Dagur - 19.11.1994, Page 5
Laugardagur 19. nóvember 1994 - DAGUR -5
Málþing á Akureyri í tilefni af „ári fjölskyldunnar":
Um síðustu helgi var haldið mál-
þing á Akureyri í tilefni af „ári
fjölskyldunnar“ á vegum Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri,
Akureyrarbæjar og Félagsmála-
ráðuneytisins.
Konný K. Kristjánsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri Heilsugæslustöðvar-
innar, var formaður undirbúnings-
nefndar þingsins og stýrði hún
þinginu.
Jakob Bjömsson, bæjarstjóri, tók
fyrstur til máls en síðan lluttu fyrir-
lestra, Jón Bjömsson, félagsmála-
stjóri Akureyrarbæjar, Karólína
Stefánsdóttir, fjölskylduráðgjafi
JJeilsugæslustöóvarinnar, Hrefna
Olafsdóttir, félagsráðgjafi bama- og
unglingageódeildar Landspítalans,
Halldór Grönvold^ skrifstofustjóri
Alþýðusambands Islands, Höröur
Bergmann, fræðslufulltrúi og Anna
Valdimarsdóttir, sálfræðingur.
Það er skemmst frá því að segja
að fyrirlestramir voru hver öðmm
áhugaverðari enda brýnt að vekja
athygli á mikilvægi fjölskyldunnar
og þeirri stöðu sem nútíma fjöl-
skyldur eru í. Til umhugsunar og
ábendingar verður hér tæpt á nokkr-
um punktum sem fram komu í máli
fyrirlesara á málþinginu.
Opinber stofnun
elskar engan
Jón Bjömsson fjallaði um hina óop-
inberu fjölskyldustefnu hins opin-
bera. Hann benti á að engin mótuð
stefnuskrá um málefni fjölskyld-
unnar væri til hér á landi enda virt-
ist fjölskyldan vera afgangsstærð,
nokkurs konar rest sem eftir væri
þegar mikilvægum ráóum hefði
verið ráðið.
Jón rakti þá þróun sem hefur átt
sér stað að sífellt fleiri verkefni fær-
ist frá fjölskyldunni í hendur stofn-
ana og þjónustuaðila og benti á að
stofnun elskar engan. Jón sagði að í
stað nándar fjölskyldunnar kæmi
rekstur sem þjónaði öllum jafnt en
engum vel. Spumingin væri hvort
þessi þróun hefði hugsanlega geng-
ið of hratt eða of langt.
Betri fjölskyldur
= betri heimur
Karólína Stefánsdóttir fjallaði um
einkenni heilbrigðrar fjölskyldu og
mikilvægi hennar. Hún kynnti starf-
semi fjölskylduráðgjafar Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri.
Karólína benti á að konur væru í
miklum meirihluta þeirra sem leit-
uðu til fjölskylduráðgjafarinnar
vcgna vanda á heimilum enda sýndi
reynslan að konur væru í lykilhlut-
verkum og hefðu í raun mikla
Konný K. Kristjánsdóttir í ræðu-
stól.
Er mögulcgt að hverfa á einhvcrn
hátt til baka þannig að l'jölskyldan
endurhcimti á ný fyrri hlutverk sín
og þurfi ekki að sækja allt á mark-
að? Þetta var ein þcirra spurninga
sem Hörður Bergmann velti upp á
málþinginu.
ábyrgð þcgar um heilsu landsmanna
væri að tefla.
Hún kynnti einnig þróunarverk-
efni á vegum stöðvarinnar sem
nefnist „Nýja bamið - aukin fjöl-
skylduvemd og bætt samskipti.“
Utiganga barna og unglinga
á Akureyri er ofbeldi
Næst tók til máls Hrefna Ólafsdótt-
ir. Hún fjallaði um ofbeldi og sagði
að í starfi sínu síðastliðin 13 ár
hefði vart liðið sá dagur að hún
hefði ekki tekió á móti einstaklingi
sem væri eða hefði verið beittur of-
beldi. Tölulegar upplýsingar um
tíðni ofbeldis væru hinsvegar tak-
markaðar.
Hrefna sagði að ofbeldi væri
Einn þcirra fyrirlesara sem tóku tii
máls á Málþingi um málcfni (jöl-
skyldunnar var Karolína Stcfáns-
dóttir, fjölskylduráðgjafi. Karolína
sagði meðal annars að fátt mundi
breyta hciminum meira en aukið
hcilbrigði fjölskyldunnar enda
skapaði sterk og hcilbrigð Ijöl-
skylda sterkt og heilbrigt þjóðfclag.
jafnan Ilokkað í fjóra flokka, líkam-
legt-, tilfinningalegt eða andlegt-,
kynferðislegt- og vanræksluofbeldi.
Hún bcnti á að sú staðreynd að of-
drykkja bama og unglinga á götum
Akurcyrar að næturþeli fengi að
viðgangast væri dæmi um van-
ræksluofbeldi en sú tegund ofbeldis
byggðist á aðgerðarleysi.
Vinnan númer eitt,
fjölskyldan fær afganginn
Halldór Grönvald fjallaði um sam-
búð fjölskyldunnar og atvinnulífs-
ins og taldi hann að sú sambúð væri
í mikilum vanda enda drottnaði þar
annar aðilinn yfir hinum. Atvinnu-
lífið væri n'kjandi og ráðandi aðili,
fjölskyldan afgangsstærð. Halldór
taldi nauðsyn að skilgreina upp á
nýtt hugtökin eðlilegt vinnuframlag
og full vinna og rétt karla til fjöl-
skyldulífs.
Hörður Begmann fjallaði um
gildi sjálfsbjargarviðleitninnar og
velti því upp hvort hægt væri á ein-
hvem hátt að hverfa til baka frá um-
búðaþjóðfélagi nútímans fjölskyld-
unni til hagsbóta. Færa einhver af
fyrri verkefnum fjölskyldunnar aft-
ur inn á heimilin í stað þess að
kaupa vöru og þjónustu á markaði.
Síðasti fyrirlesari málþingsins
var Anna Valdimarsdóttir sem
fjallaði um ástina og gestir mál-
þingsins héldu heim á leið fullvissir
um að ástin væri eftirsóknarvcrt,
raunhæft takmark. KLJ
Fimm eyfirskir
ættliðir
Þessi mynd var tekin nú á haustdögum
af fimm ættliðum í beinan karllegg.
Það er langalangafinn Steinþór Júlí-
usson, sem er 93 ára að aldri, sem situr
með yngsta ættliðinn, nafna sinn hann
Steinþór Helga Þrastarson, sem fædd-
ist 6. febrúar í ár. Við hlið hans situr
Bjarki Þór Skjaldarson, 41 árs, sonur
hans Þröstur Freyr, sem er 21 árs,
stendur fyrir aftan hann og vió hlió
hans er Skjöldur Steinþórsson, sem er
63 ára aó aldri.
Steinþór Júlíusson hefur alla tíð ver-
ió eyfirskur bóndi, bjó síðast á Kol-
grímastöðum í Eyjafirði. Sonur hans
Skjöldur bjó þar til fyrir skömmu í
Nesi í Eyjafjarðarsveit en nú hefur
sonur hans Bjarki tekið þar viö búi.
KLJ
Iþróttadeild
Léttis
Fundur verður í Skeifunni sunnudaginn 20. nóv-
ember og hefst hann kl. 20.30.
Dagskrá:
Auglýst eftir tillögum fyrir HÍS-þingió.
Kosning fulltrúa á HÍS-þingið.
Umræður um vetrarstarfið.
Önnur mál.
Stjórnin.
r
Fyrirtæki, félög
og einstaklingar
Höfum frábæra aðstöðu fyrir fundi. ráðstefnur,
námskeið og fleira.
Veitingasala, fyrsta flokks gistiaðstaða og svefnpokapláss,
sundlaug, íþróttasalur og vel búnar kennslustofur.
Upplýsingar í símum: 43220, 43221 og 43356.
Stórutjarnaskóli og Tjarnir hf.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
Halldór Blöndal
landbúnaðar- og samgönguráðherra, veróur með
viðtalstíma á Akureyri, miðvikudaginn 23. nóvember í
Kaupangi við Mýrarveg frá kl. 14-17 og á Hótel
Húsavík, fimmtudaginn 24. nóvember frá kl. 14-17.
Upplýsingar í síma 96-21500 og 21504.
Björn Sigurðsson
Húsavík
ÁÆTLUN
HÚSAVÍK - AKUREYRI - HÚSAVÍK
Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös.
Frá Húsavík 19:00 08:00 08:00 08:00 08:00
17:00 17:00 17:00 17:00 17:00
Frá Akurcyri 07:30 07:30 07:30 07:30 07:30
15:30 15:30 15:30 15:30
18:30
HÚSAVÍK - MÝVATN - HÚSAVÍK
Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös.
Frá Hásavík 09:15 09:15 09:15 09:15 09:15
Frá Mývatni 10:30 10:30 10:30 10:30 10:30
Samtenging við ferðir Norðurleiðar mánud.-, þriðjud-, fimmtud- og föstudaga.
AFGREIÐSLUR:
Húsavík: BSH hf., Héðinsbraut 6 (Shell), sími 41260.
Akureyri: Umferðarmiðstöðin, Hafnarstræti 82, sími 24442.
Mývatn: Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit, sími 44I70.
GÓÐA FERÐ!
Eftir einn - ei aki neinn!
mÉUMFERÐAR
Wráð