Dagur - 17.12.1994, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 17. desember 1994
Húsavík:
ITC Fluga kynnir
jólabækurnar
Félagar úr ITC Flugu lásu úr nýjum bókum á veitingastaðnum
Bakkanum sl. laugardag. Það voru 13 af 14 félögum í Flugu sem
önnuðust upplesturinn.
„Við vorum ánægðar með móttökurnar og það kom slæðingur af
fólki,“ sagði Kristín Arinbjarnardóttir, formaður félagsins. Upplesturinn
stóð í nokkra tíma, en fólk kom og fór, fékk sér kaffibolla og slappaði af
í jólannríkinu. „Við vorum líka að þessu til að læra af því. Við fengum
ábendingar og vitum nú betur hvernig við stöndum að þessu næst. Við
þökkum öllum sem komu á Bakkann,“ sagði Kristín. IM
Óskar Jónsson á Dalvík hefur stundað vöruflutn-
inga milli Dalvíkur og Reykjavíkur í hálfa öld
- flutningsgeta bílanna hefur sjöfaldast á sama tíma
„Það eru liðin 50 ár síðan ég hóf
að keyra milli Dalvíkur og
Reykjavíkur en fyrsti bílinn
minn var Chevrolet, árgerð
1946, en hann tók þrjú tonn í
ferð. Árið 1948 byrjaði ég svo að
keyra til Reykjavíkur, aðallega
fyrir Kaupfélagið og Netagerð-
ina, en ég fékk strax flutning
fram og til baka. Ferðin milli
Dalvíkur og Reykjavíkur tók þá
um tuttugu klukkutíma, en nú
eru flutningabflarnir sjö til átta
tíma þessa leið og þeir flytja allt
að tuttugu tonn í ferð. Það magn
sem hægt er að flytja með
hverjum bfl hefur allt að sjöfald-
ast á þessum árum,“ segir Óskar
Jónsson á Dalvík.
„Ef ekki fengust vörur til flutn-
ings suður hér á Dalvík eöa á Ak-
ureyri flutti ég lýsi suður héðan.
Fyrsta árið sem ekið var suður fór
ég tuttugu ferðir, eða um 1.200
tonn miðaó við fulla lestun í öll-
um ferðum. Þetta var fyrst og
fremst akstur yfir sumarmánuðina
en árið 1952 var ég farinn aó aka
suður alla mánuði ársins en þá var
farið að reyna að halda veginum
opnum. Eg var einn i þessum
rekstri fram til ársins 1954, en þá
komu félagar mínir, Guðjón og
Jóhannes, inn í reksturinn með
mér. Þaó var þó ekki fyrr en árið
1962 sem bílarnir urðu tveir," seg-
ir Óskar Jónsson á Dalvík, sem
staðið hefur í vöruflutningum um
þjóðvegakerfi landsins í hartnær
hálfa öld og hefur því öðrum
mönnum fremur fylgst með þjóð-
vegunum þróast frá niðurgröfnum
moldarvegum til bundins slitlags.
Og það er skemmileg tilviljun,
að einmitt á sama tíma og Óskar
Jónsson heldur upp á hálfrar aldar
„akstursafmæli“ fagna landsmenn
þeim merka áfanga í samgöngu-
málum að komið er bundið slitlag
milli Akureyrar og Reykjavíkur
(eða Dalvíkur!) og raun gott betur,
þ.e. frá Fosshóli í Bárðadal suður
um til Reykjavíkur og allt austur í
Hornafjörð. Þaö kannast margir
landsmenn við fyrirtækið sem
Óskar stofnaði og er við hann
kennt, Óskar Jónsson & CO.
Umtalsverð aukning í
fiskflutningum
Síöustu árin hefur flutningsmagn-
ið alltaf verið aö aukast, ár frá ári.
Þar ræður miklu umtalsverð aukn-
ing í fiskflutningum, en fiskurinn
er sóttur í alla landshluta til
vinnslu á Dalvík. Einnig hafa
flutningar fyrir Sæplast hf. verið
töluverðir, bæói ker, rotþrær o.fl.
sem fyrirtækið framleióir og hefur
hcildarmagn flutninga Óskars
Jónssonar & Co aó undanförnú
verið um 4.500 tonn á ári. Flutn-
ingsgeta fyrirtækisins hefur einnig
aukist verulega gegnum árin, en ef
allir fjórir flutningabílarnir sem
fyrirtækið hefur yfir að ráða í dag
væru lestaðir á sama degi væri
flutningsgetan um 60 tonn.
Óskar Óskarsson, sonur Óskars
Jónssonar, hefur tekið við dagleg-
um rekstri fyrirtækisins af föður
sínum og segir hann aó flutning-
arnir séu nokkuð jafnir að magni
allt árið, þó sé einna minnst að
flytja í Júlí- og ágústmánuðum ár
hvert. I desembermánuði er um
miklu fleiri sendingar að ræða,
þ.e. þá koma ýmsir smápakkar
sem tengjast jólum, en að sama
skapi dragi úr flutningi á stærri
vörusendingum.
í nóvembermánuði 1993 var
Óskar Jónsson og Co gert að
hlutafélagi, en þá keyptu Árni
Helgason í Ólafsfirði og Stefnir
hf. á Akureyri hlut í fyrirtækinu.
Undanfarin þrjú ár hefur verið
samvinna milli Vöruflutninga
Sveins Stefánssonar hf. í Ólafs-
firði (sem er í eigu Páls Helgason-
ar) og Óskars Jónssonar & Co og
eigi fyrir alls löngu var svo tekið
upp samstarf við Stefni hf. og meö
því var nánast hægt að fullnýta
flutningagetu bílanna, bæði til og
frá Reykjavík. Fyrir nokkrum ár-
um var þaó nokkuð algengt að bíl-
arnir fóru nánast tómir suður en
með samvinnu fyrirtækjanna má
telja það liðna tíð. GG
Óskar Jónsson, ásamt syninum Óskari og dóttursyninum, Óskari Jenssyni, við einn flutningabíla fyrirtækisins.
Mynd: GG