Dagur - 29.12.1993, Blaðsíða 7
Mióvikudagur 29. desember 1993 - DAGUR - 7
I>órhallur Arnórsson, eigandi Lisfhússins Þings, og Kristinn G. Jóhannsson,
Zion breyttist í Þing
Kristniboóshúsió Zion á Akureyri breyttist í Listhúsiö Þing eftir aö Þór-
hallur Arnórsson festi kaup á húsinu og réöist í endurbætur á því. Fyrstur
til aö sýna í nýja galleríinu var Kristinn G. Jóhannsson, cn hann opnaöi
sýningu á 30 olíumálverkum 3. apríl. Fleiri uröu til þess aö notfæra sér
sýningaraðstöðuna á árinu og töldu menn Listhúsið Þing gott innlegg í
heim myndlistarinnar á Akureyri.
Plógur og stjömur
Leikfélagið Búkolla í Aðaldal frumsýndi leikritið Plóg og stjörnur eftir
Sean O’Casey aö Ydölum 12. febrúar. Þýöinguna gerði Sverrir Hólmars-
son en lcikstjóri var Siguröur Hallmarsson. Sýningin fékk góöa dóma og
aösókn. Verkið er margslungiö og uppsctningin metnaöarfull.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, stjórnandinn Guðmundur Óli Gunnarsson
og einlcikarar taka við þökkum áhcyrenda að loknum fyrstu tónlcikuni
hljómsvcitarinnar.
Tímamótatónleikar
Hin nýstofnaöa Sinfóníuhljómsvcit Noröurlands hélt sína fyrstu tónleika
í Akurcyrarkirkju sunnudaginn 24. október undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar. Flutt voru verk eftir Mozart og Beethoven og var kirkjan
troðfulll af þakklátum tónlistarunnendum.
Lestrarkeppnin mikla
Dagana 8.-18. mars slitu grunnskólabörnin sig frá myndbandstækjunum
og tölvuspilunum og tóku aö lesa bækur án afláts. Tilefniö var Lestrar-
keppnin mikla og mörg börn lásu tugi bóka á þessum tíma. Útlán barna-
bóka á söfnum margfölduðust og víst er að einhverjir uppgötvuóu nýjan
ævintýraheim.
Stálblóm á Skagaströnd
„í heild skoóað er uppsetning Leikklúbbsins á Skagaströnd á Stál-
blómum eitt best unna vcrkcfni, sem undirritaöur hcfur séö á fjölum
félagsheimilisins á Skagaströnd. Þaö er metnaöarfullt að ráóast í verk
sem þetta og ánægjulegt aö geta sagt, að vel hefur tekist til,“ skrifar
Haukur Agústsson. Leikstjóri var Jónas Jónasson.
Myndhópurinn
Myndhópurinn á Akureyri kom saman á ný og hélt myndlistarsýningu í
Gamla Lundi 8. apríl. Þar sýndu Aðalsteinn Vestmann, Alice Sigurðs-
son, Bernharð Steingrímsson, Guörún Lóa Leonardsdóttir, Höröur Jör-
undsson og Iðunn Agústsdóttir verk sín.
Listasumar
áAkureyri
Listagiliö svokallaða vaknaöi
sannarlega til lífsins síóastlióiö
sumar og raunar hcfur listalífió
sjálfsagt aldrei verió eins blómlegt
á Akureyri yfir sumarmánuöina.
Þar átti stærstan hlut aö máli há-
tíðin Listasumar-Festival ’93 sem
stóö frá 10. júlí til 31. ágúst.
Framkvæmdastjóri hátíðarinnar
var Eggert Kaaber og var tilgang-
urinn meö þessu framtaki m.a. sá
að sameina listir og ferðaþjónustu.
Arangurinn þótti glæsilegur. Alls
komu 300 listamenn fram á 55
uppákomum og gestir uröu um
5000. Leiðinlcgt veöur setti þó
nokkurt strik í reikninginn.
Norðlensk list flutt út
Norðanpiltarnir Jón Laxdal, bæjarlistamaóur Akureyrar, Guóbrandur
Siglaugsson og Kristján Pétur, svo og fleiri norðlenskir listamenn, tóku
þátt í tveimur listahátíðum á Bretlandseyjum í nóvember og desember.
Þessi útllutningur á norólenskri list mæltist vel fyrir og stefnt er að
áframhaldi.
Sunna Borg og Sigurður Kurlsson í Afturgöngum Ibscns.
Afinæli atvmnuleikhúss
I septembcrmánuði fagnaði Leiklelag Akureyrar þcim tímamótum aó
20 ár voru lióin frá því félagió varð atvinnulcikhús. Fyrsta frumsýn-
ing leikársins var barnaleikritið Feröin til Panama sem sýnd var víða
um Noróurland vió ágætar viðtökur og í október frumsýndi Leikfélag
Akureyrar Afturgöngur Ibsens í leikstjórn Sveins Einarssonar. Nýr
gamanleikur, Góðvcrkin kalla - átakasaga, eftir þrjá unga Þingeyinga
var síöan frumsýndur nú um jólin.
Freyvangsleikhúsið sctti upp Ljón í
síðbuxum eftir Björn Th. Björnsson
og þá var haldin mikil mcnningar-
hátíð í Eyjafjarðarsvcit.
Gítarhátíð
Gítarhátíð var haldin í Akur-
eyrarkirkju 20.-24. júlí og
komu þar fram fjölmargir gít-
arncmcndur á cinlcikstónlcik-
um og mcð öðrum hljóðfæra-
leikurum. Hátíóinni lauk með
nemendatónleikum.
Gömlu
meistararnir
I nóvember var í Listasaf'ninu á
Akureyri sctt upp sýning á verk-
um úr safni Markúsar Ivarssonar,
járnsmiðs. Þar voru verk eftir
marga af gömlu meisturunum
okkar og má þar t.d. nefna Jó-
hannes Kjarval, Asgrím Jónsson,
Þorvald Skúlason, Gunnlaug
Scheving o.íl. Þctta var afar
„verðmæt" sýning og gaf góða
innsýn í verk meistaranna.
Menning í
Eyjafjarðarsveit
Laugardaginn 17. apríl var Menn-
ingarhátíð í Eyjafjarðarsveit form-
lcga sctt. Þá hafði Frcyvangsleik-
húsið reyndar þegar byrjað aö
sýna Ljón í síðbuxum eftir Björn
Th. Björnsson í lcikstjórn Maríu
Sigurðardóttur, cn menningarhá-
tíöin var rnjög fjölbreytt og tók til
llestra listgreina. Hátíðin stóð til
25. apríl og þótti vel heppnuð.
Kirkjukór Húsa-
víkur 50 ára
Kirkjukór Húsavíkur fagnaði
hálfrar aldar al'mæli sínu með tón-
leikum í Húsavíkurkirkju 28.
októbcr. Stjórnandi var Robcrt
Faulkncr og undirleikari Juliet
Faulkner. A efnisskrá voru lög
cftir íslensk tónskáld, negrasálmar
og mcssa eftir Schubert. Laufey
Vigfúsdóttir var heiðruð að lokn-
um tónleikunum, en hún hclur
starfað mcö kórnum frá því 12 ár-
um fyrir lbrmlega stofnun hans.
Líflegurdesember
Desembcrmánuður einkenndist
af tónlcikahaldi, bókmennta-
kvöldum og fleiri listviðburð-
um scm of langt mál væri að
tclja upp hér. Menningarsam-
tök Norðlendinga birta yfirlit
yfir listviðburði tvisvar í
livcrjum mánuói hér í Degi og
er fólk hvatt til að fylgjast með
og hafa samband við tengiliði
MENOR.
Jóndi á Húsavík
Jón Kristinsson, Jóndi, hélt sýn-
ingu á myndum sínum í Safnahús-
inu á Húsavík um og fyrir páska.
Hann er bóndi í Lambey í Fljóts-
hlíð en fæddur og uppalinn á
Húsavík. Þetta var fyrsta sýning
hans í fæóingarbænum og var hún
vcl sótt.
Minnisvarði
Minnisvarði um landpósta var af-
hjúpaður að Staó í Hrútafirði 13.
maí. Grímur Marinó Steindórsson,
myndhöggvari, vann verkið sem
er 3,5 m há stálsúla meó lágmynd
af manni á hesti sem teymir tösku-
hest.
Sönghátíð
áDalvík
Hinn 21. maí var haldin mikil
sönghátíð í Dalvíkurkirkju. Fjórir
kórar koniu fram, Kór Dalvíkur-
kirkju, Kirkjukór Svarfdæla,
Karlakór Dalvíkur og kvennakór,
svo og Oskar Pétursson, tenór-
söngvari, og Guðrún A. Kristins-
dóttir, píanóleikari. Þótti þessi
tónlistarviðburður eftirtektarverð-
ur.
Vorkliður
Tónleikarnir Vorkliður voru
haldnir í tvennu lagi í íþrótta-
skcmmunni á Akureyri í júnímán-
uði. Þar komu fjölmargir þckktir
tónlistarmenn fram. Haukur
Agústsson skrifar eftir seinni tón-
leikana: „Með þessum tónleikum
hafa aðstandendur þeirra unnió
umtalsvert afrek. Þar er ekki síst
að nefna Roar Kvarn, sem hefur
greinilega náð góóum og lofsverð-
um árangri með hina ungu hljóð-
færaleikara, sem skipa Blásara-
sveit æskunnar á Akureyri.”
Helgi magri
ástall
Stytta Jónasar S. Jakobssonar,
myndhöggvara, af landnáms-
mönnum Eyjafjarðar, Helga
magra og Þórunni hyrnu, komst
loks á stall á haustmánuðum eftir
sex ára fjarveru og miklar hrakn-
ingar. Landnemarnir eru nú komn-
ir í bronsklæöi og ættu að þola
veður og vind á klöppunum norð-
an Brckkugötu.
Merkar bækur
Tvö merk rit er tengjast sögu Ak-
ureyrar og Eyjafjarðar litu dagsins
ljós á vetrarmánuðum. Annars
vegar Byggðir Eyjafjaróar, sem
Búnaðarsamband Eyjafjarðar gaf
út, og hins vegar Akureyri - höf-
uðborg hins bjarta norðurs, eftir
Steindór Steindórsson. Þá má
nefna bók um Nonna og Nonna-
hús eftir Jón Hjaltason.