Dagur - 07.01.1995, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 7. janúar 1995
Tilboð óskast!
Vátryggingafélag Islands hf. Akureyri, óskar eftir tilboð-
um í eftirtaldar bifreiðar, sem lent hafa í umferðaró-
höppum.
1. Renault 19 TXE CHA......árg. 1990
2. Toyota Corolla..........árg. 1990
3. Volvo 440 GLT...........árg. 1989
4. Honda Civic.............árg. 1987
5. Fiat Uno 45.............árg. 1987
6. ToyotaTercle............árg. 1986
7. Saab 99.................árg. 1982
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VÍS að
Furuvöllum 11, mánudaginn 9. janúar nk. frá kl. 9.00 til
16.00.
Tilboóum sé skilað á sama staó fyrir kl. 16.00 sama
dag.
W
VÁTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANDS HF
Úrvalsdeildin í körfubolta:
IR-ingar höíðu mikla yfirburði
ÍR-ingar höfðu mikla yfirburði
gegn Tindastóli í DHL-deildinni í
Seljaskólanum í fyrrakvöld. Torr-
ey John lék ekki með þar sem
hann var í leikbanni og munar um
minna í liði Stólanna. IR hefur
Leiðrétting
I frétt Dags í gær um afla og afla-
verðmæti togara Skagfirðings hf.
á Sauðárkróki á síðasta ári, var
sagt að Hegranes SK væri annar
aflahæsti ísfisktogari landsins,
miðað við þær tölur sem liggja
fyrir. Ekki var alveg rétt að togar-
inn sé næst aflahæstur, heldur
kom hann með næst mesta afla-
verðmæti ísfisktogara landsins á
land. Einnig var sagt að „gamla“
Guðbjörg IS, hafi verið aflahæst
en þaö er ekki rétt, heldur kom
togarinn með mesta aflaverómæti
ísfisktogara á land, samkvæmt
þeim tölum sem liggja fyrir. Þetta
Ieióréttist hér með.
ekki tapað leik á heimavelli í vet-
ur. Staðan í leikhléi var 43:22 en
lokatölur urðu 84:63.
Fyrri hálfleikur var afar hægur
og frekar illa leikinn af hálfu
beggja liða. Tindastólsmenn skor-
uðu t.a.m. ekki stig í átta mínútur í
hálfleiknum. Heimamenn náðu
fljótlega tuttugu stiga ntun og
hann hélst það sem eftir liföi.
Síðari hálfleikurinn var öllu
fjörugri en sá fyrri. Heimamenn
höfðu betur á öllum sviðum og
náðu mest 37 stiga forystu. Undir
lokin náðu Stólarnir aðeins að
klóra í bakkann og minnka mun-
inn í 21 stig.
Herbert Arnarson var bestur í
liði IR og skoraói 25 stig, Eiríkur
Onundarson gerói 17 og Jón Örn
16 stig. I liði Stólanna var Amar
Kárason einna skástur, gerði 13
stig. Páll Kolbeinsson lék nánast
ekkert með og lét hina ungu og
efnilegu leikmenn sína um hlutina
aö þessu sinni. SV
, Leiðrétting:
Islandsmeistar-
arnir voru 204
I frétt Dags sl. þriöjudag um út-
hlutun úr Afreks- og styrktarsjóði
Iþrótta- og tómstundaráðs Akur-
eyrar, var sagt að 130 einstakling-
ar úr hinum ýmsu greinum hefðu
unnið Islandsmeistaratitla á árinu
1994 og fengið minnispening því
til staðfestingar. Þetta er víst ekki
alveg rétt, því samkvæmt upplýs-
ingum frá skrifstofu íþróttafull-
trúa, voru þeir alls 204. Þetta leiö-
réttist hér með og eru hlutaðeig-
andi beðnir velvirðingar á þessurn
mistökum.
Sigurdís Harpa sýnir
Miðvikudag og fimmtudag, 12. og 13. janúar, ætlum
við að byrja með hin vinsælu fitubrennslunámskeið
fyrir byrjendur og framhald.
♦ Ótakmörkuð mæting (3 fastir tímar í viku)
♦ 3 fitumælingar og sm. mælingar
♦ Fyrirlestur með næringarfræðingi
♦ Hollar mataruppskriftir
♦ Haldnar verða matardagbækur
♦ Mikið aðhald
♦ Persónuleg ráðgjöf o. fl.
Frábær námskeið sem skilað hafa miklum árangri.
Er ekki komið að þér?
Nánari uppl.
og skráning
í síma 26211.
Ný tafla tekur
gildi 9. janúar
1995.
Greiðslukortaþjónusta
PÚLS 180
“v ]r
I ý ■
lai
HEILSURÆKT
KA-heimilinu • Sími 96-26211
á Kaffi Karólínu
I dag, laugardaginn sjöunda janú-
ar, verður skipt urn myndir á
veggjum Kaffi Karólínu í Grófar-
gili á Akureyri. Þar mun Sigurdís
Harpa Amarsdóttir hengja upp ný
málverk sem hún nefnir Himinn
og jörð.
Sigurdís fæddist í Vestmanna-
eyjum árið 1964 og lauk námi við
málaradeild Myndlistaskólans á
Akureyri 1994. Þetta er hennar
fyrsta sýning.
AKUREYRARBÆR
Leikskólakennarar
Þroskaþjálfar
Leikskóladeild Akureyrarbæjar óskar eftir aö
ráða leikskólakennara eða þroskaþjálfa í stuðn-
ingsstöður með fötluðum börnum á skóladag-
heimilinum Brekkukoti og Hamarkoti frá 1.
febrúar nk.
Reynsla af umönnun fatlaðra barna mjög æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
Brekkukots í síma 24779 og forstöðumaður Hamar-
kots í síma 11830.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur-
eyrarbæjar eóa Launanefndar sveitarfélaga og Fé-
lags íslenskra leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um kaup og kjör gefur starfs-
mannastjóri Akureyrarbæjar í síma 21000.
Umsóknareyóublöó fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar að Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1995.
Leikskóladeild Akureyrarbæjar.
TVOFAIDUR
1. VINNINGUR
Landsleikurinn okkar!
HÁÚTT LJÓS