Dagur - 20.12.1994, Blaðsíða 33

Dagur - 20.12.1994, Blaðsíða 33
Þriðjudagur 20. desember 1994 - DAGUR - B 33 Hefur þú bitt Gísla á Hofif Hann fæddist árið 1920 í Sauðanesi á Ásum og man tím- ana tvenna en er ekki síður barn nútímans en hámenntuð ungmenni í blóma Iífsins. Sennilega er hann í blóma lífs- ins þótt 74 ára sé. Hann er eld- hugi sem ávallt hefur verið á undan sinni samtíð, einstak- lingur sem hefur verið óhrædd- ur að takast á við kreíjandi verkefni og horfa fram á veg- inn. Hann heitir Gísli Pálsson, býr í kúluhúsi frammi í Vatns- dal og þeysist um landið þvert og endilangt á svörtum jeppa, með farsímann á eyranu, milli þess sem hann bregður sér til útlanda. Um þessar mundir er hann nýkominn frá Þýska- landi, fór þangað með nokkrar bækur. Gísli ólst upp í Sauóanesi í stórum systkinahópi. Hann giftist Vigdísi Ágústsdóttur árið 1949 og flutti á næsta ári í Hof og þau hjónin bjuggu þar fyrstu árin í félagi við föður Vig- dísar, Ágúst Jónsson. Nú hefur Jón sonur Gísla tekið við búinu á Hofi. Hann ræktar reiðhesta og eru auk þess með sauðfjárbú. Vigdís og Gísli búa í kúluhúsi sem þau byggóu heima á Hofi og sinna sínum hugðarefnum. Hjá Gísla snúast dagarnir um bókaút- gáfu en Vigdís er mikil garðrækt- arkona og hannyrðakona. Hún gerir meðal annars gjarðir, upp á gamla mátann, úr hrosshári og þær eru eftirsóttar til gjafa. - Gísli, hvernig er að búa í kúluhúsi? „Ég vildi svo sannarlega ekki búa í kassahúsi aftur. Húsió á Hofi er byggt fyrir okkur hjónin tvö og því ekki stórt en þetta form gefur mikla möguleika. Kúluhús eru mjög hugguleg og auk þess er það sparnaður í kyndingarkostnaði að búa í svona húsi. Sólin skilar sínu í átta mánuði á ári og kostnaður vegna upphitunar yfir árið er því mun minni en gerist í kassahús- um. Ég ráðlegg fólkinu í sveitum landsins, sérstaklega þar sem ekki er aðgangur að hitaveitu, hiklaust að byggja kúluhús. Svo færir kúluhúsið íbúana líka nokkrum gráðum sunnar, nær miðbaug, þaó er ekki dónalegt að sitja þar í sól- inni.“ - Nú er nýkomin út bókin Hestar í norðri IV, sem Bókaút- gáfan á Hofí gefur út. Hvað get- ur þú sagt mér um þessa bóka- útgáfu? „Þannig var að áriö 1988 byrj- aði ég fyrir hreina tilviljun að gefa út bækur. Það var haldið ættarmót í minni ætt og á ættarmótinu var kosin nefnd til aó sjá um gerð og útgáfu niðjatals. Ég var í þessari nefnd en þetta var ætt afa og ömrnu Þórðar Jónssonar og Guó- rúnar Björnsdóttur frá Steindyrum í Svarfaðardal. Endirinn varð sá að ég sá um að gefa þetta niðjatal út. Þannig byrjaði bókagerðaræv- intýrið og í ár gaf ég út þrjár bæk- ur.“ - Þú byrjaði á niðjatalinu. Hvaða bók var næst í röðinni? „Páll S. Pálsson, bróðir minn, hafði skrifað handrit um Laxá á Ásum. Ivar Pálsson sonur hans baö mig að hjálpa sér að koma því í bókarform og gefa það út. Ég gerði það og sú bók kom út árið 1989. Næst gaf ég út bók um Vatns- dalsá í samvinnu við veiðifélag ár- innar. Sú bók var gefín út bæði á íslensku og ensku. Það að gefa ís- lenskar bækur út á erlendum tungumálum getur skipt verulegu máli. Það er til dæmis ekki vafí á því að þessi bók skilaði betri sölu á veiðileyfum í ánni.“ - En Hestar í norðri. Er sú útgáfa ekki viðamikil? „Þeir eru ekki margir hér á landi sem láta prenta bækur sam- tímis á þremur tungumálum og það er eðlilega nokkuð umfangs- meira en þegar eitt tungumál er undir. Þetta er keðja milli höfund- ar, þýðenda, prófarkalesara og prentsmiðju. Aó hverri bók koma höfundar, þýðendur á tveimur eða þremur tungumálum og prófark- arlesarar á öllum tungumálunum. Þessi bókaflokkur varð þannig til að fyrst gaf ég út bók um hrossaræktendur í Húnaþingi og Skagafirði hún kom út árið 1992. Það var svo vegna áskorana sem ég fékk frá Eyfirðingum og Þjóð- verjum sem ég hélt áfram og nú hefur mér tekist að loka hringnum og gefa út bækur um hrossarækt- endur um allt land.“ - Bækurnar koma út á ís- lensku, ensku, þýsku og jafnvel norsku. Hvernig gengur mark- aðssetningin erlendis? „Ég hef gefið bækurnar út í samvinnu við hrossaræktendur en ábyrgðin er mín. Ég sé sjálfur um alla dreifingu og held utan um sölu. Ég keyri bókina sjálfur til verslana allt frá Vík í Mýrdal að Húsavík enda eru vegirnir svo góðir nú til dags aö það eru ekki vandræði að keyra um landið þvert og endilangt, það er ekki þaó stórt. Svo fer ég í sölutúra til Evrópu og fer á hestaþing erlendis og hérlendis svo sem Heimsmeist- aramót íslenskra hesta á erlendri grund og Landsmót hérlendis. Þaó er ljóst að það er dýrt aó markaðssetja bækurnar erlendis en ég er réttu megin viö núllið og þá get ég haldið áfram.“ - Hverjir eru stærstu kaup- endurnir erlendis? „Það eru Þjóðverjar og mín reynsla er sú að ef Þjóðverjar hafa áhuga á íslenska hestinum á annað borð þá er hann þeirra hjartans mál og þeir vilja vita allt um hann. Ég veit beinlínis um nokkrar sölur beint út á bækurnar og í öðru lagi er mér kunnugt um að erlendir ferðamenn og jafnvel íslenskir hafa bækurnar sem nokkurskonar vegahandbók á ferðum sínum um landið. Þeir aka milli hrossarækt- arbúa til að sjá heim á bæina, sem ef til vill eru heimkynni gæðinga sem þeir þekkja.“ - Þú hefur gefið þessar fjórar bækur út á tveimur árum. Var þetta skemmtilegt verkefni? „Það skemmtilegasta var að kynnast öllum þessu fólki og sjón- armiðum þess. Ég hef hitt flesta hrossaræktendur sem eru í bókun- um, líklega eitthvað yfir 300 hrossaræktendur, sem búa víðs- vegar um landið við mismunandi aðstæöur og eru á öllum aldri. Það var mjög skemmtilegt að kynnast þessum hestamönnum, margir eru skemmtilegir persónuleikar og þaö var gott að vinna með þeim.“ - En þú hefur ekki eingöngu gefið út bækur ætlaðar hesta- mönnum? „Nei, auk hestabókanna hef ég gefió út ileiri niðjatöl en þetta fyrsta sem var upphafið að bóka- Gísli Pálsson. íslenskt já takk. Atvinna til frambúðar Verkalýðsfélagið Eining Eyjafirði útgáfunni. Ég er búinn að gefa út fimm niðjatöl og núna er ég að vinna að niðjatali Guðmundar og Guðrúnar, sem bjuggu eitt sinn á Gafli í Víðidal.“ - Sú bók verður þá næsta bók frá Bókaútgáfunni á Hofi? „Sennilega, en ég er líka að vinna að útgáfu bókar sem á að rata í kjölfar bókanna Hesta í Norðri út um allan heim. Sú bók á að koma út snemma á næsta ári en hún fjallar meðal annars um hesta- nöfn, merkingu þeirra og sögu.“ - Þú hefur líka gefið út kort? „Já, ég fór út í þaö að gefa út kort með sérstökum hætti. Þetta eru kort með mynd af þéttbýlis- eða sögustöðum meó texta um staðinn. Textinn er ýmist á ensku eöa íslensku. Þetta dæmi gengur ekkert sérstaklega vel en ég er þó búinn að gefa út kort með mynd- urn af langflestum þorpum á land- inu.“ - Gísli, þú varst orðinn ellilíf- eyrisþegi þegar þú, bóndinn í Vatnsdalnum, fórst að gefa út bækur. Var þetta ekkert mál? „Nei, nei ekki þannig, ég hef nú fengist við ýmislegt um dag- ana. En mín skoðun er sú aö þeir séu of margir sem setjast of snemma í helgan stein. Það er ekki spurning að fólk heldur heils- unni og lífsþróttinum miklu leng- ur ef það hefur nóg fyrir stafni. Þess vegna er mjög mikilvægt fyrir fólk að finna sér eitthvert áhugamál áður en þaó verður of fulloróið. Að mínu mati er best aó söðla um, velja sér eitthvert annað svið en það sem haft hefur verið að ævistarfi. Það er út af fyrir sig mikill áfangi. Ég er hættur aó framleiða kindakjöt enda var það vanþakkað af þjóðinni og nú eru það bækur sem lífið snýst um,“ sagði Gísli á Hofi. KLJ Sendum öllum viðskiptavinum okkar bestu óskir um gleðikg jól og gæfuríkt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Hjólbarðaþjónustan Undirhlíd 2 - Akureyri - Sími 22840. Sendum öllum Polariseigendum bestu jóla- og nýárskveðjur. Pökkum viðskiptin. Polarisumboðið á íslandi HjólbarOaþjónustan Undirhlíð 2 - Akureyri - Sími 22840. Óskum Eyfirðingum svo og landsmönnum öllum og farsældar á nýju ári Eyjafjarðarsveit

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.