Dagur - 05.01.1995, Side 12
alfa
Verður þessi gœðastimpill á
ttýf u innréttingunum og
hurðunum þínutn?
Trésmiðjan fllfa • Óscyri la • 603 flkurei/ri
Sími 96 12977 • Fax 96 12978
Líkur á mjólkurskorti ef framleiöslan
verður ekki aukin næstu mánuöi
Allt virðist benda til þess að
skortur geti orðið á vetrar-
mjólk á komandi mánuðum ef
mjólkurframleiðslan eykst ekki
frá því sem nú er. Birgðastaða
mjólkurvara umreiknuð á pró-
teingrunni er í lágmarki um
þessar mundir og verður tæp-
Töf á reynslusveitar-
félagaverkefninu:
Frestur til að
skila inn tillög-
um framlengdur
Sem kunnugt er var Akureyr-
arbær valinn eitt tólf sveitar-
félaga til að gerast svokallað
reynslusveitarfélag. Til stóð að
sveitarfélögin hefðu frest til 15.
janúar nk. til að skila inn tillög-
um um þau verkefni sem þau
vilja taka að sér frá ríkinu. Sá
frestur hefur hins vegar verið
framlengdur til 1. febrúar.
Astæður seinkunarinnar má
rekja til þess að töf varð á við-
ræðum um þessi mál vegna deilu
ríkis og sveitarfélaga um framlög
í atvinnuleysistryggingasjóð.
Reynslusveitarfélög eru talin
mikilvægur undirbúningur að
frekari verkefnailutningi frá ríki
til sveitarfélaga, með það fyrir
augum að auka sjálfstæði sveitar-
félaga og styrkja svcitarstjórnar-
stigið. Með þessu er vonast til að
þjónusta við íbúa batni, fjármunir
nýtist betur og þetta efli lýðræði
og ítök almennings í stjórnun.
Yfirumsjón er í höndum vcrk-
efnisstjórnar sveitarfélaga. For-
maður er Sigfús Jónsson, fyrrv.
bæjarstjóri á Akureyri, en hjá ein-
stökum sveitarfélögum er verkefn-
ið undir stjórn sérstakrar fram-
kvæmdanefndar. Hcnni er ætlað
að koma með tillögur um verkefni
reynslusveitarfélagsins, annars
vegar tillögur um breytingar á
verklagi bæjarins, hins vegar um
verkefni sem bæjarfélagið fýsti aö
taka að sér. í framhaldi af því
verður það verkefni nefndarinnar
að halda utan um tilraunir þær
sem gerðar verða. Frestur til aó
skila þcssum tillögum hel’ur nú
verið framlengdur til 1. febrúar,
sem fyrr segir. HA
O VEÐRIÐ
Veður fer nú heldur kólnandi
á nýjan leik á Norðurlandi og
líklegt er að heldur bæti í
snjóinn. Á Norðurlandi
vestra hljóóar spáin upp á
norðan hvassviðri eða storm
í dag og éljagang. Á austan-
verðu Norðurlandi verður
einnig norðanátt og snjó-
koma framan af morgninum
en þegar líður á daginn
dregur úr vindi og úrkomu.
- framleiðslan hefur dregist saman síöustu mánuði
lega hægt að framleiða nægjan-
legt magn mjólkurvara fyrir inn-
anlandsmarkað á komandi mán-
uðum nema mjólkurframleiðsl-
an aukist, segir í orðsendingu til
mjólkurframleiðenda, frá Sam-
tökum afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði og Landssambandi kúa-
bænda.
Orðsendingin er frá því í síð-
asta mánuði og eru framleiðendur
jafnframt eindregið hvattir til að
auka mjólkurframleiðslu eins og
kostur er næstu tvo til þrjá mán-
uði. Framleiðsluaukning er talin
nauðsynleg til þess að sinna inn-
anlandsþörf á komandi mánuðum.
Þórarinn E. Sveinsson, mjólk-
ursamlagsstjóri Mjólkursamlags
KEA, sagöi í samtali við Dag, aó
bændur væru að sínu mati, ótrú-
lega fljótir að bregðast við beiðni
sem þessari.
„Kvótinn sem bændur hafa
samið um við ríkið er nánast sá
sami og neyslan er á ársgrundvelli
og því má lítið út af bera svo ekki
verði skortur á mjólk. I sumar
voru hins vegar léleg hey á Suður-
landi og því dróst framleiöslan þar
sarnan í haust þegar kýmar voru
teknar í hús. Þetta gerðist einmitt
norðanlands árið áður. Þetta kallar
aftur á meiri flutning á mjólk á
milli svæöa.“
Þórarinn scgir að flutningurinn
hafi samt verið minni fyrir jólin
en gert var ráð fyrir en þó hafí far-
ið um 40 þúsund lítrar frá Akur-
eyri til Reykjavíkur og svipað
magn frá samlögunum vestan við
Akureyri.
„Þetta þýðir aftur aó það var
tekið minna af mjólk til neyslu í
Reykjavík, frá Búoardal, Borgar-
nesi og Flóanum og þeir áttu því
meiri mjólk í framleiðslu á t.d.
jógúrti og skyri. Ef þetta heldur
svona áfram, kallar þaó hins vegar
á endurskoðun á því hvar hvað er
framleitt og menn þurfa þá einnig
að búa sér til minnislista yfir það
hvaða vörur á að vanta fyrst á
markað, ef þetta verður viðvar-
andi.“
Við Krossanesvcrksmiðjuna á Akureyri er verið að reisa tjaidskemmu. í henni á m.a. að koma fyrir scrstakri
hrognaskilvindu, scm cnn cr verið að smíða, m.a. í Slippstöðinni-Odda hf. Stcfnt er að því að ljúka uppsctningu skil-
vindunnar um miðjan febrúar. Mynd: Robyn
Merkilegt framtak Kvenfélags Sauðárkróks:
Dæguriagakeppni á Sæluviku
Aárum áður stóð Kvenfélag
Sauðárkróks fyrír dægur-
lagakeppni á nýársdag, sem er
fjáröflunardagur félagsins. Þessi
siður datt síðan niður en á síð-
ustu Sæluviku Skagfirðinga var
þráðurinn tekin upp að nýju. Þá
þótti takast afar vel til og á
næstu Sæluviku, sem sam-
kvæmt venju verður í aprfl nk.,
mun Kvenfélagið aftur standa
fyrir dægurlagakeppni.
Á síðasta ári var það Húnvetn-
igur sem bar sigur úr býtum, en 10
lög kepptu til úrslita. Sigurlagið.
hét „Skagafirska mannlífið“, höf-
undur var Björn Hannesson frá
Hvammstanga og Akureyringur-
inn Ingvar Grétarsson flutti. Þá
var þaó skilyrði sett að texti Iags-
ins þurfti aó fjalla á einhvern hátt
um Skagafjörð, en svo verður ekki
nú.
Að sögn Helgu Sigurbjörns-
dóttur, formanns Kvenfélags
Sauðárkróks, verður fyrirkomulag
keppninnar að öðru leyti með
svipuðu sniði og í fyrra. Sérstofn-
uð hljómsveit mun flytja lögin í
keppninni, Hilmar Sverrisson mun
stjórna flutningi þeirra og einnig
mun hann sjá um útsetningar ef
höfundar óska þess. Lögin sem
keppa til úrslita verða gefin út á
snældu undir nafninu „Sæluviku-
Iög 1995“, sem að sögn Helgu er
gert ráð fyrir að verói tilbúin þeg-
ar keppnin fer fram. Höfundar
skila lögunum inn á hljómsnæld-
um og frumsamdur texti á að
fylgja. Skilafrestur er til 10. febrú-
ar, í pósthólf Kvenfélagsins nr. 93
á Sauðárkróki.
„Hér áður fyrr var það aöallega
heimfólk sem tók þátt í þessu en
þátttakendur í fyrra komu víða að.
Tækninni hefur auðvitað fleygt
fram þannig að það er allt annað
að taka þátt í svona kcppni núna
en áður og sömuleiðis aó fram-
kvæma hana. En þetta er virkilega
spennandi og gaman að hægt sé
að standa að svona viðburði utan
Reykjavíkursvæðisins,“ sagði
Helga.
Þess má að lokum geta að síðar
á árinu, eða 25. ágúst, verður
Kvenfélag Sauðárkróks 100 ára.
Verður þcirra tímamóta minnst
með ýmsum hætti. HA
Framleiósla mjólkur á yfir-
standandi verðlagsári hefur verið
nokkuð undir því sem hún var á
sama tímabili í fyrra. Á tímabilinu
september til og með nóvember
sl., dróst hún saman miðað við
sama tímabil árið áður, mest í
nóvember, eða um 5,57%.
Framleiðslan er meiri á sumrin
en veturna og er því mætt með
framleiðslu á vörum sem hægt er
aó geyma í léngri tíma. Til þess að
reyna að jafna framleiðsluna yfir
árið, er greitt hærra verð fyrir
mjókurlítrann á tímabilinu nóvem-
ber ’94 til og með febrúar ’95.
Um er aó ræða beinar álags-
greiðslur á allt mjólkurinnlegg og
má ætla að þessi grciðsla verði á
bilinu 12-13 kr. á hvcrn lítra en
hún ræðst m.a. af því hver fram-
leiðslan verður á tímabilinu. KK
Raufarhafnarhreppur
50 ára 7. janúar nk.:
Hátíðarfundur
og kaffisamsæti
í félagsheimilinu
Raufarhafnarhreppur verður
hálfrar aldar gamall laugar-
daginn 7. janúar nk., en þá eru
liðin 50 ár frá því að honum var
skipt út úr Presthólahreppi. í til-
efni afmælisins mun sveitar-
stjórnin halda hátíðarfund í fé-
lagsheimilinu Hnitbjörg kl.
14.00 á afmælisdaginn og að
honum Ioknum verður íbúum
sveitarfélagsins boðið til kaffi-
samsætis.
Á hátíðarfundinum verða m.a.
flutt ágrip af sögu sveitarfélagsins
og sveitarstjórn mun taka stefnu-
markandi ákvarðanir um málefni
er varða sveitarfélagið í bráð og
lengd. Afmælisins verður minnst
síðar á afmælisárinu, þ.e. með há-
tíóarhöldum innan dyra sem utan
um miójan júlímánuð, en þá mun
forseti Islands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, heimsækja Raufar-
höfn. GG
C-634 XT
þvottavál
18 þvottakerfi
5 kg þvottur
Hitabreytirofi
600 snúninga
Rústfrír pottur
Frábært verð 39.900 stgr.
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 2356^j