Dagur - 05.01.1995, Page 1
78. órg.
Akureyri, flmmtudagur 5. janúar 1995
3. tölublað
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Stjórnarmenn í SH funda á morgun meö bæjaryfirvöldum á Akureyri:
Viö viljum heyra um
áform bæjaryfirvalda
- segir Jón Ingvarsson, formaður stjórnar Sölumiðstöövar hraðfrystihúsanna
Stjórnarmenn í Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna með Jón
Ingvarsson, stjórnarformann, í
broddi fylkingar kemur í fyrra-
málið norður til fundar við bæj-
aryfirvöld á Akureyri vegna
þeirra umræðna sem hafa verið
að undanförnu um hugsanlegan
flutning höfuðstöðva íslenskra
sjávarafurða frá Reykjavík til
Akureyrar.
Jón Ingvarsson sagði í samtali
við Dag í gær að hann sem for-
maður stjómar Sölumiðstöðar
hraðfrystihúsanna hafi óskað eftir
fundi með bæjaryfirvöldum á Ak-
ureyri. „Viö óskuðum eftir þess-
um fundi í framhaldi af öllum
þcim fréttum og umræðum sem
átt hafa sér stað í þessu máli,“
sagði Jón. Hann vísaði í þessu
sambandi til greinar Hólmars
Svanssonar, „Mengunarlaust álver
við Eyjafjörð“, sem birtist í Degi
Góð sala Skafta SK-3
í Hull:
Fékk 200 kr.
meðalverð
Einn togara Skagfírðings hf.,
Skafti SK-3, seldi í gær-
morgun 100 tonn af 160 tonna
blönduðum afla, sem togarinn
kom með til Hull. Aflinn var að-
allega ýsa, en einnig grálúða,
ufsi og þorskur og var söluverðið
20 milljónir króna sem gerir
meðalverð 200 krónur pr/kg.
I dag verða seld þau 60 tonn
sem eftir voru í gær og ef sama
meðalveró fæst fyrir þann afla
hefur salan verið upp á 32 millj-
ónir króna, sem er með bestu söl-
um sem sögur fara af.
Allir togarar Skagfirðings hf.
hafa verið að fiska í sölutúra um
jól og áramót, og selur Drangey
SK-1 í Hull 9. janúar nk. og Skag-
fírðingur SK-4 sama dag í Brem-
erhaven og loks Hegranes SK-2 í
Bremerhaven 11. janúar nk. Aðrar
togarasölur á næstunni eru allar í
Bremerhaven; Breki VE-61 í dag,
Haukur GK-25 þann 12. janúar,
Viðey RE-6 þann 16. janúar og
18. janúar á Dala-Rafn VE-508 að
selja. GG
Tveir árekstrar
á Húsavík
Tveir minni háttar árekstrar
urðu í gær á Húsavík. Tölu-
verðar skemmdir urðu á bíl í
Höfðabrekku um kl. 14 en þar
var bíl ekið frá gangstéttarbrún í
veg fyrir bfl sem ók eftir göt-
unni.
Um kl. 16 voru tveir bílar
stöðvaðir á Garöarsbraut til aó
hleypa gangandi vegfaranda yfir
við Landsbankann. Þriója bíllnum
var ekið aftan á aftari bílinn, en
litlar skemmdir urðu á þeim. IM
28. desember sl. og umræöna í
tengslum við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar Akureyrarbæjar fyrir
1995.
„Það hefur væntanlega heldur
ekki farið framhjá fólki að rætt
hefur verið um að vel kærni til
greina að Akureyrarbær selji
hlutabréf sín í Utgerðarfélagi Ak-
ureyringa og í tengslum viö það
hefur verið nefnt að hugsanlega
fari Islenskar sjávarafurðir til Ak-
ureyrar og taki að sér að selja af-
urðir fyrir Utgerðarfélag Akureyr-
inga. I þessu ljósi eru þaó eðlileg
viðbrögð af okkar hálfu að óska
eftir fundi meö bæjarstjóra um
þaó hvaöa áform Akureyrarbær
hefur uppi í þessu máli og hver
staða okkar hjá Sölumióstöð hrað-
frystihúsanna er í málinu. Mér,
sem stjórnarformanni SH, ber
skylda til þess að vita það og fá að
fylgjast með þessu máli. I það
minnsta viljum við leita upplýs-
inga um hvað sé að gerast í mál-
inu, hvaða áform menn hafa og
hver okkar staða sé. Síðan er það
Slongutemjarari
Snjórinn cr ætíð kærkominn fyrir ungviðið og þá fá uppblásnar siöngur
nýtt hlutverk. Fjörið gctur orðið mikið í brekkunum og stundum erfitt að
halda sér á siöngunum. Mynd: Robyn.
allt annað mál hvað verður gert í
framhaldinu."
- Vcrður lagt einhverskonar til-
boð fram af hálfu stjórnar SH á
þessum fundi?
„Nei, það hefur ekkert verið
rætt. Við ætlum einfaldlega að
heyra sjónarmið bæjaryfirvalda á
Akurcyri."
- En kemur til greina að Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna kaupi
hlut Akureyrarbæjar í UA?
„Það hefur alls ekki verið rætt.
Það hefur verið stefna SH að
kaupa ekki hlut í framleiðslufyrir-
tækjum. Eina undantekningin sem
gerð hefur verið í þeim efnum, er
að vegna beiðni frá Utgerðarfélagi
Akureyringa samþykkti stjóm SH
á síðasta ári að gerast hluthafí og
leggja 30 milljónir króna í Meck-
lenburger Hochseefischerei. Eg
tek fram að á milli SH og UA hef-
ur verið al'ar gott samstarf í nær
þrjá áratugi og ég held að hvort
félag hafi haft stuðning af hinu.“
Utgerðarlélag Akureyringa hf.
á 12,7% í Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og er stærsti einstaki
eignaraóilinn að SH. „Hér er auð-
vitað unr að ræóa mikið hags-
munamál fyrir Sölumióstöðina og
ég tel þetta líka mikió hagsmuna-
mál fyrir UA. I það minnsta hafa
forráðamenn UA alla tíð metið
þaó svo.“
- En kcmur til greina að Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna flytji
höfuðstöðvar sínar norður?
„Það hefur ekkert verið rætt,“
sagði Jón Ingvarsson. óþh
u
Akureyri:
Atvinnuleysis-
bætur hækk-
uðu milli ára
m 6% hærri upphæd var
samtals greidd í atvinnu-
leysisbætur hjá 9 verkalýðsfé-
lögum á Akureyri á síðasta
ári en árið 1993, eða 246,8
milljónir króna á móti um
232.5 milljónum árið 1993.
Það eru einkum talsvert
hærri bætur hjá Verkalýðsfé-
laginu Einingu sem gera
þetta að verkum, en þar fóru
bætumar úr 113,5 milljónum
árið 1993 í 128,3 milljónir á
síðasta ári, sem gerir 13%
hækkun. Eining er lang
stærsta verkalýðsfélagið á
svæðinu.
Hlutfallslega hækkuðu bóta-
greiðslur mest, cða um 30%,
hjá Félagi Byggingamanna í
Eyjafirði, fóru úr um 11,5 millj-
ónum í 15 milljónir, sem bend-
ir til talsvert lakara atvinnu-
ástands í þessari grein á síðasta
ári en árið 1993. Ánægjuleg-
ustu tíðindin eru kannski að hjá
Iðju, félagi verksmiðjufólks,
lækkuðu bætumar um 17,5%
milli ára, fóru úr 40 milljónum
í 33. Bætur lækkuðu einnig hjá
Sjómannafélagi Eyjafjarðar úr
10.5 milljónum í 9,7, hjá Fé-
lagi Málmiðnaðarmanna úr 9,3
milljónum í 8,4 og hjá Skip-
stjóra- og stýrimannafélaginu
úr 955 þúsundum í 622 þús-
und. Bætur hækkuðu hins veg-
ar hjá félagi skrifstofufólks úr
um 43 milljónum í 46,8 millj-
ónir, hjá Vélstjórafélaginu úr
1.5 milljónum í 2 og hjá Verk-
stjórafélaginu úr 2,2 milljónum
í 3 milljónir. HA
„Afleitt ef styrkir skerða samkeppnis-
aðstöðu íslenskra rækjuverksmiðja“
- segir Pétur Bjarnason, framkvæmdastjori Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda
Utflutningur á 100 tonnum af
frystri, óunninni rækju með
rússnesku flutningaskipi til Nor-
egs hefur vakið verðskuldaða at-
hygli, enda alvarlegt mál fyrir
rækjuiðnaðinn ef ríkisstyrktar
rækjuverksmiðjur, t.d. í Noregi,
bjóða það hátt verð fyrir rækj-
una að íslenskar verksmiðjur sjá
sér ekkki annáð fært en að selja
hráefnið út. Hráefnisverðið er
það hátt að lítið svigrúm er til að
keppa við þessi erlendu verð
þrátt fyrir að afurðaverðið hafí
farið eitthvað hækkandi síðustu
misseri.
Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpudisk-
framleiðenda, segir að það sé ljóst
að útflutningurinn á sér stað vegna
þess að verksmiójurnar hér geta
ekki greitt sama verð og erlendu
verksmiðjumar. Ástæðuna segir
Pétur vcra þá að verksmiðjumar fá
til þess opinberan stuðning og því
sé styrkjakerfið í viðkomandi
löndum notað til þess að fjár-
magna á óeðlilegan máta þessi
rækjuinnkaup.
Ljóst er aó afurðaverðið gefur
ekki tilefni til þessa háa tilboðs í
hráefni hér enda selja þessar þjóð-
ir sínar afurðir á sömu mörkuðum
erlendis og Islendingar.
Pétur Bjarnason var inntur eftir
því hvort hann teldi að framhald
yrði á þessum útflutningi á frystri,
óunninni rækju, til þess að rækju-
verksmiðjurnar gætu staðið í skil-
um vió sína viðskiptavini, þ.e.
skipin.
„Eg vona að ekki vcrði fram-
hald á þessu og við höfum bent
yfirvöldum á þessa brotalöm, en
þcssi kaup eru andstæð þeim vió-
skiptasamningum sem við höfum
gert. Vió eigum að getað búiö við
svipuð samkeppnisskilyrði svo
það er ríkjandi megn óánægja með
að hægt sé að kaupa rækju úr
landi á grundvelli opinberra
styrkja. Verksmiðjurnar hér er
fullkomlega samkeppnisfærar við
hvaóa verksmiðjur sem er úti í
heimi á jafnréttisgrundvelli, þ.e.
þegar t.d. er litið til verðs og gæóa
framleiðslunnar hér,“ segir Pétur
Bjarnason.
Tvisvar á ári eru haldnir sam-
ráðsfundir þeirra þjóða sem veiða
kaldsjávarrækju, þ.e. Islendinga,
Grænlendinga, Færeyinga og
Norðmanna, og næsti samráðs-
fundur er fyrirhugaður í lok janú-
armánaðar. Þessar þjóðir selja
langmest af þeirri skelflettu rækju
sem veidd er í köldum sjó. Mál af
þeim toga sem minnst er á hér að
ofan koma ekki eða í mjög litlum
mæli inn á slíkan fund, þar er rætt
um á hvaða magni megi eiga von
á næsta ári, hver salan hefur verið
og hvaða vætningar menn hafa til
sölunnar á næsta ári. Borið er
saman hvað áætlað er að fram-
leiðslan verði mikil og hins vegar
hvað áætlað er að markaðurinn
taki við miklu magni. Fulltrúar
þessara þjóða hafa verið að undir-
búa sameiginlegt markaðsátak
sem byrjar í aprílmánuði nk. og
mun standa yfir í þrjú ár og starfar
sérstakur vinnuhópur að því. I
þeim vinnuhópi situr Pétur
Bjamason fyrir Islands hönd.
„Tilgangurinn er að marka
kaldsjávarrækju sérstakan sess í
hugum neytenda, þannig að í stað
þess að neytandinn veit aldrei
hvort hann er með kaldsjávar- eða
hlýsjávarrækju í höndunum eins
og oft vill veróa í dag, því miður,
þá muni hann óska frekar eftir
kaldsjávarrækjunni. Auðvitað
verður eftir scm áóur keppt um
hylli neytenda, en þá á markaði
sem er móttækilegri fyrir þessari
aðgerð,“ sagði Pétur Bjamason.
GG