Dagur - 07.01.1995, Side 9
Laugardagur 7. janúar 1995 - DAGUR - 9
væri leiðinlegt. Ég hef farið í
keppnisferðir í júdó, handbolta og
fótbolta."
- Ert þú í fleiri íþróttagreinum?
„Ég stunda skák í skólanum,
fer á æfingar þar og keppi á
Kíwanismótunum. Ég hef tvisvar
fengið verðlaun í skák á þeim
mótum. Svo fékk ég verðlaun fyr-
ir skák á Astjörn. I vetur fór ég
svo að æfa badminton.“
- Var það vegna þess að þig
vantaði eitthvað að gera?
„Nei, en mig langði að prófa
fleiri íþróttagreinar. Þess vegna
varö ég að taka mér hlé á júdóæf-
ingunum.“
- Hvernig gengur í badminton-
inu?
„Agætlega, ég fékk verölaun á
badmintonmóti núna fyrir jólin.“
Arnar Þór Sæþórsson er einn þeirra íþróttamanna
sem Akureyrarbær heiðraði í Iok ársins 1994 fyrir að
hafa hlotið Islandsmeistaratitil. Arnar Þór hafði þá
*
sérstöðu að hann hlaut viðurkenningu fyrir Islands-
meistaratitil í tveimur ólíkum íþróttagreinum, fyrir
handbolta og júdó. Hann er KA-maður, ellefu ára
gamall, sonur Kristínar Stefándóttur og Sæþórs Stein-
grímssonar og er í Lundarskóla. En Arnar Þór er ekki
við eina fjölina felldur í íþróttum, hann féllst á að
svara nokkrum spurningum blaðamanns Dags.
- Arnar þú hefur æft fleiri
íþróttagreinar en handbolta og
júdó?
„Já, fyrir utan handboltann og
júdóið þá hef ég keppt í hesta-
íþróttum, fótbolta, skák og badm-
inton.“
- Þetta er ekki fyrsti Islands-
meistartitillinn þinn í júdó?
„Nei, ég hef orðið Islands-
meistari tvisvar áður. Ég hef verið
Islandsmeistari í mínum flokki al-
veg síóan ég byrjaði að æfa 1992
og 93 og 94.“
- Er ekkert erfitt að keppa í
júdó?
„Það er náttúrulega erfitt en
þaó er skemmtilegt."
- Nú hefur Odi, Jón Oðinn,
þjálfað þig öll þessi ár. Er hann
strangur þjálfari?
„Stundum og stundum ekki. Ef
við erum með einhvern fíflagang
þá verður hann strangur. Annars
æföi ég ekki júdó núna fyrir jólin
ég hafði svo mikió að gera en ég
ætla að byrja aftur núna.“
- En ertu búinn aó keppa í
mörg ár í handbolta?
„Ég er búinn að æfa í tvö ár. A
síðasta ári varð ég Islandsmeistari
meó B-liói KA.“
- Hvað heitir þjálfarinn þinn?
„Þjálfarinn okkar heitir Jóhann-
es Bjarnason.“
- Er hann góður þjálfari?
„Já, hann er grínisti.“
- Varst þú ekki fyrirliði B-liðs-
„Þessi er erfið... núna er það
handboltinn, en ég stefni að því aö
fara aftur af fullum krafti í hesta-
íþróttirnar... og júdóið.“
- Þú segist ætla að stunda
hestamennskuna í vetur. Er ekkert
leiðinlegt að þurfa að moka skít-
inn undan hestunum?
„Nei, það er skemmtilegast,
það er allt skemmtilegt í hesthús-
unum, ég get alveg verið þar allan
daginn."
- Átt þú hest?
„Já, ég á einn sem heitir Fann-
ar.“
- Er hann góður?
„Hann er svona aó koma upp.“
- En hvað gerir þú þegar þú ert
ekki í skólanum eða á æfmgum?
„Þá hlusta ég á tónlist, dunda
með taflió mitt, les og æfi mig í
skrautskrift. En stundum labba ég
upp í hesthúsin og er þar í lengri
tíma bæði í hesthúsinu okkar með
pabba og á daginn með Sigga
Oskars. að temja og svona.“
- Hvaða tónlist er í uppáhaldi
hjá þér?
„Ég nenni nú ekki að hlusta á
þungarokk, ég hlusta bara á al-
mennilega íslenska tónlist og eng-
in öskur.“
- Hvað hugsar þú þegar þú er
að keppa í erfíðri keppni?
„Ég hugsa alltaf; ég ætla aó
vinna, ég gefst aldrei upp.“
- Hvað mundir þú ráðleggja
öðrum krökkum sem hafa áhuga á
íþróttum?
„Að mæta á allar æfíngar alltaf,
ncrna þeir séu á sjúkrahúsinu, og
að hugsa alltaf ég ætla að vinna,
þegar þeir eru að keppa, gefa allt í
þaó.“ " KLJ
Arnar Þór hampar verðlaunum með félögum sínum í 6. flokki KA.
Eg gefst aldrei upp!
„Jú, ég fékk líka verðlaun bæði
sem besti varnarmaðurinn og sem
besti útileikmaðurinn á þessu
keppnisári."
- Svo hefur þú líka æft fót-
bolta?
„Ég er búinn að æfa fótbolta
síðan ég var sex ára gamall. Það
hefur gengió nokkuð vel og ég hef
fengið nokkra verðlaunapeninga.
Ég hef tvisvar farið á pollamótió í
Vestmannaeyjum og komist á öll
mót sem við höfum getað fariö á.“
- Er gaman að fara í keppnis-
ferðir?
„Já, ég færi ekki í ferðir ef það
- Erum við þá búin að telja upp
allar íþróttagreinar sem þú keppir
í?
„Nei, ekki hestana. Ég keppti
fyrst í hestaíþróttum þegar ég var
fimm ára og ég hef fengið tíu
verðlaunapeninga fyrir hesta-
íþróttir og fjóra bikara. I vetur
ætla ég að stunda hestana af full-
um krafti. Ég er með nokkuð góð-
an hest sem heitir Gjafar og ætla
að þjálfa hann.
Svo hef ég líka prófað golf og
keppt á einu móti, ég varð í þriója
sæti. Ég hef líka fengið verðlaun í
Landsbankahlaupinu og í jójó-
keppni.“
- Þú hlýtur að þurfa að fara á
margar æfingar í viku?
„Já, en ef ég ákveð að æfa, þá
æfí ég. Þá mæti ég á allar æfíngar
það þýðir ekkert annað.“
- Ér gaman á æfíngum?
„Já, þá fæ ég útrás.“
- En hvernig gengur í skólan-
um, hefur þú einhvern tíma til að
læra?
„Það gengur rosalcga vel, ég
fæ ágætt í prófunt svo þetta er allt
í góðu lagi. Ég læri alltaf strax
þegar ég kem heim úr skólanum
og æfingarnar eru ekki fyrr en
seinna um daginn. Mér gengur
Arnar Þór ungur að árum á Stólpa,
◄ cinum af gæðingunum í hcsthúsi
fjölskyldunnar.
Fjölhæfur dlcfu ára íþróttamaður,
sem sannarlega á framtíðina fyrir
scr, Arnar Þór mcð hluta af verð-
laununum sem hann hefur þegar
hlotið.
bara betur að einbeita ntér þegar
ég er búinn aó fá útrás á æfingum
og svo klára ég alltaf að læra strax
af því ég veit að ég á eftir að fara
á æfíngu. Mamma og pabbi segja
líka að ég fái ekki aö vera í svona
mörgum íþróttagreinum ef það
kemur niður á skólanum.“
- Hvaða íþróttagrein er
skcmmtilegust?
OSKIPTAR A EINN MIÐA 12. JANUAR
UMBOO Á NORÐURLANDI:
Eina stórhappdrættið þar sem hæsti vinningurinn gengur
örugglega út.
Ef hann gengur ekki út í einum mánuði leggst hann við þann
hæsta næst... og svo koll af kolli. Enginn veit þess vegna
hversu hár hann getur orðið.
Stórglœsilegir aukavinningar: Listaverk eftir marga af
þekktustu listamönnum okkar, í hverjum mánuði.
Tryggðu þér möguleika
. fyrir lífið sjálft
Verð miða er aðeins 600 kr.
■BH
ViSA Sarnkort
HVAMMSTANGI:
Róberta Gunnþórsdóttir,
Lækjargötu 6, sími 95-12468
BLÖNDUÓS:
Kaupfélag Húnvetninga,
simi 95-24200
SKAGASTRÖND:
Guðrún Pálsdóttir,
Bogabraut 27, sími 95-22772
SAUÐÁRKRÓKUR:
Friðrik A. Jónsson,
Háuhlíð 14, sími 95-35115
HOFSÓS:
Ásdís Garðarsdóttir,
Kirkjugötu 19, sími 95-37305
SIGLUFJÖRÐUR:
Birgir Steindórsson,
Aðalgötu 26, sími 96-71301
GRÍMSEY:
OLAFSFJÖRÐUR:
Valberg hf., sími 96-62208
HRÍSEY:
Erla Sigurðardóttir, sími 96-61733 HUSAVlK:
MYVATNSSVEIT:
Hólmfríður Pétursdóttir,
Víðihlíð, sími 96-44145
DALVIK:
Sólveig Antonsdóttir,
Verslunin Sogn, sími 96-61300
AKUREYRI:
Björg Kristjánsdóttir,
Strandgötu 17, sími 96-23265
SVALBARÐSSTRÖND:
Sigríður Guðmundsdóttir,
Svalbarði, sími 96-23964
GRENIVÍK:
Brynhildur Friðbjörnsdóttir,
Túngötu 13B, sími 96-33227
LAUGAR REYKDÆLAHREPPI:
Rannveig H. Ólafsdóttir,
sími 96-43181
Jónas Egilsson,
Árholti, sími 96-41405
AÐALDALUR:
Kristjana Helgadóttir,
Hraungerði, sími 96-43587
KÓPASKER:
Óli Gunnarsson, sími 96-52118|
RAUFARHÖFN:
ísabella Bjarkadóttir
Ásgötu 16, sími 96- 51313
ÞÓRSHÖFN:
Sparisjóður Þórshafnar og
nágrennis, sími 96-81117
Kristjana Bjarnadóttir, r / y * * ■§ •j*m * » t
Sæborg, sími 96-73111 ^aðu þer askrtft l tœkd tlð.
Nýtt áskriftarár er að hefjast. Dregið 12. janúar.
Upplýsingar um ncesta umboðsmann í síma 91-22150 og 23130
M e i r a e
I
v e r
n n u r a ð j a f n a ð i