Dagur


Dagur - 09.08.1994, Qupperneq 16

Dagur - 09.08.1994, Qupperneq 16
AuKaSeTT aF MvNdUm m A \ \u GPedi67nync//r? SKIPAGATA 16 • AKUREYRI • SÍMI 23520 Austur- Húnavatnssýsla: Ófeigur Gestsson ráðinn ferða- málafulltrúi Ofeigur Gestsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Blönduósi, hef- ur verið ráðinn ferðamálafulltrúi og framkvæmdastjóri héraðs- nefndar A-Húnvetninga. Héraðsnefnd og Ferðamálafé- lag A-Húnvetninga ákvað fyrr í sumar að sameina þessi störf í eina stöðu og rann umsóknarfrest- ur um starfið út 28. júlí sl. Að sögn Erlendar Eysteinssonar, for- manns Ferðamálafélags A-Hún- vetninga, sóttu 16 einstaklingar um stöðuna, þrír úr héraðinu en hinir lengra að komnir. ÞÞ Grenjaðarstaðarprestakall: Sr. Kristján Valur segir embættinu lausu Sr. Kristján Valur Ingólfsson, sem gegnt hefur Grenjaðar- staðarprestakalli í Aðaldal und- anfarin ár, sagði því lausu í byrj- un ágústmánaðar, en hann hef- ur verið í tveggja ára Ieyfi og gegnt stöðu rektors í Skálholti frá sama tíma. Prestakallið veróur nú auglýst laust til umsóknar en sr. Þórir Jök- ull Þorsteinsson, sem gegnt hefur brauðinu sl. tvö ár, er settur til loka septembermánaöar nk. Sr. Þórir Jökull er einn þeirra þriggja umsækjenda um Selfoss- prestakall sem ákveðið hafa að taka þátt í prestskosningum þar á haustdögum en upphatlega voru umsækjendur sex. Auk sr. Þóris Jökuls sækja sr. Gunnar Sigur- jónsson á Skeggjastöðum í Bakka- firði og sr. Haraldur M. Kristjáns- son í Vík í Mýrdal um Sel- fossprestakall. Atkvæði voru talin sl. fimmtu- dag vegna kosningar til Kirkju- þings sem sett vcröur 25. októbcr nk. en kosningin gildir til fjögurra ára. Fyrir Húnavatns- og Skaga- fjarðarprófastsdæmi hlutu kosn- ingu sr. Dalla Þórðardóttir og Margrét K. Jónsdóttir á Löngu- mýri í Skagallrði af hálfu leik- rnanna; en fyrir Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi hlutu kosningu sr. Þórhallur Höskulds- son og Halldóra Jónsdóttir í Grímshúsum í Aðaldal af hálfu leikmanna. GG Isgjörningur á Ráðhústorgi Isgjörningur á Ráðhústorgi sl. föstudag vakti óskipta at- hygli viðstaddra. Aðstæður voru líka hinar sérkennileg- ustu, veður var gott en þær stöllur, Amí, Jonna, Helga og Sigurdís, voru kappklæddar í lopapeysum. Og það sem meira var að þær sátu á ísstólum við ísborð og drukku rauðvín. „Meö þessari uppákomu vilj- um vió einfaldlega lífga upp á Torgið,“ sagði Sigurdís. „Við stóðum einnig fyrir gjömingi í fyrra og vonandi verður þetta ár- legt.“ óþh/Mynd: JHB. Akureyri: Sólargeisli kveikti í Um klukkan tvö í gærdag var slökkviliðið á Akur- eyri kallað til hjálpar þar sem kviknað hafði eldur í risi við Brekkusíðu á Akureyri. Orsök eldsins var með mjög sérstæðum hætti en það var sólargeisli sem skein í gegn- um stækkunargler sem kveikti í tauklæddri plötu sem stækkunarglerið var á. Að sögn slökkviliðsmanna munaði litlu að illa færi og var það snarræði ungs pilts að þakka að ekki fór verr. Hann var snöggur að átta sig á hætt- unni og ná í hjálp. Skemmdir voru óverulegar. KLJ VEÐRIÐ Að sögn veðurfræðings á Veðurstofu íslands verður veðrið í dag eins og í gær, sem sagt óbreytt veður. Hit- inn verður yfir 20 stig þar sem hlýjast verður en þó eitthvað örlítið minni við norðurströndina. Spáð er úrkomulausu veðri en ein- hverri gjólu yfir daginn. Bændur bjóða heim - 22 norðlenskir bændur með opið hús nk. sunnudag Isamvinnu við Upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins munu bændur á 43 bæjum víðs vegar um landið bjóða íslend- ingum á öllum aldri í heimsókn kl. 13-20 nk. sunnudag 14. ágúst. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast líftnu í sveitinni, dýrunum, vinnunni, rekstarþátt- um, framförum og nýjungum. Engir tveir bæir eru eins, en t.d. má fimma 10 tegundir dýra að Hraunkoti í Aðaldal. Á flestum bæjanna gefst kostur á að klappa dýrum, kíkja í Qós, borða nesti í fógru umhverfi, teiga að sér töðuilminn og sveitaloftið, njóta kyrrðar og fegurðar. Bændur munu einnig luma á ýmsu sem glatt gæti gesti, bæði börn og fullorðna. Þetta kemur fram í kynningu á verkefninu, en það kallast: „Bændur bjóða heim.“ Á Norðurlandi eru 22 bæjanna 43ja sem taka þátt í heimboðinu. Bæirnir eru: Búrfell í V-Húna- vatnssýslu, Stóra-Giljá í A- Húna- vatnssýslu, Flugumýrarhvammur, Litla-Brekka, Ásgeirsbrekka, Keta, Egg, Stóru-Akrar I, Saur- bær, Syðra-Skörðugil, Hátún og Garöakot í Skagafirði, Þórisstaöir, Víöigerði og Hríshóll í Eyjafirði, Engin síldveiði hjá Islendingum í „Síldarsmugunni" - erlend veiðiskip að fá síld í flottroll Nokkrir íslenskir loðnubátar héldu fyrir helgi á svæðið milli íslands, Færeyja og Nor- egs, svokallaða „Sfldarsmugu“ til að kanna möguleika á sfld- veiði á svæðinu. Bátarnir fundu ekkert og héldu til baka norður og vestur fyrir land í loðnuhugleiðingum. I gær flaug flugvél Landhelgisgæslunnar, TF- SYN, yfir svæóið og voru þá 37 erlend fiskiskip á síldveióum norður af Færeyjum. Skipin voru frá Rússlandi, Ukraínu, Eistlandi, Litháen, Lettlandi og Búlgaríu. A.m.k. eitt þessara skipa var að taka inn 15 til 20 tonna hol af síld í flotvörpu er flogið var yfir það. GG Möðruvellir í Hörgárdal, Sakka í Svarfaðardal, Pálmholt í Reykja- dal, Hraunkot I í Aðaldal, Laxa- mýri í Reykjahreppi, Hóll í Kelduhverfi og Gunnarsstaöir í Svalbarðshreppi. Norðmenn hafa sl. 7 ár hclgað sér cinn dag á ári og kalla hann opinn sveitabæ. Reynsla þcirra er sú aö þarna hafi þeir fundið bestu leiðina til að byggja upp jákvæða ímynd landbúnaðar í huga al- mcnnings og þá ekki síst barnanna, neytenda framtíðarinn- ar. Einstaka bændur á Islandi hafa aó eigin frumkvæði opnað bæi sína, en aldrci hefur verið um sameiginlcgt átak að ræða á þessu sviði, segir í fréttatilkynningu frá UÞL. Meiningin er að feta í fótspor Norðmanna og gera bændadag að árvissum viðburði. Markmiðið er að fá sem flesta til að kynnast sveitum landsins og að fjöldi þeirra sveitabæja sem opna dyr sínar fyrir þcttbýlisbúum aukist ár frá ári. Reiknað er með að flestir konii í sveitina til að eiga notaleg- an dag, rifja upp gamlar minning- ar, sýna börnunum sínum um- hverfið og dýrin. I tilefni af bændadeginum mun Búnaöarsamband Suður-Þingey- inga efna til sérstaks bændadans- leiks að Breiðumýri í Reykjadal. Þar mun Harmoníkufélag Þingey- inga leika fyrir dansi kl 22-03, laugardaginn 13. ágúst. IM I 1 18 þvottakerfi | 5 kg þvottur IHitabreytirofi 600 snúninga | Rústtrír pottur I Frábært verð 39.900,- stgr ! ffl KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 Allt fyrir garðinn í Perlunni við B KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.