Dagur - 08.10.1994, Blaðsíða 5

Dagur - 08.10.1994, Blaðsíða 5
IÞROTTIR SÆV AR HREIÐARSSON Körfuknattleikur - Úrvalsdeild: Stólarnir slappir - bragödauft í Grindavík Á fimmtudagskvöld heimsótti Tindastóll Grindavík og tapaði þar stórt fyrir heimamönnum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Lokastaðan var 105:87 fyrir Grindavík en liðið hafði yfir- burði allan tímann og hafði yfir í hálfleik 59:48. Leikurinn var frekar bragð- daufur og mörg mistök einkenndu leikinn í upphafi. Þó voru það Grindvíkingar sem hrukku fyrr í gang og náðu lljótlega góðu for- skoti sem þeir héldu áhyggjulaust út leikinn. Þeir höfðu bókstaflega allt fram yfir Stólana og gátu leyft sér að nota varamenn sína óspart í leiknum og stigin dreifðust nokk- uð jafnt á leikmenn. Þessu var öf- ugt farið með Stólana, þcir áttu í miklum vandræðum með breidd- ina og bekkurinn er ekki nógu sterkur og stigaskorið er ekki eins jafnt. Hjá Grindavík var Guðmundur Bragason áberandi bestur, bæði í skorun og fráköstum, enda spilaði hann allan leikinn. Helgi Jónas Guðfinnsson átti góða kafla en gerði sín mistök. Þá átti Pétur Guðmundsson sérstaklega góða spretti í síóari hálfleik. Hjá Stólunum var Hinrik Gunnarsson mjög áberandi og þeirra langbesti maður. Sérstak- lega meö tilliti til þess að hann lék gegn Guðmundi Bragasyni og kom vel frá því erfiða verki. Hann var þó seinn í gang og gerði mörg mistök í upphafi en náói sér á strik í síðari hluta fyrri hálfleiks. Omar Sigmarsson var líklega kjarkmesti leikmaður vallarins. Hann skýtur óspart og tók meðal annars níu þriggja stiga skot í fyrri hálfieik, þó aðeins tvö fyrstu skotin hittu körfuna. Hann cr mjög lipur varn- armaður og gerði stórskyttum Grindvíkinga oft lífið lcitt með mikilli yfirferð. Gangur leiksins í tölum: 4:0, 14:2, 29:18, 38:22, 47:35 - 59:48, 68:50, 77:68, 88:72, 96:82, 105:87. Stig Grindavíkur: Guðmundur Bragason 22, Helgi Jónas Guðfinns- son 22. Pélur Guðmundsson 19, Greg- ory Bell 15, Marel Guðlaugsson 13, Guðjón Skúlason 13, Bergur Eðvards- son I. Stig Tindastóls: Hinrik Gunnars- son 26, Omar Sigmarsson 22, John Torrey 19, Páll Kolbeinsson 10, Amar Kárason 10. Laugardagur 8. október 1994 - DAGUR - 5 ..............-.............it. Húseigendur, húsfélög, verkkaupar • Skiptið við fagmann. Samkvæmt iðnlöggjöfinni skulu verktakar í löggiltum iðngreinum hafa meist- araréttindi. • Forðist ólöglega þjónustu. Nótulaus viðskipti eru ólögleg og gera kaupanda verks eða þjónustu rétt- lausan gagnvart verktaka. • Gerið ráð fyrir endurgreiöslu virðisaukaskatts. Virð- isaukaskattur af vinnu við nýbyggingar, endurbæt- ur og viðgerðir á íbúðarhúsnæði fæst end- urgreiddur hjá skattstjórum. Eyðublöð þess efnis fást hjá skattstjóra og á Skrifstofu atvinnulífsins sem jafnframt veita aðstoð við útfyllingu. • Girðið fyrir hugsanlegan ágreining við uppgjör. Mikilvægt er að fá verklýsingu meó tilboði og gera verksamning, að öðrum kosti hefur kaupandi ekk- ert í höndunum yfir það sem hann er að kaupa. Stöðluð verksamningsform fást á Skrifstofu at- vinnulífsins. Við ráðleggjum fólki að leita upplýs- inga um meistara og verktaka áóur en samningur er gerður. Hjá Skrifstofu atvinnulífsins og meistara- félögum fást upplýsingar um hvaða meistarar og verktakar eru félagsbundnir. Skrifstofa atvinnulífsins Noröurlandi cllb <2» ■■■ Strandgötu 29, 600 Akureyri, sími 96-11222. Ómar Sigmarsson var óhræddur við að skjóta. Knattspyrna: Mikill áhugi hjá Stoke - fylgjast með Lárusi Orra í Tyrklandi SKIPTIÐ AÐEINS VIÐ LÖGGILTA MEISTARA MEISTARAFELAG BYGGINGAMANNA NORÐURLANDI Upplýsíngar hjá Skrífstofu atvínnulífsíns á Norðurlandí, Strandgötu 29, símí 11222. Eins og fram hefur komið í Degi er Lárus Orri Sigurðsson, knatt- spyrnumaður, á leið til Stoke í Englandi til æfinga. Forráöamenn Stoke hafa mikinn áhuga á að kaupa nýja leikmenn og hafa ákveðió að senda menn til Tyrk- lands í næstu viku til að fylgjast með honum í leik U-21 árs lands- liða Islands og heimamanna. Eins og margir muna þá var erfitt fyrir Þorvald Orlygsson að fá atvinnuleyfi í Englandi á sínurn tíma en nú eru breyttar reglur og Islendingar þurfa ekki atvinnu- leyfi í Englandi. RAUTT LjOS^-RAUTT LJOS! ilas™ Leikmannaskóli kirkj- unnar í Glerárkirkju Leikmannaskóli kirkjunnar er samstarfsverkefni Fræðsludeild- ar kirkjunnar og Guðfræðideild- ar H.I. f Leikmannaskólanum gefst kostur á að kynnast ýms- um sviðum guðfræðinnar og um leið nokkrum þáttum kristin- dómsins. Leikmannaskólinn mun starfa í Glerárkirkju á Ak- ureyri nú í vetur þar sem kennt verður átta laugardaga, fjóra fyrir jól og fjóra eftir áramót. Um er að ræða átta sjálfstæð námskeið og stendur hvert þeirra einn laugardag. Kennsla hefst ki. 10.30 og lýkur kl. 18.00 alla dagana. Þeir dagar sem kennsla fer fram eru 15. október, 12. nóvem- ber, 26. nóvember og 3. dcsember. Eftir áramót verður kennt 14. janúar, 28. janúar, 11. febrúar og 25. febrúar. I boði eru eftirfarandi námskeið: Trúfræói, kennari dr. Einar Sigurbjörnsson; siðfræði, kennari dr. Björn Björnsson; helgisiðir og táknmál kirkjunnar, kennari sr. Karl Sigurbjörnsson; þjónusta leikmannsins í kirkjunni, kennari Halla Jónsdóttir; inn- gangsfræði Gamla testamentisins, kennari Gunnar J. Gunnarsson; kirkjusaga, kennari dr. Hjalti Hugason; sálgæsla, kennari sr. Sigfinnur Þorleifsson og inn- gangsfræöi Nýja testamentisins, kennari Gunnar J. Gunnarsson. Námskeiðagjald er 4000 kr. fyrir heilan vetur og felur það í sér fræðslu, efniskostnað, hádegis- verð og kaffihressingu í Glerár- kirkju. Einnig er hægt að taka að- eins hluta námskeióanna, t.d. einn laugardag eða fieiri og þá kostar hvert skipti 1000 kr. Ollum er heimil þátttaka. Upplýsingar og innritun hjá Fræðsludeild kirkjunnar á Bisk- upsstofu í síma 91-12445 cða í Glerárkirkju í síma 96-12391. (Fréttatilkynning). w Askrifendur Stöðvar 2 á Norðurlandi fá nú enn betri þjónustu Stöð 2 hefur gengið til samstarfs við 8 þjónustufulltrúa á Norðurlandi. Þeir veita áskrifendum alla almenna þjónustu auk þess sem þeir taka við nýjum áskrifendum. Þjónustufulltrúarnir hafa yfirumsjón með afhendingu nýrra myndlykla á sínu þjónustusvæði og að sjálfsögðu geta nýir og núverandi áskrifendur sótt nýjan myndlykil til þeirra. Þjónustufulltrúar Stöðvar 2 á Norðurlandi: Staður Þjónustufulltrúi Heimilisfang Akureyri Hljómver hf. Glerárgötu 32 Blönduós Vélsmiðja Húnvetninga v/Norðurlandsveg Húsavik Öryggi sf. Garðarsbraut 18a Hvammstangi Rafv. Odds Sigurðarsonar Norðurbraut 12 Sauðárkrókur Tengill sf Aðalgötu 24 Siglufjöröur Rafbær Aðalgötu 32 Vopnafjörður Þór Halldórsson Hámundarstöðum 1 Þórshöfn Olfs-skálinn Fjarðarvegi 43 (fsrm

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.