Dagur - 19.03.1994, Síða 20

Dagur - 19.03.1994, Síða 20
Á annað hundrað umsóknir um skipspláss á Sigli: Um 200 milljóna króna aflaverð- mæti stendur unclir rekstrinum Stefnt er að því að Siglir, togari Siglfirðings hf., sem nýlega var keyptur í Kanada haldi til veiða á úthafskarfa á Reykjaneshrygg 16. apríl nk. Að loknum úthafs- karfaveiðuin er fyrirhugað að senda skipið til veiða í Smug- una. Verið er að setja nýja vinnslulínu fyrir flakafrystingu og heilfrystingu um borð í skip- ið hjá Slippstöðinni Odda hf. á Akureyri. Siglir er skráður í Belize vegna ákvæða laga um skráningu skipa sem keypt eru erlendis, en þau mega ekki vera eldri en 12 ára. Ragnar Olafsson, annar eigenda skipsins og skipstjóri þess, segir að ef stjórnvöld ætli ekki að láta af þeirri stefnu að banna skrán- ingu skipa eins og Siglis hérlendis og þar með banna löndun úr þeim hér, þá sé verið að afsala sér þeim veiðirétti sem þessi skip muni í nánustu framtíð skapa á miðunum utan landhelginnar. I öðru lagi er verið að hafna tekjum sem skapast af löndun skipanna og þjónustu við þau og þessi hugsunarháttur sé bæði rangur og valdi málstað Is- lendinga tjóni í baráttunni um veiðirétt á fjarlægum miðum. Mikil aðsókn hefur verið í skipspláss á Sigli þótt ekkert hafi verið auglýst, og hafa borist hátt á annað hundrað umsóknir, víðs vegar af landinu, og berast enn. Ragnar segir að gengið verði frá ráðningum á skipið í næstu viku. Til þess að rekstur skipsins standi undir sér þarf aflaverðmæti skipsins að vera um 200 milljónir á ári og er Ragnar bjartsýnn á að það náist. Til samanburðar má geta þess að aflaverðmæti norð- lenskra frystitogara var á sl. ári frá ca. 250 milljónum króna og upp í 582 milljónir króna hjá Baldvini Þorsteinssyni EA, en hann var jafnframt með mesta aflaverðmæti allra hérlendra frystitogara. GG Z-brautir Gluggakappar Rúllugardínur Komið með gömlu keflin og fáið nýjan dúk settan á Plast- og álrimlagardínur eftir máli aKAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565 4.-20. mars ■ ■ Akureyrarbær: Mikil ásókn skóla- fólks í sumarviimu Um næstu mánaðamót mun Ak- ureyrarbær fara að auglýsa sumarstörf fyrir skólafólk laus til umsóknar, en miðað við at- vinnuástandið í bænum er Ijóst að erfitt getur reynst fyrir marga að fá eitthvað að gera í sumar. Byrjað er að auglýsa eft- ir flokkstjórum í unglingavinn- una. Karl Jörundsson, starfsmanna- stjóri Akureyrarbæjar, sagði að mjög mikið hefði verið hringt og leitað eftir upplýsingum um sum- arvinnu fyrir unglinga og ráðning- ar almennt í sumar. Fólk hefði greinilega áhyggjur og byrjaði snemma að leita fyrir sér með sumarstörf. Hann sagði að stefnt væri að því að ráða alla 16 ára unglinga til starfa hjá bænum eins og gert var síðastliðið sumar, en annars væri ekki ljóst á þessari stundu hvaða háttur yrði hafður á. Bæjarráð fól Karli og bæjarráðsmönnunum Bimi Jósef Arnviðarsyni og Jakob Bjömssyni að gera tillögur um hvernig standa skuli að ráðningu í sumarvinnu skólafólks hjá Akur- eyrarbæ og sagði Karl að tillög- urnar myndu væntanlega liggja fyrir þegar byrjað yrði að auglýsa um mánaðamótin. „Það verða ábyggilega alveg ofboðslega margar umsóknir, þannig að það á að reyna að vinna faglega að málunum, ef það er á annað borð hægt. Þeir sem fá ekki vinnu verða náttúrlega óánægðir,“ sagði Karl. SS Mánaberg ÓF á ýsuveiðum: Sólberg ÓF seldi karfa og grálúðu erlendis Einn togara Sæbergs hf. í Ólafs- firði, ísfisktogarinn Sólberg ÓF- 12, seldi á fimmtudag 130 tonn í Bremerhaven og var aflinn mest- megnis karfi og grálúða sem fór á markað í Frakklandi en eitt- hvað virðist vera að losna um innflutningshöft Frakka á fiski, sérstaklega ef fiskurinn kemur O HELGARVEÐRIÐ í dag er gert ráð fyrir áframhaldandi éljagangi og frosti á Norðurlandi en á sunnudag og mánudag spáir Veðurstofan austlægri átt og hlýnandi veðri. Él eða slydduél verða um austanvert landið. Á þriðjudag herðir vet- urinn tök sín á ný. Þá verður allhvöss eða hvöss norðan eða norðaustan átt með snjó- komu á Norðurlandi. Veður fer kólnandi. um Þýskaland. Heildaraflaverð- mæti var rúmar 17 milljónir króna og meðalverð pr/kg því um 130 krónur og hefur því hið góða verð sem hefur verið á karfa í Þýskalandi lækkað nokk- uð, en er þó ásættanlegt. Aflann fékk togarinn fyrir suðvestan land, í Rósagarðinum. Næsta sala hjá útgerðinni er ekki fyrr en í lok maímánaðar, en þá á ísfisktogarinn Múlaberg ÓF- 32 söludag erlendis. Múlabergið er nýkomið úr togararallinu og fór í gær á veiðar á miðunum suðvest- ur af landinu. Frystitogarinn Mánaberg ÓF- 42 landaði í Hafnarfirði á fimmtu- dag 150 tonnum, aflaverðmæti 37 milljónir króna, og var aflinn mest ýsa en einnig ýmislegt aukfiski. Reynt hefur verið að forðast þorskveiðar af fremsta megni eins og hjá fleiri togurum um þessar mundir. Mikið er nú af ýsu suður af Reykjanesi, en hún er nokkuð smá. GG LÓNSBAKKA•601 AKUREYRI -zs- 96-30321, 96-30326, 96-30323 HY6 innimálning 20% afsláttur Gljástig 5, 7, 15,40 og 80 Otrúlegir möguleikar í fullkominni tölvublöndunarvél Þú getur valið litasamsetninguna þína á tölvuskjánum BYGGINGAVÖRUR BáWUUUMIBMn'Vg-Ótft/TKI—BH—I - líf í lit

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.