Dagur - 17.12.1994, Side 16
16 - DAGUR - Laugardagur 17. desember 1994
Hvað fékkst þú
í skóinn?
Það er orðinn útbreiddur siður hér
á landi aó jólasveinarnir þrettán
gefi bömum í skóinn þegar þeir
koma til byggða. Stekkjastaur reió
á vaðið í upphafi
vikunnar og einn
og einn tínast
þeir til byggða
allt þangaó til
kertasníkir, sem
rekur lestina, hef-
ur haft sig yfir
fjöllin og aö
bamsskónum
glugganum.
En hvenær
skyldi þessi siður
hafa verið tekin
upp?
Víða í norð-
lenskum sveitum
var þessi sióur
ekki við lýði fyrir
þremur til fjórum
áratugum en mun
þá hafa verið far-
inn aö breiðast aó
einhverju marki
út í þéttbýli.
í bókinni Saga
daganna segir
Ami Bjömsson að þessi siður hafi
breióst út eftir miðja öldina, hratt í
Reykjavík en síðan í öörum kaup-
stöðum. Elsta bókfesta dæmið um
þennan sið hérlendis segir Arni
vera kvæði Ragnars Jóhannesson-
ar, „Níu litlir jólasveinar,“ frá ár-
inu 1938:
Þeir láta stundum tíeyring
í litla barnaskó
sem liggja frammi á gangi
er sofa menn í ró.
Skyldu mörg börn fá tíeyring í
skóinn nú til dags?
I Sögu daganna segir enn frem-
ur: „Siðurinn varð hinsvegar mjög
hamslaus á Islandi fyrst eftir
1950. Sumir byrjuðu strax í upp-
hafi jólaföstu eóa 1. desember, og
stundum komu
stórar fjárfúlgur í
skóinn. Olli slíkt
bæði metingi og
sárindum þegar
börnin báru sig
saman í skóla, og
leiðindum fyrir
alla uppalendur.
Ekki var neitt
skipulagt átak til
að hamla gegn
þessum ófögn-
uði. Fóstrur og
ömmur leituóu
þó ráða hjá þjóð-
háttadeild Þjóð-
minjasafnsins, og
af hennar hálfu
var fjallaó um
málið í Ríkisút-
varpinu. Arang-
urinn varð sá að
upp úr 1970 tókst
smám saman að
innræta þá cðli-
legu meginreglu
að ekkert kæmi í skóinn fyrr en
fyrsti jólasveinninn kemur til
byggða 13 eða 9 nóttum fyrir jól
og ekki væri annað en smáræði í
skónum.“
Samkvæmt lauslegri athugun
blaðamanns er algengt aó nútíma
jólasveinar setji epli, kókómjólk-
urfernu, kerti, köku, spil, appels-
ínu, sokka, skrautlegan blýant,
smá Ieikföng og happaþrennur í
skóinn. Alltaf læðist ein og ein
kartafla í lítinn skó, svona rétt til
að minna á alvöru leiksins. í nótt
kemur hurðaskellir hvað skyldi
vera í pokanum hans? KLJ
„Af hverju er jólasveinninn inni en
ég fyrir utan? Er það ekki hann sem
á að vera fyrir utan gluggann
minn? Nei bíddu, ég veit, þetta cr
ekki alvöru jólasveinn, eins gott!“
Það á að gefa
bðroum brauð að
bíta í á iólunum
Vegna lítillar kornræktar og tak-
markaðs innflutnings á korni voru
brauð, grautar og
annar mjölmatur
lengst af af
skomum skammti
hér á landi. Jóla-
grautur og laufa-
brauð var því
munaður sem
tengdist hátíó jól-
anna þegar öllu
var tjaldað sem
til var.
Jólagrauturinn
var ýmist banka-
byggsgrautur
meó sírópsmjólk
eða grjónagrautur
með rúsínum.
Fyrstu heim-
ildir um laufa-
brauð eru frá
fyrrihluta 18. ald-
ar og þá er því
svo lýst: „Laufótt
brauð, sem hnoð-
að er úr hreinu
hveiti, en þunnt
og útskorið með margvíslega lög-
uóum myndum, smurt meó smjöri
og soðið yfir eldi.“
Eftir miðja 19. öld virðis laufa-
Laufabrauð getur geymst vel. Þetta
fallcga jólatrc var skorið í kökuna á
fyrri hluta aldarinnar.
Laufabrauðsmunstur, skammdegis-
sói og bóndaskurður.
brauðið mjög bundió við norðan-
og norðaustanvert landið, frá
Austur-Húna-
vatnssýslum
austur í Múla-
sýslur. Eftir
miðja 20. öld fór
laufabrauð hins-
vegar að tíðkast
víðar en hvergi er
jafn rík hefð fyrir
því að bera fram
háa hvíta laufa-
brauðsstafla meö
jólahangikjötinu
eins og noröan-
lands.
Upphaflega er
talið að laufa-
brauðið hafi ver-
ið haft svo þunnt
sem raun er á
vegna
mjölskorts. Með
því að skera hrá-
efnið við nögl
var unnt að gefa
fleiri munnum að
smakka lostætið
og útskurðurinn gerði kökurnar
girnilegri. KLJ
Heimild: Saga daganna, Arni Bjömsson.
OAMLA MYNDIN
M3-1503
Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri
H
H
ELGARllEILABROT
Umsjón: GT
14. þáttur
Lausnir á bls. 20
Dr. Bjami Benediktsson
Ólafurjóhannesson
Dr. Gunnar Thoroddsen
Hvaða borg í Danmörku er vinabær Húsavíkur?
I Álaborg Wi Árósar
Randers
Hvað eru mörg grömm í cinni únsu?
■■ 0,03527
28,3495
50
Hvenær sögðu Norðmenn skilið vlð Svía og konung þeirra?
1814 C9 1905
1914
Hver gefur út Morgunblaðið?
■ Árvakur hf.
Félag íslenskra stórkaupmanna
Styrmir Gunnarsson
Hvaða bók var efst á llstanum yflr mest seldu bækur á Dags-listanum í síðustu viku?
1 Fólk og firnindi KJI Saga Akureyrar II WM Sniglaveislan
Hver hlaut I. sætið f prólkjörl Framsóknarflokksins i Reykjaneskjördæmi um síðustu helgi?
I Drife Sigfúsdóttir B9 Hjáimar Árnason Qj Siv Friðleifsdóttir
Hvaða tungumál hefur lengl verið alþjóðlegt póstmál?
I Enska Franska
Þýska
Hvert er
n 900 kr.
1.800 kr.
3.950 kr.
Hver er rafmagnskostnaður við Ijós og öll hcimilistaeki á meðalheimili á dag?
I U.þ.b. 20 kr. Qj U.þ.b. 70 kr.
U.þ.b. 170 kr.
Hver er algeng dagleg orkuþörf fullorðinna karla sem vinna kyrrsotustörf?
I 2.700 hitaeiningar R9 3.100 hitaeiningar
3.400 hitaeiningar
Hver sagði eitthvað á þcssa lelð: Sá sem þarfnast einskls getur öðlast allt ?
I Fran^ois d Assise RM Karl Marx
Jesús Kristur
Hver var ástæða þess að víða var flaggað á íslandi hlnn 6. desember 1970?
Afmælisdagur forsern RM Lát forsætisráðherra
Þjóðhátíðardagur Finna
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja einhvern
á þeim myndum sem hér birtast
eru þeir vinsamlegast beðnir að
snúa sér til Minjasafnsins, annað
hvort með því að senda bréf í
pósthólf 341, 602 Akureyri eða
hringja í síma 24162 eða 12562
(símsvari).