Dagur - 14.06.1994, Qupperneq 3
FRETTIR
Þriðjudagur 14. júní 1994 - DAGUR - 3
Dalvík:
Ólafur Valsson
skipaður hér-
aðsdýralæknir
Ólafur Valsson hefur verið skip-
aður héraðsdýralæknir í Dalvík-
urumdæmi frá fyrsta næsta
mánaðar að telja. Staða héraðs-
dýralæknis losnaði þegar Ár-
mann Gunnarsson, dýralæknir í
Svarfaðardal, var skipaður hér-
aðsdýralæknir í Austur- Eyja-
Qarðarumdæmi.
Staða héraósdýralæknis í Dal-
víkurumdæmi var auglýst laus til
umsóknar þann 8. apríl síöastlið-
inn. Þrír dýralæknar sóttu um
stöðuna auk Ólafs; þeir Aðalbjörg
Jónsdóttir, d^ralæknir í Hrísey,
Sigurbjörg Ólöf Benediktsdóttir,
héraósdýralæknir á Þórshöfn og
Vignir Sigurólason, settur héraðs-
dýralæknir á Isafirði.
Ólafur Valsson cr af norð-
lensku bergi brotinn, sonur Vals
heitins Arnþórssonar, sem var
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Ey-
firöinga og síðar bankastjóri
Landsbanka Islands. Ólafur
starfaói um tíma sem dýralæknir
við einangrunarstööina í Hrísey en
aö undanförnu hcfur hann starfað
við embætti yfirdýralæknis. ÞI
36 nemendur brautskráöir
Þrjátíu og scx nemcndur brautskráðust frá Háskólanum á
Akureyri á háskólahátíð sl. laugardag. Frá hcilbrigðisdcild
voru útskrifaðir 14 hjúkrunarfræðingar, 3 sjávarútvegs-
fræðingar frá sjávarútvegsdcild og 5 iðnrckstrarfræðingar
og 14 rekstrarfræðingar frá rckstrardcild. Robyn, Ijós-
myndari Dags, tók meðfylgjandi myndir á háskólahátíð í
Akurcyrarkirkju á laugardag. Á innfclldu myndinni eru
Sigríður Halldórsdóttir, forstöðumaður hcilbrigðisdcildar,
og Haraldur Bessason, háskólarcktor. óþh
Norðlenskar laxveiðiár
Veiði fer vel af stað
Ólafur Valsson.
Veiði í Laxá í Aðaldal hefur far-
ið vel af stað og mun betur en í
fyrra. Um miðjan dag í gær
höfðu komið 34 laxar á land á
svæði Laxárfélagsins en veiði
hófst sl. föstudag.
Fiskurinn er vænn og sá stærsti
sem náðst hefur á land, mældist
19,5 pund. Mest hefur veiðst neð-
an Æðafossa.
Veiði í Laxá á Ásum hefur
byrjað vel og er mikill fiskur í
ánni. Hún er hins vegar vatnsmikil
og því er nokkuð erfitt að eiga við
laxinn. Veiði hófst 5. júní sl. og
þegar eru komnir á land á milli 30
og 40 laxar, sá stærsti 20 pund og
meðalþyngdin um 14 pund. Veitt
er á tvær stangir.
Veiði í Blöndu hefur einnig
farið vel af staö. Á sunnudag,
höfðu 66 laxar verið skráðir í
veiðibókina í Blönduskálanum en
veiði hófst þar þann 5. júní sl.
Stærsti laxinn sem skráður hefur
verið var 19 pund og llestir eru
þeir yfir 10 pund. Á ncðsta svæó-
inu er vcitt á tjórar stangir. KK
Ruglel&lr:
Afkoma lakari
enífyrra
Afkoma af rekstri Flugleiða
fyrir skatta, var um 56 milljón-
um króna lakari á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs en sama
tímabili í fyrra. Á þessu tíma-
bili var tap af rekstri fyrir
skatta, 954 millj. kr. en var 897
millj. kr. á sama tímabili 1993.
Verulegt tap er að jafnaói af
rekstri Flugleiða á þessum árs-
tíma vcgna árstíóasveiflu í
flumingum og gengi félagsins
yfir sumannánuðina sker því úr
um afkomu í árslok. Horfur í
sumar eru nokkuð góðar.
Á fyrsta ársfjórðungi 1994
fjölgaói farþegum urn 40% frá
sama tímabili í fyrra en þar
sem fjölgunin varð mest á
skemmri leióum og meðaltekj-
ur af hverjum farþega lækkuðu
um 10% milli ára, skilaöi þessi
fjölgun sér ekki í sambærilega
hærri tekjum. Tíu prósent
lækkun meðalfargjalds milii
ára kostaöi Flugleiðir um 180
millj. kr. á tímabilinu janúar til
mars.
Fargjaldatckjur félagsins
hækkuöu um 24% milli ára og
heildartekjur um 15,4%.
Rekstrargjöld hækkuðu einnig
um 15,4%, m.a. vegna hækk-
unar á gengi dollars gagnvart
krónu.
Bókanir yfir sumarvertíðina
eru góðar og horfur á töluvert
betri sætanýtingu en í fyrra. Ef
gengi dollars og annarra er-
lenda gjaldmióla veróur hátt
yfir sumarmánuðina er það fé-
laginu hagstætt. KK
Kaldbakur til Póllands
Stjórn Utgerðarfélags Akureyr-
inga hf. hefur ákveðið að ganga
til samninga við skipasmíðastöð-
ina Nauta í Póllandi um endur-
bætur á togara félagsins, Kald-
baki EA-301.
Þann 15. febrúar sl. voru opnuð
tilboð í endurbæturnar og reyndist
tilboð Nauta vera hagstæðast, eftir
„að tillit hefur veriö tekið til allra
þátta, sem áhrif hafa á endanlegan
kostnað vegna verksins,“ eins og
segir orórétt í fréttatilkynningu frá
Utgerðarfélagi Akureyringa. Áætl-
að er að verkið hefjist í Póllandi í
sepjembcr nk.
í frétt frá UA segir einnig að
ákveðið hafi verið aó setja búnað
til flottrollsveióa í Harðbak EA-
303 og er gert ráö fyrir aó það
verði gert í ágúst nk. Auk starfs-
manna ÚA er gert ráó fyrir að
Slippstöðin Oddi hf. muni annast
niðursetningu þess búnaðar. óþh
Lögreglan á Húsavík:
5 teknir ölvaðir
við akstur
Hjá lögreglunni á Húsavík fengust
þær upplýsingar að mikil gleói
hefði ríkt í Ydölum í Aðaldal að-
faranótt laugardags. Hljómsveitin
Sssól spilaði þar fyrir fullu húsi
og er talið að um 800 manns hafi
verið þar á svæðinu. Aó sögn lög-
reglu voru 5 teknir grunaóir um
ölvun við akstur. ÞÞ
Listahátíö í Reykjavík:
BarPar slær í gegn
Sýning Leikfélags Akureyrar á
leikritinu BarPar eftir Jim
Cartwright hefur notið mikilla
vinsælda á Listahátíð. í upphafi
voru ráðgerðar fjórar sýningar
og seldist upp á þær svo grípa
þurfti til aukasýninga.
Fyrst var bætt við þremur sýn-
ingum og strax varð uppselt á þær
þannig að enn var bætt vió þremur
aukasýningum og veröa þær í
Lindarbæ nk. þriðjudags-, mið-
vikudags- og fimmtudagskvöld.
Eins og flestum er kunnugt eru
það Sunna Borg og Þráinn Karls-
son sem fara með öll 14 hlutvcrk-
in í þessu vinsæla verki og eftir
viðtökunum í Reykjavík að dæma
er ekki von á þeim heim fyrr en
með haustinu!
BarPar var sýnt í Þorpinu á Ak-
ureyri frá janúarmánuði til loka
maí og ávallt fyrir fullu húsi. Sýn-
ingin í Lindarbæ á þriðjudags-
kvöldið er sú 50. í röðinni og ljóst
að Listahátíðargestir eru vel með á
nótunum. SS
I
Sporthú^kf
m
mihoð
f ilH f M átJ' B M m m w'.
1 M £Þ /O iti 9lU f / f / II1
Þriðjudagur 14. júní:
Brooks skór, Hi-Tec gallar, Patrick fótboltaskór
Miðvikudagur 15. júní:
LA Gear skór, Le Caf gallar, Sporteck fótboltar
Fimmtudagur 16. júní:
Adidas skór, Matinbleau gallar, Lutha fatnaður, Brooks skór
Laugardagur 18. júní:
Nike skór, Runway gallar, Puma fatnaður
Sporthúyd
Hafnarstræti 94, sími 24350, Akureyri