Dagur - 08.10.1994, Blaðsíða 9
Laugardagur 8. október 1994 - DAGUR - 9
Anna og Erla umvafðar treflinum
góða, sem er farseðill þeirra á
skátamót á erlendri grund.
Mynd: Robyn
►
Þær Anna Eyfjörð og Erla Osp eru
skátastelpur sem búa á Akureyri
og stunda nám í Gagnfræóaskól-
anum. Þær tóku sig til og prjón-
uðu átta metra langan og 25 sm
breiðan rauðan trefil.
Til hvers? Jú, þær voru að
safna fyrir ferð á Alheimsmót
skáta sem verður í Hollandi 1 .-11.
ágúst á næsta ári.
Anna og Erla sögðu aó 41 fyr-
irtæki á Akureyri hefði styrkt þær
meó áheitum og hæstu fjárhæðina
hefðu þær fengið frá VÍS. Þær
sögðu að fyrirtækin hefðu tekið
þeim vel og eitt þeirra hefði meira
að segja viljað kaupa trefilinn. Ef
til vill ætla þær að selja hann en
þær eru ekki enn búnar að ákveða
veróið.
Þær stöllur settust meö prjón-
ana klukkan fimm föstudaginn 30.
septcmber og prjónuðu báðar
stanslaust í einn sólarhring. Til að
eiga nóg garn í trefilinn fengu þær
leyfi til að rekja upp eina peysu
sem mamma Onnu var hætt að
nota og nú er hún sem sagt orðin
að trcfli. Þær sögóust ekkert hafa
verið sérlega þreyttar enda margt
á sig leggjandi til að komast á
skátamótió.
Anna og Erla sögðu að AI-
heimsmót skáta væri ætlaó ung-
Átta metra trefill
-Alheimsmót skáta í veði
lingum á ákveðnum aldri og þær
fengju aðeins eitt tækifæri til að
fara sem almcnnir þátttakendur og
það væri næsta sumar. Þær töldu
að um 40 skátar myndu fara á
mótið frá Akureyri. Auk þess að
fara til Hollands er heimsókn til
Belgíu líka á ferðaáætluninni og
sögöust þær Anna og Erla hlakka
til að gista í heimahúsum hjá skát-
um í þessum löndum. Þannig gæf-
ist þeim kjörið tækifæri til að
eignast nýja vini og kynnast lifn-
aðarháttum fjölskyldna í öðrum
löndurn.
Þær voru á einu máli um að
það væri rosalega skemmtilegt í
skátunum og skoruóu á krakka að
drífa sig á skátafund.
Um næstu helgi ætlar skáta-
sveitin þeirra, Alfar, að fara í úti-
legu. Um er að ræða haustblót 1.
deildar en í hcnni eru auk Alfa,
Ernir sem er að sögn þcirra stall-
systra strákasveit. Haustblótið
verður haldið að Laugalandi í
Eyjafjarðarsveit. KLJ
Er þorskeldi í sjó raun-
hæfur kostur eða draumsýn?
- kostirnir felast m.a. í friðun smáfisks
og aukningu vaxtarhraða
Dr. Björn Björnsson, fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknarstofnun,
ræddi á nýafstöðnum aðalfundi
Samtaka fiskvinnslustöðva um
þorskeldi í sjó og hvort það sé
raunhæfur kostur eóa draumsýn.
Bjöm segist eiga þá draumsýn að
á næstu öld verði farið að fóöra ís-
lenska þorskinn á skipulegan hátt
á mörgum stöðum hringinn í
kringum landið. Hlutverk Haf-
rannsóknarstofnunar yrði þá að
fylgjast með ástandi fisksins á
fóðrunarstöðvunum, þ.e. fylgjast
meó fjölda fiska, stærðardreif-
ingu, næringarástandi og reikna
síðan út fæðuþörf á hverri fóðrun-
arstöó og raöa síðan fóðrunar-
stöðvunum í forgangsröð el'tir
fóðurþörf.
Stjórnstöð Hafrannsóknarstofn-
unar sæi um að panta loónufarma
og gefa fyrirmæli um á hvaða
fórðunarstöð þeir eigi að fara.
Með tilliti til ástands á fóðrunar-
stöðvum og eftirspumar eftir fiski
yrði hvert fóðrunarsvæði af öðru
opnað fyrir veiðum á kerfisbund-
inn hátt.
Hér á undan er talað um fram-
tíðarsýn, jafnvel óraunhæfa að
einhverra mati, en hver er raun-
veruleikinn?
Fyrstu tilraunir með þorskeldi
hófust á Stöðvarfirði fyrir tveimur
árum. Þær fólust í því að veiða
smáfisk og setja í flotkvíar. Haf-
rannsóknarstofnun merkti 300
þorska og fylgdist með vaxtar-
hraðanum í tæp tvö ár. Þorskurinn
óx mjög vel og nýtti fóðrið vel (3
kg af síld og loðnu gáfu 1 kg í
vöxt).
Fóðrunarsvæði
yrðu opnuð fyrir
þorskveiðum á
kerfisbundinn
hátt.
Þar sem töluverður kostnaður
fylgir kvíaeldi og að safna fiskin-
um í þær voru gerðar í sumar til-
raunir meó fóðrun í Stöðvarfirði.
Byrjað var aö kanna fjörðinn með
fiskleitartæki til að finna einhverja
góða lóðningu og kanna síðan
hvernig hún mundi bregöast við
fóðrun. I upphafi voru ilskar með
litla lifur og lítið magainnihald en
í lokin var helmingur fiskanna
með beitu í maga og þeir fiskar
voru meó stærri lifur og miklu
meira magainnihald. Athyglisvert
er að þorskamir voru mun stærri í
lok fóðrunartímabils en í upphafi
þess og augljós aö fiskurinn laðast
að þegar fóðrað er.
Rannsóknaráætlun
En hver cru næstu skref að mati
Bjöms Björnssonar, fiskifræðings:
• Gera rannsóknaráætlun fyrir
1995 - 1996
• Loka einurn firði fyrir veiðum
• Merkja 500 - 1000 þroska til að
kanna vöxt og ferðir
• Fóðra stigvaxandi og í langan
tíma (hljóðmerki, neðansjávarvíd-
eó)
• Fylgjast með fjölda fiska og
næringarástandi
• Veiða þorsk í desember og
janúar (bjóöa út, verktaki)
• Leggja mat á arósemi
Hugsanlegir kostir fóðrunar á
villtum þorski eru:
1. Friðun á smáfiski
2. Veruleg aukning á vaxtarhraða
3. Jafnari og betri gæði (fersk-
leiki/holdafar/hringormar)
4. Hægt aó veiða fisk þegar verð
er hæst
5. Minni kostnaður við veióar
6. Verðmætasköpun (loðna — >
þorskur)
7. Minna afrán þorsks á nytjateg-
undir (t.d. á rækju)
8. Minna sjálfrán þorsks, þ.e.
möguleg leið til að auka afrakstur
Islandsmiða. GG
Ósýnilega félagið stendur fyrir
fyrirlestri á Hólum:
Olahir fjalíar um nýju
dýravemdunarlögin
Næstkomandi fimmtudags-
kvöld, 13. október, gengst
Osýnilega félagið fyrir fyrir-
lestri að Hólum í Hjaltadal. Fyr-
Ólafur Jónsson.
irlesturinn hefst kl. 21. Ólafur
Jónsson, dýralæknir frá Akur-
eyri, mun Qalla um nýju dýra-
verndunarlögin. Fyrirlestrar fé-
Iagsins eru ætlaðir öllum sem
áhuga hafa.
Osýnilega félagið var upphaf-
lega stofnað um 1760 al' Hálfdáni
Einarssyni, skólameistara, og
Gísla Magnússyni, biskupi, á
Hólastaó. A þessum tíma voru
kjör mjög bágborin en stofnendur
félagsins vildu ekki láta hinar illu
aðstæður hneppa andlegt líf í
fjötra. Félagsskapurinn fékk nafn-
iö Osýnilega félagið þar sem ekki
þótti við hæfi að ýta úr vör með
neinu yfirlæti. Fyrir um tveimur
árurn kviknaði áhugi á að stofna
félag scm stæði fyrir fyrirlestrum
og öðru slíku á Hólastað og var
nafn Ósýnilega félagsins endur-
vakið scm virðingarvottur vió
framtak þeirra félaga.
Kaffihlaðborð
Við bjóðum upp á kaffihlaðborð á sunnudaginn.
Verð kr. 600 pr. mann.
Þægilegur og góður sunnudagsbíltúr.
Verið velkomin.
Gistiheimilið Engimýri
Öxnadal, sími 26838
FUNDAR-
BOÐ
Aðalfundur Framsóknarfélags Mývatnssveitar
verður haldinn í Skjólbrekku, fimmtudaginn 13. október
nk. og hefst kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing K.F.N.E.
3. Kosning fulltrúa á flokksþing Framsóknarflokksins.
4. Önnur mál.
Alþingismennirnir Valgerdur Sverrisdóttir og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson koma á fundinn.
Stjórnin.
Björn Sigurðsson
Húsavík
AÆTLUN
HÚSAVÍK - AKUREYRI - HÚSAVÍK
Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös.
Frá Húsavík 19:00 08:00 08:00 08:00 08:00
17:00 17:00 17:00 17:00 17:00
Frá Akureyri 07:30 07:30 07:30 07:30 07:30
15:30 15:30 15:30 15:30
18:30
HÚSAVÍK - MÝVATN - HÚSAVÍK
Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös.
FráHúsavík 09:15 09:15 09:15 09:15 09:15
Frá Mývatni 10:30 10:30 10:30 10:30 10:30
Samtenging við ferðir Norðurleiðar mánud.-, þriðjud-, fimmtud- og föstudaga.
AFGREIÐSLUR:
Húsavík: BSH hf., Héðinsbraut 6 (Shell), sími 41260.
Akureyri: Umferðarmiðstöðin, Hafnarstræti 82, sími 24442.
Mývatn: Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit, sími 44!70.
GÓÐA FERÐ!