Dagur - 20.12.1994, Blaðsíða 23
Ólafur Guðmundsson, túlipanasmiður.
Húsavík:
Dreymir um ao selja
túlipana til Hollands
- segir Ólafur Guðmundsson, túlipanasmiður
Ólafur Guðmundsson býr á landnámsjörð Húsvíkinga, Borgar-
hóli, þar sem talið er að Garðar Svavarsson hafí reist sér bústað til
vetursetu og væntanlega fyrsta hús á landinu. Ólafur hætti störf-
um við kennslu árið 1992 af heilsufarsástæðum og hafði þá kennt
handavinnu í 26 ár. Nú er Ólafur túlipanasmiður.
lafur hætti ekki tóm-
stundavinnunni sinni um
leið og kennslunni. Sam-
hliða kennslunni dundaði
hann við eitt og annað og
smíðaði þá allt frá bílum niður eða
upp í blóm og hann heldur áfram að
smíða blómin. „Eg hef alltaf haft
yndi af aö smíða, fór ungur aö
heiman og þurfti oft að hafa ofan af
fyrir mér sjálfur. Ég hef líka málað
myndir, en þær hverfa bara eins og
skot og mest af þeim hef ég gefið.“
Túlipanasmíðin
Óli hefur dittað að ýmsu og lagfært
fyrir náungann, skeftað byssur og
fleira. En nú smíðar hann túlipana.
„Þessar viðgeröir eru leiðinda-
verkefni, það er mikið skemmti-
legra að smíða eitthvað frjálst. Mér
finnst það svolítið hlálegt að ég sem
var ungur húsasmíðameistari í
Vestmannaeyjum, áður en ég tók
kennaraprófið, sit nú norður á hjara
veraldar og tálga túlipana. Ég byrj-
aði á túlipanasmíðinni uppúr ára-
mótunum. Systir mín, Stella, býr
fyrir sunnan og er mikil blómakona.
Það vildi svo til að ég þurfti til
Reykjavíkur og tók með mér
nokkra túlipana. Ég hringdi til
hennar og sagðist ætla að heim-
sækja hana og hún sagði mig vel-
kominn hvenær sem væri. Ég sagð-
ist vera með blóm til að færa henni
og hún bað mig þá að koma strax
svo hægt væri að koma þeim í vatn.
Þegar ég kom til hennar með blóm-
in horfði hún dágóða stund á þau og
sagði svo: „Kvikindið þitt.“
Túlipanamir hafa verið vinsælir,
fólki finnst þeir góðir til tækifæris-
gjafa og ætli ég sé ekki búinn að
smíða 3-400 stykki. Ef ég hamast
við get ég smíðað túlipana á 45
mínútum en ef ég vinn þetta í róleg-
heitunum er ég á annan tíma með
hvem.“
- Er gaman að búa til svona fal-
lega hluti?
„Ég væri ekki að þessu annars.
Ég er ekki að dunda við hluti sent
mér finnst leiðinlegt að gera.“
Þetta hleðst ekki
upp hjá mér
- Eru þessi blóm alfarið þín hönn-
un?
„Já, ég hef hvergi séð svona
blóm áður. Ég hef séð tréblóm cr-
lendis frá en þau eru allt öðru vísi.
Fólki finnst gaman að geta fengið
svona öðmvísi blóm sem ekki þarf
að vökva eða hugsa um. Oft er ég
beðinn um ákveðna liti og hef mál-
að túlipanana svarta, skaprgula og
allt þar á milli. Ég hef ekkert þurft
að gera í því að selja þetta, þeir hafa
farið svona af sjálfu sér. Það er eins
og fólk víða um land hafi frétt af
þessum blómum og sýni áhuga á aö
nálgast þau. Maður fyrir sunnan
hringdi meira að segja í mig og
spurði hvort ég þekkti þennan mann
á Húsavík sem væri að smíöa túlip-
anana.“
- Hefurðu ekki smíðað ýmislegt
fleira af þessu tagi?
„Ég hef rennt skálar, diska og
smádót. Þetta hleðst ekkert upp hjá
mér og ég gæti setið við slíka vinnu
vikum saman þó aðeins séu örfá
stykki eftir þegar ég stoppa. Ég hef
alltaf haldið því fram að það þyrfti
engum manni að leiðast er hann
stæði upp frá sínu ævistarfi. Það
hefur lengi blundað í mér að byrja á
svona framleiðslu og ég hef stund-
um sagt að ég heföi þurft að vera
byrjaður fyrir löngu síðan. Það er
sama hvað maður verður gamall, ef
hendumar og höfuðið eru í lagi get-
ur maóur alltaf eitthvað gert. Eg hef
ekki komið öllu í verk sem mig
langar til að gera, en ég held áfram.
Sumir hafa keypt túlipana hjá mér
til að senda vinum sínum erlendis
og nú dreymir mig mest um að selja
túlipana til Hollands.“ IM
Þriðjudagur 20. desember 1994 - DAGUR - B 23
Sendum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum okkar bestu
jóU- og nýársóskir
bökkum viðskiptin á liðnum árum.
VÁTR YGGINGAFÉLAG ÍSLAIMDS HF
Akureyri - Sími 11800.
H.L stöðin Bjargi
sendir starfsfólki og viðskiptavinum innilegar
jóU- og nýárstoeðjur
H.L. stöðin Bjargi
Bugðusíðu 1 -Sími 26888.
Ágætu Norðlendingar!
ÖugbciUr jóU
nyársóskir
Bestu
þakkir fyrir skemmtunina á árinu sem er ai
Sjáumst hress á nýja árinu.
Hljómsveit Geirmundar Ifaltýssonar
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis
óskar félagsmönnum sínum og velunnurum
glcðilegra jóU
og þakkar ómetanlegan stuðning á liðnu ári.
4>
Krabbameinsfélagið