Dagur - 26.08.1994, Blaðsíða 7
I DAGSLJOSINU
Föstudagur 26. ágúst 1994 - DAGUR - 7
Norðurlandskjördæmi eystra:
Kosningaimdírbúníngur að komast í gang
Stjórnmálaflokkar og -samtök eru
nú farin að huga að undirbúningi
fyrir alþingiskosningar sem áætlað-
ar eru 8. apríl nk. Þótt enn sé ekki
loku fyrir það skotið að kosið verði
fyrr verður að telja líkur á því litlar.
Búast má við fjörugu þinghaldi í
vetur og að sama skapi kæmi ekki á
óvart þótt kosningabarátta yrði hörð
og spennandi, ekki síst í Norður-
landskjördæmi eystra, þar sem þing-
mönnum kjördæmisins fækkar um
einn vegna ákvæða í kosningalögum
sem blaðið hefur þegar fjallað ítar-
lega um.
Atta listar buðu fram í Norður-
landskjördæmi eystra í alþingiskosn-
ingunum 1991 en kjördæmið fékk þá
sjö þingmenn. Þeir eru: Sigbjöm
Gunnarsson (A), Guómundur Bjama-
son, Valgerður Sverrisdóttir og Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson (B), Hall-
dór Blöndal og Tómas Ingi Olrich (D)
og Steingrímur J. Sigfússon (G). Kjör-
dæmið fær hins vegar aðeins sex þing-
menn að þessu sinni. Sjöundi þing-
maður þess er framsóknarmaðurinn
Jóhannes Geir Sigurgeirsson en það er
auðvitað ekkert sjálfgefiö að hann
detti út nú.
Dagur hafði samband við fulltrúa
flokka og samtaka og ræddi við þá um
kosningaundirbúninginn og horfur.
Sigbjörn Gunnarsson.
Alþýðuflokkur
Ekkert er farið að ræða framboðsmál
Alþýðuflokksins í kjördæminu. Sig-
bjöm Gunnarsson, alþingismaður,
skipaði efsta sæti listans í síðustu
kosningum. Hann segir aó fyrir kosn-
ingar síðustu ár hafi farið fram opin
prófkjör og á von á aó sá háttur verði
áfram hafóur á, enda sé kveóið á um
það í lögum flokksins. „Annars hafa
þessi mál ekki verið rædd ennþá. Ég
mun hins vegar gefa kost á mér í efsta
sætið,“ sagði Sigbjöm.
Ekkert liggur fyrir um hverjir aðrir
myndu gefa kost á sér í prófkjöri
krata, færi það fram. Siguróur Amórs-
son, Akureyri, skipaói annaó sæti á
lista Alþýóuflokksins í síðustu kosn-
ingum og Pálmi Ólason, Þórshöfn, þaö
þriðja.
Sigbjöm er eini fulltrúi Alþýóu-
flokksins í kjördæminu á þingi og
flokkurinn getur vart talist öruggur
meó það sæti, ekki síst með tilliti til
þess að þingsætum kjördæmisins
fækkar um eitt.
„Ég geri mér grein fyrir að það
verður ekki auðvelt fyrir minn flokk
aó halda þingsæti. Kosningar verða
væntanlega ekki fyrr en eftir átta mán-
uöi og það getur margt gerst í pólitík-
inni á þeim tíma. Ég reikna meó að
fólk muni meta þaó að vió höfum
staðið við stjómvölinn á skútunni við
erfiðar aðstæóur og aó mínu mati stað-
ió okkur nokkuð vel.“
Sigbjörn segist enga ástæðu sjá til
að búast við kosningum fyrr en í apríl.
„Það getur allt gerst en ég sé enga
ástæóu til að búast við þeim fyrr þar
sem ekki var tekin ákvöróun um slíkt á
dögunum. Það er alltaf erfitt að koma
saman fjárlögum en það er ekkert erf-
iðara núna en það hefur verið. Maður
veit aldrei hvað gerist í pólitíkinni en
ég sé engin sérstök ágreiningsefni fyrir
mér og stjómin hefur komist í gegnum
erfið mál hingað til. Það tókst t.d. að
ljúka lagasetningu um stjóm fiskveiða
meó bærilegri sátt og menn komust í
gegnum landbúnaðarmálin. Mér þykir
ólíklegt annað en að stjómin ljúki sínu
kjörtímabili eins og hún á að gera,“
sagói Sigbjöm Gunnarsson.
Valgerður Sverrisdóttir.
Framsóknarflokkur
Um helgina fundar landsstjóm Fram-
sóknarflokksins á Blönduósi og þar
verður tekin ákvöröun um val á fram-
bjóóendum. I síðustu kosningum var
kosió í sæti á svokölluóu útvíkkuðu
kjördæmisþingi en slík þing cm fjöl-
mennari en venjuleg kjördæmisþing.
„Þetta verður mikil barátta en við
stefnum á að halda þremur mönnum,“
sagði Valgeröur Sverrisdóttir sem
hyggst gefa kost á sér áfram, eins og
Guðmundur Bjamason og Jóhannes
Geir. „Við teljum það ekki útilokað,
enda er staða Framsóknarflokksins tví-
mælalaust sterk í kjördæminu. Það
sýna bæði kannanir og eins úrslitin í
sveitarstjómarkosningunum í vor
þannig aó ég er bara bjartsýn."
Valgerður segir að það kæmi ekki á
óvart þótt kosið yrói fyrr. „Það yrði
óskaplega neyðarlegt fyrir þá að þurfa
að láta kjósa fyrr. En fyrst Jón Baldvin
varð ofan á í þessari atrennu hefur
maður grun um að Davíð láti vaða ef
hann fær höggstaó á Jóni Baldvin. Og
manni dettur í hug að það gæti t.d.
orðið í tengslum við GATT. Það mál
er enn óútkljáð og ekki samstaða um
það meóal stjómarflokkanna," sagði
Valgerður Sverrisdóttir.
Tómas Ingi Olrich.
Sjálfstæðisflokkur
Ákvöróun um framkvæmd uppstilling-
ar á lista Sjálfstæðisflokksins veróur
tekin á kjördæmisþingi sem haldið
verður á Húsavík eða í Mývatnssveit
1. október. Að sögn Önnu Blöndal,
formanns kjördæmisráðs, leggur kjör-
nefnd þar fram tillögu um hvemig
staðið verði að vali á listann, meó
prófkjöri eóa á annan hátt, og þingió
tekur ákvöróun um þaó. Fyrir síóustu
alþingiskosningar lagói kjömefnd
fram tillögu að uppstillingu en kjör-
dæmisþingið gerði breytingar á þeirri
tillögu áður en hún var samþykkt.
„Það er mjög erfitt að spá í stöóu
flokksins í kjördæminu," segir Tómas
Ingi Olrich, en hann og Halldór Blön-
dal gefa báðir kost sér. „Viö eigum nú
tvö þingsæti og unnum annaó þeirra í
síðustu kosningum. Það var l'immta
sætið af sjö og nú er ljóst að þau verða
aðeins sex. Flokkurinn stendur þokka-
lega í skoðanakönnunum en það er
gjörsamlega ómögulegt aó gera því
skóna nú hvemig kosningamar muni
fara. Ég býst við að sem rikisstjómar-
flokkur muni Sjálfstæðisflokkurinn
þurfa aó heyja harða kosningabaráttu
og geri ráð fyrir því að við þurfum að
starfa mikið fyrir kosningamar."
Tómas Ingi segist telja mjög senni-
legt aó ekki verði kosið fyrr en í apríl.
Margir búast við að upphafsdagar eða
-vikur þingsins geti reynst stjóminni
erfiðar en aðspurður sagði Tómas Ingi:
„Það kemur bara í ljós. Þessi fjár-
lagagerð á haustin hefur alltaf verið
erfió og var erfið áður en ríkisstjóm
Davíðs Oddssonar hóf störf. Glíma
stjómvalda vió fjárlögin hcfur verið
viðvarandi og það er ekkert nýtt fyrir
okkur Islendingum."
Steingrímur J. Sigfússon.
Alþýðubandalag
Alþýðubandalagsmenn á Noróurlandi
eystra halda þessa dagana fundi í Al-
þýðubandalagsfélögunum í kjördæm-
inu þar setn fulltrúar eru kjömir á kjör-
dæmisþing Alþýðubandalagsins, sem
haldið veróur á Raufarhöfn laugardag-
inn 3. september nk. Alþýóubanda-
lagsfólk á Akureyri heldur til dæmis
sinn aóalfund nk. miðvikudag. „Við
viljum huga snemma að undirbúningi
Alþingiskosninganna og þess vegna
boðum við strax til kjördæmisþings,"
sagói Steingrímur J. Sigfússon, alþing-
ismaður Alþýðubandalagsins á Norð-
urlandi eystra. „Þó að haustkosningar
hafi verið blásnar af, er að mínu mati
ekki hægt aó útiloka kosningar fyrir
áramót og þess vegna þykir okkur rétt
að vera tímanlega á ferðinni með und-
irbúning framboðs," sagði Steingrím-
ur.
Steingrímur sagði að kjördæmis-
þingið á Raufarhöfn kæmi til með að
marka upphaf undirbúnings kosning-
anna. Hann sagðist vænta þess að þar
yrói tekin ákvörðun um hvcmig að
framboðsmálunum yrði staðið og
æskilegt væri að kjördæmisráðið kæmi
síðan saman til fundar í lok október
eóa byrjun nóvember til þess aó leggja
endanlega blessun yfir skipan fram-
boóslistans. Steingrímur sagði að strax
frá og með næstu mánaðamótum yrói
starfsmaður í fullu starfi að halda utan
um undirbúning og kosningabaráttuna.
Starfsmaðurinn komi til með að stýra
útgáfu Norðurlands sem muni koma
annað slagið út fram að kosningum.
„Fyrsta sætið er aó mínu mati ör-
uggt og ég tel vissulega raunhæfan
möguleika á því aó flokkurinn fái tvo
menn kjöma í næstu kosningum. Ég
tel aó Éramsóknarflokkurinn ætti að
vera öruggur með tvo kjördæmakjöma
og Sjálfstæðisflokkurinn er öruggur
með einn mann. Að mínu mati stendur
því baráttan um þau tvö sæti, sem eftir
eru, á milli fyrsta manns Alþýóu-
llokksins, annars manns Sjálfstæðis-
flokksins og annars manns Alþýóu-
bandalagsins," sagði Stcingrímur.
Víst má tclja að Stcingrímur J. Sig-
fússon verói áfram í efsta sæti listans,
en ekki liggur fyrir á þessari stundu
hver sé líklegasti kandidatinn í annaó
sætið. En eftir því sem næst verður
komist er rætt um konu í það sæti.
Elín Antonsdóttir.
Samtök um kvennalista
Samtök um kvennalista misstu þing-
mann sinn í kjördæminu, Málmfríði
Sigurðardóttur, í kosningunum 1991.
Samtökin skiptast upp i svokallaða
anga eftir kjördæmum og Elín Antons-
dóttir situr í framkvæmdanefnd angans
í Noróurlandskjördæmi eystra. Hún
segir stefnt að framboói í öllum kjör-
dæmum en of snemmt sé að segja til
um hverjar muni skipa efstu sæti list-
ans. „Við höfum verið á ferðalagi um
kjördæmió og hitt ráóamenn og aórar
kvennalistakonur á hinum ýmsu stöð-
um. Málin hafa verið rædd en þetta er
allt á byrjunarstigi," sagði Elín. Hún
sagói hugsanlegt aó uppstillingamefnd
myndi stilla upp lista, jafnvcl að und-
angenginni einhvers konar skoóana-
könnun.
Kvennalistinn bauð hvergi fram í
kjördæminu í sveitarstjómarkosning-
unum í vor, ef undan er skilið sameig-
inlegt framboð með Alþýðubandalag-
inu og óháðum á Húsavík. Listinn tap-
aói fylgi og eina þingsætinu í síðustu
kosningum því er kannski ekki óeóli-
legt að spyrja hvort grundvöllur sé fyr-
ir framboði samtakanna í kjördæminu.
„Já, við teljum tvímælalaust grund-
völl fyrir framboöi. Við myndum ekki
fara fram annars. Það var mjótt á mun-
unum í síðustu kosningum og Málm-
fríður var inni og úti á víxl á kosninga-
nótt. Kvennalistinn hefur verið í upp-
sveiflu, vió vitum það og höfum enga
ástæðu til að ætla að sú uppsveifla nái
ekki til Noróurlands eystra eins og
annarra kjördæma. Við crum vígreifar,
kvennalistakonur,“ sagði Elín Antons-
dóttir.
Þjóðarflokkur/Flokkur
mannsins og
Heimastjórnarsamtök
Þjóðarflokkurinn og Flokkur manns-
ins buðu fram sameiginlegan lista síö-
ast og hlaut hann 1061 atkvæði, eóa
Árni Steinar Jóhannsson.
Bcncdikt Sigurðarson.
6,7%. Ámi Stcinar Jóhannsson, um-
hverfisstjóri Akurcyrar, skipaói efsta
sæti listans.
„Þaó hcfur engin ákvöróun verió
tekin. Það er náttúrlega alltaf verið aó
ræða eitthvað en menn eru ekki
komnir í startholur ennþá og fara
sjálfsagt ekki að hugsa um þetta af
neinni alvöru fyrr en sumarfríum er
lokiósagói Ámi Steinar. Aðspurður
hvort hann gæti hugsaó sér aó fara í
framboð sagðist hann ekki hafa velt
því fyrir sér.
H-listi Heimastjómarsamtakanna
bauð einnig fram síðast og hlaut þá
302 atkvæði, eóa 1,9%. Bencdikt Sig-
uröarson, skólastjóri á Akureyri, skip-
aói efsta sæti listans og Bjami Guó-
leifsson, ráóunautur, Amameshreppi,
annaó sætið. Stefán Valgeirsson, þá-
verandi alþingismaður, skipaði tólfta
sætió. „Þaó hafa verió cinhverjar um-
ræóur í gangi um samtök sem eru ekki
formlegri en svo aó þau hafa ekki
flokkslega mynd, formlegt skipulag
né fonnlega stjóm. Mér vitanlega er
engin flokksleg starfsemi í gangi en
það má segja að samtökin geti allt
eins verió til núna eins og þau voru
fyrir þremur og hálfu ári síóan,“ sagói
Benedikt Siguróarson.
Hann segir sér ekki kunnugt um aó
þeir, sem stóðu fyrir framboóinu
1991, hafi tekið neina formlega
ákvöróun um að bjóóa ekki fram nú,
né heldur ákvöróun um að bjóða fram.
En gæti hann hugsað sér að vera í
framboói á nýjan leik?
„Ég hef hreinlega ekki leitt hugann
aó því. Ég hcf átt við pólitískt heimil-
isleysi að búa síðan 1991,“ sagði
Bcncdikt.
I síðustu kosningum bauó fram F-
listi Frjálslyndra og fékk hann 148 at-
kvæói, eöa 0,9%. Nær öruggt er talið
að sá listi bjóði ekki fram nú.
Fjallaó verður síðar um framboós-
mál í Noróurlandskjördæmi vestra.
JHB/óþh