Dagur - 29.12.1993, Page 6

Dagur - 29.12.1993, Page 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 29. desember 1993 Memungarannál 1993 Árið 1993 var mjög blómlegt á sviði menningar og lista á Norðurlandi. Þetta kemur berlega í ljós þegar flett er í gegnum árganginn af Degi. Kynn- ingar, viðtöl, fréttir og umsagnir af hinum ýmsu menningarviðburðum eru áberandi á síðum blaðsins og hér er aðeins hægt að stikla á stóru á þessu sviði. Mikil gróska var að vanda í leiklistar- og tónlistarlífinu um allt Norður- land. Sumarið var óvenju litskrúðugt á Akureyri og ber þar hæst Lista- sumar-Festival ’93 og opnum Listasafnsins á Akureyri. Þá var nýr sýning- arsalur opnaður í bænum og nýtt líf kviknaði í Grófargili. Hér verður nokkurra menningarviðburða ársins getið í annálsdúr. SS Opnunarsýning Listasafnsins á Akurcyri undirbúin. Forstöðumaðurinn Haraldur Ingi Haraldsson er þriðji frá vinstri. Listasafnið á Akureyri Laugardaginn 28. ágúst urðu tímamót í sögu Akureyrarbæjar. Þá var Listasafnið á Akureyri vígt við hátíð- lega athöfn. Fjölbreytt sýning myndlistarmanna var opnuð og tónverk eftir Jón Hlöðver Askelsson flutt. „Þetta er eins og ævintýri. Eg lít á þetta hús sem musteri myndlistar á Akureyri," sagði Helgi Vilberg, myndlistarmaður og skólastjóri Myndlistaskólans, í samtali við Dag. „Eg tel aó þetta sé einhver viturlegasta fjárfesting sem bærinn hefur lagt út í,“ sagói Haraldur Ingi Haraldsson, forstöðumaður Listasafnsins. Ljóðasamkeppni Dags og MENOR Dagblaðið Dagur og Menningarsamtök Norðlendinga gengust fyrir ljóðasamkeppni og bárust dómnefnd alls 109 ljóð. Niðurstöður voru kunngeróar í hófi á Fiólaranum 4. apríl. Aðalsteinn Svanur Sigfússon hlaut fyrstu verðlaun fyrir ljóó sem heitir „Geigur“ og Björn Ingólfsson hlaut önnur verðlaun fyrir ljóó sitt „Mynd“. Tilgangurinn með sam- keppni þessari var aö freista þess að blása í glæóur sem víða leynast í þeirri von aó einhvers staóar magnaðist myndarlegt bál. Kristján í Metropolitan Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, var í sviðsljósinu á árinu. Hann steig sín fyrstu skref á sviöi Metropolitan-óperunnar í New York 20. febrúar þar sem hann söng aðaltenórhlutverkið í II Trovatore eftir Verdi. Hann vakti víða athygli á árinu og kom svo heim síðla árs til að fylgja geisladisknum sínum eftir og sló einnig í gegn í sjónvarpinu hjá Hemma Gunn. Gott ár hjá Kidda Konn. Leðurblakan á loft Leikfélag Akureyrar kætti marga með óperettunni Leóurblökunni eftir Strauss. Leðurblakan var frumsýnd 26. mars. Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri, vakti athygli fyrir þessa frumraun sína á sviöi atvinnuleikhúss. Hljómsveitarstjóri var Roar Kvam og í helstu hlutverkum voru Jón Þor- steinsson, Ingibjörg Marteinsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Michael Jón Clarke, Aðalsteinn Bergdal, Steinþór Þráinsson, Þuríóur Baldursdóttir, Már Magnússon, Þráinn Karlsson, Sigurþór Albert Heimisson og Bryn- dís Petra Bragadóttir. Michacl Jón Clarkc kom víða fram á árinu, t.d. í Lcöurblökunni hjá Lcikfc- lagi Akureyrar, Astardrykknum og á tónlcikum Kammerhljóm.sveitar Ak- ureyrar og Kórs Akureyrarkirkju í maí. Ástar- drykkurlnní Laugarborg Nemendur og kennarar söngdeild- ar Tónlistarskólans á Akureyri settu óperuna Astardrykkinn eftir Donizetti upp í Laugarborg 22. janúar og var troðfullt á fimm sýningar. Már Magnússon og Að- alsteinn Bergdal leikstýrðu, Guð- mundur Oli Gunnarsson haföi tón- listarstjóm á sinni könnu og Helga Bryndís Magnúsdóttir annaðist undirleik á píanó. Meðal ein- söngvara voru Michael Jón Clarke, Hólmfríöur Benediktsdótt- ir, Dagný Pétursdóttir, Orn Viðar Birgisson og Baldvin Baldvins- son, en einnig kom fram kór. „Þó að ýmsu megi finna, eins og hér hefur verió gert, er uppsetningin glæsilegur vitnisburður þess, hve Birta í landslagi Einar Helgason sýndi málverk í Deiglunni 11.-19. september. Sýningin bar yfirskriftina Birta í landslagi, enda landslagsmyndir í fyrirrúmi. Ein- ar hafði ekki haldið sýningu á Akureyri í 13 ár en tilefnið sagði hann vera þau tímamót í lífinu að hann hefði nú látið af kennslu eftir 40 ára starf. Örn Viðar Birgisson kom fram í hinum vinsæla Ástardrykk sem ncmendur og kcnnarar söngdeildar Tónlistarskólans á Akurcyri settu upp í Laugar- borg. góðum árangri er unnt að ná, þeg- I njóta sín,“ skrifar Haukur Ágústs- ar hugsjónin og starfsgleðin fá að I son. Brekkugata „Verkió er samið fyrir Kammer- hljómsveit Akureyrar og tileinkað stjórnanda hennar, Guðmundi Óla,“ sagði Atli Ingólfsson, höf- undur tónverksins Brekkugötu, sem Kammerhljómsveit Akureyr- ar flutti í Glerárkirkju 7. fcbrúar. Á cfnisskránni voru einnig Epi- tafion eftir Jón Nordal og St. Kentigern Suite eftir Thomas Wil- son. „I heild er verkið skemmti- legt áheyrnar og vekur áhuga á því aó heyra meira úr penna tón- skáldsins," skrifar Haukur Ágústs- son um Brekkugötu. Einar Ilelgason sýndi 47 vatnslitamyndir og 19 olíumálverk í Deiglunni. Kirkjulistavika Kirkjulistavika var haldin t Akureyrarkirkju dagana 2.-9. maí. Merkir listviðburóir og fjölbreytt helgihald einkenndu vikuna en slík tenging listastarfsemi og kirkjulífs er oróinn fastur liður í Akureyrarkirkju. Þátttakendur í kirkjulistavikunni voru auk Akureyrarkirkju, Listvina- félag Akureyrarkirkju, Kór Akurcyrarkirkju, Bamakór Akureyrar- kirkju, Sinfóníuhljómsveit íslands, Kammerhljómsveit Akureyrar, Leikfélag Akureyrar, Minjasafnió á Akureyri, Tónlistarfélag Akur- eyrar og Þjóóminjasafn íslands.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.