Dagur - 05.01.1995, Síða 7
/AINNIN Cm
Fimmtudagur 5. janúar 1995 - DAGUR - 7
Þorvaldur Steingr
IJ frá Hrísey
ímsson
Fæddur 29. nóvember 1924 - Dáinn 27. desember 1994
Það var fyrir rétt rúmum mánuði
síóan aó vinur okkar, Þorvaldur
Steingrímsson frá Hrísey, stóð á
miklum tímamótum, en þann 29.
nóvember sl. varð hann sjötugur.
Réttum mánuði eftir að honum
var haldið hóf af því tilefni gekk
hann á vit feðra sinna, en hann
lést 27. desember sl.
Valdi var öldungur Dagþjón-
ustu fatlaðra og var hann virtur
sem slíkur. Hann nýtti sér dag-
þjónustuna (áður vinnustofur Sól-
borgar) og kom þangað þrisvar í
viku í fleiri ár. Aó vísu sagðist
hann ekki vera aö fara í vinnuna
heldur var hann alltaf á leið í skól-
ann.
Valdi var mjög samviskusamur
og lét sig sjaldan vanta. Dæmi um
það er aö í haust veiktist hann og
þurfti að fara á sjúkrahús. Ekki
varð hann fullkomlega sæll með
það, þar sem hann átti að mæta í
„skólann“. En af því varð ekki
þann daginn. Valdi var ekki lengi
á sjúkrahúsinu, hann kom heim og
mætti fljótlega á sinn staö aftur í
dagþjónustunni. Þar hafði hann
sitt á hreinu eins og annars staðar,
hvort sem um leik eða starf var aó
ræða.
Eins og áður hefur komið fram
var Valdi virtur öldungur. Sam-
skipti hans við starfsmenn dag-
þjónustunnar einkenndust af mik-
illi hlýju og væntumþykju. Við sér
yngri notendur blandaði hann ekki
svo miklu geði. Hann var sérstak-
ur og naut sérstakrar þjónustu.
Egfel íforsjú þína,
Guðfaðir, sálu wína,
því nú er komin nótt.
LJm Ijósið lát mig dreyma
og Ijúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson).
í lok starfsdags er við hæft að
þakka. Valdi, við þökkum þér
samfylgdina. Það að hafa kynnst
þér og starfa með þér gaf okkur
öllum mikið. Hvíl í friði.
Starfsmenn og notendur
Dagþjónustu fatlaðra, Akureyri.
í dag kveðjum við Valda okkar,
sem við höfum þekkt og starfað
með í fjölda mörg ár.
Við þökkum honum samfylgd-
ina, sem var bæði mjög skemmti-
leg og gefandi.
Akveðinn fastur þáttur í lífi
okkar er horftnn. Valdi bíður okk-
ar ekki lengur þegar við komum á
vaktina. Hann tók alltaf á móti
okkur með gleði og hlýju.
„Ertu komin, langt síðan ég sá
þig síðast," sagði hann gjarnan,
jafnvel þó við hefðum sést daginn
áður.
Vió kveðjum Valda með mikl-
um söknuði, en þökkum Guði
hans fyrir að taka hann til sín og
láta hann ekki þjást í langri sjúk-
dómslegu.
Legg ég nú bœði lífog önd
Ijúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofnafer
sitji Guðs englar yfir mér.
Hvíl í friði, elsku vinur.
Starfsfólk Mikluhlíðar.
Miðgarður í Varmahlíð í Skagafirði:
Heimísmenn halda
þrettándafagnað
Karlakórinn Heimir í Skagafírói
efnir til þrettándafagnaðar í Mið-
garði í Varmahlíð nk. laugardags-
kvöld kl. 21. Boðið veróur upp á
fjölbreytta söngdagskrá með fjöl-
mörgum nýjum og skemmtilegum
lögum. Söngstjóri Heimis er Stef-
án R. Gíslason og um undirleik
sjá Thomas Higgerson og Jón St.
Gíslason. Avarp flytur Margrét
Jónsdóttir.
Hvernig getur unglingurinn tekist
á við sorgina? Hvernig geta að-
standendur hans hjálpað honum?
Iðulega þurfa unglingar sem og
aðrir aö fást við sorgina á marg-
víslegan hátt, hvers konar höfnun
Kynningarfundur
um Menntasmiðju
Kynningarfundur verður haldinn í
húsnæði Menntasmiðju kvenna á
Akureyri, Hafnarstræti 95 á 4.
hæð, í dag fimmtudaginn 5. janúar
kl. 17.00.
Starfskonur Menntasmiðjunnar
munu kynna starfsemi vetrarins.
Einnig verður fjallað um tildrög
að Menntasmiðjunni. Eftir kynn-
inguna verða opnar umræður og
boðið verður upp á kaffi. Allar
konur sem hug hafa á náminu eru
hvattar til að mæta. Konur utan
Akureyrar eru einnig hvattar til að
mæta, en verið er að vinna að því
að skólinn verði fyrir allar konur á
EyjafjarðarSVæÓÍnu. Fréttatilkynning
Þrettándaskemmtun Heimis-
manna er oróin hefðbundinn við-
buröur í menningarlífi Skagfiró-
inga og hún er jafnan fjölsótt. Að
þessu sinni verða m.a. frumflutt
lög eftir Björgvin Þ. Valdimars-
son, Omar Ragnarson, hinn góð-
kunna fréttamann, og Jón Bjöms-
son frá Hafsteinsstöðum, sem er
fyrrverandi söngstjóri Heimis.
Lag Jóns hefur verið varðveitt í
eða ástvinamissi.
Kristján Magnússon, sálfræð-
ingur, ræðir um unglinga og sorg
hjá Samtökum um sorg og sorgar-
viðbrögð í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju í kvöld, fimmtudag,
kl. 20.30. Fundurinn er öllum op-
inn.
safni Pálmars Þ. Eyjólfssonar og
ekki er vitaó til þess að þaó hafi
heyrst áður. Þá hefur kórinn í æf-
ingu fleiri ný lög sem hann mun
syngja í fyrsta skipti á þrettánda-
skemmtuninni nk. laugardags-
kvöld.
Einsöngvarar með kómum að
þessu sinni verða Einar Halldórs-
son, Hjalti Jóhannsson, Pétur Pét-
ursson og Sigfús Pétursson. Þá
syngja þrísöng þeir Björn Sveins-
son, Pétur Pétursson og Sigfús
Pétursson.
Eins og fram kom í Degi í gær
verður nýr og glæsilegur konsert-
flygill af gerðinni Steinway, sem
Félagsheimilið Miðgarður hefur
fest kaup á, tekinn í notkun við
þetta tækifæri en hann kemur í
stað 28 gamals Yamaha flygils
sem hefur dugað vel.
Þess má síðan geta að Omar
Ragnarsson, fréttamaður, verður í
Miðgarði og skemmtir gestum og
að loknum skemmtiatriðum sjá
Geirmundur Valtýsson og félagar
um stuðið í syngjandi sveiflu. óþh
^rXS&Jt^ASSS&ACSiSMÍSSSiXesSSi
Auglýsendur!
Skilafrestur auglýsinga í helgarblaöiö okkan en
til kl. 14.00 á fimmtudögunn,
- já 14.00 á fimmtudögum.
H
Dagur auglýsingadeild, sími 24222.
Opið frá kl. 8.00-17.00.
Samtök um sorg og sorgarviöbrögö:
Krístján Magnússon sálfræðing-
ur talar um imglinga og sorg
Utboð
Glerárgata 26 hf. (hlutafélag í eigu Akureyrarbœj-
ar og Lífeyrissjóðs Norðurlands) óskar hér með eftir
tilboðum í múrverk í Glerárgötu 26, Akureyri. Út-
boðsgögn verða afhent á Teiknistofunni FORM,
Kaupangi v/Mýrarveg, 600 Akureyri, sími 96- 26099,
frá og með föstudeginum 6. janúar til og með 10.
janúar 1995, gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11.00 föstu-
daginn 13. janúar 1995 og verða þau þá opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
GLERÁRGATA 26 HF.
Fræðslufundur
Nk. sunnudag 8. janúar verður haldinn
fræðslufundur fyrir fólk sem á við veru-
lega of átsf ikn að stríða.
Fræðslufundur þessi er ætlaður fólki sem er
a.m.k. 20 kg yfir kjörþyngd. Leiðbeinandi verð-
ur Arnhildur Ásta Jósafatsdóttir ráðgjafi og er
þátttaka takmörkuð.
Upplýsingar veita: Steini í síma 21509 og
Kristrún í síma .21397.
í framhaldi af fræðslufundinum mun Arnhildur
mæta á OA fund í kapellu Akureyrarkirkju
mánudaginn 9. janúar kl. 20.00.
Allir eru velkomnir, en þeim sem ekki hafa sótt
OA fund áður er ráðlagt að mæta kl. 19.30.
OA eru samtök fólks sem á við sameigin-
legt vandamál að stríða: Hömlulaust ofát.
|)||Fundarboð
Ungt framsóknarfólk í Suöur- og Norður-
Þingeyjarsýslum.
Stofnfundur félags ungra framsóknarmanna í Þingeyj-
arsýslum verður haldinn kl. 14. laugardaginn 7. janúar
í Garðari, Garðarsbraut 5, Húsavík.
Á fundinn mæta Guðmundur Bjarnason, alþingismað-
ur, og framkvæmdastjórn S.U.F.
Allir velkomnir.
Stjórn F.U.F.A.N.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Upphaf vorannar 1995
Nemendur dagskóla komi í „Gryfjuna"
mónudaginn 9. janúar og sæki stundaskrór
sinar sem hér segir:
Kl. 09.00 HeilbrigSissviS
Kl. 10.00 UppeldissviS
Kl. 11.00 HússtjórnarsviS
Kl. 13.00 ViSskiptasviS
Kl. 14.00 TæknisviS
Kennsla í dagskóla hefst skv. stundaskrá þriSjudaginn
10. janúar.
Nemendur í öldungadeild komi mánudaginn 9. janúar
kl. 18.10. Kennsla hefst þann dag.
Nemendur í meistaraskóla komi mánudaginn 9. janúar
’kl. 20.30. Kennsla í meistaraskóla hefst skv. stundaskrá
þriSjudaginn 10. janúar.
Skólameistari.