn sjálft, aó Guó-
mundur hefir ekki vitaó sam-
bandió milli Páls og Rósu, því
ella er lítt hugsanlegt, aó hann
hefði fengið að sér að fara
þangað. Það er líka víst, að
enginn, nema þau tvö ein, vissu
hió minnsta um þaó; fyrr en hún
sagði frá því löngu síðar. Hún
vildi ekki einu sinni leggja
leyndarmálió undir trúnaó föóur
síns, þó hann væri á heimilinu.
Mundi hún lítt hafa glatt hann.
Leió árið svo ekki bar til tíóinda.
UM VIÐAN VOLL UMSJÓN: STEFÁN SÆMUNDSSON
Spaug
Tvær fyllibyttur voru slangrandi
heim á leió kvöld eitt. Annar segir
vió hinn:
„Nei, sjáóu, þarna er tunglið."
Þá svarar hinn:
„Þetta cr sko aldcilis ekki
tungliö, þctta er sólin.“
Svona þráttuóu þeir drykklanga
stund þar til þriöja fyllibyttan
gengur másandi fram hjá. Þeir
stoppa hann og spyrja:
„Heyrðu vinur, segöu okkur
hvort þetta er tunglið eða sólin
sem þarna skín.“
Sá nýkomni glápir um stund
upp í loft cn segir svo:
„Ég gct ekkert um þaö sagt, því
ég er alveg ókunnugur hérna í
þessu hverfi."
Skólakennarar sátu saman í
kennarastofunni og voru aö spjalla
saman.
„Ég hefi nýlega lesið um þaö í
frönsku vísindariti, að menn scm
neyti mikiö áfengis hafi yfirleitt
minni kvenhylli en aörir karl-
mennsagói cinn kcnnarinn.
„Aftur á móti er því haldið
fram í ritinu, aö þeir sem drekka
mikió te gangi öórum fremur í
augu kvenfólksins.“
Kennari, sem haföi tekió sér
Afmæli$barn
mánudagsins
Þú getur verið bjartsýnn á nýju ári því
fjármálin eru stöbug og velgengni í
starfi eykst. Mundu samt aö þú verbur
líka ab leggja nokkub ab mörkum. Ár-
ib einkennist af stöbugleika í einkalífi
og lítil hætta erá hlibarsporum.
drjúgum í staupinu um dagana,
verður til andsvara og segir:
„Og þctta kalla menn vísindi!
Mikil endemis vitleysa er þetta.
Ég held þaö mætti öllu fremur
snúa þessu við.“
Kennarinn þagnar litla stund,
cn bætir svo viö:
„En þaó er svo sem ekki þar
fyrir, aó ég hef alltaf verið mesti
tesvelgur.*4
Furður
Hinn æruverðugi erkibiskup Jam-
es Ussher (1580-1656) í Armagh á
Irlandi skrifar í árbækur sínar frá
1650-54 aö Guö hatl byrjað á
sköpunarverki sínu 23. október
4004 l'yrir Krist, klukkan 9.30.
Fimm dögum síðar var tími kom-
inn til þess scm Friedrich Nietz-
sche (1844-1900) kallaði „önnur
mistök Guös“, þ.e. sköpun manns-
ins.
Alfræði
Jól: Fæðingarhátíó Jesú, 25. des-
ember; upphaflega heióin hátíð um
vetrarsólhvörf til dýrðar frjósemis-
guðum. Við lögfestingu kristins
siöar var jóladagurinn settur 25.
desember og var hann talinn ný-
ársdagur til loka 16. aldar.
(íslensku alfræðioróubókin.
Örn og Örlygur 1990)
Orðabókin
jólafeitur L sern átti að ljúka fyrir
jól en tókst ckki: flíkin varð jóla-
feit.
Gáta
Eg er lipur, léttur,
litum mörgum settur;
ég er allur heimur,
utan himingeimur,
ég er lönd og lendur,
langar sjávarstrendur.
Oft ég ligg á hlið eða hrygg,
það hendir sig að ég standi.
Hnöttóttur, flatur,
heldur er ég latur,
óglöggur, skýr,
oft er ég dýr.
Aldrei tygg og ekkert þigg,
oft er mig að grannskoða vandi.
Ráðning
uobjnpun'i
frsitráslft
FM 98,7 • Sími 27687
Óskum Norðlendingum
Blebfltotn fóla
og farsældar á komandi ári
Jól ☆ Jól ☆ Jól
Húsnæði til sölu
Til sölu er 585 fermetra atvinnuhúsnæði í
Ólafsfirði þar sem Laxós hf. rekur fiskeldis-
stöð.
Tilboðum skal skila fyrir 31. desember 1993 til
Byggðastofnunar Akureyri, pósthólf 240, 602 Ak-
ureyri.
Nánari upplýsingar veittar í síma 96-12730.
Byggðastofnun
SÝSLUMAÐURINN
Á AKUREYRI
Greiðsluáskorun
Sýslumaðuririn á Akureyri skorar hér með á gjaldend-
ur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum sem voru álögó
1993, og féllu í gjalddaga til og með 15. desember
1993 og eru til innheimtu hjá ofangreindum innheimtu-
manni ríkissjóós, aö greiöa þau nú þegar og ekki síðar
en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur og tekjuskattshækk-
un, virðisaukaskattur fyrir september og október ásamt
virðisaukaskattshækkunum vegna fyrri tímabila, stað-
greiðsla og tryggingajgald fyrir október og nóvember
og aðstöðugjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum
frá birtingu áskorunar þessarar.
Athygli er vakin á því aó auk óþæginda hefur fjárnáms-
aðgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald-
anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000,-
fyrir hverja gerð. Þinglýsingagjald er kr. 1.000,- og
stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs
kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að
gera full skil sem fyrst til aö foróast óþægindi og kostn-
að. Jafnframt mega þeir sem skulda viróisaukaskatt,
staógreiðslu og tryggingagjald búast við að starfsstöð
verði innsigluð nú þegar.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
20. desember 1993.
it
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐNÝ ÞÓRÐARDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Skjaldarvík,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 21. desember.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 28. des-
ember kl. 13.30.
Sigurbjörg Sveinsdóttir, Gudmundur Kristinsson,
Sigrún Sveinsdóttir, Herbert Ármannsson,
Andri Páll Sveinsson, Guðrún Sigurðardóttir,
Helga Sveinsdóttir, Karl Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.