Dagur - 17.12.1994, Page 23
Laugardagur 17. desember 1994 - DAGUR - 23
POPP
Eftir allt sem á undan var
gengið vegna sviplegs dauða
Kurts Cobain, söngvara og
gítarleikara Nirvana í vor, var
ekki skrýtið þótt menn hefðu
uppi efasendir um gildið þegar
það spurðist að út átti að
koma ný plata í vetrarbyrjun,
svo skömmu síðar. „Eins
dauði væri annars brauð“ væri
það sem gilti, að „hamra járnið
meóan það væri heitt“, burt-
séó frá tillitssemi, gæóum og
öðru slíku hjali. Það er vissu-
lega Ijóst aó Unplugged in
New York, sem nú nýlega er
komin út, er sett á markað svo
fljótt til að græða sem mest á
öllu uppnáminu og má um það
deila. En hvað varðar gæði
plötunnar, þennan MTV þátt í
New York, þá eru þau ótvíræð
og er það næsta víst að platan mun teljast þegar upp
verður staðið, merkur minnisvarði um rokkstjörnu sem
reis svo hratt og hátt, en slokknaði á þegar síst skyldi.
Þegar horft var á þáttinn sjálfan í sjónvarpinu skömmu
áður en platan kom út, voru efasendir reyndar áfram
fyrir hendi um hvort um nógu góðan hlut væri að ræóa
og þá kannski sérstaklega hvað varðaði söng Coba-
ins, sem virkaði nokkuð blæbrigðalaus. Það sannaðist
hins vegar eins og svo oft áður, að ekki er sama að
hlusta á flutning í sjónvarpi og af hágæðaplötum. Lög-
in á plötunni eru alls 14, þar af um helmingur eftir aðra
og er þar um að ræða vel valin og túlkuð lög. Má þar
Nirvana. Sagan sennilega öll með Unplugg-
ed in New York.
nefna sérstaklega Where did
you sleep last night, eftir blús-
og þjóðlagagoðið Leadbelly
og Plateau, Oh me og Lake of
fire, öll úr smiðju bræðranna
Curt og Chris Kirkwood, sem
starfrækja hina athyglisverðu
sveit Meat puppets. Eru þessi
lög og Nirvanalög á borð við
Come as you are, something
in the way, Polly og About a
girl, dæmi um þá gullmola
sem prýða Unplugged in New
York, svanasöng rokkstjörn-
unnar Kurts Cobain.
Endalokin?
Þær fregnir hafa síðan borist
eftir útgáfu Unplugged in New
York, að Dave Grohl, trommu-
leikari Nirvana, hafi í hyggju
að senda frá sér einherjaplötu. Tvennum sögum fer
hins vegar af hversu langt hún er komin í vinnslu hjá
honum. Þá hefur það líka frést, að Grohl muni að öll-
um líkindum ganga til liðs við sjálfan Tom Petty í
hljómsveítinni hans, The heartbreakers, í stað Stan
Lynch, sem er hættur. Ef sú verður raunin er það al-
veg Ijóst að Nirvana heyrir sögunni til. Hafa menn eftir
fráfall Cobains velt því fyrir sér hvort þeir Grohl og
Krist Novoselic bassaleikari hyggðust starfa saman
áfram undir nafni Nirvana. Þaó virðist að þessu
fengnu ekki vera ætlunin, hvað sem svo síðar kann
að gerast.
Bon Jovi frcgnir
JLM %■ l I XlftLÍ *
Bon Jovi. Tíðindaberar.
l»að hefur ekki farió mikið
wr iyi ii ica teiknaranurr laomiui iuiii yuua, og tónlistar-
manninum Bjartmari Guð-
laugssyni í seinni tíð. Hann
sendi síóast trá sér plötuna
Engisprettufaraidur, Haraldur
árið 1992, s em var hin ágæt-
asta, en hel á sér kræla ur síðan lítið látið . Er það af sem
mikilla vinse um f fylgd n yai ojailiiicU ildul elda með plötun- neó fullorðnum og
Með vottori 3 í leikfimi. Ekki
lagt árar í bát, því nú hefur
hann svo lít ið ber á, gefið út
nýja plötu, sem einfaldlega
ber heitió Bjartmar. Henni
fagna örugglega einhverjir vel.
Bon Jovi, rokksveitin frá New
Jersey, sem notið hefur mikilla
vinsælda að undanförnu meö
safnplötunni Crossroads og smá-
skífunni Always, er nú komin vel á
veg með að fullvinna sína sjöttu
hljóðversplötu, sem koma á út
með næsta vori. Það er hins veg-
ar að frétta af liðsskipan hljóm-
sveitarinnar, aö hún hefur nú
breyst í fyrsta skipti á um ellefu
ára ferli. Bassaleikarinn Alec John
Such hefur nefnilega af persónu-
legum ástæðum sagt skilið vió fé-
laga sína, en í hans stað til bráða-
birgða er komin hljóóversspilarinn
Huey McDonald. Spilar hann með
á nýju plötunni, sem nú gengur
undir nafninu Open all night. Það
er svo að segja af Jon Bon Jovi
söngvara sjálfum, að nú er ný-
komið út jólalag með honum ein-
um, Please come home for
Christmas. Þá fer kappinn einnig
með eitt aðalkarlhlutverkið í nýrri
bíómynd sem kallast Moonlight
and Valentino og verður frumsýnd
næsta vor. Leikur Bon Jovi þar á
móti Elisabeth Perkins, „skvís-
unni“ úr Flintstonesmyndinni vin-
sælu.
Tvöfaldur dans
Árió 1994 hefur verið mikió dans-
poppár og plötur af því taginu hafa
verið mjög vinsælar. Má segja að
Reif í skeggió/Dans(f)árið ’94 kór-
óni útgáfuna í ár hér á landi, en
þar er á ferðinni tvöföld geisla-
plata, sem kom út í byrjun mánað-
arins. Inniheldur Reif... 17 ný
danslög sem til alls eru líkleg, en
seinni platan geymir eins og nafnió
bendir til úrval af .vinsæiustu lög-
unum í ár. Alls 15 lög. Er þetta
greinilega útgáfa sem fallið hefur í
góðan jarðveg, því samkvæmt
könnun Dags var hún strax orðin
sú söluhæsta hér norðan heiða,
nokkrum dögum eftir að hún leit
dagsins Ijós.
Hljómsveitin JJ
lengst til vinstri).
Soul. (JJ
II
IV
Tónlistarfólki af erlendum upp-
runa hefur alltaf annað slagið
skotið upp ( Islensku popplífi
og orðið býsna áberandi I
gegnum tíóina. Dæmi um það
eru Bobby Harrison, sem m.a.
vann það sér til frægðar að
vera meðlimur í Procul Harum,
Jón Kjell, lagasmiðurinn og
upptðkumaðurinn norski með
meiru, og söngkonurnar Shady
Owens og Janis Carol. Um
nokkurt skeió hefur verið bú-
settur hér á landi breskættaður
náungi sem kallar sig JJ Soul.
Er hann söngvari og ásláttar-
leikari og hefur ( um eitt ár
starfrækt hljómsveit undir slnu
nafni (með m.a. Ingva Þór Kor-
mákssyni). Kom út nú fyrir
stuttu plata með hljómsveitinni
sem nefnist Hungry for news.
Inniheldur hún 12 lög og er
tónlistin einhvers konar bræð-
ingur af djassi og blús f vand-
aðari kantinum. Þess má svo
geta, að JJ Soul hefur m.a. áð-
ur unnið sér það til frægðar að
hafa trommað með söngkon-
unni þekktu Dusty Springfield.
Raufarha£narlætin
- konan flutti vegna ótta við ónæði
Húsráðandi á Raufarhöfn hafði sam-
band við Dag og þótti staðreyndir
um drykkjulæti þar sl. laugardags-
kvöld hafa raskast á Ieið til blaðsins.
Lögregla stendur við ummæli sín.
I frétt Dags sl. mánudag kom
fram að kona á níræðisaldri hefði
flúið íbúð sína vegna drykkjuláta hjá
nágrönnum og lögregla hefði síðar
um nóttina verið kölluð í umrædda
íbúð vegns slagsmála. Húsráðandi
sagði að í fyrsta lagi væri umrædd
kona á áttræðisaldri og í öðru lagi
hefði hún flutt að heiman og á gisti-
heimili vegna þess að henni hefði
verið tilkynnt með fyrirvara um að
I—7-----------------------------
afmælisveisla yrði haldin í húsinu
um nóttina. Konan hefði því farið
áður en veislan byrjaði. Lögreglan
hefði ekki verið kölluð í íbúðina
vegna slagsmála, eins og lögreglan
hefði haldið fram, heldur til að aka
gestkomandi manni þaðan heim.
Lögreglan á Raufarhöfn sagði
rétt að gamla konan væri á áttræðis-
aldri og hún hefði yfirgefið heimili
sitt um leió og hún hefði heyrt gesti
koma í afmælið um kvöldið. Lög-
regla hefði aldrei farið í húsið bara
til að keyra mann heim, heldur
vegna þess að kona hefði hringt
vegna slagsmála. IM
A
♦
nn
Id
♦
i
f ÍJ Spoon kl. I6
( ^ Jet Black Joe kl. 17
HEILDSALA
I SMASALA
RdDIO
i mm m mm. i.............
GEISLAGÖTU 14 • SÍMI 96-21300 • 600 AKUREYRI • FAX 96-21302
GEISLAGOTU 14 • SIMI 96-21300 • 600 AKUREYRI • FAX 96-21302
■á*'ÆrÆrjrÆ'ÆrÆrÆr^ÆrÆrÆrÆTÆrÆrjrjrjr^ÆrÆrA
Flugbjörgunarsveitin
Akureyri
lólatré og grcinar
Jólatréssala Flugbjörgunarsveitarinnar
er að Glerárgötu 32.
Mikið úrval:
Normannsþinur - Rauðgreni - Blásreni
Opið virfca daja frá kl. 19 til 18.
Lausardas frá kl. 10 til 99.
Sunnudas frá kl. 19 til 19.
Frí heimsendins.
Pöntunarsími 985-23452.
Ritari óskast
á lögmannsstofu sem fyrst.
Umsóknir er greini aldur, menntun, fyrri störf og annað
er máli kann að skipta, leggist inn á afgreiðslu Dags,
merkt: „Ritari 95“ fyrir 23. desember næstkomandi.
Rafeindavirki óskast
til starfa sem fyrst.
Upplýsingar í síma 96-71323.
Rafbær, Siglufirði
Áreiðanlegur starfsmaður
óskast til afgreiðslustarfa
Tungumálakunnátta er nauðsynleg og æskileg er ein-
hver reynsla í ferðamálum.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Umferðamið-
stöðinni milli kl. 8.30 og 12, virka daga.
Umsóknarfrestur er fram að jólum. ,
ZM. UMFESÐAKMIDSTÓD
RIJR TFRMINAI
BUS TERMINAL
Hafnarstræti 82, Akureyri, sími 96-24442. Fax 11817.
i