Dagur - 17.12.1994, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 17. desember 1994
Er hægt að ná tökum á jólakflóunum?
Teygt aftan á læri: Sctjið annan fótinn upp á stól, eða
annað sem hentar betur, slakið á í hnjánum og teygið
ykkur fram með beint bak.
I>egar þíi kemur
inn eftir gönguferöina
eða skokkiö skaltu
niuna aö teygja.
Jólamaturinn er gómsæt-
ur og kökurnar, sælgætið
og allt hitt sem fyllir ís-
skápa og búr ekki síðra.
A næstu vikum samein-
umst við um að borða,
meira, feitara og sætara
en aðrar vikur ársins.
Enda jólin að ganga í
garð og sjálfsagt að bera
bestu krásir á borð og
njóta þeirra. Svo líða ára-
mótin og hversdags-
Ieikinn tekur við með
aukakílóum, sem kalla á
sultardaga, kál og megr-
un, eða hvað?
Heilsuræktin Stúdíó Púls á Ak-
ureyri er ein þeirra líkamsræktar-
stööva, sem taka að sér að aðstoóa
fólk við að brenna burt óvelkomn-
um fellingum og koma lagi á
skrokkinn. Þar var árangursríku
fitubrennslunámskeiði að ljúka og
enginn vafi er á að eftirspurnin
eftir slíku námskeiði verður næg
eftir hátíðarnar. Anna María Guð-
mann (AMI) íþróttakennari, og
Lína Þorkelsdóttir leióbeinandi
eru kjarnakonurnar sem taka á
móti þeim sem vilja brenna fituna
burt, ráðleggja, leiðbeina, kenna
æfingar og hoppa og öskra ef meó
þarf. Hér sjáum við, svart á hvítu,
ráð þeirra stallsystra til okkar nú
skömmu áður en dagar ljúffengra
rétta ganga í garð?
„I fyrsta lagi ráðleggjum við
okkar fólki að borða ekki of mik-
iö, ekki „stútfylla sig“ í einni eða
tveimur stórum máltíðum á dag.
Það er miklu betra aó borða oftar
og minna í einu, borða fimm sinn-
um á dag, tvær stærri máltíóir og
tvo- þrjá millibita, og borða sig
hæfilega saddan. Hverjum líður
vel pakksöddum eftir risamáltíð?
I öðru lagi er það hreyfingin
sem gildir. Það er til dæmis auð-
veld leið að fara út aó ganga. Það
er best að gönguferðin taki 40
mín. eða meira hverju sinni. Góð-
ur göngutúr endurnærir bæói lík-
ama og sál, hreinsar hugann og
losar um stressið. Besta ráðið
núna yfir hátíðamar er aó fara út
að ganga á hverjum degi. Oft
reynist auðveldast að drífa sig
fyrri hluta dagsins, því á þessum
Sýslu- og sóknalýsingar Þingeyjarsýslna
Skrifaðar á síðustu öld að beiðni
Hins íslenska Bókmenntafélags
Nú í aðgengilegri bók frá Góðu máli hf.
„Af 100 manns sem em í prestakallinu yfir 16 ára eru 10
skrifandi, sá elsti afþeim um sjötugt en yngsti um tvítugt.
Fáir af hinum 90 get eg sagt að skrifi lœsilega nafn sitt. “
„Síveðrasamt er í sveit þessari aföllum áttum, stórbylja-
samast af landsuðri, en stormavindasamast afaustri og
norðvestri, eins á öllum tímum ársins. “
„Helstu viðloðandi sjúkdómar eru: Sú banvcena og skað-
væna barnaveiki (andateppuveiki) og fljótaveiki (neðan-
spýja) v[el\ kólera, sem lœknirinn ræður bót með útlendum
meðölum eftir megni og þó með heppni. “
Skemmtileg og óvenjuleg bók Fæst í bókabúðum
Teygt innan á læri: Athugiö að hné fari ekki fram fyrir tær á fætinum sem
staöið cr í, þunginn á að vera á hælunum. Myndir: Robyn.
Fyrirsæta: Guðrún Gisladóttir leiðbeinandi í Stúdíó Púls.
hátíðisdögum er ýmislegt sem
kallar á þegar líður á daginn. Það
er ágætis viðmiðun aö ganga það
hratt aó það taki töluvert á en samt
á fólk alltaf að eiga auðvelt meó
að tala saman á meðan á göngunni
stendur, ekki ganga hraðar en það.
Allar gönguferóir eiga svo að
enda með teygjuæfingum, þær eru
alveg nauðsynlegar.
Auðvitað getur fólk valið aðra
leið til að hreyfa sig en göngu-
ferðir en þær eru aógengilegar og
kosta ekkert nema hugsanlega
Teygt framan á læri: Styðjið ykkur
við vegg, athugið að ýta hné aftur
og mjöðmum fram. Gkki fetta bak-
ið, gott að spcnna kviðvöðvana á
móti.
góða skó. Víða eru sundlaugar og
hverskyns leikfimisalir opnir
flesta daga í desember og hver
veit nema einnig verói hægt að
fara á skauta eða skíði.“
✓
Ijanúar
„Ef fólk vill taka upp breytta lifn-
aðarhætti á nýju ári og byrja að
hreyfa sig markvisst sér til heilsu-
bótar þá má benda á að það er
miðað við að markviss hreyfing
þrisvar í viku haldi fólki við. Með
markvissri hreyfingu fjórum sinn-
um í viku nærðu árangri, fimm
sinnum í viku nærðu hámarks ár-
angri, sex sinnum í viku er slysa-
hættan orðin umtalsverð og sjö
sinnum í vikur verður slysahættan
enn meiri. Það er rétt aö minna á
að það sem skiptir máli er að vera
vel á sig komin bæði andlega og
líkamlega. Ef svo er skiptir ekki
máli hvort fólk er í kjörþyngd eða
ekki, þaó er ekki aóalatriðið í líf-
inu.“
Ekki borða of lítið
„Við viljum benda á að sam-
kvæmt reynslu okkar af starfi með
fjölda kvenna í fitubrennsluhópum
þá er það staóreynd aó meirihluti
kvenna fitnar vegna þess að þær
borða of lítið en ekki vegna þess
að þær borða of mikið. Flestir
karlmenn fitna hinsvegar vegna
þess að þeir borða of mikið.
Ef ekkert er borðað í morgun-
mat og nánast ekkert í hádegismat
þá hægist svo á brennslu líkamans
því líkaminn reynir að halda í sem
flestar hitaeiningar til að mæta til-
vonandi svelti og bæta þeim á
fituforðann. Það er alveg nauðsyn-
legt að venja sig á að boróa oftar,
fimm sinnum á dag, en hóflega.“
Amí og Línu er þökkuð góð ráð.
KLJ
Káifateygja: Hæiinn í gólf, hafið beina línu úr hnakka
og niður í hæl, ekki fetta bakið.
Gullkom
• Drekkió 6-8 glös af vatni á dag. Vatnió skapar líkamanum
gott umhverfí til aö brenna fitu ef ekki er nóg af vatni þá
gengur verr aó brenna fitunni.
• Setjió sömu reglur fyrir ykkur eins og börnin ykkar, hafíð
„nammidag“ einu sinni í viku. Lítió á sætt kex og kökur
sem sætindi eða sælgæti.
• Allir sem stunda einhverja hreyftngu eru íþróttamenn á
sinn hátt hvernig sem hreyfíngin er.
• Borðið meira af grænmeti og ávöxtum.
• Borðið 4-5 litlar máltíóir á dag, það eiga aó líða þrjár til
fjórar klukkustundir á milli mála.
• Lífið er hreyfmg og hún örvar líf á sama hátt og hreyfing-
arleysi veikir vefi líkamans.
• Ekki sleppa morgunverðinum. Með því aó boröa morgun-
mat heldur þú meltingunni vakandi.
• Ekki borða of lítið því þá hægir líkaminn á grunnefna-
skiptunum til að spara varaforóann sem hann hefur í
formi fitu.
• Geföu þér tíma til að bæta eigin heilsu. Hverju getur þú
bjargað ef hún bregst?
• Þó þú borðir óhóflega mikió af hitaeiningum í nokkra
daga yfir jólin er þaö ekki eins varasamt eins og öll smá-
atriðin alla hina daga ársins. Allar litlu kexkökumar,
kleinumar, smjörió, rjómaslettan og karamellumar verða
aó þungum kílóum sé þeirra neytt oft í viku hverri.
• Mundu aö samviskubit bætir ekki líóan þína. KLJ
Einstakur fróðleikur um liðna tíð!