Dagur - 05.01.1995, Page 5
Fimmtudagur 5. janúar 1995 - DAGUR - 5
FRIA\ERKI SI6URÐUR H. ÞORSTEINSSON
Norðmeim í
verðlaunaskapi
Þaö má segja að undanfama mán-
uði hafi verðlaunum rignt yfir
frændur vora Norðmenn, þegar litið
er í frímerkjaheiminn. Þetta hófst
með því, að í samkeppni við 150
önnur Olympíufrímerki frá síðustu
vetrarleikum, urðu það Norðmenn
sem fengu fyrstu verðlaun fyrir fal-
legasta frímerkið, eða frímerkjapar-
ið öllu fremur, sem á að sýna þegar
gengið er með kyndilinn, þar er
náttúrlega átt við hinn eina sanna
Ólympíukyndil meö eldinum frá
Grikklandi, nánar tiltekið til Olym-
pos.
Þetta var síðasta Ólympíugullið,
sem Norðmenn áttu eftir að vinna í
sambandi við leikana. Það var svo
alþjóðlega Ólympíunefndin sem
veitti þessi verðlaun ásamt FTP, sem
er alþjóðasamband frímerkjasafn-
ara. Samkeppnin sem fram fór,
nefnist „Prix 01ympia“_ og fer fram
að afloknum hverjum Ólympíuleik-
um, til að verðlauna fegursta frí-
merkið sem gefið er út hverju sinni.
Ungverjaland lenti svo í öðru sæti
með silfrið, en Finnland í þriðja
sæti með brons.
Sem mótívsöfnun eru frímerki er
við koma Ólympíuleikum eitthvert
vinsælasta þemað. A þessu sviði
eru því stærstu verðlaunin sem eitt
land getur unnið hverju sinni að fá
gullið í frímerkjaútgáfunni. Að
þessu sinni voru það 70 póstmála-
stjómir, sem sendu inn 150 frímerki
í samkcppnina. Vissulega lögðu
Norðmenn mikið í að gefa út sem
fallegust frímerki, en þó var engin
Bruno Oldani, scm tciknaði öll
Ólympíufrímcrki Norðmanna á
undanfórnum árum.
vissa fyrir því að þetta gull lenti í
heimalandi Ólympíuleikanna, eða
hjá landinu sem heldur þá. Það var
svo formaður Alþjóða Ólympíu-
nefndarinnar, Juan Antonio Samar-
anch, sem alTienti þessi verðlaun
þann 4. september á þingi nefndar-
innar í París. I raun var það svo
maðurinn sem teiknaði og hannaði
öll norsku frímerkin, sem vann
þennan sigur. Það var Bruno Oldani
sem það gerði og þykir vel að verð-
laununum kominn.
Hönnuðurinn hefir sagt frá því,
að þegar hann vann frímerkjaparið
sem verðlaunin hlaut, hafi verið í
huga hans gömul mynd af Roald
Amundsen, þegar hann gengur síð-
asta spölinn á pólinn.
En ekki var þetta nóg. Norð-
menn nældu sér í fleiri verðlaun á
árinu, en í hlut þeirra féll Robert
Stolz bikarinn fyrir fallegasta frí-
merkið með tónlistarmyndcfni árið
1993.
Það var Sverre Morken sem
teiknaði Edvard Grieg frímerkið, að
verðgildi 3.50. Má því segja að
hann hafi á sama hátt unnið landinu
þessi verðlaun og Oldani vann því
Ólympíugullið.
„The Robert Stolz Trophy", eins
og verðlaunin heita cru veitt árlega
því frímerki sem fegurst þykir og
fjallar um tónlistartengt myndefni.
Það er félagsskapurinn „Philatelic
Music Circle" sem veitir þessi verð-
laun, en það er alþjóðlegur félags-
skapur safnara er safna þessu þema
innan mótívsöfnunarinnar.
Þessi verðlaunaafhending átti sér
stað á Ráðhúsi Oslóar þann 2. sept-
ember síðastliðinn. Þama er það
aftur á móti listamaðurinn sem hlýt-
ur verðlaunin, en Póststjómin, sem
fær viðurkenningu, afhendir þau við
hátíðlega athöfn.
Það má með sanni segja að
Norðmenn hafi því sópað að sér
verðlaunum að þessu sinni. Þá má
einnig geta þess að þeir veittu Is-
landi harða samkeppni um fegursta
frímerki í heimi, árið á undan. I
þeirri samkeppni fór þó Island með
tvöfaldan sigur af hólmi.
Því má svo bæta við að Sverre
Morken bæði teiknaði og gróf frí-
merkið með mynd Edvards Grieg.
Frímerkið mcð mynd Edvards Grieg eftir Svcrre Morkcn.
Leikfélag Dalvíkur
sýnir söngleikinn
Land míns
föður
eftir Kjartan Ragnarsson
Tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson
Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir
Tónlistarstjóri: Gerrit Schuil
Aukasýning
laugardaginn 7. jan.
Sýningar eru í Ungó og
hefjast kl. 21
Mibasala kl. 17-19
sýningardaga í Lambhaga,
sími 61900, og í Ungó eftir
kl. 19 fram ab sýningu
Tekið við pöntunum í
símsvara í sama númeri
allan sólarhringinn
Frímerkjaparið sem hlaut ÓlympíuguIIið.
Líf og fjör
DANSLEIKUR
veröur í Fiðlaranum á 4. hæö í Alþýðuhús-
inu, Skipagötu 14, laugardaginn 7. janúar
nk. frá kl. 22.00-03.00.
Tríó Birgis Marinóssonar leikur.
Mætum hress að venju.
Gleöilegt nýtt ár með þökk fyrir liðið ár.
Stjóm klúbbsins Líf og fjör.
Ifí
Primc ribs 1180 fcp
Ungkaliasnitset fcg
PnmTl8 f°studag
frá k, na«testeiks
♦ I5.00-l9.oo
Þyki þér nógu vænt