Dagur - 17.12.1994, Blaðsíða 3
FRETTIR
Laugardagur 17. desember 1994 - DAGUR - 3
Breytingatillögur bæjarráðs Akureyrar við frumvarp að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs 1995:
Stefnt að 15 milljóna kr. rekstrarhagræðingu
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæj-
ar fyrir 1995 verður afgreidd á
fundi bæjarstjórnar nk. þriðju-
dag. Eins og fram kom í Degi í
gær liggur fyrir að framkvæmd-
um við Sundlaug Akureyrar
verður slegið á frest á næsta ári
en töluverðum fjármunum var-
ið til þess að unnt verði að ein-
setja grunnskóla norðan Glerár.
Gjaldfærð fjárfesting
Til gjaldfærðrar fjárfestingar verð-
ur varið samkvæmt tillögu bæjar-
ráðs um 143 milljónum króna.
Stærstu liðimir eru Götur og hol-
ræsi, þar af 55 milljónir til gatna-
gerðarframkvæmda og 35 milljón-
ir til holræsaframkvæmda, til fé-
lagsmála verður varið 20 milljón-
um, þar af eru 10 milljónir óskipt-
ar og 10 milljónir eru óskiptar
vegna flutnings skrifstofa. Þá
verður 13,5 milljónum króna varið
til íþrótta- og tómstundamála, þar
af 10 milljónir óskiptar og 3,5
milljónum króna verður varið til
Skíðastaða. Til endurbóta og
stofnbúnaðar á FSA verður varið
8,45 milljónum og 12 milljónir
króna, óskiptar, renna til umhverf-
ismála.
Eignfærð fjárfesting
Til byggingar leikskóla við Kiða-
gil veróur varið 50 milljónum
króna, en hann verður tekinn í
notkun á næsta ári. Fræðslumálin
fá 83 milljónir, þar af 55 til grunn-
skóla og 28 milljónir til fram-
haldsskóla. Til kaupa á Kaup-
vangsstræti 12, Ketilhúsinu svo-
LIU felldi kjarasamning sjómanna:
Formaður LÍÚ kennir sjómanna-
félögunum um hvernig fór
- segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar
Konráð Alfreðsson, formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar,
segir að ef um sameiginlega at-
kvæðagreiðslu hefði verið að
ræða hefði sjómannasamningur-
inn verið samþykktur. Af aðild-
arfélögum Sjómannasambands
íslands, samþykktu 18 kjara-
samninginn, þ. á m. Sjómannafé-
lag Eyjafjarðar, 9 félög
afgreiddu hann ekki og 9 félög
felldu hann.
Eins og kom fram í Degi í gær,
telur Sambandsstjórn Sjómanna-
sambandsins rétt að þau samtök
sjómanna sem voru hvaó óánægð-
ust með samninginn, sýn.i nú í
verki getu sína til aó ljúka samn-
ingagerðinni án þátttöku Sjó-
mannasambandsins. Hins vegar er
stefnt að því að boða til fundar
með formönnum aðildarfélaganna í
janúarmánuði nk.
Flest aöildarfélög Sjómanna-
sambandsins halda aðalfund milli
jóla og nýárs og þar munu félögin
væntanlega afla sér verkfallsheim-
ildar en boða þarf verkfall með 21
dags fyrirvara. Ekki kemur því til
verkfalls hjá sjómönnum fyrr en í
Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra:
Niöurstöður lagðar fyrir
uppstillingarnefnd
fyrsta lagi um mánaðarmótin janú-
ar/febrúar.
„Mér heyrist að Kristján Ragn-
arsson, formaður LIÚ, vilji stöðva
flotann en hann hefur verið að tala
um verkbann. Kristján er hins veg-
ar í slæmum málum og mikil óein-
ing er ríkjandi innan LIU. Stjóm
þess felldi kjarasamninginn og síð-
an er sjómannafélögunum kennt
um hvemig komið er. Ástæðuna
segir formaður LÍÚ vera þá að
óeðlilega hafi verið staðið að at-
kvæðagreiðslu sumra félaganna og
ekki eðlilegt að tiltölulega fáir fé-
lagsmenn greiói atkvæöi um samn-
inginn og hafí þannig áhrif á hvort
hann er samþykktur eða felldur,“
segir Konráð Álfreðsson, formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar. GG
kallaða, verður varið 15 milljón-
um. Sundlaug Akureyrar fær 7,5
milljónir, stofnframlag til Sorp-
samlags Eyjafjarðar er 4,6 millj-
ónir, um 7 milljónum verður varið
til nýbyggingar FSA og 2 milljón-
um til Heilsugæslustöðvarinnar.
Þá renna 4,3 milljónir til tjald-
svæðahúss.
Hagræðing í rekstri
Eins og fram kom í Degi í gær
samþykkti bæjarráð að stefna að
því að ná fram 15 milljóna króna
rekstrarhagræðingu á næsta ári. í
því sambandi bendir bæjarráð á
eftirfarandi:
- Ekki er gert ráð fyrir að nýr
starfsmaður verði ráðinn til þess
aó sinna verkefni reynslusveitarfé-
lagsins Akureyri, heldur verði um
aó ræða færslu starfsmanns frá
öðru verkefni. Með þessu væri
unnt að ná fram spamaði í launa-
kostnaói.
- Leikskólanefnd er falið að
taka til umfjöllunar og úrvinnslu
skýrslu um „úttekt á rekstri leik-
skóla“, sem unnin var á síðasta
kjörtímabili á vegum „stýrihóps“.
- Endurskoðaður verði rekstur
skóladagheimila í tengslum við
einsetningu grunnskóla.
- Iþrótta- og tómstundaráði er
falið að taka til umfjöllunar og úr-
vinnslu skýrslu ráðgjafarfyrirtæk-
isins Nýsis og leggja tillögur sínar
fyrir bæjarráð.
- Endurskoðaður verði rekst-
urskostnaður íþróttaskemmunnar
með tilliti til minnkandi nota við
tilkomu leikfimihúss við Oddeyr-
arskólann.
- Sviðsstjórum ásamt hagsýslu-
stjóra og starfsmannastjóra er fal-
ið að skoða launakostnað hjá ein-
stökum deildum og stofnunum
bæjarsjóðs og móta tillögur, sem
lækkað gætu hann.
- Innkaup á rekstrarvörum,
þjónustu og efni til framkvæmda
verði skoðuð sérstaklega m.t.t. út-
boða.
- Nefndakerfi bæjarins verði
endurskoðað. óþh
Foreldrar og
starfsmannafélög
Kemur jólasveinninn til bam-
anna ykkar á aðfangadag?
Hjálparsveit skáta kemur jólapökkunum til
jólasveinanna.
XJpplýsingar í síma 21093.
- framboðslistinn
UppstiIIingarnefnd Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi
eystra mun leggja fram tilllögu
um skipan framboðslista flokks-
ins við Alþingiskosningar 8.
apríl 1995 innan tíðar, en end-
anleg skipan Iistans verður
ákveðin á kjördæmisþingi, sem
væntanlega verður haldið fyrri
hluta janúarmánaðar nk.
Leiðbeinandi skoðanakönnun
fór fram meðal flokksbundinna
Alþýðubandalagsmanna fyrr í
haust, en niðurstöður hennar eru
ekki bindandi fyrir uppstillingar-
nefndina.
ákveðinn í janúar
Niðurstöður þessar leiðbein-
andi skoðunarkönnunar urðu þær
að Steingrímur Sigfússon, alþing-
ismaður, fékk afgerandi stuðning í
1. sætið, Sigríður Stefánsdóttir,
bæjarfulltrúi á Akureyri, fékk yfir-
burðastuðning í 2. sætið. I þriðja
sæti lenti Örlygur Hnefill Jónsson,
lögmaður á Húsavík og í 4. sæti
Aðalsteinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur.
Uppstillingamefnd mun kanna
hug félagsmanna áður en hún
gengur frá sinni tillögu um skipan
framboðslistans. GG
Alþýðuflokkurinn á Norðurlandi vestra:
Uppsti 11 i ngar nefnd skilar
tillögu um framboðslista
- fyrir 15. janúar nk.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðu-
flokksins á Norðurlandi vestra
ákvað sl. fimmtudag að stilla
upp á framboðslista flokksins
fyrir næstu Alþingiskosningar
8. apríl 1995. Kjördæmisþing
sem fram fór fyrir nokkrum
vikum fól kjördæmisráði að
ákveða hvort stillt yrði upp á
lista eða efnt yrði til prófkjörs.
„Kjördæmisráð á að skila sín-
um tillögum fyrir 15. janúar nk.
og þá verður boðað til aukakjör-
dæmisþings til að taka endanlega
ákvörðun um skipan listans, alls
10 nöfn. Það var einhugur um að
fara þessa leið, en þótt prófkjör
hafi sína kosti teljum við að þetta
fyrirkomulag henti okkur betur
núna,“ sagði Steindór Haraldsson
á Skagaströnd, formaður kjör-
dæmisráðs. Auk hans eiga þeir
Jón Karlsson á Sauðárkóki og
Guðmundur Árnason á Siglufirði
sæti í stjóminni. Tveir menn hafa
sérstaklega verið orðaðir við
fyrsta sæti framboðslista Alþýðu-
flokksins, þeir Kristján Möller á
Siglufirði og Jón Hjartarson á
Sauóárkróki. GG
Tryggðu þér
skattaafslátt
með kaupum á hlutabréfum
fyrir áramót
Einstaklingur sem kaupir hlutabréf fyrír 127 þúsund
krónur getur lækkað skattana um 43 þúsund krónur.
Upphæðin er 254 þúsund fyrir hjón og
skattaafslátturinn 86 þúsund krónur.
Getum útvegað flest þau hlutabréf sem skráð eru á Verð-
bréfaþingi íslands þar á meðal:
Eimskip, Flugleiðir, Kaupfélag Eyfirðinga1’,
Hlutabréfasjóð Norðurlands11, Síldarvinnsluna,
Sæplast, Útgerðarfélag Akureyringa og Þormóð ramma.
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Kaupvangsstræti 4 • Sími 24700 • Akureyri
1) Bjóðast með greiðslukjörum.