Dagur - 11.06.1994, Blaðsíða 19
Rauði dreg-
illinn hf. herur
starfsemi
Rauöi dregillinn er þjónustumið-
stöö fyrir kvikmyndageró. Fyrir-
tækið skiptist í þrjár deildir; The
Icelandic Film Commission,
tæknideild og umboósskrifstofu.
The Icelandic Film Commision
sér um aó markaðssetja ísland er-
lcndis í þeim tilgangi að fá er-
lenda aðila til að gera myndir,
auglýsingar eða tónlistarmynd-
bönd á íslenskri grundu. Ásamt
því aó þjónusta viðkomandi aðila í
forvinnu.
Tæknideildin sérhæfir sig í
þjónustu við íslenska kvikmynda-
gerðarmenn, þar sem boðið er upp
á nýjustu tölvutækni í tengslum
við myndbandavinnslu.
Umboðsskrifstofan skráir fólk
hvaðanæva af landinu, sem stat-
ista í kvikmyndir, auglýsingar og
tónlistarmyndbönd. Síðar verður
farið í að skrá leikara, fagfólk í
kvikmyndagerð og fyrirsætur.
Tilgangurinn er aö búa til
gagnabanka sem innlendir jafnt
sem erlendir aðilar geta leitað í.
Skráning á statistum hefst sunnu-
daginn 12. júní og stendur til 16.
júní. Hún fer fram aó Vatnsstíg 4
og í símum 91-20088 og 91-
21188. Leitað er að allskonar
fólki, ungum jafnt sem göntlum.
Reynsla er ekki skilyrði. Skrán-
ingargjald er 850 krónur.
Framkvæmdastjóri Rauða
dregilsins er Róbert S. Róberts-
son, kvikmyndagerðarmaður, en
með honum standa fimm aðrir
eigendur og fjórir samstarfsaðilar.
(Ur fréttatilkynningu)
Fjölskyldu-
handbók um
hollustu og
heilbrigði
Mál og menning hefur sent frá sér
HEILSUBÓKINA, fjölskyldu-
handbók um hollustu og heilbrigði
eftir breska lækninn Stephen Car-
roll. Þetta er einkar aðgengileg og
ríkulega myndskreytt bók sem
gagnast fólki við að fylgjast með
eigin hcilsufari, bæta það og fyrir-
byggja ýmsa sjúkdóma.
í formála bókarinnar segir
mcðal annars: „Læknar fást nú
ekki cingöngu við að lækna þá
sem sjúkir eru, heldur nýta vax-
andi þckkingu til að vara fólk við
hættum og hjálpa því til að breyta
lifnaðarháttum sínunt. A þann hátt
er ekki einasta hægt að lengja líf
fólks, hcldur einnig aö gera því
klcift að njóta þess betur.
í þessari bók cr reynt nteð hjálp
nýjustu upplýsinga að setja frant
staðreyndir og hollráð, sem eiga
að geta nýst öllum í fjölskyldunni
til að tcmja sér heilbrigóari lifnað-
arhætti, og um leið bæta útlit og
líðan.“
Bókin er í fallegu handbókar-
formi. Henni er skipt niður í átta
mcginkafla þar sem fjallað er um
ýmsar hliðar hollustu og hcil-
brigðis frá barnæsku til elliára.
Þar er t.d. spurningalisti til að
kanna ástand heilsunnar, kafli um
mataræði, unt stjórn á líkants-
þyngd og streitu, auk ráðlegginga
til þeirra sem eiga við vandamál
að stríða sökum reykinga ellegar
ofdrykkju.
Bókin cr hönnuð af breska fyr-
irtækinu Dorling Kindersley scnt
er þekkt fyrir vönduð fræðslurit
fyrir alntenning. Guórún Svavars-
dóttir líffræðingur þýddi.
Heilsubókin er 319 bls., prent-
uð í Englandi og kostar 4950 kr.
(Frétlatilkynning).
Laugardagur 11. júní 1994 - DAGUR - 19
Er hálft ár í bílprófið
- eða um það bil?
Samkvæmt umferðarlögum má ökunám hefjast sex mánuðum áður en
nemandi hefur aldur til að fá ökuskírteini til að aka bifreið eða bifhjóli.
Dómsmálaráðherra hefur nú jafnframt nýtt heimild í lögunum og breytt
reglugerð um ökunám á þá leið að nú geta foreldrar eða aðrir nákomnir
tekið þátt í undirbúningi fyrir ökupróf. Um er að ræða akstursþjálfun sem á
að koma til viðbótar hefðbundinni ökukennslu.
Hvernig fer þetta fram?
Nemandi og leiðbeinandi kynna sér þá möguleika sem fyrir hendi eru í
ökunámi og velja ökukennara sem kennir undirstöðuatriði góðs aksturs.
Þegar ökukennarinn telur tímabært getur þátttaka leiðbeinanda hafist.
Umsóknareyðublað um leyfi til leiðbeinandaþjálfunar fæst hjá ökukennara
(eða á lögreglustöð). Umsókn er skilað til lögreglustjóra ásamt vottorði
ökukennara um færni nemanda og staðfestingu tryggingafélags.
Lögreglustjóri kannar akstursferil þeirra sem vilja leiðbeina og gefur út leyfið
ef allt er í lagi, að jafnaði til níu mánaða.
Skilyrði leyfisveitingar:
• að leiðbeinandi hafi náð 24 ára aldri og hafi gild ökuréttindi
til að stjórna þeim flokki ökutækja sem æfa á akstur með og
a.m.k. fimm ára reynslu af slíkum akstri,
• að leiðbeinandi hafi ekki á undangengnum 12 mánuðum
verið án ökuskírteinis vegna ökuleyfissviptingar eða verið
refsað fyrir vítaverða aksturshætti.
Þegar leyfið er fengið fær leiðbeinandinn bækling Umferðarráðs
Leiðbeinandaþjálfun í ökunámi sem hann notar við æfingaaksturinn
og merki hjá ökukennaranum til þess að setja á bílinn
ÆFINGAAKSTUR
Þegar æfingatímabilinu lýkur og ökupróf nálgast tekur ökukennarinn við að
nýju og lýkur undirbúningi.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umferðarráði í síma (91)-622000.
MINNUMST ÞESS AÐ VARKÁR VEL ÞJÁLFAÐUR
ÖKUMAÐUR BREGST
BETUR VIÐ ÓVÆNTUM AÐSTÆÐUM í UMFERÐINNI.
ÞAÐ ER KJARNI MÁLSINS.
MEIRI ÞJÁLFUN - BETRI ÖKUMAÐUR.
æfingaaksturs
:manda í
meðferöis pegar
(leiðbeinandi
Lögreglustjórinn
Auglýsing se
hagkvæmt
L getur verið
Auglýsing sem
hagkvæmt
L getur verið A
m að Æ
’fkgeyma! Æy
U
UMFERÐAR
RÁÐ
\30
150 Reykjavik
I