Dagur - 29.12.1993, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 29. desember 1993
SSjálfsbjargarfélagar
og velunnarar
Jólatrésfagnaður
verður í félagssalnum Bugöusíðu 1
og hefst kl. 14.30.
Allir velkomnir!
Nefndin.
..............................................
Innilegt þakklæti sendi ég bömum, tengdabömum,
bamabömum og fjölskyldum þeirra, ættingjum
og vinum fyrir heimsóknir og gjafir á 90 ára
afmæli mínu þann 23. desember. !
✓
Oska ykkur öllum blessunar á nýju ári
og þakka liðin ár. 11
ÓLÍNA J. AUSTFJÖRÐ.
Tilkynning
Fimmtudaginn 30. desember frá kl. 12.00 verður
lokað hjá oss vegna jarðarfarar
VILHELMS V. ÞORSTEINSSONAR,
fyrrverandi framkvæmdastjóra.
Útgerðarfélag
Akureyringa hf.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
VILHELM ÞORSTEINSSON,
Ránargötu 23, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 30. des-
ember kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjarta- og æðavernd-
arfélag Akureyrar og nágrennis eða Slysavarnafélag (slands.
Anna Kristjánsdóttlr,
Þorsteinn Vilhelmsson, Þóra Hildur Jónsdóttir,
Kristján Vilhelmsson, Kolbrún Ingólfsdóttir,
Margrét Vilhelmsdóttir, Wolfgang Burkert,
Sigurlaug Vilhelmsdóttir, Guðjón Jónsson,
Valgerður Vilhelmsdóttir, Ormarr Örlygsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Vinur minn og bróðir okkar,
EGILL JÚLÍUSSON,
fyrrverandi útgerðarmaður,
Dalvík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 30. des-
ember kl. 13.30.
Þuríður Halldórsdóttir,
Kristín Júlíusdóttir,
Baldur Júlíusson,
Hjálmar Júlíusson,
Ragnheiður Júlfusdóttir,
Gunnar Skjöldur Júlíusson.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS BÖÐVARSSONAR,
Þórunnarstræti 97, Akureyrl.
Guð gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
Ingibjörg Steingrímsdóttir,
Guðný Kristjánsdóttir, Gylfi Jónasson
og barnabörn.
Kristján Jóhannsson
heiðursborgari Desenzano
Grein Björns B. Sveinssonar, sem hér birtist, barst ritstjórn Dags á dögunum með ósk um birtingu.
Greinin hafði verið boðin Morgunblaðinu til birtingar fyrr á þessu ári, en það sá ekki ástceðu til að
þiggja gott boð. Þegar Birni barst til eyrna að Kristjáni Jóhannssyni hefði verið afhentur bœjarlykill
Akureyrar, hafði hann samband við Dag og óskaði eftir að greinin birtist á síðum blaðsins. Við því
verður blaðið að sjálfsögðu, enda greinin vel við hœfi af þessu tilefni. Ritstj.
í dag er mánudagurinn 5. júlí,
1993. Við hjónin höfum lifað
dýrðar dag með góðum vinum,
stórsöngvaranum Kristjáni Jó-
hannssyni og konu hans, Sigur-
jónu, í litlum og vinalegum 25
þúsund manna bæ, sem nefnist
Desenzano. Þessi bær er nokkra
kílómetra vestan við hinn fræga
óperubæ, Verona, á Norður-Italíu.
Glæsilegir tónleikar
Tilefni þessarar dvalar okkar þar
var auðvitað að sjá og heyra Krist-
ján syngja aðal tenórhlutverkið,
„Turiddu", í óperunni „Cavelleria
Rusticana" eftir Mascagni, sem
Kristján söng meðal annars kvöld-
ið áður í „Arena Di Verona“, því
fræga útileikhúsi, sem rekur daga
sína aftur í aldir.
Svo erfitt var að fá miða á sýn-
inguna, að við létum okkur hafa
það að kaupa þá á „svörtum mark-
aói“, og var það svo sannarlega
þess virði. Kristján fór þar á kost-
um og var sem hann hefði lítið
fyrir því að heilla áhorfendur með
sinni miklu og þjálfuðu rödd, enda
sýndu fagnaðarlætin í lokin hver
áhrifin voru. Það er þó ekki á allra
færii að heilla ítalska áhorfendur.
A eftir þessari sýningu var
einnig flutt óperettan „Ipagliacci"
eftir R. Leoncavallo, þar sem
Placido Domingo var í hlutverki
Canio. Anægjulegt var að heyra
þennan gamalreynda söngvara
syngja þama en ósjálfrátt varö
manni á að gera þama samanburð
á þeim tveim, og fór Kristján þar
ekki með lægri hlut, að mínu áliti.
Var þar áberandi hvað hann átti
auðvelt með að „túlka“ hlutverkiö
með beitingu raddarinnar.
Heiðursborgarinn Kristján
Tilefni þessara skrifa er þó af öðr-
um toga spunnið, því þennan dag
átti aó heiðra Kristján og gera
hann að heiðursborgara þess bæjar
sem hann hefur átt sitt heimili til
langs tíma, Desenzano. Ekki vissi
ég af þessu fyrr en ég kom nióur
eftir og þau hjónin buóu okkur
meó sér til þessarar athafnar um
kvöldió. Ég var svo heppinn að
vera með „vídeómyndavél“ og gat
því fest þennan minnisstæða at-
buró á filmu mér til minningar.
Þegar við komum til samkomu
þessarar hafði um 300 stólum ver-
ið komið fyrir í garöi bæjarbóka-
safnsins undir berum himni, þar
sem svölur flögruðu um í kvöld-
kyrrðinni. Stórt skilti hafði verið
sett fyrir framan innganginn og á
Flugelda-
salan
í Hamri
er hafin
Mikiö úrval
Hagstætt verð
því var tilhögun samkonunnar lýst
og voru þar kynntir fjórir söngvar-
ar sem áttu að skemmta gestum á
undan sjálfri heióursborgara at-
höfninni. Nafn Kristjáns var þar
skrifað með stórum og áberandi
stöfum til auðkenningar.
Gaman var að sjá hvaó honum
var vinsamlega tekið og var hann
heilsandi fólki á báða bóga og, að
hans venju, klappandi mönnum á
öxlina eða, á ítalska vísu, með
þéttu faðmlagi. Þetta var þó ekki
eingöngu tiginborinn aóall. Það er
eitt af aðalsmerkjum Kristjáns
hvað hann er alþýðlegur og gefur
öllum jafnt sitt milda og hjartan-
lega bros. Ekki var þar að sjá neitt
af því „grobbi" og þeim „hroka“
sem sumir vilja brennimerkja
hann meó.
Þegar samkoman var sett var
Kristján látinn standa upp og hann
kynntur fyrir gestum og honum
klappað lof í lófa. Síóan komu
söngvararnir tjórir fram nokkrum
sinnum og sungu stuttar aríur úr
nokkrum þekktum óperum, Krist-
jáni til heiðurs.
Aó því loknu kom aö hápunkti
þessarar samkomu. Kristján var
beðinn að stíga á senu, þar sem
honum var aftur ákaft fagnað. Síó-
an steig bæjarstjóri Desenzano
upp á senuna, kvað sér hljóðs og
baö menn fyrst rísa úr sætum og
minnast þriggja ítalskra hermanna
úr gæsluliði Sameinuóu þjóðanna
í Sómalíu, sem höfðu verið skotn-
ir til bana þar við friðarstörf. Eftir
hljóða stund tóku menn gleði sína
á ný og hélt bæjarstjórinn þá stutta
ræðu og afhenti síðan Kristjáni
innrammaó skjal sem staðfesti
hann sem heiðursborgara Desen-
zanobæjar.
Var stórkostlegt til aö hugsa
hvað Kristján er mikils virtur í
þessum vinalega bæ, þótt hann sé
ekki innfæddur Itali.
Kristján hélt svo þakkarræðu,
og kvaðst svo mundi gleðja sam-
komugesti meö „smá“ söng við
undirleik vinar síns, „Meistara“
Geovanni Andreoli. Heyrðist þá
„bravo“ um allan garðinn og ekki
var óvíst að einhver hafi kallaó:
„Lengi lifi Konninn".
Það sem Kristján valdi til aó
syngja var ekki af verri endanum,
arían „Vesti la Giubba“ úr óperett-
unni „Ipagliacci“, sem Placido
Domingo hafði einmitt sungið
kvöldið áóur í „Arina di Verona“.
Þeir sem þarna voru staddir eiga
eftir aö minnast þessa lengi, og
þar lét Kristján alla heyra hvernig
á aó syngja þessa aríu. Áhrifin lifa
enn í huga mínum, og verð ég að
játa, að ég átti í dálitlum erfiðleik-
um að halda myndavélinni stöð-
ugri og sjónin varö dálítið móðu-
kennd af votum augum.
Eftir langt klapp og bravo-hróp
söng Kristján aóra fallega aríu, og
endaði svo auðvitað samkomu
þessa með því að syngja „O Sole
Mio“. Síóan var hóp gesta boðió
til kvöldverðar að „Hotel Villa
Maria“, þar sem menn lyftu glös-
um, milli rétta, og skáluðu fyrir
stórsöngvaranum og heiðursborg-
aranum og, að ítalskri venju, fyrir
lífinu í heild. Af öllu þessu gat ég
varla tyllt í tærnar af sannri ætt-
jarðarást og stolti af Kristjáni og
að geta líka kallaó mig Akureyr-
ing.
Viðurkenning við hæfi
Eftirá verður mér hugsað: Nú hef-
ur íslenska þjóðarforystan sýnt
„syni sínum" þá virðingu sem
honum sæmir, með veitingu fálka-
orðunnar og nú síðast heimabær
hans, Akureyri, meó bæjarlyklin-
um, sem er vert aó virða.
Nú hafa einnig þeir sem
álengdar stóðu loksins tekið undir
með bergmáli alheims og gleðjast
yfir velgengni hans sem óperu-
söngvari og þar með því hve
Kristján hefur reynst okkar litla
landi til mikils sóma og virðingar.
Með virðingu í garð allra Is-
lendinga og hugheilum framtíðar-
óskum til handa Kristjáni Jó-
hannssyni og hans hlýlegu fjöl-
skyldu.
B.B. Sveinsson, íslendingur
No. 2569 í „útlegó" í
Luxembourg.
Björn B. Sveinsson.
Höfundur er Akureyringur en flutti af landi
brott árió 1970. Hann er flugvélstjóri og starfar
hjá Cargolux í Luxemborg, eóa, eins og hann
oróar þaó sjálfur „íslendingur nr. 2569 í „út-
legö“ í Luxemborg“.
Því miöur gat Dagur ekki aflað sér myndar úr því ágæta samkvæmi sem
Björn B. Sveinsson lýsir hér að ofan. Þessi mynd var hins vegar tekin af
Kristjáni Jóhannssyni og ciginkonu hans, Sigurjónu Sverrisdóttur, með
„bæjarlykilinn44 sem Kristján fékk að gjöf frá Akureyrarbæ á dögunum.
Mynd: Robyn.