Dagur - 29.12.1993, Blaðsíða 9
I ÞROTTAANNALL
Miðvikudagur 29. desember 1993 - DAGUR - 9
Hestamaður í heimsklassa
Baldvin Ari Guðlaugsson úr Lctti stóó sig vel á árinu. Lcngst til liægri cr Nökkvi, scm fór á HM í Hollandi
og lengst til vinstri Hrafntinna, sem sló í gegn á Fjóróungsmótinu.
íþróttahcimurinn á Akureyri skaif þegar Ormarr Örlygsson ákvað
að ganga úr KA í Þór. Nokkuð sem fáir rciknuðu nokkru sinni með.
Mynd: Pjetur.
slitakeppnina, sem voru vissulega
vonbrigöi. KA komst í undanúrslit
bikarkeppninnar en tapaöi þar í
æsispennadi leik fyrir Selfossi,
26:25. Selfoss lék til úrslita vió
Valsmenn sem unnu bikarinn og
urðu einnig Islandsmeistarar. KA
náði hins vegar frábærum árangri
meó yngri flokka sína og uröu 3
þeirra Islandsmeistarar. Þetta voru
3., 4. og 5. flokkur karla. Þjálfarar
voru Jóhannes Bjarnson og Arni
Stefánsson. Lió frá KA uröu
einnig sigursæl á Akureyrarmót-
inu.
Handknattleiksdómarinn Stcf-
án Arnaldsson frá Akureyri varð
þcss hciðurs aönjótandi aö dæma
á Heimsmcistaramótinu í Svíþjóö
og var þaö eitt af mörgum vcrk-
efnum hans á erlcndri grund á ár-
inu.
Sl. sumar var ljóst að staöa Ak-
urcyrarliöanna yrði nokkuö önnur
í vctur cn þann síðasta. Þórsarar
misstu góóan hluta byrjunarliós
síns en KA bætti viö sig mann-
skap. Munaói þar mest um lands-
liðsmennina Sigmar Þröst Oskars-
son og Valdimar Grímsson. Eftir
slæma byrjun komst KA á mikið
skrið og sló m.a. bikarmeistara
Vals úr bikarkeppninni. Liðið er
því komið í undanúrslit líkt og sl.
tímabil. Þórsarar hafa hins vegar
átt verulega á brattan að sækja.
Hestaíþróttir
Akureyringurinn Baldvin Ari
Guölaugsson frá Létti er tvímæla-
laust knapi ársins á Norðurlandi.
Fjórðungsmót norólenskra hesta-
manna var haldið á Vindheima-
melum í Skagafirði í byrjun júlí.
Þrátt fyrir fremur erfitt vcður tókst
mótið vel í alla staöi cn Baldvin
Ari var maður mótsins og sigraði l
með yfirburðum í A-IIokki gæð-
inga á Hrafntinnu. En afrekum _
Baldvins á árinu var ekki lokið
því hann var valinn til þátttöku á
Heimsmeistaramótinu í Hollandi,
sem fram fór um miðjan ágúst.
Þar náði hann þeim glæsilega ár-
angri að komast í A-úrslit í tölti
og endaði í 5. sæti og í fjórgangi
varð hann 6.
Léttir á Akureyri hélt Islands-
mótið í lok júlí á nýjum keppnis-
velli, Hlíðarholtsvelli, í landi Lög-
mannshlíðar. Frammistaða ungrar
stúlku frá Hafnarfirði, Sigríðar
Pjetursdóttur, vakti athygli en hún
vann 6 gull. Baldvin Ari varö Is-
landsmeistari í gæðingaskeiði og
skeiðtvíkeppni. Veðrið var hið
dæmigerða norðlenska sumarveð-
ur, sumarið 1993.
Ishokkí
Akureyringar höfðu mikla yfir-
buröi í íshokkí á árinu. Islandsmót
yngri ilokka var haldið þar í lok
febrúar og var kcppt í þrcmur ald-
ursllokkum. Lið frá SA unnu í
tveimur þeirra og lið frá Birninum
í einum. Þá vörðu Akureyringar
Islandsmeistaratitil sinn í meist-
araflokki næsta auðveldlega, unnu
liö SR samanlagt í úrslitakeppn-
inni 22:3.
Iþróttir fatlaðra
íþróttafólk af Norðurlandi var
mjög í sviðsljósinu á Islandsmóti
fatlaðra, sem fram fór í Hafnar-
firði um miðjan mars. Þcir einok-
uðu svo til verðlaunasæti í boccia-
keppninni og fór þar frcmst
íþróttafólk úr Akri á Akureyri.
Stelán Thorarcnsen vann til tjölda
verðlauna á mótinu og varð m.a.
nífaldur Islandsmcistari í þrcmur
íþróttagrcinum á árinu.
Rut Svcrrisdóttir sundkona
náði frábærum árangri á Norður-
landamóti fatlaðra í sundi í Gauta-
borg fyrstu vikuna á apríl. Hún
Hlynur Birgisson:
Meistaratitill minna manna
„Stærsti við-
burðurinn er
auóvitað Eng-
landsmeistaratit-
ill-hjá mínu fé-
lagi, Man. Utd.
Það ber alveg af
á árinu,“ sagöi
Hlynur Birgis-
son, knattspyrnumaður úr Þór.
Hlynur var yfirburðamaður mcð
sínu liði og auk þess fastamaður í
landsliði Islands. Það voru góð
tíðindi fyrir Þórsara þegar hann
ákvað að leika áfram á Akureyri.
„Síðan er það HM í frjálsum
sem maður horfði mikið á. Hér
innanlands dettur manni fyrst í
hug eitthvað tengt fótboltanum og
þá kannski fyrst árangur Skaga-
manna. Af persónulegum viðburð-
um minnist maður landslcikjanna
og þess aó ná að festa sig þar inni.
Annars held ég að lítió hafi verið
af stórafrekum sem standa uppúr á
þessu ári.“
vann til 5 gullverðlauna og var
tvímælalaust stjarna mótsins.
Ellefta Hængsmótiö var haldið
í Iþróttahö 11 inni á Akureyri l'yrstu
helgina í maí og þar var metþátt-
taka. Samkvæmt venju héldu
Hængsmenn mótið mcð stæl og
var þeim boðió að næsta Hængs-
mót yrði jafnframt íslandsmót.
Júdó
Freyr Gauti Sigmundsson, júdó-
maður úr KA, var útncfndur
íþróttamaður Norðurlands 1992.
Hann ásamt 2 félögum sínum úr
KA vann síðan gull á Afmælis-
móti JSI 23. janúar. Yngri júdó-
menn KA unnu til fjölda verð-
launa og er KA tvímælalaust orð-
ið öflugasta júdófélag landsins. A
íslandsmótinu vann KA alls 9 ís-
landsmeistaratitla í flokki fullorð-
inna, fleira en nokkurt annað félag
og hafði yfirburði í yngri flokk-
um. í lok nóvember hélt KA
Sveitakeppni 14 ára og yngri og
hafði þar sigur.
Vernharð Þorleifsson úr KA
var mikið í sviðsljósinu. Sigraði á
alþjóðlegu móti í Skotlandi í apríl,
varö 5. á mjög stcrku móti í Aust-
urríki og kórónaói glæstan árang-
ur á árinu með því að glíma til úr-
slita á Opna Skandinavíska meist-
aramótinu í lok nóvember.
Knattspyrna
Sumarsins 1993 verður ekki
minnst sem eins al'þeim bestu fyr-
ir norðlcnsk knattspyrnulið. Arið
byrjaði þó vcl með Framhalds-
skólameistaratitii Laugaskóla inn-
anhúss. Þórsarar voru eina norð-
anlióið í 1. deild utanhúss og varó
árangur þeirra ekki eins og vonir
stóðu til eftir að liðið varð Is-
landsmeistari í innanhússknatt-
spyrnu í mars. Liðið hafði misst
markaskorarann Bjarna Svein-
björnsson og Halldór Askelsson
var mciddur. Þetta reyndist of
mikil blóðtaka og höfuóverkur
liðsins var sóknin. Liðið var þó
aldrei í verulegri fallhættu og
sigldi tiltölulega lygnan sjó um og
fyrir neöan miðja deild. Nú sjá
Þórsarar hins vegar fram á betri
tíö. Bjarni Svcinbjörnsson hcfur
snúið aftur, Ormarr Örlygsson
kom frá KA, Halldór Askelsson
verður vonandi heill og U-21 árs
landsliósmarkvörðurinn Ólafur
Pétursson kom í stað Lárusar Sig-
urðssonar, sem fór til Vals að
nýju. Sigurður Lárusson þjálfar
liðið áfram. Skagamenn urðu Is-
lands- og bikarmeistarar meó
niiklum yfirburöum.
I 2. deild voru 3 lið af Norður-
landi. Tindastóll mátti þola fall í
2. dcild eftir nokkrar sviptingar.
Leiftursmenn voru í toppbaráttu
allt sumariö og misstu naumlega
af 1. deildar sæti. Liðió fær nýjan
þjálfara en Óskar Ingimundarson
tekur við af Martcini Geirssyni
sem þjálfar Fram. Sonur hans Pét-
ur Halliði skipti einnig um félag.
Lciftursmönnum bættist síðan
góður liðstyrkur þegar Sverrir
Sverrisson úr Tindastóli ákvað aó
leika á Ólafsllrði næsta sumar.
Pétur Björn Jónsson, Leiftri, varð
markahæsti maður bikarkeppninn-
ar meö 10 mörk.
KA byrjaói sumarið mjög illa
undir stjórn nýs þjálfara, Njáls
Eiðssonar. Um miðjan júlí tók lið-
Pétur Björn Jónsson:
Eitt stig
Pétur Bjöm
Jónsson, leik-
maður 2. deildar
liðs Leifturs í
knattspyrnu, var
talsvert í sviðs-
ljósinu sl. sumar.
Hann var iðinn
viö að skora fyr-
ir Leiftur og m.a. varð hann
markahæsti maður Mjólkurbikar-
keppninnar með 10 mörk, hvað
skyldi vera honum minnisstætt?
„Það er þetta eina stig sem
vantaði til aö við kæmust upp. Við
vorum í toppbaráttu frá 1. umferð
en það þýðir ekkert að gefast upp
og við mætum bara enn grimmari
næsta sumar. Síðan man maður
líka vel eftir bikarleiknum á Rauf-
arhöfn sem við unnum 16:0 og
leikurinn við UBK sem við töpuð-
um 1:6. Þaó eru helst þessar stóru
tölur sem maður man eftir en ann-
ars renna þessir leikir saman í eina
klessu með tímanum.“
ið síðan mikinn kipp og vann 8
leiki í röð. Þaó dugði þó ekki til
og liðið endaði í 4. sæti deildar-
innar. Við þjálfun þess taka nú
tveir valinkunnir KA-menn, Er-
lingur Kristjánsson og Steingrím-
ur Birgisson. Liðið hefur misst
nokkra lykilmenn frá síðasta
sumri og spennandi að sjá hvemig
liðið kemur til með aó spjara sig
næsta sumar. Annar fiokkur KA
lék til úrslita í bikarkeppninni en
tapaði fyrir Fram eftir jafntefii á
Akureyrarvelli.
Uppskcran í 3. og 4. deild Var
einnig fremur rýr. Völsungar áttu
lengi kost á 2. deildar sæti en
misstu af lestinni. Dalvík sigldi
lygnan sjó en Magni l'éll í 4. deild.
Hvöt og KS komust í úrslita-
keppni 4. dcildar cn komust hvor-
ugt upp.
Sameiginlegt lið KA og Þórs
undir merkjum IBA tók þátt í 1.
deild kvenna. Árangurinn var hins
vegar ekki eins og vonanst var til
og lcll lióió í 2. deild. Dalvík stóó
sig vel í 2. deildinni og missti
naumlcga af 1. deiidar sæti, sem
þó gæti náðst ef Þróttur Nes hættir
við þátttöku.
Norðlenskir atvinnumenn voru
talsvcrt í sviðsljósinu. Gengi Eyj-
ólfs Sverrissonar og félaga í
Stuttgart hcfur ekki veriö upp á
það besta það scm af er vetrar og
cinnig hefur Eyjólfi gengið verr
að festa sig í liðinu að undan-
förnu. Frægðarsól Þorvaldar Ör-
lygssonar hjá Stoke hefur hins
vcgar skinið skært síóustu mánuði
og hefur hann átt hvern stórleikinn
Golfarinn Sigurpáll Geir Svcinsson fór víða á árinu og stóð sig jafnan vel.
Hér cr hann í kröppum dansi á Jaðarsvelli sl. sumar. Mynd: Halldór.