Dagur - 04.01.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 4. janúarr 1994
FRÉTTIR
Deilur um staðsetningu áfengisútsölu á Blönduósi:
Sýndarmennska
hjá ÁTVR
- segir Guðsteinn Einarsson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Húnvetninga
I dag er ráðgert að forsvars-
menn Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins eigi fund með for-
ráðamönnum HúnQörðs hf. á
Blönduósi um möguleikann á
því að HúnQörð hf. leigi ÁTVR
húsnæði Krútt-kökuhúss fyrir
áfengisútsöiu.
Áfengis- og tóbaksverslun rík-
isins efndi til einskonar forvals
þar sem óskað var eftir aó aðilar á
Blönduósi myndu bjóða fram hús-
næði fyrir áfengisútsöluna, en
ekki var óskaó eftir formlegum til-
boðum. Sex aðilar sendu bréf til
ÁTVR. Mat ÁTVR-manna var að
aðeins einn þessara sex aðila,
Húnfjöró hf„ sem á og rekur
Krútt-brauðgerð, uppfyllti skil-
yrði. Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, staófesti þetta í gær og
sagði að ef samningar tækjust vió
Húnfjörð hf. væri að því stefnt að
opna áfengisútsölu í húsnæði
Krútt-kökuhúss í mars nk.
Auk Húnfjörðs hf. buðu eftir-
taldir fimm aðilar húsnæði fyrir
áfengisútsölu á Blönduósi: Kaúp-
félag Húnvetninga, Verslunin Vís-
ir, Hallbjörn L. Kristjánsson, sem
rekur umboðs- og heildverslunina
Reyni sf„ Jónas Skaftason, sem
rekur gistiheimilið Blönduból, og
Þorbjörg Kristín Jónsdóttir, sem
rekur verslunina fataverslunina
Spec.
Guðsteinn: Pólitísk lykt
Guðsteinn Einarsson, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Húnvetninga, er
afar ósáttur við þessa nióurstöðu
ÁTVR og hann telur að pólitísk
lykt sé af málinu. Guðsteinn segir
að Kaupfélag Húnvetninga hafi
boóið hluta af húsnæði bygginga-
vörudeildar fyrir áfengisútsöluna
og ekki sé innangengt úr því hús-
næði yfir í húsnæði matvörudeild-
ar kaupfélagsins. „I forvalsgögn-
um var ekki minnst á þaó einu
orði aó ekki mætti reka matvöru-
verslun í sama húsi og áfengis-
verslun," sagói Guðsteinn.
„Við viljum að efnt verði til út-
boðs þar sem farió verði eftir sett-
urn reglum. Við sendum bréf þess
efnis tii ÁTVR og afrit til fjár-
málaráðherra milli jóla og nýárs.
Við fengum svar frá ÁTVR um
hæi þar sem erindi okkar var ekki
hafnað, en því var heldur ekki
svaraó,“ sagði Guðsteinn.
Guðsteinn sagðist hafa talaö
ítrekað vió Vilhjálm Egilsson,
þingmann Sjálfstæðisflokksins á
Norðuriandi vestra, um þetta mál
og ljóst væri að hann væri „pottur-
inn og pannan“ í því að Húnfjörð
hf. fái áfengisútsöluna. Vilhjálmur
væri meö þessu að leggja sitt lóð á
vogarskálina til þess að bjarga
samflokksmönnum sínum í Hún-
fjörð hf. út úr rekstrarerfiðleikum
fyrirtækisins. vVið eigum ekki
von á því að ÁTVR breyti sinni
niðurstöðu, en það er ljóst aó
vinnubrögðin í þessu máli eru
hrein sýndarmennska," sagði
Guðsteinn.
Vilhjálmur: Ekki pólitík
Vilhjáimur Egilsson vísar því á
bug að þetta mál sé í pólitískum
farvegi. „Eg hef hins vegar haft
ákveðnar skoðanir á þessu máli.
Ég tel óeðlilegt að setja niður
áfengisútsölu á Blönduósi sem
raskar samkeppnisstöðu aðila inn-
an bæjarins, ekki síst matvöru-
verslana. Hins vegar tel ég æski-
legast aó Áfengis- og tóbaksversl-
unin sé ekki til og Kaupfélag
Húnvetninga eins og aðrir geti
boðið upp á áfengi. Ég vona að ég
og kaupfélagsstjórinn getum barist
fyrir því saman að ÁTVR verði
lögó niður og kaupfélagið fái
sama rétt og aórir til þess að
versla með áfengi.
En á meðan þetta einokunarfyr-
irkomuiag er á áfengissölunni, þá
verða menn að gæta þess mjög vel
aó samkeppnismynstrið innan
bæjarfélagsins ruglist ekki. Ég
nefni sem dæmi að það þætti ekki
gott ef sett yrói niður áfengisút-
sala við Hagkaup á Akureyri, en
ekki viö hliðina á Kaupfélagi Ey-
fírðinga.“
Vilhjálmur sagöist aóspurður
telja að staðsetning áfengisútsölu í
húsnæói Húnfjörðs hf. raskaði
ekki þessari samkeppnisstöóu.
„Oskar Húnfjörð er þarna með
laust húsnæði og það hentar fyrir
þessa starfsemi. Ef Kaupféiag
Húnvetninga hefði verió meó ann-
aó húsnæði en ofan í matvörunni,
þá hefði það trúlega komió til
greina. Oskar Húnfjörð var ekki
eini sjálfstæðismaðurinn sem sótti
um og ég lít svo á að margir sjálf-
stæðismenn séu félagsmenn í
Kaupfélagi Húnvetninga. Ég tel
að mér sé jafn skyit að gæta hags-
muna Kaupfélags Húnvetninga og
annarra fyrirtækja og ég geri það á
jafnréttisgrundvelli,1* sagði Vil-
hjáimur. óþh
Fisherman hét áður Hjörleifur. Togarinn er á Icið til veiða í Barcntshafi.
Slippstöðin-Oddi hf.:
Saltfiskbúnaður í togara
sem veiðir í Barentshafl
Að undanfórnu hefur Slippstöð-
in-Oddi hf. á Akureyri unnið að
því að koma fyrir búnaði til
saltfiskvinnslu í togarann Fis-
herman, sem skráður er í Lima-
sol á Kýpur. Togarinn hét áður
Hjörleifur og var í eigu útgerð-
arfyrirtækisins Skagstrendings
hf. á Skagaströnd en var skráð-
ur erlendis þegar fyrirtækið
endurnýjaði togaraflotann.
Hann var síðan seldur fyrirtæk-
inu Unimar hf. í Kópavogi, sem er
í eigu Rúnars Björgvinssonar og
Halldórs Guðmundssonar, án fisk-
veiðiheimilda, cn fyrirtækió
hyggst gera hann út í samstarfi við
rússneska útgeróaraðila.
„Ég reikna með að togarinn
haldi á saltfiskveiðar í Barcntshafi
um miðjan þennan mánuö en salt-
fiskinum verður hins vegar landaó
hér og honum pakkaó í vióeigandi
umbúðir. Franileiðslan verður seld
sem íslensk og cltir íslenskum
stöólum cn uppruni vörunnar
vcrður auðvitað rússneskur. Skip-
ið hefur verið skráó á Kýpur en
væntanlega verður skráningin fiutt
til Rússlands og það fær nýtt
nafn,“ segir Rúnar Björgvinsson.
GG
SR-mjöl hf. selt á 725 milljónir króna:
Fjögur norðlensk útgerðarfyrirtæki og
staifsmenn verksmiðjanna meðal kaupenda
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, undirritaði 29. desem-
ber sl. samning um sölu á öllum
hlutabréfum í SR-mjöIi hf. til
tuttugu og eins útgerðarfyrir-
tækis og fjögurra fjármálafyrir-
tækja. Utgerðarfyrirtækin
munu ráða yfir 53% af heildar-
loðnukvótanum, eða 520 þúsund
tonnum. Kaupendur njóta auk
Dalvík:
Sæplast kaupir vél
Sæplast hf. á Dalvík hefur fest
kaup á vél til framleiðslu á
plaströrum. Með kaupunum er
verið að auka Qölbreytni í fram-
leiðslu fyrirtækisins og styrkja
þannig Sæplast sem plastfram-
leiðslufyrirtæki.
Vélin var í eigu Hulu hf. á
Flúðum og framleiðir kaldavatns-
rör, snjóbræðslurör og hitaþolin
vatnsrör. Sæplast mun í fyrstu
framleiða þau rör sem til þessa
hafa verið framleidd hjá Hulu en
síóar er stefnt að áframhaldandi
þróun í röraúrvali.
Hitaþolnu plaströrin sem fram-
leidd verða, hafa haft algera sér-
stöóu hvað varðar styrk og hita-
þol, eins og segir í fréttatilkynn-
ingu frá Sæplasti og hafa þau m.a.
verið notuð til lagningar á hita-
veitum víóa um land.
Stefnt er að flutningi vélasam-
stæóunnar tii Dalvíkur nú í janúar,
þannig að hægt verði aó hefja
lramleiðslu þar snemma á þessu
ári. Reiknað er með að með til-
komu nýju framleiðslunnar aukist
velta Sæplasts hf. um 15-20% á
ári en velta félagsins á árinu 1992
var tæpar 300 milljónir króna. KK
Sigliiíjörður:
Guðgeir sýslumaður
Guðgeir Eyjólfsson hefur verið vík, Ingi Tryggvason, fulltrúi hjá
Guðgeir Eyjoltsson netur veriö
skipaður sýslumaður á Siglu-
firði frá og með 1. janúar 1994.
Guðgeir var einn sjö umsækj-
enda um stöðuna. Aðrir umsækj-
endur voru Björn Rögnvaldsson,
fulltrúi sýslumannsins á Akureyri,
Guðmundur Björnsson, fulltrúi
sýslumannsins í Hafnarfirði,
Hilmar Baldursson, hdl. í Reykja-
sýslumanninum í Borgarnesi,
Kjartan Þorkelsson, sýslumaöur í
Ólafsfirði og Stefán Þ. Ólafsson,
fulltrúi sýslumannsins á Blöndu-
ósi.
Eins og fram hcfur komið sagói
Erlingur Óskarsson starfi sýslu-
manns á Siglufirði lausu í kjöllár-
iö á grun urn aðild að meintu
smygli til landsins. óþh
þess stuðnings allra þeirra fimm
sveitarfélaga þar sem verk-
smiðjur fyrirtækisins eru stað-
settar en það er á Siglufirði,
Raufarhöfn, Seyðisfirði, Reyð-
arfirði og Reykjavík auk beina-
verksmiðju á Skagaströnd.
Nafnverð hlutabréfa er 650
milljónir króna en kaupverð
725 milljónir króna, eða gengi
1,12. Kaupendur taka við
rekstri fyrirtækisins 1. febrúar
nk.
Tilboð barst cinnig frá Sigurði
G. Guðjónssyni hrl. f.h. Haraldar
Haraldssonar í Andra vegna fieiri
fjárfesta aó upphæö 801 milljón
króna en ekki þótti sýnt aö full-
nægt væri skilyrðum seljenda urn
fjárhagslegan styrk til að tryggja
kaupin og áframhaldandi rekstur
fyrirtækisins. Ákvöróun um sölu
fyrirtækisins hefur verió áfrýjað
til umboðsmanns Alþings af Har-
aldi HaralJssyni.
Boðað vcrður til fundar meó
hluthöfum á næstunni og þá rnunu
línur skýrast mcö stjórn lýrirtæk-
isins og heiti þcss. SR-mjöl hf. er
eitt af fimm stærstu útgerðarfyrir-
tækjum landsins.
Starfsmenn verksmiðjanna
munu vcra meóal væntanlcgra
hluthafa en norólenskir hluthafar
rnunu auk þess vcra Garðar Guó-
mundsson. útgeröarmaður Guð-
mundar Ólafs ÓF-91 í Ólafsfiröi,
Svcrrir Leósson útgcrðamaóur
Súlunnar EA-300 á Akureyri,
Hrciðar Valtýsson útgcróarmaður
Þórðar Jónassonar EA-350 á Ak-
ureyri og Bjarni Aðalgeirsson út-
geróarmaóur Bjargar Jónsdóttur
ÞH-321 á Húsavík. Loðnukvóti
áðurncfndra fimm báta er 74 þús-
und tonn. GG
Húsavík:
Tvö börn
fædd á árinu
Tvö börn eru fædd eftir áramót-
in á Sjúkrahúsinu á Ilúsavík.
Fyrsta barn ársins fæddist 2.
janúar kl. 21.30. Það var dreng-
ur úr Norður-Þingeyjarsýslu.
Foreldrar hans eru Hrund Ás-
geirsdóttir og Kristinn Rúnar
Tryggvason frá Hóli í Keldu-
hverfi.
Aðfaranótt mánudagsins 3.
janúar fæddist fyrsti Húsvíkingur
ársins. Þaó var stúlka, dóttir Þóru
Kristínar Jónasdóttur og Sigurjóns
Sigurbjörnssonar. IM
Akureyri:
Gífurlegt fjöl-
menni við útfór
Gífurlegt fjölmenni var við út-
för Vilhelms Þorsteinssonar,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
Utgerðarfélags Akureyringa hf.,
sem var gerð frá Akureyrar-
kirkju sl. fimmtudag.
Sr. Birgir Snæbjörnsson segir
að áætlaö sé að um 700 manns
hafi vcrið við útförina og telur
hann að þetta hafi verið ein allra
fjölmennasía útför, cf ekki sú tjöl-
mennasta, sem hcfur verið gerö
frá Akureyrarkirkju. óþh