Dagur - 19.03.1994, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 19. mars 1994
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
(Iþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, lax 96-42285),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON.
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Þörf fyrir hlutlausa
sérfræðiþekkingu
Enn bólar ekkert á markaðsskrifstofu ferðamála sem
fyrirhugað var að stofna á Akureyri í samvinnu sveit-
arfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu. Mönnum má þó ljóst
vera að ef ferðaþjónustan á að verða lyftistöng í at-
vinnulífinu og sú framtíðarlausn sem rætt er um, þá er
nauðsynlegt að til staðar sé markaðsskrifstofa þar
sem hægt er að ganga að hlutlausri sérfræðiþekkingu.
Slík markaðsskrifstofa myndi einnig sjá um að kynna
og markaðssetja Eyjafjarðarsvæðið sem vænlegan kost
fyrir ferðamenn.
í þessari atvinnugrein sem og mörgum öðrum hafa
heildarhagsmunir oftlega þurft að víkja fyrir hagsmun-
um einstaklinganna og viðleitni þeirra til að skara eld
að sinni köku. Þó má nefna framtakið Vetrarhátíð '94
sem nú stendur yfir á Akureyri sem dæmi um að sam-
keppnisaðilar geta tekið höndum saman og borið hag
samfélagsins fyrir brjósti. Það sama gilti um Listasum-
arið '93, sem var tilraun til listahátíðar á Akureyri.
Þarna eru jákvæð teikn á lofti og vonandi að framtíðar-
sjónarmiðin verði stundarhagsmunum yfirsterkari
þegar á reynir.
Það eru ekki ýkja mörg ár síðan menn fóru að líta á
ferðaþjónustuna sem sjálfstæða atvinnugrein með
mikla vaxtarmöguleika. Þetta er því tiltölulega ung at-
vinnugrein, en samt sem áður hefur hún þegar ratað í
mikla erfiðleika. Þar hafa menn, líkt og í öðrum grein-
um sem vonir hafa verið bundnar við, fljótlega lent í
hyldýpi offjárfestinga. Framboðið er orðið mun meira
en eftirspurnin. Er þetta ekki einkennandi fyrir íslend-
inga? Þeir framkvæma fyrst en hugsa svo.
Lánastofnanir stjórna að mestu leyti fjárfestingum
og framboði í ferðaþjónustunni og nægir að líta á of-
framboðið á gistirými til að sjá hvernig til hefur tekist.
Offramboðinu er viðhaldið, verðlag fellur, eignir lækka
í verði, veð rýrna, hótel og gistiheimili sökkva í skulda-
fen. Hugsanlega er útlánastefna banka og annarra
lánastofnana ekki nógu ábyrg einmitt vegna þess að
ekki er til staðar greiður aðgangur að hlutlausum upp-
lýsingum í faginu. Einnig kemur þarna inn í gamla
sagan um stundarhagsmuni umfram heildarhag at-
vinnugreinar, samfélags eða þjóðfélags. Þessu þarf að
breyta. SS
I UPPAHALDI
lfar Hauksson,
framkvæmda-
stjóri Kaffi-
brennslu Akur-
eyrar, gaf sér
tírna frá önnum dagsins til
þess að svara nokkrum
spumingum. Úlfar er hag-
fræðingur að mennt og hefur
til fjölda ára kennt nemend-
um á félagsfræóibraut
Menntaskólans á Akureyri
hagfræði. Hann var í nokkur
ár hagsýslustjóri Akureyrar-
bæjar en einbeitir sér nú aó
því aó selja landsmönnum
kaffi. Ekki má gleyma því aó
Úlfar er frekar illa haldinn af
bíladellu og annað slagió
skrifar hann fróólega pistla 1
Dag um allt þaó nýjasta í
bílaheiminum.
Hvað gerirðu helst ífrístundum?
„Það er sitt lítið af hverju. Ég
reyni að stunda útiveru eins og
ég get og ég les talsvert."
Hvaða matur er l mestu uppálialdi
hjá þér?
„Nú vandast máliö. Ég held aó
ég myndi velja mér kjöt, ;mnað
hvort góða nautasteik eða hrein-
dýrasteik."
Vfjpáhaldsdrykkur?
„Eg get nú ekki sagt neitt annað
cn kaffi - það er alveg gjörsam-
lega vonlaust.“
Ertu hamhleypa til ullra verka á
heimilinu?
„Nei.“
Úlfar Hauksson.
Er heilsusamlegt líferni ofaríega á
baugi lijá þér?
„Já, það held ég megi segja.“
Hvaða blöð og tímarít kaupir þú?
„Ég kaupi Dag og Moggann.
Einnig kaupi ég The Economist,
National Geographic og Auto,
Motor und Sport.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„Þær eru reyndar nokkrar. En
þessa dagana er ég að skoða
Byggðir Eyjafjarðar."
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Þegar ég var ungur hélt ég mik-
ið upp á hljómsveitina Yes. í dag
er Bcrlínarsinfónían hins vegar í
miklu uppáhaldi hjá mér. Mér
finnst hún vera heimsins besta
hljómsvcit “
JJppáhaldsíþróttamaður?
„Það cr crfitt að taka einn út úr.
En rnér dettur í hug breski For-
mula 1 ökumaðurinn Damon
Hill.“
Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi?
„Fréttir og veöur."
Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mestálit?
„Ég held aö Gro Harlem Brundt-
landt, forsætisráóherra Noregs,
sé mögnuð kona og trúlcga eru
ckki margir stjórnmálamenn sem
er betur treystandi cn henni.“
Hvar á iandinu vildirðu helst búa ef
þú þyrftir að Jlytja búferlum nú?
„Ef ég þyrfti á annað borð aó
fiytjast frá Akureyri þá held ég
að mér væri alveg sama hvert ég
færi.“
Hvaða hlut eða fasteign langar þig
mest til að eignast um þessar mund■
ir?
„Eg var spurður þessarar sömu
spumingar um daginn og ég
svaraði að bragði að ég gæti
hugsað mér að cignast nokkra
bíla, reyndar kosta þeir allir um
eða yfir 10 milljönir króna. Ég
gæti til dæmis hugsaó mér að
eignast Porsche 911.“
Hvernig myndirþú verja þríggja
vikna vetrarleyfi?
„Ég kysi að vera í rólegheitunum
hcima mcð fjölskyldunni og lcsa
góóar bækur.“
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Ætli ég taki því ekki bara rólcga
heima." óþh
HRÆRINOUR
STEFAN ÞOR SÆMUNDSSON
Etið, dnddáð og ferðast í kreppunni
Mitt í ógnarkreppunni er aðeins
eitt til ráða: Að eta, drekka og
vera glaður. Þetta vita Akureyr-
ingar betur en margir aörir, enda
skynsamir að upplagi. í þessum
blómlega höfustað Noróurlands
hafa síóustu misseri sprottið upp
veitingastaðir, kaffihús, barir,
flatbökuhús og hvað maður á aó
nefna öll þessi fyrirbæri. Sum eru
blómum prýdd, önnur gætu hæg-
lega á sig blómum bætt, a.m.k.
rekstrarlega séó.
Auðvitað er engin von til þess
að of mörg veitingahús gangi á of
fámennum markaði. Þetta er og
verður viðskiptastríð uns yfir lýk-
ur. Pizzustríóió skilaói neytend-
um hagstæóara verói og þeir hafa
sennilega borðað meira fyrir vik-
ið. Margar fjölskyldur panta sér
pizzur á hverjum föstudegi eöa
laugardegi. Þaó cr náttúrlega hió
besta mál ef fólk hefur efni á
þessu og vissulega gaman að fá
meira úrval og fjölbreytni í fæðu-
hringinn. Ég smakkaði t.d. pizzu
á Pizza 67 í fyrsta sinn nú vik-
unni og hún var einstaklega góð,
því miður. Maginn heimtar meira
en baðvigtin og peningaveskið
segja stopp. Og þau eru orðin all-
mörg skiptin sem maóur hefur
freistast til að láta Greifann þjóna
sér til borós.
Spennuþörfin greidd
með korti
Jæja, ef fólk hcfur efni á því að
fara út að borða einu sinni í viku
og skella sér í sólarlandaferð þá
er kreppuvælið orðið ansi hjá-
róma. Það ku allt vera brjálaö í
utanlandsferóum núna og spurn-
ing hvort almenningur er svona
efnaður eöa hvort þetta sé óábyrg
hegðun, flótti frá hversdagsleik-
anurn greiddur meó krítarkorti. Ef
til vill er spennuþörfin orðin svo
rík hjá fólki aó þaó sækir alltaf í
sama vítahringinn. Eftir grcióslu-
kortareikningana í febrúar, jóla-
sjokkið svokallaóa, er fjárhags-
staóan keyrð niöur á nýjan leik
með því að skondra með kortið á
næstu ferðaskrifstofu.
Ég efast stórlega um að þeir
700 Akureyringar sem ganga um
atvinnulausir eða hafa verið
skikkaðir í atvinnuátak (sem er
víst ekkert skárri kostur fyrir
suma) séu áberandi á vcitinga-
stöóunum og ferðaskrifstofunum
og ekki heldur verkafólk, af-
grciöslufólk og aörir láglauna-
hópar. Þau eru nefnilega hreint
ótrúlega lág, lægstu launin sem
menn voga sér aó bjóóa upp á og
bundin eru í kjarasamningum.
Þetta er smánarblettur sem enn
hcfur ekki tekist að þvo af.
Kannski væri ráð að prófa Ariel
Ultra? Eða eru Sjafnarmenn búnir
að cyðileggja töframátt þvotta-
cfnisins?
Afþreyingin nauðsynieg til
að lifa af
Æ, stundum cr gott að komast frá
öllu baslinu. Þá kemur til kasta
afþreyingarinnar. Fólk vcrður aó
hafa einhverja afþrcyingu til að
bugast hreinlega ekki í amstri
hversdagsleikans. Ég held að það
sé ckki cndilega nauósynlcgt að
fiýja til sólarlanda, cn ég hcf
reyndar aldrei prófað það og veit
ekki um hvað ég er að tala. Það
næsta scm ég hef komist sólar-
strönd var cinhver strandlcngja á
Jótlandi þar sem vcl var hægt að
synda í sjónum. Sólarlandaferðir
eru í mínum huga óbærilegur hiti,
matareitrun, sólbruni, fyllerí,
óhreinindi, sviti, ógleði og blank-
heit. Sannarlcga ekki kræsilegur
kostur.
A hinn bóginn eru hvcrs kyns
tómstundir, bóklestur, bíóferóir,
íþróttir, útivera og annað slíkt
kjörin lcið til að brjóta upp dag-
legt mynstur, fá útrás, láta sig
dreyma, cndurnæra sig. Þctta cr
fólki lífsnauðsynlcgt og þaö vita
þeir vcl sem dæla frá sér sápu-
ópcrum, rcyfurum og öóru af-
þreyingarefni. Fólk sækir í þctta,
verður jafnvcl háð því. Ég hcld
að það sé engin synd, svo l'ramar-
lega scm maður cr cnn vió stjórn-
völinn. Tilvcran snýst jú að
mörgu leyti um að hafa stjórn á
eigin lífi, taka sjálfstæðar ákvarð-
anir cn ckki láta markaðsöfiin
hugsa lyrir sig (segir sá scm hljóp
eins og óður maður á eftir
cinhvcrjum fcrmingartilboðum á
dögunum!).
Helgin er gengin í garð. Tákn
upplyftingar, hvíldar, afþrcying-
ar. Heilbrigt fjölskyldulíf. Enska
knattspyrnan. Svefn. Ltkamsrækt.
Sunnudagslærið. Samræður. Og
svo kemur mánudagur...