Dagur - 29.12.1993, Síða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 29. desember 1993
Þá er komið að íþróttaannál fyrir árið 1993. Hann er með sama sniði og á síðasta ári, hver
íþróttagrein er tekin fyrir sig og farið eftir stafrófsröð. Af skiljanlegum ástæðum er mjög
stiklað á stóru og margt sem verður útundan, þó verður svo að vera. Að auki eru viðtöl við
íþróttafólk sem verið hefur áberandi á árinu sem er að Iíða og það beðið að rifja upp minn-
isstæða atburði af íþróttasviðinu. En þá er bara að rifja upp helstu íþróttaafrek Norðlend-
inga á árinu og vona að enn betri árangur náist á næsta ári.
Almenningsíþróttir
Samtökin Iþróttir fyrir alla, sem
starfa innan ISI, stóóu í lok maí aö
svokölluóum Hversdagsleikum
sem er alþjóðleg keppni milli
bæja og héraða í mismunandi
löndum um hvor aöilinn fær stærri
hluta íbúanna til þátttöku í ein-
hvers konar heilsurækt einn tiltek-
inn dag. Akureyri keppti vió
Ashkelon í Israel og sigraði meö
yfirburðum. Kvennahlaupið fór
fram 19. júní og var mjög fjölsótt.
Akstursíþróttir
Norðlendingar hafa mikla yfir-
burði í einni grein akstursíþrótta,
vélsleðaakstri. Enda fór svo að
þeir einokuðu Islandsmeistaratitla
á því sviði. Bílaklúbbur Akureyrar
hélt tvær torfærukeppnir og sigr-
aði Akureyringurinn Einar Gunn-
laugson í þeirri fyrri, Greifator-
færunni. Einnig stóð BA fyrir
götumílu og sandspyrnu að
ógleymdri hinni árlegu bílasýn-
ingu 17. júní. Sauðkrækingar
héldu einnig sandspyrnukeppni
þar sem Islandsmetin fuku.
Badminton
Guórún Erlendsdóttir varð þre-
faldur Akureyrarmeistari í bad-
minton annað árið í röð, en mótið
fór fram um miðjan mars. I yngri
flokkum varð Sigurður Tómas
Þórisson fjórfaldur meistari og
nokkrir spilarar þrefaldir meistar-
ar. Opna alþjóðlega Pro Kennex
mótið fór fram í Iþróttahöllinni á
Akureyri síóustu helgina í mars
og var vel heppnað. Þar kepptu
bestu spilarar landsins auk tveggja
útlendinga. Olöf Guðrún Olafs-
dóttir úr TBA þykir mjög efnileg
og vann m.a. þrefaldan sigur á
unglingameistaramóti TBA.
Billiard
Um miðjan janúar var haldið
stórmót í billiard í Billiardstofunni
Hrefna Brynjólfsdóttir:
Úrslitaleikur
bikarkeppninnar
Hrefna Brynj-
ólfsdóttir hefur
undanfarin ár
verið einn af
máttarstólpum
kvennaliðs KA í
blaki. Sl. vetur
lék KA úrslita-
leik bikarkeppn-
innar við Víking en mátti þola tap
en Hrefna sagði þetta þó auðvitaó
vera minnisstætt. „Þó man maður
kanski enn betur eftir því þegar við
unnum ÍS í undanúrslitum, því hitt
fór auðvitað ekki eins og það átti
að fara. Síðan er líka leikur KA, og
Vals í handbolta á dögunum mjög
ofarlega í huga þegar KA komst
áfram í bikarkeppninni. Vonbrigðin
eru hins vegar að detta út úr lands-
liðshópnum og komast ekki til
Möltu á Smáþjóðaleikana.
Gilinu á Akureyri. Var þetta 5.
stigamót Billiard- og snókersam-
bands Islands og mættu nokkrir
sterkustu spilarar landsins. Sigur-
vegari varð Eðvarð Matthíasson
frá Vestmannaeyjum.
Blak
Gengi kvenna- og karlalióa KA,
sem bæði kepptu í 1. deild, var
nokkuð rysjótt sl. vetur en bæði
komust þó í úrslitakeppni deildar-
innar. IS-stelpur sigruðu KA
nokkuð örugglega í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar en KA-strákar
voru hins vegar hársbreidd frá því
að leika til úrslita um Islands-
meistaratitilinn. Þar hafði HK þó
betur og vann síðan Þrótt í úrslita-
leikjum.
Kvennalió KA í blaki komst í
úrslit bikarkeppninnar en tapaði
fyrir Víkingi. Lið Snartar frá
Kópaskeri komst í undanúrslit hjá
körlunum, lék við Islands- og bik-
armeistara HK og mátti játa sig
sigrað. Snörtur sigraði síðan í 2.
deild.
SI. vor voru 4 leikmenn úr lið-
um KA valdir í Iandsliðið til þátt-
töku á Smáþjóóaleikunum á
Möltu.
Mikil endumýjun átti sér staó
fyrir yfrrstandandi tímabil á
kvennaliði KA. Liðið hefur þó
sýnt að þaó er til alls líklegt í
framtíðinni. Karlaliðiö hefur verió
á mikilli uppleió að undanförnu og
lagt tvö af topplióum deildarinnar.
Borðtennis
Grenvíkingar héldu sem fyrr uppi
merki borðtennisíþróttarinnar á
Norðurlandi og geróu það með
sóma. Þeir unnu til fjölda veró-
Iauna á Unglingameistaramótinu í
byrjun apríl og 4 Islandsmeistara-
titla. Grenvíkingar áttu síðan
helming keppenda í unglinga-
landsliðinu sem fór til Skotlands í
júní og tvo fulltrúa í landskeppni
við Færeyinga í nóvember.
Akureyringar stóu sig vel á ung-
lingamóti í fimleikum í Reykjavík
og sérstaklega var árangur Huldu
Guðmundsdóttur glæsilegur. Þá
náðu strákar frá Akureyri glæsi-
legum árangri á Skrúfumóti í fim-
leikurn í Laugardalshöllinni um
rniðjan mars. Hæst bar árangur
Bjarka Baldvinssonar, sem sigraði
í sínum flokki.
Á 39. aldursári bætti Flosi Jóns-
son gullsmiður á Akureyri 15 ára
íslandsmet í langstökki án at-
rennu. Þetta gerði hann á Meist-
aramóti Islands í atrennulausum
stökkum.
Á Norðurlandsmótinu, sem
haldið var á Laugum, varð UMSE
Norðurlandsmeistari og tveir Is-
landsmeistaratitlar komu í hlut fó-
lagsins á Meistaramóti Islands
utanhúss. UMSE hélt meistaramót
íslands 15-18 ára á Dalvík, stærsta
frjálsíþróttamót sumarsins, og
tókst það frábærlega þrátt fyrir
leióinlegt veóur.
í bikarkeppni FRÍ var lið
UMSE í 1. deild en féll í 2. í 2.
deild voru 4 lið af Norðurlandi,
UMSS, USAH, HSÞ og UFA.
UFA féll í 3. deild en UMSS vann
sig upp í 1. Snjólaug Vilhelms-
dóttir UMSE varó stigahæsta kona
bikarkeppninnar og Sunna Gests-
dóttir vann 6 gull fyrir USAH í 2.
deild. Þá sigraði Sunna í Bikar-
keppni FRI í fjölþrautum í
kvennaflokki. Snjólaug Vilhelms-
dóttir heldur til náms í Badaríkj-
unum í upphafi næsta árs en henni
bauðst skólavist í Georgíuháskóla
vegna frábærrar framistöðu sinnar
á frjálsíþróttavellinum.
Akureyrarmaraþon fór fram 24.
júlí á vegum UFA og þar féllu tvö
Islandsmet. Olafsfirðingar héldu
Islandsmót í þríþraut laugardaginn
7. nóvember.
Blaklið KA í karlaflokki hcfur verið á upplcið það scm af er vctri og til alls
líklcgt á nýju ári. Mynd: Robyn.
Stökk ársins í torfærunni cr tvímælalaust eign Hclga Schiöth í annarri af
torfærukcppnum Bílaklúbbs Akureyrar. Mynd: Haiidór.
mótið góóa kynningu.
Akureyringar héldu Unglinga-
meistaramót Islands og þar áttu
heimamenn marga fulltrúa í verð-
launasætum. Húsvíkingar héldu
Noróurlandsmótið að þessu sinni
og þar sigraði Guðni Rúnar
Helgason.
Golfari ársins á Norðurlandi er
tvímælalaust Akureyringurinn
Sigurpáll Geir Sveinsson. Hann
keppti á fjölda innlendra og er-
lendra móta á árinu og stóð sig
ætíð vel. Þar er svo sannarlega
mikið efni á ferð, sem vonandi fær
tækifæri til að nota hæfileika sína.
Almennt má segja að þrátt fyrir
erfitt tíðarfar hafi norólenskir
golfarar hvergi slegió slöku vió.
Handbolti
SI. vetur voru tvö lið af Norður-
landi í 1. deild, Þór og KA. Bæói
liðin héldu sætum sínunr í deild-
inni en hvorugt þcirra komst í úr-
Vegur þjóðaríþróttarinnar hefur
heldur farið vaxandi undanfarin
ár. Mývetningar eru sem fyrr í far-
arbroddi á því sviði noróanlands
og eignuóust flesta Grunnskóla-
meistara á 7. Grunnskólamóti
GLÍ. HSÞ og HSK hlutu llest
verðlaun í Landsflokkaglímunni,
sem haldin var meó glæsibrag í
Laugarbakkaskóla í Miðfirði 21.
mars.
Þá sigraði HSÞ í Sveitaglímu
Islands, fjórtánda árió í röð, en
keppt var á Laugum fyrstu helgina
í apríl.
Goíf
Arctic Opcn Golfmótið á Jaðars-
velli var fjölsótt að venju. Veórið
var nokkuó gott og keppnin æsi-
spennandi. Fjöldi erlendra blaða-
manna var vióstaddur og fékk
Valdimar Grímsson:
HM og félagaskíptín
„Heimsmeist-
arakcppnin í
Svíþjóó er auð-
vitað mjög
minnisstæð og
síöan þessi fé-
lagaskipti, en
það er hlutur
sem maður gerir
ekki á hverjum degi,“ sagði Valdi-
mar Grímsson, handknattleiks-
maður úr KA.
„Einnig er gengi KA ofarlega í
huga þessa dagana en liðió hefur
verið í mikilli uppsveiilu. Það sem
kemur mér mest á óvart er hvernig
ég er búinn að standa mig pcr-
sónulega en ég bjóst aldrei vió
svona miklum rneðbyr.
Þá fór ég í sumar á Olympíu-
ráðstefnu í Grikklandi, þar sem
fjallað var um Olympisma eða
hugsjón Ólympíuleikanna. Það
var mjög áhugavert námskeið þar
sem fjallað var um Ólympíuleik-
ana í mun víðara samhengi en
hvað varðar íþróttir. Þar hitti maó-
ur fólk víðsvegar að úr heiminum
með mismunandi skoðanir og ólík
viðhorf til hlutanna.
Efst stendur kannski hvað allir
tóku manni vel hér fyrir noröan.
Maður er allsstaóar velkominn og
finnur fyrir mikilli góðvild.“