Dagur


Dagur - 28.12.1994, Qupperneq 16

Dagur - 28.12.1994, Qupperneq 16
Akureyri, miðvikudagur 28. desember 1994 REGNBOGA FRAMKOLLUN Hafnarstræti 106 • Sími 27422 íhöfn Eins og kemur fram í fréttinni hcr til hliðar eru sjö skip að veiðum um jólin, þar af allir togarar Skagfirðings hf. á Sauðárkróki. Á Akureyri er hins veg- ar mikill fjöldi flskiskipa í höfn og þar tók Robyn, Ijósmyndari Dags, þessa mynd í gær. Sjávarútvegsdeild verður útvegssvið frá áramótum Uthald togara stífara eftir aö kvótakerfið komst á: Mörgum þykir súrt í broti að vera á veiöum um hátíöarnar - segir Páll Rúnarsson, skipstjóri á Skafta SK-3 Igær var gengið frá þríhliða samningi Verkmenntaskólans á Akureyri, menntamálaráðu- neytisins og Dalvíkurbæjar um starfrækslu útvegssviðs VMA á Dalvík og tekur hann gildi 1. janúar nk. Fyrri samningur frá 27. desember 1989 fellur þá jafn- framt úr gildi. I grein Teits Jónssonar, for- manns skólanefndar VMA, í Degi í dag kemur fram að helstu breyt- ingarnar sem þessi samningsgeró hafi í för með sér séu þær að tengsl grunnskóla og framhalds- skóla á Dalvík verði rofin og að VMA taki með markvissari hætti O VEÐRIÐ í dag spáir Veðurstofan all- hvössum eða hvössum vindi af norðaustri á Norðurlandi vestra og éljum, einkum á mióum. Austar verður norð- austan kaldi eða stinnings- kaldi fram eftir degi, en síð- an stinningskaldi eóa all- hvasst og él. Áfram er spáð norðlægum áttum tvo næstu daga og éljum norðanlands með allt aó 5 stiga frosti. að sér stjórn útvegssviðsins. Jafn- framt sé nafninu breytt þannig að „Sjávarútvegsdeildin á Dalvík - VMA“ heiti frá áramótum „VMA - útvegssvið á Dalvík". Teitur seg- ir í greininni að útvegssviöið á Dalvík muni áfram fá fjárveitingu samkvæmt sérstökum Iið fjárlaga og halda þannig sínum rekstri að- greindum frá öðrum fjárreiöum VMA. óþh Sjá grein Teits Jónssonar „VMA-útvegssvið á Daivík“ á bls. 5. Kaupmenn á Akureyri virð- ast vera ágætlega sáttir við jólaverslunina að þessu sinni. Verslun var að þeirra mati á svipuðum nótum og á síðasta ári. „Ég er ágætlega ánægður, ég hef aó vísu ekki heyrt í mjög mörgum ennþá, en þeir sem ég hef Togarinn Skafti SK-3 frá Sauðárkróki er einn þeirra sjö togara sem verið hafa á veið- um um jólin og verða það fram á nýtt ár. Togarinn var í gær staddur í Hvalbakshalli, vestan við Litla-dýpi, í 6 vindstigum, en þangað kom togarinn á jóladag vegna brælu sem var austur af Langanesi, en þar voru komin norðan og norðaustan 9 vind- stig. Páll Rúnarsson, skipstjóri á Skafta SK, segir að reytingsafli hafi verið eftir að komið var aust- ur í Hvalbakshall, 2 til 5 tonn í holi, og var aflinn um miðjan þriðjudag orðinn um 130 tonn, en togarinn var þá búinn aó vera 12 daga á veiðum. Aflinn er blandað- ur, þorskur, ýsa og grálúða en ekkert af karfa enn sem komið er hitt eru ágætlega ánægðir með þetta og tala um að jafnvel hafi verið einhver smá aukning frá því í fyrra. Við vorum líka mjög heppnir með veðrið og færðina. Ég er ekki frá því að fólk hafi ver- ið heldur fyrr á ferðinni en í fyrra, mánuðurinn byrjaði mjög vel og síðan eru þessir síðustu dagar allt- af stærstir,“ sagði Ragnar Sverris- en aflinn verður seldur í Hull 4. janúar nk. og verður haldió til Bretlands af miðunum að morgni gamlársdags en hluti áhafnarinnar fer í land á fimmtudag á Fáskrúðs- firði og flýgur síóan norður á Sauöárkrók. Atta af fimmtán manna áhöfn togarans fer með skipið út í sölutúrinn. Allir togarar Skagfirðings hf. eru á veiðum; Drangey SK-1 norður af Langanesi, Hegranes SK-2 fyrir sunnan við Vestmanna- eyjar á karfaveiðum og Skagfirð- ingur SK-4 á karfaveiðum djúpt suóvestur af Reykjanesi. „Þetta eru þriðju jólin sem við erum á veióum, en frá því að þetta byrjaði höfum við reynt að koma því þannig fyrir að sömu mennim- ir eru ekki í jóla- og áramótatúrn- um nema annað hvort skipti þann- son, kaupmaður í JMJ og formað- ur kaupmannafélags Akureyrar. 1 svipaðan streng tók Birkir Skarphéðinsson í Aniaro. Hann taldi verslun hafa verið á svipuðu róli og í fyrra, síðustu dagarnir hafi verið mjög drjúgir og t.d. mjög mikið af fólki í bænum á Þorláksmessu, enda veðrið gott. HA ig að um helmingur af fastri áhöfn skipsins er nú hér um borð. Það er ekki mönnum bjóðandi að vera hver einustu jól á sjó, allra síst fjölskyldumönnum. Við hér á Skafta erum fylgjandi því að skipin séu í landi um jól og áramót, en auðvitað neita menn ekki þegar útgerðin ákveóur að skipið skuli vera á veiðum um jól og áramót. Útgerðin sér hag í því aö láta skipin fiska í siglingartúr, en ég er viss um að menn væru miklu fúsari til að halda skipunum úti alveg fram að á Þorláksmessu, og fara síóan út milli jóla og nýárs og koma í land á gamlársdag held- ur en aó vera úti yfir allar hátíð- amar. Þaó hefur mörgum þótt súrt í broti þessar veiðar um hátíðarn- ar. Úthaldið á togurunum hefur verið stífara eftir að kvótakerfið komst á, verið er að leita í miklu meira mæli í aukafisktegundir en áður var, þótt jafnvel sé talsvert um þorsk á slóðinni, og þaó getur orðið ansi tímafrekt,“ segir Páll Rúnarsson, skipstjóri á Skafta SK. GG INNANHUSS- MÁLNING 10 lítrar frá kr. 3.990,- 0KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565 RAFTÆKI í MIKLU ÚRVALI Vöfflujárn frá 4.880,- Kaffivél frá 2470,- 0KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 Rannsóknarlogreglan á Akureyri: Upplýsti 16 afbrota- mál á einu bretti -15 unglingspiltar tengdir málunum Fyrir jólin upplýsti rann- sóknarlögreglan á Akur- eyri 16 innbrot og þjófnaði í bænum. Alls tengjast þessum afbrotum 15 unglingspiltar, flestir 16 ára gamlir. Hér er þó ckki um neinn afbrotaflokk að ræða heldur leiddu víðtækar yfirheyrslur Iögreglunnar til upplýsinga sem hægt var að byggja á við uppljóstranir mál- anna. Að sögn Daníels Snorrasonar, rannsóknarlögreglumanns, eru rnálin misstór, allt frá smáhnupli til stærri innbrota. Þar má nefna innbrot á Hótel Hörpu, þar sem stolið var hljómflutningstækjum og miklu magni áfengis, í Café Carolínu þar sem stolió var áfengi, og í Torgið þar sem stol- ið var peningum og áfengi. Þessu til viðbótar upplýstist inn- brot í Gullnámuna þar sem stol- ió var nokkrum tugum þúsunda króna og innbrot á Markaðinn á Óseyri þar sem stolið var fatn- aði. Daníel segir að þessi innbrot hafi vcrið framin á síðustu mán- uðum og flest á síðustu vikum. Flcstu af því sem stoliö var höfóu þjófamir komið í lóg, s.s. peningunum og áfenginu, en lögreglunni tókst að endur- heimta fatnað sem stolió var af Markaðnum og geislaspilara frá Hótel Hörpu. I innbrotsmálinu á Torginu náðust þjófamir nóttina eftir innbrotið og voru meö þýf- ió á sér. Helmingur þeirra sent aðild áttu að málunum hafði komió áóur við sögu lögreglunnar cn hinir eiga ekki afbrotaferil að baki. JÓH Jólaverslunin á Akureyri: Kaupmenn sattir

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.