Dagur - 17.12.1994, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 17. desember 1994
Sjávarútvegsdeildin
á Dalvík - V.M.A.
°4LVW-
Réttindanámskeiö
á smábáta
í janúar 1995 verður haldið 30 tonna réttindanám-
skeið ef næg þátttaka fæst.
Kennt verður frá kl. 8.00-18.00 og hefst námskeiðið 5.
janúar.
Kenndar verða eftirtaldar greinar:
Siglingafræði, siglingareglur, stöðugleiki, tæki, skyndi-
hjálp, slysavarnir, eldvarnir, fjarskipti, veðurfræði og
vélfræði.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Júlíusi í síma 96-
61218 og Birni í síma 96-61860.
Skólastjóri.
Vignir Sigurólason, dýralæknir, og Margrét María Sigurðardóttir, fulltrúi sýslumanns á Blönduósi, með soninn
Egil. Mynd: SÁ.
r- RÚLLUR - ARKIR - HÖNNUN - MYNDAMÓTAGERÐ - FÓL U-
Vörumiðar hf
* ÞAR SEM LÍMMIÐARNIR FÁST J
REYNSLA - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
Sími 96-12909 - Fax 96-12908
Hamarsstígur 25, 600 Akureyri
LAGERMIÐAR (TILBOÐ.ÓDÝRT O.S.FR) - VIGTARMIÐAR
O
o
Z>
>
o
-<
z
o
>
-O
71
m
z
H
C
z
Björn Sigurðsson
Húsavík
Húsavík-Akureyri-Húsavík
Jólaáætlun 1994-1995
FÓLKSFLUTNINGAR - VÖRUFLUTNINGAR
Frá Húsavík Frá Akureyri
Föstudagur 16/12 Afgreiðslur: 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Föstudagur 16/12 8.00 og 17.00 7.30 og 18.30
Laugardagur.... 17/12 Engin ferð Engin ferð
Sunnudagur 18/12 19.00 Engin ferð
Mánudagur 19/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Þriðjudagur 20/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Miðvikudagur... 21/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Fimmtudagur ... 22/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Föstudagur 23/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Föstudagur 23/12 17.00 18.30
Laugardagur .... 24/12 Engin ferð Engin ferð
Sunnudagur 25/12 Engin ferð Engin ferð
Mánudagur 26/12 19.00 Engin ferð
Þriðjudagur 27/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Miðvikudagur ... 28/12 17.00 7.30
Fimmtudagur .... 29/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Föstudagur 30/12 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Föstudagur 30/12 17.00 18.30
Laugardagur 31/12 Engin ferð Engin ferð
Sunnudagur 1/1 95 Engin ferð Engin ferð
Mánudagur 2/1 95 8.00 og 17.00 15.30
Þriðjudagur 3/1 95 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Miðvikudagur.... 4/1 95 17.00 7.30
Fimmtudagur .... 5/1 95 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Föstudagur 6/1 95 8.00 og 17.00 7.30 og 15.30
Föstudagur 6/1 95 17.00 18.30
HVAÐ ER SPARFAR?
Sparfargjald greiðist a.m.k. tveim dögum fyrir brottför. Ath. takmark-
að sætaframboð.
Sparfargjald fyrir fullorðinn Húsavík-Akureyri-Húsavík kr. 1000,-
Sparfargjald fyrir fullorðinn Húsavík-Reykjavík-Húsavík kr. 4.600.-
Húsavík:
B.S.H. HF Héðinsbraut 6, sími 96-42200.
Akureyri:
Umferðarmiðstöðin Hafnarstræti 82, sími 96-24442.
Dýraspítali er
sjálfsögð þjónusta
- spjallað við Vigni Sigurólason, dýralækni á Blönduósi
Síðastliðið sumar tók til starfa nýr
dýralæknir í Austur-Húnavatns-
sýslu, Vignir Sigurólason. Tíó-
indamanni Dags þótti tilhlýðilegt
að taka hús á honum og kynna
manninn fyrir lesendum. Hér á
eftir gefur að líta afrakstur þessa
spjalls okkar.
- Hvaðan er hinn nýi dýra-
lœknir Húnvetninga og hverjir eru
heimilishagir hans?
„Eg er fæddur og uppalinn á
Húsavík. Konan mín er Margrét
María Sigurðardóttir, lögfræðing-
ur, og er fulltrúi sýslumanns á
Blönduósi. Vió eigum einn son,
Egil 3ja ára.“
- Hvar lœrðir þú dýralœkning-
ar og hvar starfaðir þú óður en þú
komst til Blönduóss?
„Eg útskrifaðist sem dýralækn-
ir frá Landbúnaðarháskólanum í
Kaupmannahöfn í byrjun árs
1992. Þá lá leiðin heim til Húsa-
víkur, þar sem ég leysti af fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits
Norðurlands eystra og héraðsdýra-
lækninn í Þingeyjarumdæmi
vestra. Frá því í byrjun september
1993 og fram í júní á þessu ári
leysti ég svo af héraðsdýralækn-
inn í Isafjarðarumdæmi.“
- Hvernig kom það til að þú
fluttir til Blönduóss?
„Astæðan er kannski fyrst og
fremst sú aö hér er eitt af stærri
landbúnaðarhéruðum landsins.
Það ætti því að vera grundvöllur
fyrir því að hér starfi fleiri en einn
dýralæknir. Okkur fannst tími til
að finna okkur einhvern góðan
staó þar sem við gætum komið
okkur fyrir til lengri tíma og byrj-
að að byggja upp þá aðstöóu sem
ég tel nauðsynlega til að hægt sé
að veita þá þjónustu sem ég vil.
Þaó gerði svo útslagið að konunni
minni bauóst vinna sem fulltrúi
sýslumannsins hér á Blönduósi.“
- Sérðu þó Blönduós fyrir þér
sem framtíðarheimili?
„Já, eins og staðan er í dag þá
tel ég svo vera. Okkur hefur verið
vel tekið héma og við vorum orð-
in ansi þreytt á flakkinu."
- Þú starfar þá sem sjálfstœður
dýralœknir íhéraðinu?
„Já, ég er sjálfstætt starfandi
dýralæknir, en í samstarfi við hér-
aðsdýralækninn, Sigurð H. Péturs-
son, þannig aó hann vísar á mig
þegar hann tekur sér frí.“
- Það hefur komiðfram í Degi
að þú hafir hug á að koma upp
dýraspítala?
„Já, ég er búinn að kaupa 180
fermetra hús af hestamannafélag-
inu Neista, hús sem í daglegu tali
gengur undir nafninu Tamninga-
stöðin. Eg er nú að breyta húsinu í
vinnuaðstöðu fyrir mig og ætlunin
er að gera þetta að dýraspítala
þegar fram líða stundir. Ég reikna
með aó geta tekið fyrsta áfanga í
notkun í byrjun næsta árs. Þarna
ætla ég að hafa aðstöðu til að gera
skurðaðgerðir á dýrum, bæói
gæludýrum og stórgripum. Ég
veró þarna með röntgentæki og
vonandi ómskoóunartæki, þarna
verður möguleiki á að vista dýr til
lengri eða skemmri tíma.“
- Dýraspítali á Blönduósi, er
það ekki bjartsýni?
„Mér finnst það alls ekki bjart-
sýni, heldur nauðsynleg og sjálf-
sögó þjónusta. Það má segja að
fyrst og fremst sé ég að koma mér
upp vinnuaðstöðu þar sem hægt er
að framkvæma skurðaógerðir við
góðar aóstæður. Að gera skurðað-
gerðir á dýrum einhversstaöar á
víðavangi á milli þúfna eða uppá
eldhúsborói tel ég einfaldlega
neyðarúrræói og varla boðlegt,
hvorki dýralæknum né dýraeig-
endum, að ekki sé talað um dýrin.
Röntgenmyndataka eykur til muna
nákvæmni sjúkdómsgreininga og
gefur þar meó möguleika á ná-
kvæmari meðhöndlun. Þaó hlýtur
að vera af hinu góða að vera með
vistunarstað fyrir veik dýr, það
gefur möguleika á nákvæmari
rannsókn og meiri og betri með-
höndlun,“ sagði Vignir Siguróla-
son að lokum.
Sigurður Ágústsson.
NVJAR BÆKUR
Lífssaga Guðmundar
Árna
Útgáfufyrirtækiö Fróði hf. hefur sent
frá sér bókina Hreinar línur - lífssaga
Guómundar Áma eftir Kristján Þor-
valdsson.
Eins og nafn bókarinnar ber meó sér
fjallar hún um Guðmund Áma Stefáns-
son, alþingismann og fyrrv. bæjarstjóra
í Hafnarfirði og ráðhcrra.
í eftirmála Kristjáns Þorvaldssonar,
höfundar bókarinnar, kemur fram að
vinnsla hennar hófst 18. nóvember.
í bókinni fjallar Guðmundur um líf
sitt og störf og segir frá kynnum af
mönnum og málefnum. Hann rifjar upp
æsku sína og unglingsár í Hafnarfirói
og þátttöku í íþróttum með skemmtileg-
um félögum. Hann segir frá því hvemig
hann fetaði sig inn í stjómmálin, frá
harmleik í fjölskyldunni er hann missti
tvo syni sína í eldsvoða. Hann segir frá
bæjarstjómarpólitíkinni í Hafnarfirði
sem oft var hatröm og höró, lýsir glímu
viö forystumenn í eigin flokki sem
stundum varð að hreinum átökum. Þá
fjallar Guðmundur Ámi einnig um ráð-
herradóm sinn og mál og málatilbúnað
sem urðu til þess aö hann sagói af sér.
Höfundur bókarinnar, Kristján Þor-
valdsson, hefur starfað sem blaöamaður
um árabil.
Hreinar línur er 244 bls. og prýdd
mörgum myndum. Bókin er prentunnin
í Prentsmiðjunni Odda hf. Verö kr.
3390.
Þjóð á Þingvöllum
- allur ágóði af sölu bókarinnar
rennur til Þjóðarbókhlöðunnar
Bókaútgáfan Vaka-Helgafell hcfur
gefið út bókina Þjóó á Þingvöllum eftir
Ingólf Margeirsson en hún fjallar um
lýðveldishátíðina á Þingvöllum 17.
júní 1994. I bókinni lýsir Ingólfur
þeim hughrifum og þeirri samkennd
sem þjóöin skynjaði er hún kom saman
á Þingvöllum til að fagna hálfrar aldar
afmæli Iýðveldisins. Ingólfur rekur
einnig stuttlega í máli og myndum
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og segir
frá lýóveldishátíðinni 1944 þegar ís-
lensk þjóð varö frjáls. Bókina Þjóð á
Þingvöllum prýða nær 200 ljósmyndir
í litum, teknar af mörgum fremstu Ijós-
myndurum þjóöarinnar 17. júní sl.
sumar. I bókinni er efnisútdráttur á
ensku til að koma til móts við þann
áhuga sem var á lýóveldisafmælinu er-
lendis. Vigdís Finnbogadóttir forseti
Islands og Davíð Oddsson forsætisráð-
herra rita formála að bókinni.
Bókin Þjóð á Þingvöllum er prent-
uð í Prentsmiðjunni Odda hf. og kostar
kr. 3480 til áramóta en hækkar þá í kr.
4990.
Vaka Helgafell hefur ákveóið að
gefa allan ágóða af sölu Þjóðar á Þing-
völlum í söfnunarátak stúdenta fyrir
Þjóðarbókhlöðuna.