Dagur - 19.11.1994, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 19. nóvember 1994
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SIMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON.(íþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Sjúkraliðadeilan
Því miður virðist ekki vera í sjónmáli lausn á erf-
iðri deilu sjúkraliða og ríkisins. Ástandið fer
versnandi dag frá degi á sjúkrastofnunum og
ljóst er að svona getur þetta ekki gengið öllu
lengur.
Staðreyndin er sú að ríkið er búið að koma sér í
erfiða stöðu með nýlegum kjarasamningi við
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliðar sætta sig ekki
við lakari samning en hjúkrunarfræðingar fengu.
Tilboð ríkisins um 3% launahækkun til þeirra
sjúkraliða sem hafa náð 5 ára starfsaldri var
brandari og ljóst er að deilan verður ekki leyst á
þeim nótum. Þessi deila leysist ekki nema samn-
ingsaðilar nálgist á eðlilegum nótum og það ger-
ist tæplega nema sjúkraliðar slái af sínum kröfum
og ríkið bjóði betur en það hefur þegar gert.
Skynsamlegir kjarasamningar nást ekki nema
samningsaðilar mætist á miðri leið.
Atlantamálið
Önnur vinnudeila er öllu furðulegri - deila Félags
íslenskra atvinnuflugmanna og Atlanta hf. Fyrir
almenning er erfitt að átta sig á því hvað vakir
fyrir FÍA í þessu máli og það hlýtur að vera for-
ráðamönnum félagsins umhugsunarefni ef að-
gerðir þess leiða til þess að Atlanta flytji höfuð-
stöðvarnar úr landi og allt að 80 störf glatist.
Það verður ekki annað séð en að þeir sex flug-
menn hjá Atlanta sem eru innan vébanda Félags
íslenskra flugmanna hafi ekki óskað eftir þessum
aðgerðum FÍA og í ljósi þess eru þessar harka-
legu aðgerðir, sem verður ekki annað séð en að
leiði til þess að Atlanta hætti starfsemi hér á
landi, í meira lagi undarlegar. Lokun fyrirtækisins
getur ekki verið hagur Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, jafnvel þótt bróðurpartur flugmanna
Atlanta eigi aðild að Félagi frjálsra flugmanna.
I UPPAHALDI
„Kanínur eru gómsætar"
sagði Halla Stefánsdóttir
Halla Stefánsdótlir og
sambýlisinaður hennar
Sigurður Gestsson eiga
og reka fyrirtœkin Vaxtarrœktina
og Fimi í íþróttahöllinni á Akur-
eyri og starfa bceði þar. Þangað
kemur fjöldi fólks á hverjum ein-
asta degi til að þjálfa eigin lík-
ama og bœta heilsuna.
Það hefur verið óvenjulega
mikið líf og fjör í kjallara
Iþróttahallarinnar undanfarnar
vikur enda lslandsmótið í vaxtar-
rœkt í Sjallanum í kvöld.
Halla er Húsvíkingur en hefiir
vcrið búsett á Akureyri í 19 ár.
Þau hjónin eiga þrjá syni og kött
og búa í Stckkjargcrði á Akur-
eyri. KU
Hvað gerirðu lielsl ífrístundum?
„Þaö cr svo ótal margt. Ég
nýti þær til þcss að vcra í fclags-
skap við annað fólk, til íþrótta,
gönguferóa, handavinnu, lesturs,
hönnunar og svo mætti lengi
tclja."
Hvaða malur er í meslu uppálialdi
lijá þér?
„Ég er mjög mikil matmann-
eskja og finnst allur matur góður
en kanínur finnst mér stórkost-
lcgar."
Uppáhaldsdrykkur?
„Tvímælalaust vatnið, þaó er
ekkert sem jafnast á við það.“
Ertu hamhleypa til allra verka á
heimilinu?
Já."
Ilalla Stefánsdóttir.
Er heilsusamlegt líferni ofarlega á
baugi hjá þér?
„Já, ég mundi segja þaó.“
Hvaða blöð og tímarit kaupir þú?
„Ganglcra, Dagblaðió, Hús og
híbýli, íþróttablaðió, Veiðimann-
inn og ýmis erlend vaxtarræktar-
blöð.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„Alltaf Jóga og Óður Bema-
dettu.“
Hvaða hljómsveit/tónlistarnwður er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Stefán Sigurðsson í Drussa-
bandinu og Kristján Edelstein
fær líka prik af því hann æfir svo
kröftuglcga hér 1 salnum hjá okk-
ur.“
Uppáhaldsíþróttamaður?
„Skíða- og sundgarpurinn
hann pabbi.“
Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi?
„Ég horfi mjög lítið á sjón-
varp, ég tek fólkið fram yfir sjón-
varpið, en hclst horfi ég á fréttir
og fræðslumyndir."
/
A hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mestálit?
„Pass.“
Hvar á landinu vildirðu helst búa ef
þú þyrftir aðflytja búferlum nú?
„Ég er ekki fiutt frá Akureyri
vcgna þcss að hcr finnst mér gott
að búa cn ég kann líka ágætlega
við mig á Grettisgötunni í
Reykjavík."
Starfar þú með einliverjum félaga-
samtökum?
„Sálarrannsóknafélaginu,
Steingfélaginu og stuðningshópi
þeirra sem hal'a lent í háls-
áverka."
Hvaða hlut eða fasteign langarþig
mest til að eignast um þessar mund-
ir?
„Mér þætti gaman að eiga
leirbrennsluofn."
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Um þessa helgi snýst allt um
vaxtarræktarmótið í kvöld en svo
ætla ég út aö ganga og ef til vill í
nudd.“
A\E£> MORCUN KAFFI NU
OSKAR ÞOR HALLDORSSON
Pólitík og jólaheföir
Þaó er ekki laust vió að þjóðfélags-
umræðan einkennist af hálfgerðum
timburmönnum eftir að Guðmund-
ur Ami lét loksins verða af því að
taka pokann sinn. En fjölmiðla-
menn geta huggað sig vió að
stjómmálamennimir sjá þeim og
þjóðinni fyrir andlegu fóðri á næst-
unni með því aö fara í fýlu yfir því
^ð hafa ekki fengið að vera í efstu
sætum í prófkjörum flokkanna.
Fátt er jafn skemmtilegt og fýla
stjómmálamanna yfir því að hafa
ekki reynst jafn vinsælir og þeir
töldu sig eiga skilið. Þeir boma
ekkert í því og vitna til þess að
andstæðingarnir hafi beitt maskín-
um gegn sér. Salome fór að vísu
aðra leið og sagói að ellin hafi fellt
hana. Athyglisvert sjónarmið en
kunningi minn féllst ekki á þessa
skýringu þegar örlög Salome bár-
ust í tal. Hann taldi borðleggjandi
að kjósendur á Reykjanesi hafi litið
á Salome sem einskonar skrifstofu-
dömu í Alþingi og vitnaði til þess
að hún hafi ekki sést taka til máls
sem óbreyttur þingmaður um
nokkurt einasta málefni síðan hún
tók við embætti forseta þingsins.
Þetta hafi kjósendur á Reykjanesi
ekki kunnað aó meta og því hafi
Salome mátt bíta í það súra epli að
falla nióur úr öllu valdi. Ekki vcit
ég hvort eitthvað er til í þessu en
hitt er það aó fall forseta Alþingis
kom óneitanlega á óvart.
Framundan eru miklar bolla-
leggingar um framboó flokkanna
um allt land. Kvennalistinn hefur
ekki birt eitt einasta framboð þegar
þetta er ritaó og sama gildir um Al-
þýðubandalag og krata og Jóhanna
er ennþá óskrifað blað. Það er ekk-
ert sem bendir til þess að breið-
fylking verði til á vinstri vængnum
fyrir alþingiskosningarnar í vor,
það er og hefur alltaf verið ríkjandi
hræösla vió að stokka upp spilin og
menn óttast að samfylking hafi í
för með sér að gömlu, rótgrónu
flokkarnir gefi upp öndina. Reynd-
ar kom fram það athyglisverða
sjónarmió hjá einni af þingkonu
Kvennalistans um síðustu helgi að
Kvennalistinn yrði áfram fjögurra
þingkvenna klúbbur ef þær gerðu
ekkert í málunum. Þessi skoðun
fékk ekki fylgi og framboð með
Jóhönnu var blásið af.
Það er auðvitað ljóst að Jóhanna
Sigurðardóttir býður sig fram í ein-
ungis einu kjördæmi, væntanlega
Reykjavík, en engu aö síður fær
framboð hennar heil 20% í skoö-
anakönnunum. Þaó kemur út af
fyrir sig ekki á óvart. Ef kosninga-
sagan er skoðuð kernur í Ijós aö
óánægjuhópurinn í þjóöfélaginu
leitar alltaf uppi ný og óskrifuð
framboð. Þessi hópur fólks vill
breytingar án þess hann viti ná-
kvæmlega í hverju þær breytingar
eigi að felast. Framboð Jóhönnu
fær vafalaust fylgi þessa þjóðfé-
lagshóps.
Tíininn líður
Tíminn líður og áður en maður veit
af er komin jólafasta. Fyrsti sunnu-
dagur í aðventu er sunnudagur að
rúmri viku liðinni. Sem betur fer er
ekki kominn mikill jólabragur á
þjóófélagið en hans verður áreið-
anlega vart frá og með næstu helgi.
A undanfömum árum hefur þróun-
in verið í þá átt að færa jólaundir-
búninginn fram og útvarpsstöðv-
amar hafa byrjað að spila jólalögin
um miðjan nóvember. Þetta nær
auðvitað ekki nokkurri átt. Það til-
heyrir ekki aó spila jólatónlistina
fyrr en komið er fram í jólamánuð-
inn. Ég hvika ekki frá þeirri
skoðun. Að vísu er ekki einhugur
um þetta atriði á mínu heimili, en á
þessu sviði kýs ég að vera íhalds-
samur.
Jólahald og undirbúningur jól-
anna lýtur ákveönum lögmálum og
engin ástæða er til að umbylta
þeim. Hins vegar hafa orðió ýmsar
breytingar í tímans rás. Ég veit til
dæmis ekki til þcss að hægt sé
lengur að kaupa út í næstu mat-
vörubúð hráefni til jólaölsgerðar
eins og í gamla daga. Ef ég man
rétt frá minni frumbemsku var
jólaölið selt í pökkum og síðar í
dósum.
Bmggun á jólaöli var eitt af
undirstööuatriðum jólahaldsins.
Henni fyigdi sérstök lykt og ég
man ennþá eftir því hversu góður
þessi mjöður var á bragðið. Jóla-
ölsgerðin var sérgrein móður
minnar og hún sá algjörlega um
þessa hlið jólaundirbúningsins. Við
fengum hins vegar að fylgjast með
og lærðum undirstöðuatriöin í
bruggun og sá lærdómur kom sér
vel þegar vió höfðum aldur og vit
til þess að brugga bjór úr hinum
ýmsu bjórgeröarefnum frá Ingva í
Hafnarbúðinni. Jólaölinu var tapp-
að á venjulegar brennivínsflöskur
og þaó varð að fá tíma til að þrosk-
ast áður en það var borið fram um
jól. Ef öllum reglum var fylgt var
ölið einkar ljúffengt - ekki síst í
bland við Appelsín og Malt frá
Agli Skallagrímssyni. Fyrir kom
að ekki næðist að drekka allt ölið
um jól og áramót og þá færðist fjör
í mjöðinn og úr varð áfengi, heldur
vont á bragóið.
Hefðir jólaundirbúningsins
Jólaölið hefur breyst en hins vegar
er sú ágæta hefð aó skera út laufa-
brauð enn á sínum stað. Þessi
skemmtilegi siður mun alveg ör-
ugglega lifa um ókomna tíð enda
er unga fólkinu í mun að halda
honum við.
Sama má segja um jólakortin.
Góðvinur okkar hér á Degi tjáði
okkur á dögunum aó hann væri bú-
inn aó skrifa öll þau jólakort sem
hann ætlaði að senda í ár. Þetta
fannst mér skrítið og mér varó á að
spyrja hann hvort hann vissi ekki
að það væri ekki ennþá kominn
miður nóvember. Jú, jú hann vissi
allt um það og sagði að hann væri
alltaf svona tímanlega í þessum
hluta jólaundirbúningsins.
Það skemmtilega viö jólaundir-
búninginn er að hver og einn kem-
ur sér upp ákveðinni „rútínu" eða
hefðum. Sumir skrifa jólakortin í
nóvember, aórir ákveðna helgi á
jólaföstu og svo framvegis. Það er
nákvæmlega þessi formfesta sem
gerir jólin og undirbúning þeirra
svo sérstakan.
Eftir að ég sem félagi í Kór Ak-
ureyrarkirkju fór að syngja í jóla-
messum í Akureyrarkirkju hef ég
veitt því athygli að þessar helgi-
stundir sækir að hluta til fólk sern
ekki kemur í messu í annan tíma.
Og þaö er hluti af hefðinni að þetta
fólk situr ár eftir ár í sömu sætun-
um í kirkjunni.