Dagur - 29.12.1993, Side 2
2 - DAGUR - Mióvikudagur 29. desember 1993
FRÉTTIR
Norðlenskar áramótabrennur:
Tvær brennur í Mývatnssveit
- en aðeins ein á Akureyri
Aðeins ein áramótabrenna verð-
ur á Akureyri um þessi áramót
rétt eins og í fyrra en þá var
reyndar sótt um leyfí fyrir tvær
brennur en önnur þeirra sem
standa átti norðan Gúmmí-
vinnslunar hf. komst aldrei á
laggirnar. Það verður því
væntanlega mikil umferð við
Bárufellsklappir um áttaleytið á
gamlárskvöld þegar kveikt
verður í brennunni þar, en það
eru börn og unglingar í Holta-
hverfi sem standa að henni.
Verulega hefur dregið úr fjölda
áramótabrenna á Akureyri en til
samanburðar má geta þess að árið
1976 skráði lögreglan hjá sér 12
brennur í bæjarlandinu en fyrir tíu
árum síðan voru þær orónar tvær.
Aðrar áramótabrennur sem blað-
inu er kunnugt um eru þessar:
A Grenivík verður kveikt í
brennu kl. 21.00 sem stendur á
Grenivíkurhólnum og sér sveitar-
félagið um hana.
Í Mývatnssveit sér Golfklúbb-
urinn um brennu á Ytri-Höfða vió
Reykjahlíð og verður kveikt í
henni kl. 21.00 en á Rauðhólum
við Alftargerði sér Ungmennafé-
lagið Mývetningur um brennu
sem hefst klukkan 24.00.
A Kópaskeri verður brenna á
Klifinu og hefst hún kl. 21.00.
Öxarfjarðarhreppur sér um hana.
A Raufarhöfn verður hefð-
bundin brenna út á Höfða sem
björgunarsveitin Pólstjaman hefur
veg og vanda af og verður kveikt í
henni kl. 21.00.
A Þórshöfn verður kveikt í ára-
mótabrennu á vegum Þórshafnar-
hrepps kl. 20.30 á Tófutanga og
eru fjölskyldur hvattar til að koma
með eins og eina rakettu til að
skjóta upp á staðnum. Þar munu
skátar stjóma fjöldasöng. Á þrett-
ándanum verður þrettándabrenna
á íþróttavellinum. Safnast verður
saman á lóð kirkjunnar kl. 20.00
og gengið eftir Fjarðarvegi upp
Langanesveg og að íþróttavellin-
um í fylgd álfadrottningar og álfa-
kóngs. Það er Foreldrafélag
Grunnskólans á Þórshöfn og Sval-
barðsskóli sem standa fyrir þrett-
ándagleóinni.
I Hrísey veróur brenna ofan
Miðbrautar á vegum Slysavama-
deildarinnar og verður kveikt í
henni kl. 16.30.
Dalvíkingar eru með brennu
austur á Böggvisstaðasandi og
verður kveikt í henni kl. 17.00.
Það er skátahópur sem kallar sig
Brennuvarga sem sér um hana.
Ólafsfirðingar veröa með
brennu vestan við ós Ólafsfjarðar-
ár, og er það bærinn og Kiwanis-
klúbburinn Súlur sem sjá um
hana. Þar mun báturinn Hafey
meðal annars verða brenndur en
hann laskaðist fyrr á árinu í
árekstri við togarann Sigurbjörgu í
Ólafsfjaróarhöfn. Kveikt verður í
brennunni kl. 20.00.
Brenna veróur á innra hafnar-
svæóinu á Siglufirði sem bæjarfé-
lagið sér um og verður borinn eld-
ur að henni kl. 20.00. Á þréttánd-
anum munu svo álfar, tröll og
þeirra skyldulið kætast við bálköst
sem Kiwanisklúbburinn Skjöldur
sér um.
Grímseyingar verða meó sína
áramótabrennu upp af býlinu Sól-
brekku og standa ýmsir einstak-
lingar að henni. Að sögn oddvita
var farið mjög snemma að safna í
hana og mun hún því verða hin
veglegasta. Þar verður eldur tendr-
aður kl. 20.00.
Á Hofsósi verður Ungmennafé-
lagið með brennu austur með
Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur
falið bæjarráði að athuga hvort
rétt sé að skoða möguleika á
sameiningu Sigluijarðar og
Fljótahrepps. Að sögn Björns
Valdimarssonar, bæjarstjóra,
fylgja samþykkt bæjarstjórnar
ákveðin skilyrði þar sem krafist
Samningur Seðla-
bankans, banka
og sparisjóða:
Verðbólgan í
núlli næstu
ijóra mánuði
Þann 22. desember síðastliðinn
samdi Seðlabankinn við banka
og sparisjóði um vaxtaskipti
fyrir tímabilið janúar til apríi á
næsta ári. Þetta er gert í sam-
ræmi við rammasamkomulag
um vaxtaskipti frá í september
síðastliðnum. Athyglisvert er við
samkomulagið að ekki er gert
ráð fyrir breytingum á verðlagi
á þessum tíma.
I samkomulaginu er gert ráð
fyrir að bankar og sparisjóðir
greiói Seðlabankanum 5% nafn-
vexti af samningsfjárhæð en
Seðlabankinn greiði sömu aóilum
á móti 5% vexti ofan á verð-
tryggðan höfuóstól. Þetta er byggt
á spá Seðlabankans um þróun
verðbólgu miðað við lánskjara-
vísitölu og að hún verði engin á
tímabilinu sem um ræðir. JÓH
Siglufjarðarvegi og hefst hún kl.
21.00.
Sauðkrækingar verða með
brennu á Nöfunum sem hefst kl.
22.00 og sér Ungmennafélagið
Tindastóll um hana.
Ungmennafélagið Fram á
Skagaströnd verður með áramóta-
brennu á Fellsmelum kl. 20.30.
Áður verður farin blysför að
brennustað.
Blönduósingar hafa sína
brennu á Miðholti, suðvestan bæj-
arins, og er það bærinn, einstak-
lingar og Kiwanisklúbburinn
Borgir sem hafa veg og vanda af
henni. Kveikt verður í brennunni
kl. 20.30.
Fyrir Hvammstangabúa verður
brenna suóur undir Vallarhöfða í
umsjá Ungmennafélagsins Kor-
máks og munu fyrstu logamir
teygja sig til himins upp úr kl.
20.00. GG
er svara við stóru spurningun-
um er tengjast sameiningarmál-
unum.
Eftirfarandi gögn þurfa að
liggja fyrir áður en farið verður að
skoóa sameininguna:
Ársreikningar beggja sveitarfé-
laganna fyrir árið 1993.
Skýrari upplýsingar um hvern-
ig staðið verði að verkefnatilflutn-
ingi frá ríki til sveitarfélaga og
hvaða tekjustofnar fylgi verkefn-
unum.
Nánari útfærsla á því hvernig
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga verði
nýttur til tekju- og þjónustujöfn-
unar í framhaldi af verkefnatil-
flutningi. Einnig verði aflað svara
við því hvort og þá hvernig sjóð-
urinn veröi notaður til að hafa
áhrif á sameiningu sveitarfélaga.
„Ég sat í umdæmanefndinni
hér í kjördæminu og þetta voru
spumingarnar sem dundu á okkur
þar. Vió viljum fá svör við þess-
um stóru spurningum áður cn
lengra er gengið. Þaö voru skiptar
skoðanir í bæjarstjórninni hvort
við ættum yfirhöfuð að fara í sam-
einingarmál, en menn voru tilbún-
ir til aó kanna þau mál þegar svör
við grundvallarspurningum liggja
fyrir,“ sagði Björn.
Hann sagði að með þessu væri
möguleika á sameiningu haldið
opnum, en menn hefðu ekki talið
það þjóna neinum tilgangi að
vinna í þessu máli meðan jafn
mikið er óljóst um þátt ríkisins og
raun ber vitni. Um leið og skýrar
upplýsingar fengjust væri hægt aó
hefjast handa. SS
ganga aó tilboði frá Júlíusi
Viöarssyni og Tréverki hf.
vegna múrverks innan húss við
nýja sundlaugarbyggingu. Til-
boðið hljóóar upp á kr.
4.991.167,- en kostnaóaráætlun
hönnuða upp á kr. 5.236.624,-
og er því 95,3% al' áætlun.
■ Húsnæðisnefnd hefur borist
beiðni frá Magnúsi Hafsteins-
syni og Sólborgu Ingimarsdótt-
ur um innlausn íbúðar þeirra aó
Lækjarstíg 5 og var samþykkt
að innleysa íbúóina og úthluta
aftur. Nefndinni hefur enn-
fremur borist bréf frá Hclgu
Dögg Sverrisdóttur og Sigurói
Jóni Guðmundssyni þar sem
þau óska eftir aóstoð Húsnæð-
isnefndar til að leysa úr hús-
næðisvanda sínum en þeim
hefur verið sagt upp núvcrandi
leiguhúsnæói og þurl'a að losa
það sem fyrst.
■ Starfskjaranefnd hafa borist
umsóknir um styrki úr starfs-
menntunarsjóði frá 5 sjúkralió-
um á Dalbæ vegna 2ja eininga
áfanga á vegum VMA í lyfja-
hrifaffæði og hjúkrun krabba-
meinssjúkra. Ennfremur um-
sókn frá 6 starfsmönnum á
skrifstofu og tæknideild vegna
3ja námskeióa, þ.e. Windows,
Word for Windows og Excel.
Að lokum frá forstöóumanni
Dalbæjar vegna leiöbeinenda í
tómstundastarfi aldraðra og
Huldu Þórsdóttur vegna bók-
haldsnámskeiðs. Allar um-
sóknimar fengu einhverja úr-
lausn.
■ Skólanefnd hafa borist um-
sókn um kennarastöóu frá Am-
ari Símonarsyni og mælir
nefndin eindrcgió með um-
sókninni.
■ Þómnn Bergsdóttir skóla-
stjóri hefur kynnt skólanefnd
hugmyndir sem unnar hafa
verió v/stofnunar framhalds-
skóla á Dalvík. Skólanefnd
fagnar framkomnum hug-
myndum um stofnun fram-
haldsskóla á Dalvík og vill
beina þeim tilmælum til þeirra
er málið varðar að lögó verði
rík áhersla á framgang málsins.
■ Þrjú tilboð bárust í þakviö-
geröir á Heilsugæslustöðinni.
Frá Tréverki hf. kr. 1.423.474;
frá Árfeili hf. kr. 1.870.254 og
frá Kötlu hf. kr. 1.161.250.
Stjóm Heilsugæslustöðvarinn-
ar á Dalvík samþykkir að yfir-
fara ofangreind tilboð og sann-
reyna nióurstöður. Jafnframt
verða tilboóin send byggingar-
nefnd heilbrigðisráðuneytisins
til endanlegrar samþykktar.
■ Stjóm Heilsugæslustöðvar-
innar samþykkir aó ítrcka
beiðni um að lagfæringar á
gólfefnum í Heilsugæslustöð-
inni á Dalvík verói heimilaóar
hið fyrsta. Jafnframt samþykk-
ir stjóm Heilsugæslustöðvar-
innar að óska eftir úttekt mál-
arameistara á staönum um fyrr-
greindar lagfæringar ásamt til-
boóum í verkió.
Harmoniku-
dansleikur
Munið áramótadansieik Félags harm-
onikuunnenda við Eyjafjörð á Fiðlaran-
um, 4. hæð Alþýðuhússins, fimmtudag-
inn 30. desember kl. 22.00.
Sýnum samstöðu og mætum
hress og kát.
Stjórnin.
F
Islandsbankamót
í bridds
íslandsbanki og Briddsfélag Akureyrar gangast
fyrir opnu briddsmóti sunnudaginn 2. janúar.
Spilað verður í Skipagötu 14, 4. hæð og hefst spila-
mennskan kl. 10.00.
Skráningu lýkur kl. 9.40 á spilastað.
Pör geta tilkynnt þátttöku til Páls Jónssonar í síma
21695 eða Hermanns Tómassonar í síma 26196.
ISLAN DSBANKI
frsstróstft
FM 98,7 • Sími 27687
Þú græöir á því að
hlusta á Frostrásina
Auglýsingar sími 27693
Hljóðstofa sími 27687
Börn og unglingar í Holtahverfi standa að brennu á Bárufcllsklöppum á
Akureyri á gamlárskvöld. Mynd: Robyn.
Bæjarstjórn Sigluíjarðar:
MöguleiM á sameiningu
við Fljótahrepp kannaður